Morgunblaðið - 29.08.2008, Blaðsíða 36
36 FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Heimsferðir bjóða nú allra síðustu sætin til Benidorm í lok
september á einstökum kjörum. Þú bókar flug og gistingu
og 4 dögum fyrir brottför færðu
að vita hvar þú gistir. Benidorm
er einn vinsælasti áfangastaður
Íslendinga á Spáni og hér nýtur
þú lífsins í sólinni.
Verð kr. 44.990
Netverð á mann, m.v. 2-4 í herbergi /
stúdíó / íbúð.
Allra síðustu sætin!
Benidorm
25. september
Stökktu til
frá kr. 44.990
- kemur þér við
Sérblað um heilsu
fylgir blaðinu í dag
! "
"
#
$ %
&
'
(
)%*
$
' +*
+
'
#
$
!
,
!
'
-
.
#
,
%%
' / #
%
, '
,
$
# $
0
1) (
! "#$ %&#' () *+,, !
-#$ . ,/!$0#1#
Reyndi að ræna íslen-
skri stúlku í Frankfurt
Fjölskylduhjálpin
verður athvarf kvenna
Páll Óskar frestar
sýningu vegna kreppu
Hættir móðurhlutverki
vegna óléttu
Heimsmet og ísbjarnar-
spor á Akureyrarvöku
Hvað ætlar þú
að lesa í dag?
Lýstu eigin útliti:
Stórkostlegt.
Hvaðan ertu?
Reykjavík, Breiðholti, og stolt af því.
Er netið komið til að vera? (Spyr aðalsmaður síðustu
viku, Jón Ólafsson hljómborðsleikari)
Eigum við ekki bara að sætta okkur við það?
Íslenskar konur í fimm orðum?
Hugrakkar, duglegar, stjórnsamar, gáfaðar, fallegar.
Íslenskir karlmenn í sex orðum?
Fallegir, duglegir, viðkvæmir, (þeir halda samt ekki).
Þeir eru víkingar það ætti að segja allt.
Kynþokkafyllsti karlmaðurinn fyrir utan maka?
Björn Hlynur Haraldsson og líka Víkingur.
Skemmtirðu þér á Menningarnótt?
Já Lubbulína var í mat.
Tókstu á móti strákunum okkar?
Heldur betur og grenjaði af stolti.
Hvað uppgötvaðir þú síðast um sjálfa þig?
Að ég get verið ákveðin!
Uppáhaldsbíómynd?
Sveitabrúðkaup :-)
Hvað ætlaðirðu að verða þegar þú yrðir stór?
Forseti Íslands.
Hvaða plötu hlustarðu mest á þessa dagana?
Duffy, hún er æði.
Hvaða bók lastu síðast?
Rigning í nóvember. Auður Ólafs frábær!
Helstu áhugamál?
Rakel María, dóttir mín, hún er það skemmtilegasta sem
ég veit.
Verðurðu áttavillt úti á landi?
Nei, ég er mjög ratvís.
Helsti galli þess að gifta sig úti í sveit?
Ummm … bara galli ef brúðhjón eru ekki sátt og glöð –
híhí.
Uppáhalds sveitakirkjan?
Kirkjan á Búðum er allaf falleg.
Hvert er draumahlutverkið?
Að vera móðir og eiginkona á sama tíma. Ég er sem sagt
að lifa það.
Er Ísland stórasta land í heimi?
Jahá og Dorrit er bestust.
Hver yrði titillinn á kvikmynd um ævi þína?
Hún er gefin fyrir drama þessi dama.
Hver færi með aðalhlutverkið?
Kate Winslet en ef hún er upptekin þá yrði það Ólafur
Darri.
Hvernig slettir Nína Dögg úr klaufunum?
Tryllir allt og kætir. Með dansi, söng og trúnó.
Hvers viltu spyrja næsta viðmælanda?
Ertu búinn að sjá Sveitabrúðkaup?
NÍNA DÖGG
FILIPPUSDÓTTIR
AÐALSMAÐUR VIKUNNAR ER NÍNA DÖGG FILIPPUS-
DÓTTIR LEIKKONA. HÚN FER MEÐ EITT AF AÐAL-
HLUTVERKUNUM Í GAMANMYNDINNI SVEITABRÚÐ-
KAUP SEM FRUMSÝND VERÐUR Í KVÖLD.
Nína Dögg Segir að mynd byggð á ævi sinni myndi heita Hún er gefin fyrir drama þessi dama.
Morgunblaðið/G. Rúnar
NÝJASTA kvikmynd Coen-bræðra,
Burn After Reading, hefur fengið
heldur misjafna dóma hjá gagnrýn-
endum en myndin var frumsýnd á
kvikmyndahátíðinni í Feneyjum
miðvikudaginn sl.
Kvikmyndatímaritið Variety birt-
ir heldur neikvæðan dóm, gagnrýn-
andi segir myndina ekki ná sér á
strik sem grínmynd, þ.e. ef til-
gangur bræðranna hafi á annað borð
verið að ærslast. Áhorfendur gnísti
þess í stað tönnum.
Gagnrýnandi Screen Inter-
national er á öndverðum meiði, segir
myndina vel skrifaða gamanmynd
um þær hættur sem heimskan geti
leitt menn í og leikararnir komi af-
skaplega vel út.
Þá gefur breska dagblaðið Times
myndinni fjórar stjörnur.
Mynd Coen-
bræðra mis-
vel tekið
Sætir strákar Brad Pitt og George
Clooney umsetnir ljósmyndurum og
æstum aðdáendum í Feneyjum.