Morgunblaðið - 29.08.2008, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 29.08.2008, Qupperneq 22
22 FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN NÚ eru skólar að hefjast og í fjölmiðlum er lögð rík áhersla á ör- yggi skólabarna í um- ferðinni og er það vel. En börnin eru líka á annarri leið. Hún ligg- ur um skólakerfið og út í framhaldsnám og störf. Ýmislegt bendir til að við gætum gert miklu betur til að tryggja öryggi ungs fólks á þeirri leið svo það fælist ekki frá námi, heldur sjái að það þjónar tilgangi fyrir það sjálft að nýta bæði framboð skólakerfisins og eigin hæfileika þeim og okkur hinum til góðs. Helstu vísbendingarnar sem við höfum um hindranir á götum skólakerfisins eru tölur um gríðarlega mikið brottfall úr framhaldsskólum. Önnur vísbend- ing er að eftir því sem næst verður komist fær um helmingur grunn- skólanema enga náms- og starfs- fræðslu þrátt fyrir að rannsóknir hafi sýnt að hún beri árangur, þ.e. þeir nemendur sem hafa verið í skipulegri náms- og starfsfræðslu í grunn- eða framhaldsskóla eru betur búnir undir námsval þegar kemur að stórum gatnamótum skólakerfisins, þ.e. við lok grunnskóla eða fram- haldsskóla. Brúarsmíði Erlendis er náms- og starfsráð- gjöfinni (náms- og starfsfræðsla er einn þáttur hennar) oft líkt við brú- arsmíði. Er þá annars vegar átt við að brúa vel bilið á milli skólastiga, en einnig að brúa bilið á milli hins ein- staka nemanda (áhuga hans og hæfni) og þeirra möguleika sem bjóðast í námi og störfum. Þar er gjarnan fyrsta skrefið að örva nem- andann til dáða, þ.e. að sýna honum margbreytileikann í heimi starfanna, kynna hin ólíku hlutverk sem full- orðið fólk hefur á hendi, vinna á for- dómum, s.s. um karla- og kvenna- störf og þar fram eftir götunum. Náms- og starfsráðgjöf fylgir einnig þjálfun í að skoða sig sjálfan, þar á meðal hvernig sá eða sú sem í hlut á tekur ákvarð- anir. Hver er staðan? Í sumar gekk í gildi ný löggjöf um bæði grunn- og framhalds- skóla. Í lögum um grunnskóla (nr. 91/ 2008, 13. gr.) segir um náms- og starfsráðgjöf: Nemendur eiga rétt á að njóta náms- og starfsráðgjafar í grunnskóla af til þess bærum sérfræðingum. Sama ákvæði er að finna í lögum um fram- haldsskóla (nr. 92/2008, 37. gr.) með viðbót um að árangur skuli metinn: Í skólanámskrá framhaldsskóla skal markmiðum og stefnu skóla varð- andi ráðgjöf lýst og þar skal einnig koma fram hvernig skóli rækir skyldur sínar og hlutverk á þessu sviði. Þessi lagasetning hefur alla burði til að vera tímamótaverk, en að mínu mati skiptir máli hverjar fram- kvæmdirnar verða við þá brúarsmíði sem þarna er boðuð. Brúarframkvæmdir og vegvísagerð Það er skemmst frá því að segja að ef við ætlum að ná markmiðum ofan- greindra lagaákvæða þarf að koma upp bæði vegvísum og brúm um námsleiðakerfi menntastofnananna. Tökum fyrst dæmi um vegvísi. Okk- ur vantar ítarlegt og hlutlaust upp- lýsingakerfi um nám og störf. Þetta kerfi ætti fyrst og fremst að vera á netinu og greiða götu að upplýs- ingum um nám og störf. Erlendis þykja slík upplýsingakerfi sjálfsögð og óhætt er að segja að hér væri um einkar arðbæra fjárfestingu að ræða. Dæmi um brúargerð er námsefni í náms- og starfsfræðslu. Slíkt náms- efni kom síðast út snemma á 10. ára- tug síðustu aldar og svo í styttri gerð á vef Námsgagnastofnunar