Morgunblaðið - 29.08.2008, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 29.08.2008, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 2008 25 börn og ástvinir brostu í gegnum tárvot augun á þessari sorgar- og kveðjustund. Guðný í Krossnesi var kraftmikil og dugleg kona. Hún vann í um árin bæði að búskap og utan heimilis, ásamt því að koma upp stórum barnahóp. Hún var fé- lagslynd, gestrisin, hjálpsöm og ör- lát. Ég minnist margra góðra stunda með fjölskyldunni í Kross- nesi og einnig kærkominna heim- sókna Guðnýjar og Magnúsar til okkar í Norðtungu. Guðný bar mikla umhyggju fyrir fjölskyldu og vinum. Hver einstaklingur í fjöl- skyldunni var einstakur. Eftirvænt- ing barnabarnanna var mikil þegar hittast átti í Krossnesi. Veit ég að þau munu sakna þess að njóta ekki nærveru ömmu sinnar á komandi hátíðisdögum. Guðný var mikið fyrir tónlist og virkaði hvetjandi á syni mína með áhuga sínum. Ég hugsa til Guðnýjar með þakklæti fyrir virð- ingu og hlýhug alla tíð. Hún var jafningi og félagi. Það urðu örlög Guðnýjar í Krossnesi, þessarar dug- miklu konu að greinast með illvígan, ólæknandi sjúkdóm. Hún tók á móti erfiðleikunum með reisn. Hennar einlæga ósk var að dveljast sem lengst heima í Krossnesi. Magnús, þú gerðir það sem þurfti til að Guðný gæti verið heima sem lengst með aðstoð og stuðningi fjölskyld- unnar. Það kom berlega í ljós hvað Guðný átti marga trausta og góða vini sem aðstoðuðu og heimsóttu hana á þessum erfiðum tímum. Guðný, ég veit að þú munt umvefja dóttur mína og nöfnu þína um- hyggju og ást þegar þið hittist að handan. Megi minning þín lifa. Þér Magnús, öllum afkomendum og ást- vinum votta ég innilegustu samúð. Magnús Skúlason.  Fleiri minningargreinar um Guð- nýju Grendal Magnúsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. rún bauð telpunni upp á berjasaft en henni fannst saftin vond og fúlsaði við. Amma kvað þetta örg- ustu ókurteisi og skipaði telpunni að drekka og hún hlýddi. Skildi svo amma ekkert í því að hún þurfti að styðja við dóttur sína á leiðinni heim og svo steinsofnaði hún við heimkomuna. Skömmu síð- ar hringir frænkan, hafði þá smakkað sjálf á saftinni og fundið að hún var rammáfeng! Ögn var amma mýkri á svip þegar telpan vaknaði … Við heimsóttum „ömmu í gili“ oft þegar ég var drengur. Í minn- ingunni er daufur dynur frá vél- unum á neðri hæðinni, létt tónlist- in ómaði frá kassettutækinu í stofunni og ilmur af nýbakaðri eplaköku barst úr eldhúsinu. Sundum fékk ég að gista og hlakk- aði þá alltaf til þótt kirkjuklukk- urnar í Akureyrarkirkju eða mót- orhjól æðandi upp og niður gilið héldu fyrir mér vöku eitthvað fram á nótt. Á sumrin lék maður sér oft á planinu milli hússins og kirkju- brekkunnar, þar voru stærstu randaflugur á Íslandi. Og skemmtilegt var að fá far í „ömmubíl“, forláta bjöllu sem amma keyrði í mörg ár. Mér varð snemma ljóst hversu sterkur persónuleiki amma mín var. Hún gafst ekki upp þótt á móti blési, var oft hörð í horn að taka og kvartaði aldrei. Hún vildi bjarga sér sjálf og hvorki þiggja hjálp né samúð. En hún setti fjöl- skylduna í fyrsta sæti, var alltaf mætt til aðstoðar meðan heilsan leyfði, fylgdist vel með afkomend- um sínum og gaf þeim ráð þegar leitað var til hennar. Hún hafði ákveðnar skoðanir og sagði þær umbúðalaust og þótt manni fyndist harkan stundum vera mikil fann maður alltaf væntumþykjuna sem lá á bak við. Eitt af því sem hún gaf mér í veganesti var, að hversu gamall sem maður verður, verður maður aldrei of gamall til að hugsa vel um sína nánustu. Ingimar Guðmundsson.  