Morgunblaðið - 29.08.2008, Qupperneq 32
32 FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ
dagbók
Í dag er föstudagur 29. ágúst, 242. dag-
ur ársins 2008
Orð dagsins: Því getum við öruggir
sagt: Drottinn er minn hjálpari, eigi
mun ég óttast. Hvað geta mennirnir
gjört mér? (Hebr. 13, 6.)
Höfuðdagurinn er í dag. Þá létHeródes, konungur Ísraels-
manna, það eftir konu sinni að láta
höggva höfuðið af Jóhannesi skírara.
Sú þjóðtrú er tengd höfuðdegi að
veður næstu þriggja vikna taki mið
af honum. Samkvæmt henni má
vænta nokkurrar vætu um landið
allt næstu vikurnar.
x x x
Jónas frá Hriflu sagði eitt sinn viðvin sinn að enginn Íslendingur
gæti talist sannmenntaður nema
hann kynni einhver skil á Biblíunni
og Sturlungu. Þegar nánar er að gáð
er þetta vissulega á rökum reist.
Ýmis orðtæki eiga rætur að rekja til
atburða sem greint er frá í Biblíunni
og móta þau enn orðfæri margra.
Hver kannast ekki við að hafa geng-
ið „frá Heródesi til Pílatusar“ eða
hafa orðið að sæta „Salómonsdómi“.
Þeir Salómon og Heródes voru
vissulega ólíkir, annar vitur eyðslu-
seggur en hinn leppur erlends
stjórnvalds. Pílatus tók af skarið í
ákveðnu máli og hefur sætt ámæli
kristinna manna æ síðan.
x x x
Til frásagna Sturlungu má einnigrekja ýmis orðtök eins og „Dýr
væri Hafliði allur“, en frá atburð-
unum sem leiddu af sér máltækið er
greint í Þorgils sögu og Hafliða sem
er ein af sögum Sturlungusafnsins.
Á þetta máltæki afar vel við þar sem
atburðir á Alþingi, þar sem Hafliði
Másson missti fingur, urðu að sumra
áliti upphaf íslenskrar nútímalög-
fræði.
x x x
Ekki vill Víkverji með þessukasta rýrð á þessa stétt manna
heldur er þetta einungis formáli að
endinum. Haustið er framundan og
fylgja því breytingar í lífi margra.
Börn fara í skóla og umferð í borg-
um og bæjum vex. Í götunum og
gangstéttir eru víða yfirfullar af bíl-
um. Sporleti margra bílstjóra er
ótrúleg. Hún bitnar því miður helst á
þeim er síst skyldi. Vonandi breytist
það. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Hvammstanga Sigurrós
Diljá fæddist 6. júní kl. 2.50.
Hún vó 2.415 g og var 45 cm
löng. Foreldrar hennar eru
Guðlaug Ósk Sigurðardóttir
og Ingimundur B. Óskarsson.
Reykjavík Gabríel Mikko
fæddist 16. maí kl. 3.27.
Hann vó 4.215 g og var 53 cm
langur. Foreldrar hans eru
Sunna Björg Sigurjónsdóttir
og Arnar Ævarsson.
Gautaborg Eydís Alice
Christina fæddist 11. júní. Hún
vó 3.420 g og var 49 cm löng.
Foreldrar eru Gústaf Arnar-
son og Johanna Friberg. Bróð-
ir hennar er Arnar Hans.
Nýirborgarar
Krossgáta
Lárétt | 1 dregur á tálar,
8 árstíð, 9 kinnungur,
10 eldiviður, 11 hnýta
skóþveng, 13 sár,
15 málms, 18 klöpp,
21 verkfæri, 22 glöddu,
23 ilmar, 24 þolgóð.
Lóðrétt | 2 skipuleggi,
3 tilbiðja, 4 formóðir
manna, 5 afkvæmum,
6 viðbragð, 7 þver,
12 tunga, 14 reyfi,
15 saklaus, 16 elsku,
17 andvarpi, 18 æki,
19 guðlegri veru, 20 gef
að borða.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 mjólk, 4 sýsla, 7 glíma, 8 ólæti, 9 met, 11 atti,
13 garn, 14 negla, 15 görn, 17 töng, 20 las, 22 flúði,
23 tálmi, 24 glata, 25 lurka.