fyrir fáum árum. Öflug námsefnisgerð er forsenda ef við ætlum að byggja brýr í skólakerfinu. Námsefnisflóran hjá okkur er ótrúlega rýr í samanburði við nágrannalöndin, þar sem bækur og annað stoðefni skiptir tugum ef ekki hundruðum. Annað dæmi um brúarsmíði er námskrá um náms- og starfsráðgjöf og náms- og starfs- fræðslu. Þar væri skilgreint hverjir áfangarnir eru að markmiðum um að allir nemendur hafi rétt á að njóta náms- og starfsráðgjafar. Stjórnvöld ráða ferðinni Ofangreind mannvirki eru þau helstu sem brýnt er að reisa. Fyrsta skrefið í þessum framkvæmdum ætti að mínu mati að vera úttekt á því hvað skólar landsins eru nú þegar að gera til að búa unga fólkið undir næstu skref á náms- og starfsferl- inum. Nefnd á vegum menntamála- ráðuneytisins hefur nýlega skilað áliti til menntamálaráðherra vegna ályktunar um eflingu náms- og starfsráðgjafar á Alþingi. Þar er lögð áhersla á að við tryggjum gæði náms- og starfsráðgjafar í skólum með því að skoða fyrst hvar við stöndum nú og ákveða næstu fram- kvæmdaþætti í kjölfarið. Ég tel að æskilegt væri að koma á fót rann- sóknastofnun við Háskóla Íslands sem hefði umsjón með gerð matsút- tekta á framkvæmd náms- og starfs- ráðgjafar við nemendur. Þar færum við að fordæmi Finna sem standa óefað í fararbroddi á þessu sviði sem öðrum í skólamálum. Allt er þetta vel gerlegt, en því er eins farið um þessa brúargerð og á vegum landsins að það eru ráðamennirnir sem taka ákvarðanir um hvar og hvenær skuli byggðar brýr. Sköpum örugga umferð um skólakerfið Guðbjörg Vil- hjálmsdóttir skrifar um skólakerfið og framhaldsnám ungs fólks »Ég tel að æskilegt væri að koma á fót rannsóknastofnun við Háskóla Íslands sem hefði umsjón með gerð matsúttekta á fram- kvæmd náms- og starfs- ráðgjafar við nem- endur. Guðbjörg Vilhjálmsdóttir Höfundur er dósent í náms- og starfsráðgjöf við félags- og mannvísindadeild Háskóla Íslands. KOMDU sæll, Matthías. Dagbækur þínar eru um þessar mundir töluvert í umræðunni og greinilega hafa margir orðið til þess að lesa þær. Til vitnis um það er að mér hafa borist fregnir úr fleiri en einni átt um að þar sé að finna um mig umfjöllun í færslum ársins 1998. Ég fór því að forvitnast og fann skrif um mig á nokkrum stöðum. Mér er sama þó að um mig og mín verk falli dómar og hirði yfirleitt ekki um að svara þeim. En á einum stað í þessum færslum er spunnin upp um mig slík lygaþvæla að ég get ekki annað en beðið þig að taka hana af netinu og helst strika yfir hana í dagbók- inni. Ég vil síður að hún verði heimfærð upp á mig einhvern tíma seinna. Þú hefur söguna eftir Jennu Jensdóttur rithöfundi sem ég hef aldrei átt í neinum illdeilum við og þekki raunar. Sagan gengur út á að ég hafi kennt stúlku að nafni Jóhanna Eiríksdóttur í Ármúlaskóla, hún hafi skrifað ritgerð upp á 9 um ljóð þín en ég gefið henni 4 í ein- kunn. Síðan segir í dag- bókarfærslunni: „Jóhanna bar sig upp undan þessu við Jennu, fyrrverandi kennara sinn, en hún tók málið upp við Kristján J. Gunnars- son, fyrrum fræðslu- málastjóra, sem síðar hefur fengist við skáldskap og ort nokkrar ljóða- bækur, auk skáldsögu; góður mað- ur og gegn. Hann trúði vart því sem hann heyrði, hafði samband við Magnús skólastjóra Ármúla- skóla og kallaði inn allar ritgerð- irnar svo unnt yrði að fara yfir þær og bera saman. Þá kom í ljós að rit- gerð Jóhönnu var upp á 9. Það kom engum á óvart sem til þekktu. En upp úr þessu var Guðjóni Friðriks- syni sagt upp og hrökklaðist hann þá til Ísafjarðar. Þar gerði hann sér lítið fyrir og hóf ofsóknir á hendur Jennu og Hreiðari sem barnabókahöfundum. Það voru hefndirnar.