Fréttablaðið - 15.04.2009, Side 14
15. apríl 2009 MIÐVIKUDAGUR
■ Sendið
umboðsmanni
neytenda
ábendingar eða
sparnaðarráð
á neytendur@
frettabladid.is
DR. GUNNI
neytendur@
frettabladid.is
Kaffisvelgur hafði samband og
vill fá útskýringu á því af hverju
kaffibaunir eru jafndýrar eða dýr-
ari en malað kaffi af sömu teg-
und. „Maður hefði haldið að minna
unnin vara ætti að vera ódýrari
en unnin vara, eða hvað?“ skrifar
svelgurinn.
Aðalheiður Héðinsdóttir, for-
stjóri Kaffitárs, svarar þessu: „Við
seljum malað kaffi og kaffibaun-
ir á sama verði til allra okkar viðskiptavina. Verð í
verslunum endurspeglar ekki alltaf verð framleiðanda.
Kaffibaunirnar eru handpakkaðar og því eru þær dýr-
ari í framleiðslu hjá okkur en malaða kaffið þó svo að
eðlilegra sé að álykta að svo sé ekki. Einnig er minna
selt af kaffibaunum en möluðu kaffi og því er það kaffi
unnið í minni lotum sem kallar á fleiri hendur.“
Neytendur: Sama verð á baunum og möluðu?
Minna selt af baunum
KENÍA, AP Sómalískir sjóræningjar
láta ekki árangursríkar björgun-
araðgerðir bandaríska og franska
hersins stöðva sig, heldur hafa
þeir rænt fjórum skipum í viðbót
á Adenflóa síðustu daga.
Aðfaranótt þriðjudags réðst
hópur ræningja um borð í gríska
flutningaskipið M.V. Irene E.M.
Rúmlega tuttugu manns eru í
áhöfn skipsins, allir Filippseying-
ar. Í gær réðst annar hópur ræn-
ingja síðan um borð í flutninga-
skipið Sea Horse, sem er í eigu
Líbana. Á mánudag höfðu ræn-
ingjar tekið tvo egypska fiskveiði-
báta í Adenflóa.
Á þessu ári hafa því sómalísk-
ir sjóræningjar ráðist á samtals
77 skip og báta og náð á sitt vald
18 skipum og 16 bátum. Um borð í
þeim voru samtals 285 manns, sem
enn eru í gíslingu ræningjanna.
Ekki virðast sjóræningjarnir
láta það stöðva sig þótt fjölþjóð-
legur herskipafloti hafi undan-
farna mánuði fylgst með skipa-
ferðum út af ströndum Sómalíu.
Aðgerðir bandarískra og franskra
hermanna undanfarna daga hafa
heldur ekki haft sjáanleg áhrif á
starfsemi þeirra.
Um helgina björguðu banda-
rískir hermenn bandarískum
skipstjóra úr haldi ræningja, og
drápu í leiðinni þrjá Sómala, en í
síðustu viku höfðu franskir her-
menn bjargað nokkrum gíslum
af franskri skútu sem ræningjar
höfðu náð á sitt vald, og féllu tveir
sjóræningjar í það skiptið.
Sjóræningjarnir hafa heitið
hefndum fyrir félaga sína. Michael
Mullen, formaður bandaríska her-
ráðsins, segist taka þessar hótanir
alvarlega, en segir bandaríska her-
inn vera „vel búinn undir að takast
á við eitthvað því um líkt“.
Engin virk stjórn hefur verið
við völd í Sómalíu síðan 1991. Sjó-
ræningjarnir eru ungir menn sem
notfæra sér eftirlitsleysið og lifa
hátt á ránsgróða sínum í Sómal-
íu. Þeir njóta nokkurra vinsælda
heima fyrir, ekki síst vegna þess
að með umsvifum sínum styrkja
þeir annars afar bágborinn efna-
hag á heimaslóðum sínum.
Um tuttugu þúsund skip sigla um
Adenflóa á hverju ári. Allt fram á
síðustu mánuði hafa aðgerðir ríkja
heims gegn sjóræningjunum verið
lítt samhæfðar og skilað litlum
árangri.
Á mánudaginn sagðist Barack
Obama Bandaríkjaforseti vera
staðráðinn í að hindra frekari upp-
gang sjóræningja á þessum fjöl-
förnu siglingaleiðum.
gudsteinn@frettabladid.is
Sjóræningjar
æ stórtækari
Bandaríkjamenn segjast taka hótanir sómalískra
sjóræningja alvarlega. Tveimur flutningaskipum
rænt í gær á Adenflóa. Hundruð manna í gíslingu.
LAUSIR ÚR PRÍSUND Tveir menn úr áhöfn norska olíuskipsins Bow Asir, sem var í
haldi sjóræningja í hálfan mánuð, en var komið í höfn í Keníu á mánudag.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
16.apr
KENNARI NÁMSKEIÐSINS, SIGURÐUR JÓNSSON, LÆRÐI
LJÓSMYNDUN Í SCHOOL OF VISUAL ARTS Í NEW YORK
OG ÖÐLAÐIST MEISTARARÉTTINDI Í LJÓSMYNDUN ÁRIÐ
1989. HANN HEFUR HALDIÐ NÁMSKEIÐ Í STAFRÆNNI
MYNDVINNSLU FYRIR LJÓSMYNDARAFÉLAG ÍSLANDS,
LISTAHÁSKÓLA ÍSLANDS, MARGMIÐLUNARSKÓLANN,
IÐNSKÓLANN Í REYKJAVÍK OG NÚ Í 4 ÁR HJÁ NTV.
FYRIR HVERJA?
Námskeiðið er ætlað þeim sem vinna við
grafík og stafræna myndvinnslu og vilja ná
dýpri þekkingu og skilningi á nær óendan-
legum möguleikum þessa flotta verkfæris.
Námið er undirbúningur fyrir alþjóðlegt próf
sem gefur gráðuna: Adobe Certified Expert.
INNTÖKUSKILYRÐI
Þeir sem ætla í þetta nám þurfa að hafa
einhverja reynslu í Photoshop og undir-
stöðuþekkingu á Windows umhverfinu.
Einnig þarf góða enskukunnáttu þar sem
flest námsgögn eru á ensku.KENNSLUTILHÖGUN
þriðjud. og fimmtud. 8:30-12:30.
Byrjar 5. maí og lýkur 16. júní.
NÝI TÖLVU- OG VIÐSKIPTASKÓLINN – VIÐURKENNDUR EINKASKÓLI Á FRAMHALDSSKÓLASTIGI
PHOTOSHOP EXPERT
- ALVÖRU PHOTOSHOP NÁMSKEIÐ -
PHOTOSHOP EXPERT
Við hjá NTV leyfum okkur að fullyrða að
þetta sé eina námskeiðið sem uppfylli
kröfur þeirra sem einhverja reynslu
hafa í Photoshop. Námskeiðið er yfir-
gripsmikið þar sem mikið er lagt upp úr
þeim þætti sem snýr að eftirvinnslu s.s.
litgreiningu, prófílum, upptöku aðgerða,
skipulag, meðferð RAW skráa, og öllum
þeim aðgerðum sem áður fyrr voru fram-
kvæmdar í myrkrakompu.