Morgunblaðið - 29.08.2008, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 2008 27
✝ Ámundi ReynirGíslason fæddist
í Reykjavík 6. júlí
1924. Hann lést á
hjúkrunarheimilinu
í Holtsbúð í Garða-
bæ 20. ágúst síðast-
liðinn. Foreldrar
hans voru Gísli Sig-
urðsson, rakari í
Reykjavík og síðar
Selfossi, f. að Holti í
Ölfusi 25. desember
1896, d. 6. júní 1970,
og Sigurbjörg
Ámundadóttir hús-
móðir, f. að Kaldárholti í Holta-
hreppi í Rangárvallasýslu 6. nóv-
ember 1901, d. 11. maí 1989, þau
skildu. Systkini Ámunda eru:
Reynir, f. 6.7. 1922, d. 5.7. 1923,
Ingigerður Kristín, húsmóðir í
Reykjavík, f. 11.1. 1928, og Hulda,
húsmóðir í London, f. 2.11. 1929,
d. 16.7. 1974. Samfeðra hálfsystk-
ini Ámunda eru Regína Anna,
húsmóðir Kópavogi, f. 17.11.
1932, Björn Ingi, rakari á Sel-
fossi, f. 2.9. 1946 og Gylfi Þór
Gíslason, kennari á Selfossi, f.
20.12. 1949.
24. desember 1949 kvæntist
Ámundi Ingu Lovísu Guðmunds-
dóttur, f. 29. september 1923.
Foreldrar hennar voru Nikolína
Henrietta Katrín Þorláksdóttir, f.
9.6.1884, d. 14.11. 1959 og Guð-
mundur Guðmundsson bakari, f.
6.5.1880, d. 13.2. 1932. Ámundi og
Inga bjuggu lengst af í Kópavogi.
Börn þeirra eru: 1) Guðlaug
Anna, f. 26.1. 1947, gift Snorra
Böðvarssyni, f. 17.6. 1947. Börn
þeirra eru Elín, f. 18.2. 1970,
Inga, f. 29.12. 1972 og Þuríður, f.
15.6. 1977. 2) Sigur-
björg, f. 22.3. 1950,
d. 25.7. 2005, gift
Gunnar Þorsteins-
syni, f. 13.11. 1947.
Börn þeirra eru
Ingi Þór Hauksson,
f. 26.8. 1970, sonur
Hauks Sveinssonar,
f. 20.1. 1949, Þor-
steinn, f. 27.11.
1978, og Einar, f.
28.4. 1985. 3) Ásdís,
f. 23.7. 1952, gift
Kjartani H. Bjarna-
syni. Börn þeirra
eru Guðmundur Reynir Gunn-
laugsson, f. 24.1. 1975, sonur
Gunnlaugs Karlssonar, f. 26.9.
1946, d. 23.1. 2004, og Davíð Örn,
f. 15.9. 1990. 4) Guðmundur, f. 9.9.
1954, kvæntur Elísabetu Siemsen,
f. 26.2. 1955. Börn þeirra eru
Ólafur, f. 25.10. 1979, Sigríður, f.
25.12. 1981, Guðni, f. 30.8. 1991,
og Helga, f. 7.4. 1994. 5) Ámundi
Ingi, f. 14.9. 1961, kvæntur Hönnu
G. Daníelsdóttur, f. 4.12. 1963.
Börn þeirra eru María Lovísa, f.
8.10. 1983 og Pétur, f. 3.11. 1988.
6) Reynir, f. 21.4. 1964, kvæntur
Guðrúnu H. Sigurðardóttur, f.
14.11. 1965. Dætur þeirra eru Sig-
urdís, f. 9.6. 1990 og Særós, f.
18.5. 1994. Barnabarnabörn
Ámunda og Ingu eru tíu.
Ámundi ólst upp í Reykjavík og
gekk í Ingimarsskólann þar sem
hann lauk gagnfræðaprófi og
starfaði hann lengi sem bílstjóri
hjá Olíufélaginu og síðar sem
leigubílstjóri í Reykjavík hjá BSR.
Útför Ámunda verður gerð frá
Digraneskirkju í Kópavogi í dag
og hefst athöfnin klukkan 13.