“ Síðan fylgir hæfileg útlegging þín á innræti mínu og pólitískum skoðunum en slíkt læt ég mér í léttu rúmi liggja. Um þetta er í stuttu máli það að segja að ég hef aldrei kennt Jóhönnu Eiríksdóttur, aldrei kennt í Ármúlaskóla, aldrei svo ég muni í kennaratíð minni fengið ritgerð í hendur um ljóð Matthíasar Johannessen, aldrei verið kærður fyrir einkunnagjöf, aldrei verið sagt upp störfum við neinn skóla, þaðan af síður hrökklast til Ísa- fjarðar og aldrei ofsótt Jennu og Hreiðar. Ég var hins vegar kennari í 3 ár við Menntaskólann á Ísafirði af fúsum og frjálsum vilja en það er önnur saga. Þú gerir þetta fyrir mig. Kær kveðja. Orðsending til Matthíasar Johannessen Guðjón Friðriksson segir rangt með farið í dagbókum Matthíasar »En á einum stað í þessum færslum er spunnin upp um mig slík lygaþvæla að ég get ekki annað en beðið þig að taka hana af netinu. Guðjón Friðriksson Höfundur er sagnfræðingur. V i n n i n g a s k r á 17. útdráttur 28. ágúst 2008 A ð a l v i n n i n g u r Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur) 7 1 3 5 4 V i n n i n g u r Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur 2 8 0 1 0 2 9 2 2 3 4 0 1 6 4 5 5 1 9 4 Vi n n i n g u r Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur) 6132 16739 33430 53002 64673 76381 10974 33374 48251 54092 67958 79008 V i n n i n g u r Kr. 12.000 Kr. 24.000 (tvöfaldur) 7 7 1 1 4 2 8 4 2 4 2 6 1 3 4 4 4 4 4 3 6 0 4 5 2 6 8 5 6 6 0 1 4 7 2 2 3 4 1 6 4 7 1 4 6 6 9 2 6 2 1 9 3 4 8 8 6 4 6 3 0 4 5 5 3 4 9 6 6 0 9 6 7 3 7 9 3 2 7 9 9 1 6 0 3 0 2 7 5 3 2 3 5 5 8 0 4 6 7 5 4 5 6 1 0 5 6 6 2 0 1 7 3 9 6 9 3 4 6 2 1 6 4 8 4 2 8 6 9 9 3 6 8 2 8 4 6 9 4 1 5 6 5 1 2 6 6 3 8 8 7 4 4 9 3 5 0 9 2 1 8 3 7 2 2 9 9 1 9 3 7 2 8 0 4 7 4 0 3 5 7 5 9 2 6 6 6 7 0 7 5 4 4 2 8 0 2 6 1 8 7 1 8 3 0 5 4 9 3 7 2 9 8 4 8 3 7 6 5 9 8 1 1 6 6 8 0 4 7 6 3 0 0 8 6 7 7 2 0 7 1 7 3 0 8 0 3 3 7 3 4 0 4 8 7 5 9 6 0 8 1 5 6 7 3 5 0 7 6 5 8 3 8 9 0 5 2 2 8 1 4 3 1 0 7 6 3 7 9 9 8 4 8 7 8 0 6 1 4 5 6 6 8 0 2 9 7 8 9 9 8 9 8 5 7 2 2 9 4 8 3 1 2 4 4 3 8 1 0 2 5 0 7 2 4 6 1 5 1 0 6 8 4 5 7 7 9 3 3 0 1 0 0 7 5 2 3 0 6 2 3 2 5 8 5 3 8 6 8 2 5 1 2 7 1 6 2 4 1 4 6 8 9 6 5 1 1 4 8 7 2 3 2 9 1 3 3 4 1 0 3 9 1 2 6 5 1 2 7 5 6 3 7 3 6 6 9 5 1 9 1 1 7 9 8 2 3 7 5 3 3 3 4 1 3 3 9 2 4 1 5 1 8 8 0 6 3 8 3 9 6 9 7 7 9 1 3 5 0 1 2 3 8 2 2 3 4 3 3 2 4 1 5 5 9 5 1 8 9 2 6 4 4 5 2 7 0 0 1 7 V i n n i n g u r Kr. 7.000 Kr. 14.000 (tvöfaldur) 60 7897 18062 25882 35934 43946 53537 61215 65948 73991 105 7908 18100 25888 35987 44076 53719 61226 66034 74108 333 7958 18288 26050 36032 44255 53849 61302 66245 74354 457 8359 19253 26066 36269 44616 53968 61348 66301 74498 499 8594 19339 26142 36716 45120 54252 61458 66520 74604 527 8749 20078 26482 37033 45160 54479 61577 66825 74873 706 8945 20133 26733 37236 45549 54626 61699 66983 74884 1892 9184 20228 26747 37639 45588 54927 62106 67318 75085 1893 9253 20281 27127 37978 45589 55418 62169 67414 75255 2044 9464 20440 27221 38179 45607 55564 62219 67746 