Fréttablaðið - 15.04.2009, Síða 10
15. apríl 2009 MIÐVIKUDAGUR
TAÍLAND, AP Lögreglan í Taílandi
hefur gefið út handtökuskipun á
hendur Thaksin Shinawatra, fyrr-
verandi forsætisráðherra Taí-
lands. Mótmælaólgan í landinu
síðustu árin hefur að mestu snúist
um hann, ýmist hafa andstæðing-
ar hans eða stuðningsmenn staðið
fyrir mótmælum.
Auk Thaksins hefur lögregl-
an einnig gefið út handtökuskip-
anir á hendur þrettán leiðtogum
mótmælanna síðustu daga. Fjórir
þeirra höfðu í gær gefið sig fram
og verða yfirheyrðir.
Leiðtogar mótmælanna sögðu í
gær að frekari aðgerðum hafi verið
aflýst eftir að óeirðir brutust út á
mánudag, sem kostuðu tvo menn
lífið auk þess sem á annað hundr-
að manns særðist.
Aðgerðum mótmælenda lauk því
friðsamlega í gær þegar um tvö
þúsund mótmælendur biðu róleg-
ir í röðum eftir fólksflutningabíl-
um frá hinu opinbera, sem fluttu
þá síðan heim.
Það eru stuðningsmenn Thaks-
ins sem hafa staðið fyrir þessari
síðustu hrinu mótmæla. Þau hafa
beinst gegn núverandi forsætisráð-
herra, Abhisit Vejjajiva, sem tók
við völdum í desember eftir að þrír
stuðningsmenn Thaksins höfðu
hrökklast hver á fætur öðrum úr
forsætisráðherraembættinu síðan
í haust, jafnan í kjölfar harðra og
fjölmennra mótmæla andstæðinga
Thaksins sem sökuðu forsætisráð-
herrana þrjá um að ganga erinda
Thaksins.
Sjálfur hrökklaðist Thaksin úr
embætti haustið 2006, þegar her-
inn gerði stjórnarbyltingu eftir
að andstæðingar Thaksins höfðu
efnt til fjöldamótmæla mánuðum
saman og sakað Thaksin um spill-
ingu.
Abhisit er hins vegar andstæð-
ingur Thaksins, en eftir að hann
tók við völdum brá svo við að
stuðningsmenn Thaksins efndu til
mótmæla og krefjast nú kosninga
vegna þess að Abhisit er ekki kos-
inn í almennum kosningum, þótt
hann hafi stuðning kjörins þjóð-
þings landsins til að sitja í emb-
ættinu.
Thaksin flúði land á síðasta ári
áður en dómur var kveðinn upp í
spillingarmáli á hendur honum.
Hann hefur þó ávarpað stuðnings-
menn sína á myndbandi nærri dag-
lega undanfarið.
Thaksin segir herinn í Taílandi
ljúga því að hann hafi aðeins skot-
ið púðurskotum á mótmælendur,
heldur hafi hermenn notað alvöru
skot og drepið mótmælendur.
gudsteinn@frettabladid.is
Leiðtogarnir
handteknir
Nýjustu mótmælahrinunni í Taílandi lauk friðsam-
lega í gær eftir að óeirðir höfðu kostað tvo menn
lífið á mánudag. Lögreglan vill handtaka Thaksin.
VATNSGUSUR Í TILEFNI ÁRAMÓTA Taílendingar hafa flestir hverjir ekki látið ólætin í
Bangkok hindra sig í að halda upp á áramótin með tilheyrandi vatnssulli.
NORDICPHOTOS/AFP
ÞJÓNUSTA „Nú hefur endanlega verið
ákveðið að vínbúð verður opnuð á
Flúðum í vor,“ segir á heimasíðu
Hrunamannahrepps.
„Vínbúðin verður rekin sem útibú
frá vínbúðinni á Selfossi og gárung-
arnir hafa þegar gefið henni nafn
og kalla hana einhverra hluta vegna
Vínkjallarann,“ segir á fludir.is
þar sem haft er eftir Sigurði Inga
Jóhannssyni, oddvita Hrunamanna-
hrepps, að vínbúðin styrki þjónustu
á þessu mikla ferðamannasvæði og
auka bjartsýni hjá þeim sem búa á
svæðinu og trú á áframhaldandi
uppbyggingu og vöxt. - gar
Bjartsýni hjá Hrunamönnum:
Vínbúðin verður
opnuð á Flúðum
GENGIÐ FRÁ SAMNINGI ÁTVR hefur leigt
húsnæði af Hrunamannahreppi.
TÖKUM NOTUÐ VEL MEÐ FARIN HJÓL UPPÍ NÝ
SKIPTIMARKAÐUR
MEÐ NOTUÐ REIÐHJÓL
19.995
44.995
64.995
BARNAHJÓL
VERÐ FRÁ
Bót í máli
Átt þú rétt á slysabótum?
Yfir 30 ára reynsla og sérþekking á slysamálum
Öflugur og samhentur hópur lögmanna
Greiður aðgangur að lögmanninum þínum
Um öll önnur mál en dómsmál gildir að ef engar bætur fást
er engin þóknun greidd Landslögum.
Fyrsta flokks ráðgjöf um bótarétt vegna slysa
– þér að kostnaðarlausu
S L Y S A B Æ T U R
Köllunarklettsvegi 2
104 Reykjavík
Sími: 520 2900
Fax: 520 2901
landslog.is