Hann gekk hér um að góðra drengja sið,
gladdi mædda, veitti þreyttum lið.
Þeir fundu best sem voru á vegi hans
vinarþel hins drenglundaða manns.
Þó ævikjörin yrðu máski tvenn,
hann átti sættir jafnt við Guð og menn.
(Guðrún Jóhannsdóttir.)
Þín
Inga Lovísa.
Okkur systur langar til að minnast
afa okkar með nokkrum orðum.
Margar ljúfar og góðar minningar
eigum við um ykkur ömmu úr Hlíð-
arhvammi 8 í Kópavogi þar sem þið
áttuð fallegt heimili í hálfa öld. Þar
var alltaf tekið vel á móti okkur með
faðmlögum, kossum, mat, gistingu
og svo vorum við lóðsaðar inn og út
úr innkeyrslunni að hætti afa
Ámunda. Alltaf voru sundfötin tekin
með til Reykjavíkur og farið í sund
með ömmu og afa þar sem þau voru
tíðir gestir í Sundlaug Kópavogs.
Svo allar heimsóknirnar ykkar
ömmu til okkar í Ólafsvík og alltaf
var veiðistöngin og veiðigræjurnar
með. Þau höfðu svo gaman af því að
standa við árbakkann og reyna við
bleikjurnar og jafnvel laxana. Á
yngri árum var afi í fimleikadeild
KR, hann hafði einnig gaman af
skíðaferðum og fóru þau amma í
nokkrar slíkar. Á seinni árum stund-
aði afi golf og var í Golfklúbbi Keilis í
Hafnarfirði og hafði gaman af. Afi
var búinn að eiga við veikindi að
stríða í eitt og hálft ár, nú hefur hann
fengið hvíld.
Við kveðjum afa með þakklæti og
djúpum söknuði.
Elsku amma, missir þinn er mikill,
megi góður guð styðja þig og
styrkja.
En komin eru leiðarlok
og lífsins kerti brunnið
og þín er liðin æviönn
á enda skeiðið runnið.
Í hugann kemur minning mörg,
og myndir horfinna daga,
frá liðnum stundum læðist fram
mörg ljúf og falleg saga.
(Höf. ók.)
Þín barnabörn
Elín, Inga og Þuríður
Snorradætur.
Látinn er Ámundi Reynir, hálf-
bróðir minn. Þó að við hefðum ekki
alist upp saman og nokkur aldurs-
munur á okkur var hann afskaplega
kær okkur bræðrunum. Við kölluð-
um hann alltaf stóra bróður og vor-
um stoltir af. Hann var okkur góður
og hjálplegur maður bæði gagnvart
okkur sem ungum drengjum á Sel-
fossi og síðar á lífsleiðinni. Ámundi
hélt alla tíð góðu sambandi við okkur
á Selfossi. Hann kom í heimsóknir
hér á árum áður með fjölskyldu sína
sem við bræður kunnum vel að meta.
Þegar hann starfaði sem olíubílstjóri
var hann oft sendur á Suðurland,
kom þá gjarnan við á Selfossi og til
okkar á Kirkjuveginn. Ég man að við
bræður vorum afar stoltir af því að
geta sagt að við ættum stóran bróður
sem keyrði olíubíl. Það var stór
stund hjá okkur þegar Ámundi kom
á rauða ESSÓ olíubílnum á Selfoss,
þá kölluðum við á strákana í götunni
til að sýna þeim bróður okkar og bíl-
inn. Ég man að númerið á bílnum var
R-505, því var það að ég fylgdist með
öllum rauðum olíubílum sem komu á
Selfoss. Í eitt skiptið var ég í Reykja-
vík með pabba og sá rauðan olíubíl,
ég taldi víst að Ámundi keyrði en ég
sá ekki númerið. Ég hljóp af stað
niður götu og fyrir horn og kom inn á
bílaplan þar sem margir bílar voru á
planinu og þar stóð R-505. Ámundi
tók mér vel og kom mér til skila. Það
var ekki oft farið til Reykjavíkur í þá
daga, en minnisstæðar eru ferðir
foreldra okkar í Hlíðarhvamminn í
Kópavogi þar sem Ámundi bjó í fal-
legu húsi með fjölskyldu sinni. Þá
var glatt á hjalla og góðar tilfinn-
ingar okkar bræðra fyrir sterkum
fjölskylduböndum.