75257 2051 9539 20525 27287 38235 45672 55722 62706 68236 75591 2173 9663 20662 27509 38580 45920 55862 62777 68548 75626 2897 9698 20899 27929 38647 46243 55913 62916 69234 75675 2936 9963 21026 28208 39008 46614 55980 63169 69554 75846 3097 10181 21320 28227 39020 46777 55990 63224 69581 75918 3130 10248 21515 28510 39216 47016 56371 63275 69610 75948 3437 10720 21556 28760 39272 47301 56470 63279 70006 76295 3559 11000 21682 29090 39701 47855 56514 63318 70029 76517 3733 11612 21958 29170 39873 48198 56685 63534 70268 76574 3888 12186 22046 29883 39899 48767 56771 63591 70614 76624 4055 12581 22331 30610 40053 49732 56877 63594 70821 76667 4170 12609 22379 30830 40059 50104 57018 63670 71533 77115 4204 13144 22465 31280 40123 50323 57373 63675 71600 77365 4506 13220 22590 31670 40130 50377 57916 63701 71612 77458 4696 14634 22771 33289 40367 50385 58127 64115 71836 77554 4806 14637 22775 33599 40505 50501 58401 64211 71868 77645 5126 15194 22863 33635 40949 50520 58784 64226 72182 77749 5228 15414 22905 33802 41186 51083 58788 64437 72227 77847 5492 16032 23055 33867 41452 51242 58979 64684 72309 77910 5637 16035 23331 33951 41574 51278 59008 64702 72758 77959 5661 16042 23358 34163 41773 51689 60068 64829 72787 78077 5739 16109 23787 34258 42094 51823 60088 64989 72836 78141 6082 16640 23806 34342 42209 51984 60392 65329 72953 78412 6126 16708 23833 34493 42593 52155 60426 65369 73389 78559 6524 16782 24341 34575 42684 52298 60674 65506 73549 78592 6613 16828 24453 34587 42852 52324 60715 65652 73709 78620 7100 17281 24832 34627 42866 52510 60788 65659 73818 78948 7528 17300 25000 34824 43094 52537 60882 65811 73940 79266 7851 17471 25296 35338 43352 52781 61012 65838 73963 79394 7864 17947 25447 35381 43874 53159 61088 65936 73990 79639 Næstu útdrættir fara fram 4. sept, 11. sept, 18. sept, 25. sept & 2. okt 2008 Heimasíða á Interneti: www.das.is MORGUNBLAÐIÐ birtir alla út- gáfudaga aðsendar umræðugreinar frá lesendum. Blaðið áskilur sér rétt til að hafna greinum, stytta texta í samráði við höfunda og ákveða hvort grein birtist í umræðunni, í bréfum til blaðsins eða á vefnum mbl.is. Blaðið birtir ekki greinar, sem eru skrifaðar fyrst og fremst til að kynna starfsemi einstakra stofn- ana, fyrirtækja eða samtaka eða til að kynna viðburði, svo sem fundi og ráðstefnur. Innsendikerfið Þeir sem þurfa að senda Morgun- blaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðs- ins. Formið er undir liðnum „Senda inn efni“ ofarlega á forsíðu mbl.is. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Ekki er lengur tekið við greinum sem sendar eru í tölvupósti. Í fyrsta skipti sem formið er not- að þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið, en næst þegar kerfið er notað er nóg að slá inn netfang og lykilorð og er þá notandasvæðið virkt. Ekki er hægt að senda inn lengri grein en sem nemur þeirri há- markslengd sem gefin er upp fyrir hvern efnisþátt en boðið er upp á birtingu lengri greina á vefnum. Nánari upplýsingar gefur starfs- fólk greinadeildar. Móttaka aðsendra greina Vestfirsku kjarakaupin 101 ný vestfirsk þjóðsaga Eftir Gísla Hjartarson Öll 8 heftin sem út komu á 7.500 kr. Frí heimsending. Upp með Vestfirði! Pantanir: 456 8181 • jons@snerpa.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.