Morgunblaðið - 29.08.2008, Síða 34
Aurapúkinn í mér mun
hanga allan liðlangan
daginn fyrir utan Frúna í
Hamborg … 39
»
reykjavíkreykjavík
Eftir Ásgeir H. Ingólfsson
asgeirhi@mbl.is
MEÐSÖNGSSÝNINGAR á vinsæl-
ustu mynd ársins, Mamma Mia!,
hafa nú verið haldnar þrisvar sinn-
um en hingað til hafa aðeins einhver
hundruð komist fyrir. Í kvöld verður
hins vegar Stóri salurinn í Há-
skólabíói opnaður fyrir söngglaða
bíógesti og þær Selma Björnsdóttir
og Jóhanna Vigdís Arnardóttir,
Hansa, munu leiða bíógesti í söng.
„Við mætum þarna ásamt Karli
Olgeirssyni og flytjum nokkur
Abba-lög, svona á meðan fólk er að
koma sér fyrir í sætunum. Tökum
smá upphitun og leyfum því að
syngja með í einhverju Abba-lagi.
Svo ætlum við að sjá hvernig stemn-
ingin er og koma fólki í gang á með-
an það er að losna við feimnina –
hvetjum fólk til að taka þátt – en svo
held ég að það þurfi ekkert mikið til,
þeir sem borga sig inn á sing-a-long
sýningu eru væntanlega að koma til
að vera í stuði og syngja með,“ segir
Selma.
En hvað finnst þeim stöllum um
sönginn í myndinni? „Það er greini-
lega ekki verið að velja í hlutverk út
af sönghæfileikum, þeir eru nátt-
úrlega mismiklir hjá leikurunum. En
mér finnst þau öll komast upp með
þetta,“ segir Selma og bætir við:
„En best finnst mér stelpan, Am-
anda Seyfried, sem er með ofboðs-
lega fallega rödd, og Meryl Streep,“
segir Selma og Jóhanna Vigdís er
sammála um Seyfried og þótti
Streep eiga eftirminnilegasta atriðið
í myndinni. „Það er svo gaman að sjá
leikara gefa þessum lögum líf, allt
önnur nálgun.“
En hvert er svo uppáhalds Abba-
lagið forsöngvaranna? „Eitt Abba-
lag frá því áður en þau unnu Evr-
óvisjón, Disillusion, og svo Hasta
Mañana,“ segir Jóhanna Vigdís og
Selma er ekki í vafa um besta lagið;
„The Winner Takes it All.“
Selma og Hansa syngja með Mamma Mia!
Morgunblaðið/hag
Söngvasæla Það hefur verið sungið fullum hálsi á undanförnum meðsöngs-
sýningum enda er Mamma Mia! orðin ein vinsælasta mynd Íslandssögunnar.
Selma Björnsdóttir Jóhanna Vigdís
Upptökum á
annarri plötu
hljómsveitarinnar
Jeff Who? lauk nú
í vikunni, en plat-
an kemur út um
mánaðamótin
september/október. Góðir gestir
koma fram á plötunni, þar á meðal
söng- og leikkonan góðkunna Esth-
er Talia Casey, en hún syngur eitt
lag með söngvara sveitarinnar,
Bjarna Lárusi Hall. Margir muna
eflaust eftir laginu „So Alone“ sem
Esther söng ásamt Barða Jóhanns-
syni, en sá dúett náði gríðarlegum
vinsældum fyrir réttum tíu árum.
Nú er því spurning hvort Esther og
Baddi nái eins miklum vinsældum
og Esther og Barði.
Meðal annarra sem koma fram á
plötunni má nefna saxófónleik-
arann Hauk Gröndal sem tekur
heilmikið sóló í einu lagi. Það má
því búast við flugeldasýningu á
nýrri plötu Jeff Who?
Esther Thalia syngur
með Jeff Who?
Allsérstæður dómur um tónleika
Bjarkar Guðmundsdóttur birtist í
24 stundum í gær. Þar sagði meðal
annars að um epíska tónleika hefði
verið að ræða, en í rauninni voru
þeir allt annað en epískir. Tónleik-
arnir voru nefnilega einstaklega
stuttir, eða innan við klukkustund-
ar langir, þeir fóru fram í lítilli
kirkju og voru að mestu órafmagn-
aðir, tónleikagestir voru rétt rúm-
lega 300 og stemningin var ein-
staklega heimilisleg og afslöppuð.
Þegar talað er um epík í sambandi
við t.d. kvikmyndir eða tónleika er
hins vegar oftast átt við að viðkom-
andi atriði sé langt, stórt og viða-
mikið. Ekkert af því átti við tón-
leika Bjarkar á þriðjudaginn,
heldur voru þeir þvert á móti sér-
staklega minimalískir.
Epískir tónleikar?
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
TRAVIS Sullivan er einn af mýmörgum Bjarkar-
aðdáendum í heiminum. Hann er þó enginn
venjulegur aðdáandi, stofnaði stórsveit fyrir
fjórum árum sem flytur eingöngu Bjarkar-lög, í
djössuðum stórsveitarbúningi. Sveitin heitir því
skemmtilega og lýsandi nafni Bjorkestra. Sulliv-
an er saxófónleikari að mennt en leikur einnig á
píanó, semur og útsetur tónlist auk þess að vera
tónlistarkennari.
Nú er Sullivan loks kominn til fósturjarðar
tónlistargyðjunnar miklu og ætlar að færa land-
anum djassaða Bjarkar-slagara með Stórsveit
Reykjavíkur í Háskólabíói á morgun kl. 16. Sul-
livan komst að því við leit á netinu að halda ætti
Jazzhátíð í Reykjavík og að til væri þessi líka
fína stórsveit í borginni, Stórsveit Reykjavíkur.
Hann hafði samband við sveitarmeðlim, saxófón-
leikarann Sigurð Flosason, og bar undir hann þá
hugmynd að flytja Bjarkar-lög á Jazzhátíð. Stór-
sveitin sló til og afraksturinn fá menn að heyra á
morgun. Tónlistarferill Bjarkar er orðinn býsna
langur og lögin hljóta að vera miserfið að færa í
stórsveitarbúning, eða hvað? Jú, Sullivan tekur
undir þessar vangaveltur og segist hafa átt auð-
veldara með að útsetja lög af plötunum Post,
Homo-genic og Debut en Vespertine, Medúllu og
Volta. Hann tekur fram að sumar útsetninganna
séu mjög líkar frumútgáfunum.
Vespertine meistaraverk
Sullivan segir Debut og Post í sérstöku uppá-
haldi hjá sér en Vespertine sé virkilega falleg
plata, í raun undursamlegt meistaraverk sem
vaxi við hverja hlustun. Sullivan hefur aldrei hitt
Björk og veit ekki til þess að hún hafi mætt á tón-
leika með Bjorkestra. Hann vonast þó til þess að
Björk láti sjá sig einn góðan veðurdag, það yrðu
án efa eftirminnilegustu tónleikar sveitarinnar.
Sullivan hlær þegar blaðamaður spyr hann að
því hvað hann myndi segja við Björk ef hann
hitti hana í partíi, segist oft hafa velt því fyrir
sér. Hann setur síðan upp afar einlægan svip og
segir: „Takk fyrir frábæra tónlist og að hafa
veitt mér innblástur sem tónlistarmanni.“
Takk fyrir tónlistina, Björk
Stórsveit Reykjavíkur flytur valin lög Bjarkar með stofnanda Bjorkestra
Morgunblaðið/Ómar
Bjarkar-óður Sullivan með söngvurunum sem taka lagið með stórsveitinni á morgun, Maríu Magnúsdóttur, Sigurði Guðmundssyni og Sigríði Thorlacius.
Vefsíða Bjorkestra: www.bjorkestra.com
Á tónleikunum á morgun verða flutt mörg af
þekktustu og vinsælustu lögum Bjarkar, að
sögn Sullivans. Má af þeim nefna Overture to
Dancer in the Dark, Hyperballad, Alarm Call,
Human Behaviour, All is Full of Love, Cocoon,
Army of Me, Who is it, Hunter, Big Time
Sensuality og It’s Oh so Quiet.
Úr efnisskránni