Þegar Ámundi hætti sem olíubíl-
stjóri sótti hann um að verða leigu-
bílstjóri. Það var ekki sjálfgefið að
komast að sem leigubílstjóri, það
þurfti sérstakt starfsleyfi sem ekki
var auðfengið. En hann pabbi okkar,
Gísli rakari, þekkti vel Ingólf Jóns-
son frá Hellu sem var samgönguráð-
herra. Eftir þeirra samtal fékk
Ámundi starfsleyfið. Ég minnist
þess hvað pabbi var ánægður að geta
orðið syni sínum að liði.
Ámundi var spengilega vaxinn
maður og beinn í baki enda mikill
íþróttamaður og áhugasamur um all-
ar íþróttir, stundaði fimleika, mikill
skíðamaður, fór í sundlaugar og
stundaði golf hin síðari ár. Við náð-
um vel saman þegar íþróttir bar á
góma, hann var alltaf hvetjandi til
þátttöku í íþróttum og vildi að allir
stunduðu íþróttir.
Ég er þakklátur fyrir að hafa átt
góðar stundir fyrr og síðar með
Ámunda, einnig erum við hjónin
þakklát Ingu og Ámunda fyrir góðar
heimsóknir á heimili okkar nú hin
síðari ár. Ámundi fylgdist vel með
drengjunum okkar og framgöngu
þeirra í lífinu. Um leið og við þökkum
Ámunda allar samverustundir og
góðan hug til okkar í gegnum árin
vottum við öllum aðstandendum,
okkar dýpstu samúð. Það er enginn
vafi í mínum huga að Ámundi var vel
gerður maður sem er mikil eftirsjá
að. Elsku Inga mín og stórfjölskyld-
an öll, ykkar missir er mikill, við
biðjum góðan Guð að varðveita
þennan góða mann og minningin um
hann mun lifa.
Björn Ingi Gíslason.
Afi minn Gísli Sigurðsson rakari
og eftirherma frá Selfossi var á
margan hátt nokkuð merkilegur
maður á sinni tíð, fór tæpast troðnar
slóðir á þeim tíma. Ég átti þess ekki
kost að kynnast honum mjög vel, að-
eins samneyti í nokkur ár áður en
hann lést, sem þó gefur mér nokkra
mynd af honum. Hann átti þrjár kon-
ur og átta börn og var Ámundi Reyn-
ir, sem ég nú minnist með hlýju og
þökk, elstur barnanna. Faðir minn
var hálfbróðir Ámunda, enda sonur
síðustu konu Gísla afa míns og því
voru fjölskyldutengslin ekki eins
sterk. En svona er lífið þótt svona
fyrirkomulag á hjónaböndum og fjöl-
skyldulífi þyki ekkert tiltökumál í
dag.
Afi kom á Selfoss 1948, fyrir 60 ár-
um. Alla mína æsku minnist ég þess
að Ámundi og fjölskylda vöndu kom-
ur sínar nokkuð á Selfoss og tókust
með okkur nokkuð sterk tengsl og
kynntist ég börnum hans, sér í lagi
þeim yngri. Þegar ég lít til baka
minnist ég Ámunda hálfpartinn sem
afa míns þar sem hann minnti mig
alltaf á hann, mjúku kossarnir á
kinnina, ljúfu melódíurnar og glað-
lyndið sem einkenndi hann. Ámunda
kynntist ég best af systkinum Gylfa
og pabba, og Ingu konu Ámunda
ekki síst sem ávallt stóð honum við
hlið. Einnig var ég svo heppinn að
geta átt samskipti við þau á heimili
þeirra í Kópavogi þar sem bekkjar-
bróðir minn flutti frá Selfossi í Kópa-
voginn í næsta nágrenni. Seinni árin
eftir að ég eignaðist fjölskyldu sýndi
Ámundi hug sinn með skeytasend-
ingum til barna minna, jólakveðjum
og nú síðast þegar þau hjón komu
færandi hendi til mín á rakarastof-
una með fertugsafmælisgjöf.