Fleiri minningargreinar um Helgu Ingimarsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Pála ÞrúðurJakobsdóttir fæddist á Hunku- bökkum í V- Skaftafellssýslu 25. apríl 1948. Hún lést á krabba- meinsdeild Land- spítalans mánudag- inn 25. ágúst síðastliðinn. For- eldrar Pálu voru Jakob Kristinn Þorvarðarson, f. 16. des. 1913, d. 19. okt. 1995 og Þórey Magnúsdóttir, f. 13. jan. 1918, d. 20. ágúst 1995. Systkini Pálu eru Ester, f. 21. mars 1944, Íris Mjöll, f. 28. júlí 1979, í sam- búð með Magnúsi Baldurssyni, börn hans eru Jón Marel og Ída Bjarklind. Pála og Jakob bjuggu á Sel- fossi, en slitu samvistum 1974 og flutti Pála þá til Reykjavíkur og hóf nám við Sjúkraliðaskóla Ís- lands. Hún útskrifaðist þaðan 1976. Seinna fór hún í sérnám í geðsjúkdómum og starfaði m.a. í mörg ár á geðdeild Borgarspít- alans. Hennar ævistarf tengdist heilbrigðiskerfinu, hún starfaði á Sjúkrahúsi Suðurlands, Land- spítalanum og Borgarspítala – geðdeild. Síðustu 20 árin starf- aði hún hjá Félagsþjónustunni í Reykjavík og síðast sem deild- arstjóri heimaþjónustu í Árskóg- um. Hún sat í stjórn Sjúkraliða- félagsins á fyrstu árum þess og var þar ritari. Útför Pálu fer fram frá Sel- fosskirkju í dag og hefst athöfn- in klukkan 13. gift Karli M. Zop- honíassyni og Magn- ús Eiríkur, f. 5. ágúst 1954, kvæntur Kristínu Snorra- dóttur. Pála giftist Jak- obi Skúlasyni, synir þeirra eru: Skúli, f. 5. ágúst 1967 og Kristinn, f. 11. júní 1969, kvæntur Hildi Birgisdóttur, börn þeirra eru Jakob og Karen. Seinni maður Pálu var Valdimar Þórðarson múrarameistari, f. 26. maí 1944, d. 1. maí 2005. Dóttir þeirra er Elsku mamma mín. Nú er komið að kveðjustund, stund sem kemur alltof fljótt. Við sem átt- um eftir að gera svo margt og ræða svo margt. En það er ekki spurt um stað eða stund þegar kemur að hinstu kveðju. Það er auðvelt að skrifa heila bók um allt sem þú hefur upplifað en þá bók ætla ég að eiga í mínu hjarta – bókina um þig. Ég get ekki lýst því hve heppinn ég var að eiga þig sem móður, allt sem þú kenndir mér um lífið og tilveruna er eitt það dýrmæt- asta sem mér hefur hlotnast. Það góða við þig var að þú hafðir ákveðnar skoðanir og var mikið í mun að hafa rétt við, vorum við ekki alltaf sammála, en þó komumst við oftast að samkomulagi sem báðum líkaði. Þú varst kjarnakona, það er ekki allra að berjast í námi með vinnu og vera með tvo strákpjakka á arminum eins og þú gerðir þegar við fluttum suður til Reykjavíkur eftir að þið pabbi skilduð, en það gerðir þú auð- veldlega með öflugu skipulagi, þraut- seigju og hjálpsömum ættingjum. Það var blendin tilfinning okkar bræðra þegar þú kynntir til sögunnar hann Valdimar, en sú tilfinning breyttist strax eftir fyrstu kynni, Valdimar var einstakur og algjör snillingur. Mikið rosalega varst þú heppin kona að eiga Valdimar sem lífsförunaut. Hann kom hratt inn í okkar líf og var okkur sem kær faðir. 1979 var merkisár þegar hún Íris Mjöll kom í heiminn, lítil prinsessa var fædd, litla systir. Þið voruð alveg ekta saman, móðir og dóttir, mjög samrýndar, alltaf. Það var mikið áfall fyrir okkur þegar Valdimar féll frá og ekki síst hjá þér. En þú varst alveg ótrúlega jákvæð og það var frábært hjá þér þegar þú ákvaðst að flytja bú- ferlum aftur til Selfoss. En það var allt mjög skiljanlegt, þú vildir komast úr öngþveiti stórborgarinnar og flytja nær Írisi, þú gast varla flutt nær henni, í næstu götu. Í nýja fal- lega íbúð, sem þú varst svo stolt af að hafa eignast. Það var þér ákaflega dýrmætt að umgangast Írisi og þið voruð miklar vinkonur. En tæplega þremur árum eftir að Valdimar lést greindist þú með krabbamein sem var mjög mikið áfall fyrir alla í fjöl- skyldunni. En þú varst nú ekkert að fara að kveðja heldur tilbúin að berj- ast eins og þú hafðir reyndar gert alla þína ævi, varst alltaf klár í berjast fyrir því góða. En því miður tapaðist þessi orrusta. Elsku mamma, minning þín mun aldrei hverfa og allt það sem þú kenndir okkur mun lifa um ókomna tíð. Lokaorðin þín til mín lifa. „Njóttu á meðan þú getur.“ Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Vald. Briem.) Þinn sonur, Kristinn. Elsku Palla. Nú ert þú farin frá okkur, allt of snemma. Hetjulegri baráttu þinni við illvíg- an sjúkdóm er lokið og ég veit að þér líður betur núna. Ég þakka allar þær góðu stundir sem við áttum saman. Eins og þú sagðir alltaf við börnin okkar, Guð geymi þig og englarnir veri með þér. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Þín tengdadóttir, Hildur. Þegar ég hugsa til þín fyllist hugur minn af fallegum hlutum. Þú varst mér alltaf innan handar þegar ég þurfti. Þú varst ekki aðeins móðir mín heldur varstu mín besta vinkona. Ofarlega í huga mínum eru allar þær yndislegu stundir sem við áttum yfir kaffibollunum og ræddum lífið og allt sem það inniheldur. Þú varst virki- lega frábær kararkter. Þú hafðir mjög ákveðnar skoðanir og stóðst ávallt við þær. Þegar þú beist eitt- hvað í þig var ekki nokkur leið að hagga þér. Þú lagðir mér lífsreglurn- ar og kenndir mér á lífið. Við fengum að upplifa mikla gleðitíma saman og þegar ég hugsa um gleði fer hugur minn í sumarbústað ykkar pabba fyr- ir austan fjall. Þar áttir þú þér para- dísina þína og þér fannst fátt eins gott og að komast þangað eftir er- ilsama viku. Margar góðar og ynd- islegar stundir áttum við þar öll sam- an. Ég trúi því að pabbi hafi þurft að fara á undan þér yfir móðuna miklu til að undirbúa vel komu þína. Hann vissi svo vel hversu vandvirk þú varst og algjör smekkmanneskja. Ég treysti því að þið séuð orðin sameinuð aftur og farin að slá á létta strengi eins og ykkur einum var lagið. Þrátt fyrir það hversu ólík þið voruð þá vor- uð þið ein falleg og undursamleg heild. Þið gátuð aldrei hvort af öðru séð. Nú held ég að þú sért í kringum okkur fjölskylduna, vakir ásamt hin- um englunum yfir okkur og haldir áfram að leiða okkur á réttar brautir í lífinu eins og þér fórst svo vel úr hendi. Þú kenndir mér svo margt. Í gegn- um okkar tíð standa orð þín upp úr sem eiga eftir að fylgja mér um ókomna tíð. Ef á móti blés sagðir þú við mig: „Mjalla mín, við stöndum á meðan stætt er.“ Einnig ef erfiðleikar brustu á voru orð þín: „Það er aldrei meira á mann lagt en maður þolir.“ Þessi orð hafa fylgt mér í gegnum líf- ið og létt mikið undir, því ég trúi þessu svo sannarlega. Tilhugsunin um að geta ekki hitt þig og átt með þér fleiri góðar stundir er mjög erfið og mikill söknuður vaknar í hjarta mínu. Það sem enginn tekur frá mér eru minningarnar sem ég á um þig. Þú varst manneskja með mjög stórt hjarta og gafst meira af þér en þú þáðir. Síðustu mánuðir hafa verið ansi þungbærir. Veikindi þín komu sem þruma úr heiðskíru lofti. Mamma, konan sem hafði sína tíð varla leitað til heimilislæknis, var orðin veik og þrátt fyrir óbilandi hug og vilja tókst þetta ekki. Ég er þó þakklát fyrir að hafa fengið að eyða með þér þessum mánuðum. Vikan okkar sem við vorum heima hjá þér nýverið er mér algjörlega ómetanleg. Við fengum tækifæri til yndislegrar samveru. Ég kem til með að fara eftir orðum þínum og fylgja hjartatilfinn- ingunni sem við ræddum um. Þú varst baráttukona út í gegn og áttir erfitt með að kveðja okkur börnin þín en elsku mamma mín, við ætlum að styðja og vera hvert öðru ávallt innan handar. Við pössum upp á hvert ann- að, enda kenndir þú okkur mikilvægi þess að eiga hvert annað. Ég er sann- færð um að við eigum eftir að hittast aftur. Þú undirbýrð nú komu okkar hinna Hvíl í friði elsku mamma mín. Ég mun ávallt elska þig og sakna þín sárt. Íris Mjöll Valdimarsdóttir. Eitt vitum við að ekkert líf er án dauða og enginn dauði án lífs. Þessu sólríka sumri hefur þú mátt eyða á sjúkrahúsi í erfiðum lyfjameð- ferðum, þar sem reynt var að frelsa þig úr viðjum krabbameinsins sem greindist fyrir 5 mánuðum. Þrátt fyrir hetjulega baráttu, sem í fyrstu gaf smá von, birtist óvættur- inn aftur af enn meira afli, svo ekkert varð við ráðið. Ég var 4 ára þegar þú