Fréttablaðið - 15.04.2009, Page 4
4 15. apríl 2009 MIÐVIKUDAGUR
íslenskur ríkisborgari
www.okkarsjodir.is
Lífeyrissjóðirnir eiga að starfa í þágu þeirra sem greiða í þá.
Lífeyrisþegar geta ekki borgað sukk örfárra einstaklinga.
Við viljum endurskoðun á lífeyrissjóðakerfinu strax. Yfir 20.000
manns hafa þegar skrifað undir, stefnum á 25.000. Lífeyrissjóðirnir
eru okkar eign!
Jóhanna!
Valdið er í
þínum höndum!
VEÐURSPÁ
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
Alicante
Amsterdam
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
New York
Orlando
Osló
París
Róm
Stokkhólmur
19°
22°
23°
24°
16°
24°
24°
23°
15°
14°
21°
19°
10°
26°
14°
20°
23°
9°
FÖSTUDAGUR
3-5 m/s
6
68
4 6
6
5
6
Á MORGUN
3-5 m/s
4 6
-1
1
2
2
7
6
7
7
6
3
3
3
1
1
5
2
3
1
4
2
4
1
BLÍÐVIÐRI
FRAMUNDAN
Í dag og raunar næstu
daga verður hæg-
viðrasamt á landinu.
Í dag verður bjartast
suðaustan til en síðan
má búast við því að
víða verði bjart á
morgun og föstudag
með ágætum hlýind-
um. Helgarhorfurnar
eru ekki eins bjartar
en engu síður hægð-
viðrasamar og mildar.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
HEILBRIGÐISMÁL Samið hefur verið
við sjálfstætt starfandi lækna um
að fresta til 1. júní hækkun á ein-
ingaverði þeirra úr 266 krónum í
290 krónur eða um rúm níu pró-
sent. Ögmundur Jónasson heil-
brigðisráðherra segist ekki hafa
á hraðbergi hvað þessi hækkun
kostar. Hann segist mjög andsnú-
inn því að innheimta sjúklinga-
gjöld. Engin áform eru uppi um
hækkun á þeim síðar á árinu.
Ögmundur segir að hækkun
sérfræðilækna nú hefði verið
í „hróplegu ósamræmi við það
sem almennt er að gerast á vinnu-
markaði þar sem kaupmáttur
hefur rýrnað mjög á undangengn-
u m má nuð -
um vegna þess
að kaupgjald
hefur staðið í
stað og fólk auk
þess orðið fyrir
kjararýrnun og
tekjumissi af
öðrum sökum
og verðbólgan
séð um afgang-
inn.“
Vilhjálmur
Birgisson, formaður Verkalýðsfé-
lags Akraness, bendir á að þjóðin
standi frammi fyrir niðurskurði
í heilbrigðisútgjöldum. Ekki sé
búið að upplýsa fólk um hvar
ríkið ætli að skera niður. Þessar
upplýsingar þurfi að koma fram
nú. „Fólk á skýlausa kröfu um
hvar menn ætla að beita niður-
skurðarhnífnum. Við þurfum að
fá hreinar línur í það í kosninga-
baráttunni,“ segir hann.
Ögmundur segir að nú sé kjara-
jöfnun viðfangsefnið sem allir
standi frammi fyrir, bæði á opin-
berum og almennum vinnumark-
aði. Leita þurfi jafnvægis í kerf-
inu. „Núna hugsa ég þessi mál
ekki í prósentum talið. Ég hugsa
þetta fyrst og fremst með það í
huga að ná samkomulagi við stétt-
irnar um jafnvægi í kerfinu.“
- ghs
Hækkun gjaldskrár sérfræðilækna um rúm níu prósent frestast til 1. júní:
Ráðherra vill ná kjarajöfnun
SKOÐANAKÖNNUN Umræða síðustu
viku um tugmilljóna króna styrki
FL-Group og Landsbankans til
Sjálfstæðisflokksins hefur ekki
haft áhrif á fylgi hans, samkvæmt
nýrri skoðanakönnun Fréttablaðs-
ins. 27,3 prósent segjast myndu
kjósa flokkinn nú, samanborið við
24,8 prósent hinn 7. apríl. Munurinn
er innan skekkjumarka en flokkur-
inn bætir við sig fylgi meðal karla
á höfuðborgarsvæðinu. Miðað við
þetta fylgi fengi flokkurinn 19 þing-
menn kjörna, í stað 25 sem flokkur-
inn hefur nú.
Borgarahreyfingin bætir líka við
sig fylgi milli vikna og segjast nú
4,9 prósent myndu kjósa flokkinn.