1 mygla, 2 ólíkt, 3 kram, 4 snót, 5 snæða, 6 asinn,
10 eigra, 12 inn, 13 gat, 15 göfug, 16 rjúfa, 18 örlar,
19 geiga, 20 lina, 21 stal.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Sudoku
Þrautin felst í því að fylla út í
reitina þannig að í hverjum 3x3-
reit birtist tölurnar 1-9. Það verð-
ur að gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei
má tvítaka neina tölu í röðinni.
Lausn síðustu Sudoki.
www.sudoku.com
© Puzzles by Pappocom
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
STAÐAN kom upp í stórmeistara-
flokki Olomouc-skákhátíðarinnar
sem lauk fyrir skömmu í Tékk-
landi. Íslenski stórmeistarinn
Henrik Danielsen (2526) hafði
hvítt gegn Svíanum Axel Smith
(2427).
44. Rc5! Kg6 45. Rd7 Kxf5 46.
Rxf8 d2 47. Ke2 Kf6 48. Rd7+
Kxf7 49. Rxb8 hvítur hefur nú
unnið tafl enda riddara yfir um
stundarsakir.
Framhaldið varð: 49…Ke6 50.
Kxd2 Kd6 51. Ke3 Kc7 52. Kf4
Kxb8 53. Kg5 Kc7 54. Kh6 og
svartur gafst upp enda rennur h-
peð hvíts óhjákvæmilega upp í
borð.
Henrik er á meðal keppenda í
Íslandsmótinu í skák sem fer fram
þessa dagana.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Góðir og slæmir dagar.
Norður
♠K54
♥G63
♦KD1054
♣106
Vestur Austur
♠Á92 ♠DG
♥KD10 ♥987542
♦G987 ♦32
♣852 ♣974
Suður
♠108763
♥Á
♦Á6
♣ÁKDG3
Suður spilar 6♠.
Trompið er í veikara lagi, svo ekki sé
fastar að orði kveðið. Það vantar
♠ÁDG92 inn í litinn, sem ætti að duga
vörninni í tvo slagi, að minnsta kosti.
Og þarf ekki góðan dag til, því það er
engin uppröðun hugsanleg þar sem
sagnhafi getur sloppið með einn taps-
lag – hjálparlaust. Á óvenju slæmum
degi gæti vestur hins vegar gengið í
eftirfarandi gildru eftir hjartakónginn
út: Sagnhafi drepur á hjartaás (góður)
og leggur síðan niður tígulás. Spilar
því næst spaða að blindum. Hug-
myndin er að láta líta út fyrir að hann
eigi tígulásinn blankan og sé að reyna
að læðast inn í borð á spaðakóng til að
henda niður tapspili í hjarta. Ef vestur
er trúgjarn, þá rýkur hann upp með
trompásinn og reynir að taka slag á
hjartadrottningu. En verður fyrir sár-
um vonbrigðum.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú ert stríðsmaður og mátt því
búast við að fá í þig nokkrar örvar svona
af og til. Enda slá vissar upplýsingar þig
ekki út af laginu eins og aðra.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Flugeldarnir í einkalífinu gera þér
erfitt fyrir að einbeita þér við vinnuna.
Fáðu fólk til að tjá tilfinningar sínar svo
þú getir losað um þínar.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Hvernig er varaáætlunin? Vertu
viss um að hún sé pottþétt því líklega
þarftu að skipta yfir. Þú þarft að hvíla að-
aláætlunina um stundarsakir.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Vera má að fólk vanmeti eða hunsi
afrek þín á næstunni. Síðan færðu heljar-
innar hrós fyrir eitthvað sem þér finnst
ekki mikið mál. Skrítið!
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Sjálfstæði verður í hávegum haft. Þú
veist kannski ekki jafnmikið og sérfræð-
ingarnir, en alveg nóg fyrir það starf sem
þú átt að sinna. Og þú ert sjálfstæður.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Taktu til og þrífðu hátt og lágt.
Eitthvað angrar þig í umhverfinu og þeg-
ar þú setur fingur á það veistu hvað það
er og getur losað þig við það.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Er mikil vinna sama sem leiðindi hjá
þér? Þú gerir skurk í vanagangi lífsins,
ögrar aðstæðum og sérð til þess að það sé
nóg að hlæja að.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Ágæt aðferð til að eyða yf-
irnógri orku er að búa til lista yfir allt
sem þig langar til að afreka. Gott er að
vinna aftur á bak og helst með hjálp
meyju.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Slakaðu á. Þú þarft tíma með
sjálfum þér til að hlusta á andardráttinn.