fæddist, dekrað einbirni, sem kærði sig ekkert um að þurfa að deila athygli foreldr- anna með öðrum, og þegar ég fékk fyrst að sjá þig og mamma spurði hvort litla systir væri ekki falleg, var svarið „nei“. Þótt 60 ár séu liðin er myndin enn skýr í hugskotinu. Í uppvextinum vorum við ekki samrýndar, kannski vegna aldurs- munarins eða vegna þess hvað við vorum ólíkar. Þó fannst mér ég bera ábyrgð á litlu systur og að ég ætti að stjórna ferðinni, en þú varst á annarri skoðun, þrjósk og lést engan ráðskast með þig, enda fædd í nautsmerkinu. Eftir að þú fluttir í bæinn og hófst nám í sjúkraliðaskólanum varð sam- gangur okkar meiri. Ég var heima með lítið barn og það var auðvitað eðlilegt að drengirnir þínir, Skúli sem þá var að hefja skólagöngu, og Krist- inn sem var bara 3 ára væru hjá mér á daginn meðan þú værir í skólanum. Þú gerðir mér svo sama greiða með mín börn og hlökkuðu þau alltaf til að vera hjá þér. Á þessum árum styrkt- ist vináttan og mörg atvik vekja hlýj- ar minningar þegar til baka er horft. Á gleðistundum var gripið í gítar- inn og sungið, þú söngst auðvitað milliröddina. Settum Fats Domino eða Elvis Presley á fónin, tjúttuðum og tvistuðum. En í 40 ára afmæli mínu dró til tíð- inda. Í veislunni var Valdimar Þórð- arson, bridgefélagi okkar, ljúfur, kát- ur og söngelskur piparsveinn, sem söng Sveinka káta og Ramónu með þvílíkum stæl að margir tenórar gætu verið fullsæmdir af. Þarna hitt- ust tveir söngfuglar sem fljótlega byggðu sér hreiður og hófu búskap. Eftir 3 ára sambúð fæddist þeim lítil prinsessa, hún Íris Mjöll. En lífið fór ekki alltaf mildum höndum um systur mína, eftir að hafa siglt gegnum ýmsa brimskafla, þar sem ekki alltaf sást til lands, þurfti Valdimar að fara í hjartauppskurð og var lengi frá vinnu. Þetta voru erfiðir tímar. Þau misstu húsið og fluttu í leiguíbúð, en með þrautseigju tókst þeim að festa kaup á íbúð á ný og höfðu búið í nokk- ur ár þegar sorgin knúði dyra. 1. maí fyrir 3 árum varð Valdimar bráð- kvaddur í sumarbústaðnum þeirra austur í Grímsnesi. Eftir andlát Valdimars fluttir þú á Selfoss, keyptir íbúð í nágrenni við Írisi dóttur þína, sem öðrum fremur hefur verið þér ómetanleg stoð í veik- indunum. Á dimmum febrúarmorgni á leið til vinnu lentir þú í alvarlegu bílslysi. Í stað þess að fara í endurhæfingu dreifst þú þig eins fljótt og þú gast í vinnu aftur. Og ári seinna þegar fyrstu merki um að eitthvað slæmt væri í gangi, tengdir þú það alltaf af- leiðingum slyssins og leitaðir ekki til læknis fyrr en of seint. Meinið hafði fengið of rúman tíma. Þú varst gestrisin, gjafmild og veittir af rausn, og til að gleðja þig í tilefni af 60 ára afmæli þínu sl. vor, ætluðum við til Tenerife eftir rúman mánuð. Þú verður með mér þar í and- anum. Elsku systir, það er komið að kveðjustund. Megi andi þinn njóta frelsisins og svífa glaður í faðm ást- vina þinna sem við landamærin bíða. Ástarþakkir fyrir allt. Fjölskyldu og vinum votta ég inni- lega samúð. Þín systir Esther. Pála Þrúður Jakobsdóttir Elsku amma okkar, við sökn- um þín mjög mikið. Við mun- um eftir góðum stundum með þér í sumarbústaðnum, þegar við spjölluðum saman og spiluðum spil. Það voru góðar stundir sem lifa lengi í minningu okkar. Elsku amma, við trúum því að nú líði þér betur, komin til Valdimars afa. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mér að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson.) Þín ömmubörn, Jakob og Karen. HINSTA KVEÐJA  Fleiri minningargreinar um Pálu Þrúði Jakobsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Móðir okkar, systir, mágkona, frænka og vinkona, MARGRÉT GEIRDAL SVERRISDÓTTIR, Kleppsvegi 70, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans föstudaginn 8. ágúst. Útför hefur farið fram í kyrrþey. Aðstandendur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.