Fylgið er 0,1 prósentustigi frá því
að reiknaðir væru jöfnunarmenn á
flokkinn en ef stjórnmálaflokkur
fær fimm prósent atkvæða á lands-
vísu fær hann að minnsta kosti þrjá
þingmenn kjörna. Hefði flokkurinn
fengið 0,1 prósentustigi meira hefði
flokkurinn fengið þrjá þingmenn,
einn frá hverjum flokki fyrir sig;
Sjálfstæðisflokki, Samfylkingu og
Vinstri grænum. Nánast allt fylgi
flokksins er á höfuðborgarsvæðinu.
Í síðustu viku sögðust 1,7 prósent
styðja Borgarahreyfinguna.
Samfylking stendur nánast í stað,
fer niður um 1,1 prósentustig og
segjast nú 32,2 prósent styðja flokk-
inn. Hann fengi því 22 þingmenn,
en hefur 18 þingmenn á þingi nú.
25,7 prósent styðja Vinstri græn,
2,4 prósentustigum minna en í síð-
ustu viku og fengi flokkurinn 18
þingmenn. Það yrði tvöföldun á
þingmannafjölda, því flokkurinn
hefur níu þingmenn nú.
Samanlagt fylgi ríkisstjórnar-
flokkanna er því 57,9 prósent og
fengju flokkarnir tveir 40 þing-
menn kjörna.
Fylgi Framsóknarflokksins dalar
frá því í síðustu viku. 6,8 prósent
segjast nú myndu kjósa flokkinn
og er munurinn milli vikna umfram
skekkjumörk. Þingmenn Framsókn-
arflokksins yrðu því fjórir, í stað
sjö nú.
Tvö prósent segjast myndu kjósa
Lýðræðishreyfinguna, en eitt pró-
sent svarenda studdi hana í síðustu
viku. Þá er minnsti flokkurinn nú
Frjálslyndi flokkurinn og segjast
0,7 prósent styðja flokkinn.
Hringt var í 800 manns þriðju-
daginn 14. apríl og skiptust svar-
endur jafnt eftir kyni og hlutfalls-
lega eftir búsetu. Spurt var; Hvaða
lista myndir þú kjósa ef gengið yrði
til kosninga nú? 69,5 prósent tóku
afstöðu til spurningarinnar.
Ef litið er til allra 800 sögð-
ust 14,8 prósent ekki munu kjósa
eða skila auðu. 12,5 prósent voru
óákveðin og 7,8 prósent neituðu að
svara. svanborg@frettabladid.is
Borgarahreyfing við
fimm prósenta markið
Sjálfstæðisflokkurinn og Borgarahreyfingin bæta við sig fylgi á milli vikna,
samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins og er Borgarahreyfingin mjög
nálægt fimm prósent markinu sem gæfi flokknum þrjá þingmenn kjörna.
40
35
30
25
20
15
10
5
%
Fylgi stjórnmálaflokkanna
Samkvæmt könnunum Fréttablaðsins frá kosningum 2007 til 14. apríl 2009.
36,6
26,8
14,3
11,7
7,3
15
. m
aí
20
07
29
. s
ep
t.
20
07
30
. j
an
. 2
00
8
23
. f
eb
. 2
00
8
19
. a
pr
íl
20
08
21
. j
ún
í 2
00
8
25
. o
kt
. 2
00
8
22
. n
óv
. 2
00
8
22
. j
an
. 2
00
9
27
. f
eb
. 2
00
9
11
. m
ar
s 2
00
9
25
. m
ar
s 2
00
9
7.
ap
ríl
2
00
9
14
. a
pr
íl
20
09
Ko
sn
in
ga
r
0,7
2,0
4,9
6,8
32,2
27,3
25,7
40,1
35,2
14,2
5,9
3,8
32,6
22,1
19,2
16,8
3,7
ÖGMUNDUR
JÓNASSON
Ástþór Magnússon, stofnandi
Lýðræðishreyfingarinnar, taldi
ekkert að marka könnun Frétta-
blaðsins. Hann sagði framboð-
in til þingkosninga ekki fá jafn
mikla umfjöllun í fjölmiðlum og
að kjósendur hefðu varla getað
kynnt sér allt sem í boði væri.
„Þetta er ekki jafn leikur. Nú er
kosningaeftirlit ÖSE mætt og það
verður gaman að sjá skýrsluna
sem þeir koma með yfir banana-
lýðveldið Ísland,“ sagði Ástþór.
„Það er aukaatriði hvað við
fáum mörg prósent í þessari
könnun. Það er ekki hægt að gera
kannanir nema kjósendur viti
hvað þeir geta valið um.“ - kh
Ástþór Magnússon:
Tekur ekki mark
á könnuninni
Sigmundur Davíð:
Erum áhyggjulaus
„Niðurstaðan kemur mér á óvart.