Þótt það taki þig ekki nema 15 mínútur
muntu muna hver þú ert.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú ert forvitinn um annað fólk.
Þú munt eiga fínar samræður við fólk
sem þú hélst að þú myndir aldrei yrða á.
Og það leiðir þig á nýjar og ferskar slóðir.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú ættir að ráða sérfræðing til
að hjálpa þér á þeim sviðum sem þú veist
lítið um. Að hlusta á gáfuleg heilræði leið-
ir þig á beinu brautina. En þá er líka að
fylgja ráðunum!
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú ert að pæla í daglegri hegðun
þinni og skilur að það eru litlu hlutinrnir
sem hafa mestu áhrifin á þig. Að breyta
bara einum sið krefst mikils aga og hon-
um býrðu yfir nú.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
29. ágúst 1948
Baldur Möller, 34 ára lögfræð-
ingur, varð skákmeistari
Norðurlanda, fyrstur Íslend-
inga, á móti í Örebro í Svíþjóð
„og hlaut að verðlaunum for-
kunnarfagran silfurbikar,“ að
sögn Morgunblaðsins. Baldur
varði titilinn til 1953. Áður
hafði hann verið skákmeistari
Íslands fimm sinnum.
29. ágúst 2000
Fyrsta sólarhringsverslun 10-
11 var opnuð í Lágmúla í
Reykjavík, en þetta var nýj-
ung á íslenskum matvöru-
markaði. Fyrsta verslun keðj-
unnar hafði verið opnuð í
Kópavogi 10.11. 1991.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist þá …
Systkinin Viktoría Rós, Alexand-
er Már, Gabríel Sær og Magdalena
Ósk Bjarnþórsbörn komu í sjálf-
boðamiðstöð Kópavogsdeildar með
afrakstur af tombólu sem þau héldu
á dögunum. Alls söfnuðu þau 8.605
kr. til styrktar Rauða krossinum.
Hlutavelta
Vinkonurnar Borghildur Salína
Leifsdóttir, Telma Kristín Stefáns-
dóttir, Anna Soffía Björnsdóttir og
Vigdís Valgerður Einarsdóttir
héldu tombólu á Eiðistorgi. Þær
söfnuðu 12.429 kr. sem þær færðu
Rauða krossinum.
JÓHANN Sveinn Sigurleifsson fagnar í dag aldar-
fjórðungsafmæli sínu. Hann nemur viðskiptalög-
fræði við Háskólann á Bifröst og lýkur BS-prófi
þaðan í lok árs. Bækurnar og námið hafa haldið
Jóhanni inni við þetta sólríka sumar en hann hefur
setið að skrifum BS-ritgerðar sinnar. Hann sam-
sinnir því að margt sé verra en innivera að sumri
en á honum er að heyra að honum þyki einnig
margt skárra.
„Lífsgæðakapphlaupið,“ segir Jóhann og hlær
inntur eftir því hvað taki við að námi loknu. Hann
segist ekki hafa nákvæma hugmynd um hvað hann
muni starfa, framtíðin að því leyti sé óráðin. „Maður verður bara að
skoða markaðinn.“ Á gjöfulli hlaupabraut lífsgæðanna mun Jóhanni
vafalaust gefast færi á að sinna bíladellu sinni nokkuð en hann segir
BMW-bíla heilla sig mjög, „sérstaklega M-bílarnir frá þeim“.
„Ég ætla nú bara að taka það rólega og svo verður smávegis vinaaf-
mæli um kvöldið,“ segir Jóhann um fyrirætlanir sínar á stóra degin-
um. Honum finnst tímamótin vera keimlík hverju öðru afmæli þó
hann sé að verða „hálffimmtugur“ eins og hann kallar það glettn-
islega. Hann víkur sér fumlaust og fimlega undan spurningunni hvort
að hann sé orðinn fullorðinn en staðhæfir af mikilli sannfæringu:
„Maður er náttúrlega ekki deginum eldri en manni finnst maður
vera“. skulias@mbl.is
Jóhann Sveinn Sigurleifsson 25 ára
Verður hálffimmtugur
;)
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af nýja ríkisborgaranum
ásamt upplýsingum um fæðingarstað
og stund, þyngd, lengd
og nöfn foreldra, á netfangið
barn@mbl.is