Ámundi einfaldlega minnti mig á afa
og það gerði tilfinningu mína sterk-
ari, en undan hallaði síðustu miss-
erin unz yfir lauk 20. ágúst sl. Ég var
svo heppinn að eiga stund með þér
elsku frændi um miðjan júlí í Holts-
búð þar sem við tókum lagið saman,
„Kvöldið er fagurt“, og við ljómuðum
báðir og mjúku kinnakossunum ætl-
aði aldrei að linna. Innilegar samúð-
arkveðjur til fjölskyldunnar.
Kjartan Björnsson.
Ámundi Reynir
Gíslason ✝Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
ÞÓRDÍS LOFTSDÓTTIR,
Odda,
lést á Heilbrigðisstofnuninni Hólmavík laugardag-
inn 23. ágúst.
Útförin fer fram frá Hólmavíkurkirkju laugardaginn
30. ágúst kl. 14.00.
Jarðsett verður í Kaldrananeskirkjugarði.
Erna Arngrímsdóttir,
Jón Arngrímsson, Þorsteinsína G. Gestsdóttir,
Jóhann Björn Arngrímsson, Sólveig Hildur Halldórsdóttir,
Ingimundur Arngrímsson, Þorbjörg Hulda Haraldsdóttir,
Guðjón Hjörtur Arngrímsson, Signý Hermannsdóttir,
Helga Lovísa Arngrímsdóttir, Haraldur Vignir Ingólfsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát eiginkonu minnar,
móður, tengdamóður, ömmu og systur,
HRAFNHILDAR HANNESDÓTTUR,
Huldulandi 22,
Reykjavík,
en hún lést á Landspítala við Hringbraut sunnu-
daginn 17. ágúst.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki krabba-
meinsdeildar Landspítalans og starfsfólki
heimahjúkrunar Karitas.
Þórir Halldórsson,
Rannveig Þórisdóttir, Eiður Jóhannsson,
Hannes Þórisson, Áslaug S. Jónsdóttir,
Hrafnhildur, Jóhann og Þórir,
Ingibjörg Hannesdóttir.
MOSAIK Hamarshöfða 4 - 110 Reykjavík
sími 587 1960 - www.mosaik.is
Legsteinar og fylgihlutir
Vönduð vinna og frágangur
Yfir 40 ára reynsla
Sendum myndalista
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ÓLAFUR ÞÓRIR SIGHVATSSON
skipstjóri,
Skúlagötu,
Stykkishólmi,
lést á St. Franciskusspítalanum Stykkishólmi
þriðjudaginn 26. ágúst.
Útförin verður auglýst síðar.
Eggert Bjarni Bjarnason, Hafdís Sverrisdóttir,
Sævar Berg Ólafsson, Hjálmfríður Guðjónsdóttir,
Guðbjörg Halldóra Ólafsdóttir, Þorvarður Einarsson,
Ægir Þór Ólafsson, Eydís Bergmann Eyþórsdóttir,
María Bryndís Ólafsdóttir, Ásgeir Héðinn Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma
og langamma,
ÓLÍNA RAGNHEIÐUR JÓNSDÓTTIR,
Hátúni,
Skagafirði,
sem lést 21. ágúst, verður jarðsungin frá
Glaumbæjarkirkju, Skagafirði, laugardaginn
30. ágúst kl. 14.00.
Gunnlaugur Jónasson,
Ragnar Gunnlaugsson,
Jón Gunnlaugsson, Jónína Stefánsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
SIGURBJÖRG SVANHVÍT STEINDÓRSDÓTTIR,
Borgarheiði 17h,
Hveragerði,
sem lést laugardaginn 23. ágúst á Landspítalanum
við Hringbraut, verður jarðsungin frá Hvera-
gerðiskirkju laugardaginn 30. ágúst kl. 13.30.
Sigurbjörg Gísladóttir, Hannes Kristmundsson,
Magnea Ásdís Árnadóttir,
Svanhvít Gísladóttir, Reynir Gíslason
og fjölskyldur.