Fréttablaðið - 15.04.2009, Qupperneq 13
MIÐVIKUDAGUR 15. apríl 2009
BRETLAND, AP Lögreglan í Bret-
landi reynir að bera kennsl á
fórnarlamb morðs, sem líklega
hefur verið framið um miðjan
síðasta mánuð.
Líkamspartar fórnarlambsins
hafa verið að finnast síðustu vik-
urnar í sveitunum fyrir norðan
London. Lögreglan telur að morð-
inginn hafi losað sig við líkams-
partana sama daginn, skömmu
eftir að morðið var framið.
Vitað er að fórnarlambið var
meðalhár karlmaður, annaðhvort
hvítur eða frá Asíu. Erfðaefni
hans hefur verið greint, en ekki
hefur tekist að finna samsvörun í
gagnagrunni lögreglunnar. - gb
Líkamspartar í Bretlandi:
Fórnarlambið
enn óþekkt
NOREGUR Norskur sjávarútvegur
fær nú þriðjungi lægra verð fyrir
fisk sinn en í fyrra, segir Jan Erik
Ström, héraðsstjóri hjá Norges
Råfisklag, í viðtali við norska rík-
isútvarpið NRK. Áður fyrr hrópaði
markaðurinn á norskan saltfisk en
nú á sjávarútvegurinn í erfiðleik-
um með að flytja út saltfiskinn.
Fyrirtæki í fiskvinnslu taka ekki
lengur á móti fiski í salt vegna
markaðsaðstæðna. Ström segir að
ástæðurnar séu margar, fjármála-
kreppunni sé að stórum hluta um
að kenna. Neytendur, til dæmis í
Portúgal, hafi ekki lengur peninga
til að kaupa saltfisk. Þá komi ódýr
saltfiskur frá Rússlandi og Íslandi.
- ghs
Norskur sjávarútvegur:
Saltfiskurinn
gengur ekki út
DANMÖRK, AP Lars Løkke Rasmuss-
en, arftaki Anders Fogh Rasmuss-
en á forsætisráðherrastóli Dan-
merkur, sagði fátt um það hvort
hann ætlaði
að fylgja eftir
hugmyndum
forvera síns
um að efna til
þjóðaratkvæða-
greiðslu um það
hvort Danmörk
eigi að taka
upp evru í stað
krónu.
„Tímasetn-
ingin verður að vera rétt,“ var það
eina sem hann sagði, þegar hann
gerði danska þinginu grein fyrir
stefnu sinni í gær.
Forsætisráðherrann sagðist
hins vegar ætla að vinna hörðum
höndum að því að árangur náist á
alþjóðlegu loftslagsráðstefnunni,
sem haldin verður í Kaupmanna-
höfn í desember, þótt erfitt geti
orðið að fá ríki heims til þess að
taka höndum saman í þeim efnum
á krepputímum. - gb
Lars Løkke Rasmussen:
Óvíst um evru-
kosningarnar
LARS LØKKE
RASMUSSEN
4
10
4
0
0
0
|
l
an
ds
ba
nk
in
n.
is
140 / HAFNARFJÖRÐUR
Kynntu þér MBA nám
við Háskóla Íslands
Háskóli Íslands var fyrstur hér á landi til að bjóða upp á MBA
nám. Ávallt hefur verið lögð áhersla á að efla einstaklinginn og
auka færni hans. Kennslan tekur mið af íslensku atvinnulífi og
vinna nemendur verkefni sem ávallt eru tengd raunverulegum
viðfangsefnum í rekstri fyrirtækja og stofnana.
Haldnir verða tveir kynningarfundir
á MBA námi við Háskóla Íslands.
> Miðvikudaginn 15. apríl kl. 16:00-17:00
> Fimmtudaginn 30. apríl kl. 12:00-13:00
Fundirnir fara fram á Háskólatorgi í
stofu 101. Endilega kíktu við!
Boðið verður upp á léttar veitingar.
Vonumst til að sjá þig.
www.mba.is
VIÐSKIPTAFRÆÐIDEILD
HÁSKÓLA ÍSLANDS
H
2
h
ö
n
n
u
n