Við höldum okkur við það að hafa
ekki áhyggjur af könnunum, held-
ur að halda okkar striki,“ segir Sig-
mundur Davíð Gunnlaugsson, for-
maður Framsóknarflokksins.
Sigmundur segir ljóst að það sé
ekki alltaf vinsælt að tala á þeim
nótum sem Framsóknarflokkurinn
hefur gert að undanförnu. „Við
höfum sagt að hér sé margt í ólagi
og það þurfi róttækar aðgerð-
ir. Við getum þó alltaf sagt að við
höfum ekki reynt að blekkja fólk.“
„Þetta hafa á engan hátt verið
góðir dagar fyrir okkur upp á síð-
kastið, en ég hef skynjað að þau
skilaboð sem við höfum fram að
færa, og varða það verkefni sem
bíður okkar eftir kosningar, eiga
góðan hljómgrunn hjá kjósendum,“
segir Bjarni Benediktsson, formað-
ur Sjálfstæðisflokksins. „Ég trúi því
að við höldum áfram að sækja í
okkur veðrið, en verkefnið er engu
síður ærið.“
Bjarni viðurkennir að útkoma könn-
unarinnar hafi komið sér á óvart.
„Augu fólks eru að opnast fyrir því
að ríkisstjórnin sem nú starfar er
ekki líkleg til að ná árangri.“
Bjarni Benediktsson:
Skilaboðin skýr
„Ég er hrærður og þakklátur. Þetta
mikla fylgi sem mælist með okkur
í tveimur könnunum á sama degi
hefur komið af sjálfu sér. Við
erum rétt að byrja. Úr því að þetta
fer svona af stað þá finnst mér
líklegt að við eigum eftir að bæta
við okkur,“ segir Þráinn Bertels-
son, fyrsti maður í Reykjavíkur-
kjördæmi norður. Þráinn segir
það hafa verið rétt mat að þörf
sé fyrir framboð eins og Borgara-
hreyfinguna. „Mér þykir vænt um
þetta traust og þau skilaboð að
við erum alvöru framboð. Fólk er
að senda þau skilaboð að það vill
okkar rödd í umræðuna.“ - shá
Þráinn Bertelsson:
Erum alvöru afl
Steingrímur J. Sigfússon:
D-listi ofmetinn
„Við erum bærilega sátt við þessa
niðurstöðu. Það sem kemur á óvart
í þessari könnun er að ég hefði
haldið að Sjálfstæðisflokkurinn
fengi minna en ekki meira en síð-
ast,“ segir Steingrímur J. Sigfússon,
formaður Vinstri grænna. „Ég hefði
haldið að þeir væru á niðurleið
frekar en hitt. Þetta er svipað og við
höfum verið að fá í öðrum könn-
unum, eða í kringum 26 prósent,
sem er alveg ágætt. Hins vegar hlýt-
ur Sjálfstæðisflokkurinn að vera
ofmetinn í þessari könnun.“
Dagur B. Eggertsson:
Góð vísbending
„Þetta er ánægjuleg vísbending
og reynslan kennir manni að hafa
verður fyrir hlutunum og heyja
kosningabaráttu af krafti fram á
síðasta dag,“ segir Dagur B. Egg-
ertsson, varaformaður Samfylk-
ingarinnar. „Ég held að niðurstað-
an sé viðurkenning til Jóhönnu
Sigurðardóttur og ríkisstjórnarinn-
ar um að hún hefur látið hendur
standa fram úr ermum á stuttum
starfstíma.“
Dagur segir að áfram sé ákall um
ábyrgð og festu við landsstjórnina
en á lokametrunum sé mikilvægt
að ná til fyrirtækjanna og heimil-
anna með framtíðarsýn flokksins.
Guðjón Arnar Kristjánsson:
Ræðum við fólk
„Við erum mjög óhress með þetta,
eina og gefur að skilja,“ segir Guð-
jón Arnar Kristjánsson, formaður
Frjálslynda flokksins. „Ég hef ekkert
á reiðum höndum til að skýra þetta
annað en að við náum ekki með
okkar mál í gegn. Þessi niðurstaða
er í engu samræmi við þau við-
brögð sem okkar fólk hefur fengið
úti um land. Við teljum okkur vera
með góðan málatilbúnað.“
Guðjón segir aðeins eitt að gera.
„Við verðum að boða út mannskap
og ræða við fólk um málin sem
skipta raunverulegu máli; maður á
mann. Það er ekkert annað að gera
í þessari stöðu.“ - shá
GENGIÐ 14.04.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
207,4521
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
127,37 127,97
189,67 190,59
169,01 169,95
22,684 22,816
19,215 19,329
15,576 15,668
1,276 1,2834
190,32 191,46
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR