Fréttablaðið - 15.04.2009, Side 18
18 15. apríl 2009 MIÐVIKUDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
Fjöldi viðskipta: 40 Velta: 137 milljónir
OMX ÍSLAND 15 OMX ÍSLAND 6
224 +2,47% 659 +2,69%
MESTA HÆKKUN
EIMSKIPAFÉLAGIÐ 25,00%
MAREL FOOD SYST. 12,91%
ÖSSUR 1,01%
MESTA LÆKKUN
BAKKAVÖR 0,83%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Alfesca 3,30 +0,00% ... Atlantic
Airways 171,00 +0,00% ... Atlantic Petroleum 251,00 +0,00% ...
Bakkavör 1,20 -0,83% ... Eik Banki 91,50 +0,00 ... Eimskipafélagið
1,00 +25,00% ... Føroya Banki 127,00 +0,40% ... Icelandair Group
5,00 +0,00% ... Marel Food Systems 48,10 +12,91% ... Össur 90,40
+1,01%
Opnaður hefur verið nýr vefur
sendifulltrúa Alþjóðagjaldeyr-
issjóðsins (AGS) með aðsetur
á Íslandi. Vefurinn er hluti af
alþjóðlegu vefsetri AGS á slóð-
inni www.imf.org/external/count-
ry/isl/rr/index.htm.
Fram kemur á vefnum að þar
verði að finna upplýsingar um
starf sjóðsins hér á landi, þar á
meðal um þau störf sem unnin eru
á skrifstofu sendifulltrúans. Full-
trúi AGS var skipaður í febrúar og
heitir Franek Rozwadowski. Skrif-
stofa AGS hér var opnuð í mars en
á henni starfa, auk Franeks, Edda
Rós Karlsdóttir hagfræðingur og
Ragnar Hjálmarsson skrifstofu-
stjóri. - óká
Ný vefsíða
sendifulltrúans
Marel Food Systems hefur selt
eignir fyrir 37,5 milljónir evra,
eða sem nemur rúmum 6,3 millj-
örðum króna. Samkvæmt tilkynn-
ingu félagsins til Kauphallar í gær
er um að ræða eignir utan kjarna-
starfsemi félagsins. Gengi bréfa
félagsins hækkaði um 13 prósent
í gær.
Annars vegar er um að ræða
fasteignir og lóðaréttindi í Amster-
dam, sem áður tilheyrðu Food &
Dairy hluta Stork Food Systems,
og hins vegar Scanvaegt Nord-
ic A/S sem starfar utan matvæla-
geirans. Andvirði sölunnar notar
Marel Food Systems til að auka
sjóðsstöðu og greiða niður skamm-
tímaskuldir, en af 37,5 milljóna
söluandvirði eru 35 milljónir
evra (5,9 milljarðar króna) stað-
greiddar. „Söluandvirði eignanna
er að fullu í samræmi við upphaf-
leg markmið stjórnenda. Yfir 10
milljóna evru söluhagnaður bók-
ast við söluna sem nánar verður
gerð grein fyrir við birtingu upp-
gjörs félagsins 6. maí,“ segir í til-
kynningunni.
Haft er eftir Theo Hoen, for-
stjóra Marel Food Systems, að í
kjölfar sameiningar Marel og Stork
Food Systems í
fyrra hafi verið
t i lkynnt um
aukna áherslu á
að bæta arðsemi
og innri vöxt
í kjarnastarf-
semi, en hún sé
í þjónustu og
sölu á hátækni-
lausnum fyrir
kjúklinga-, kjöt-
og fiskiðnað.
Þá kemur fram að kaupandi
Scanvaegt Nordic rekstrarins sé
Grundtvig fjölskyldan sem stofn-
aði Scanvaegt árið 1932. Marel
Food Systems keypti Scanvaegt í
ágúst 2006 og greiddi stóran hluta
kaupanna með hlutafé. „Megin-
hluti af starfsemi Scanvaegt er
þjónusta við matvælaiðnaðinn og
hefur sá hluti rekstrarins verið
sameinaður að fullu Marel Food
Systems. Grundtvig-fjölskyldan
er í hópi stærstu hluthafa Marel
Food Systems og hefur stutt félag-
ið til frekari vaxtar. Eignarhlutur
Grundtvig Invest er 10,6 prósent í
Marel Food Systems og situr Lars
Grundtvig í stjórn félagsins“, segir
í tilkynningunni. - óká
THEO HOEN
Seldu eignir fyrir 6,3 milljarða króna
Bjartsýni ríkti á alþjóðlegum fjármálamörk-
uðum strax í bítið í gær, þar á meðal hér, í
kjölfar þess að bandaríski fjárfestingar-
bankinn Goldman Sachs skilaði uppgjöri sínu
fyrir fyrsta ársfjórðung eftir lokun markaða
í Bandaríkjunum í fyrrakvöld.
Bankinn hagnaðist um 1,81 milljarð
Bandaríkjadala, jafnvirði rúmra 230 millj-
arða króna á fjórðungnum. Það er talsvert
umfram væntingar en spár greinenda hljóð-
uðu allt frá 1,33 til 1,64 dala hagnaðar á hlut.
Niðurstaðan var hins vegar 3,39 dalir á hlut
sem er rúmum hundrað prósentum yfir bjart-
sýnustu spám.
Á sama tíma og uppgjör bankans skilaði
sér í hús boðuðu stjórnendur bankans útgáfu
á hlutafé fyrir fimm milljarða dala. Tilgang-
ur þess er að greiða helming láns sem bank-
inn fékk úr björgunarsjóði stjórnvalda, svo-
kölluðum TARP-sjóði, fyrir nokkru.
Bankinn tapaði 2,12 milljörðum dala á síð-
asta fjórðungi í fyrra og var það fyrsta tap
fjárfestingarbankans frá því hann var skráð-
ur á markað 1999.
Bloomberg-fréttaveitan hefur eftir sjóðs-
stjóra hjá eignastýringarfyrirtækinu Schrod-
er Investment Management í Lundúnum í
Bretlandi, að uppgjörið bendi til að senn sjái
til sólar á fjármálamörkuðum.
Bandaríska dagblaðið Wall Street Journal
segir eftirvæntingar hafa gætt í röðum fjár-
festa vestan hafs eftir að bankinn Wells
Fargo gaf út í síðustu viku að væntanlegt
uppgjör bankans yrði betra en gert hafi verið
ráð fyrir. Spár greinenda JP Morgan hafi síst
dregið úr bjartsýninni en þeir þykjast sjá þau
teikn á lofti að fjármuna- og veðlánatekjur
umsvifamestu banka landsins verða betri en
svartsýnisraddir hafi talið. Megi því búast
við betri uppgjörum á línuna. - jab
Gott uppgjör kætti markaðinn
„Eiginfjárhlutfall Askar Capital er
nú undir lögbundnu átta prósenta
lágmarki og hefur félagið frest
frá Fjármálaeftirlitinu [FME] til
að koma eiginfjárhlutfallinu í lög-
bundið horf,“ segir í tilkynningu
Aska til Kauphallar í gær.
Fram kemur að unnið sé að lausn
málsins með nýjum eiganda bank-
ans, skilanefnd Glitnis, og öðrum
kröfuhöfum. Hinn 17. mars síð-
astliðinn gekk skilanefnd Glitnis
að veðum í öllu hlutafé í Moderna
Finance AB, móðurfélagi Askar
Capital. Með því færðust yfirráð
yfir Askar Capital til skilanefndar
Glitnis. - óká
Fóru undir lög-
bundið lágmark
Forseti Bandaríkjanna og
seðlabankastjóri landsins
segja vísbendingar um að
að draga sé úr samdrætti
í bandarísku efnahagslífi.
Aðstæður muni verða erfið-
ar og bati taka tíma.
Barack Obama sagði í ræðu sinni
um efnahagshorfur í Georget-
own-háskóla í Washingtonborg í
gær atvinnuleysi vestan hafs eiga
eftir að aukast frekar á næstunni
og verði árið mörgum Bandaríkja-
manninum erfitt. Þó væri hann
bjartsýnn á að aðgerðir stjórn-
valda muni snúa málum til betri
vegar. Vísaði hann til leiðtoga-
fundar G20-ríkjanna í Lundúnum
í Bretlandi um síðustu mánaðamót.
Línur sem þar hafi verið lagðar
muni virka sem vítamínsprauta
fyrir efnahagslíf þjóðanna.
Seðlabankastjórinn Ben Bern-
anke vísaði í ræðu sinni í gær,
sem hann hélt í Atlanta í Georg-
íu-ríki í Bandaríkjunum, til víð-
tækra aðgerða seðlabankans
gegn kreppunni, svo sem nærri
núllstillingu stýrivaxta, kaupa á
eignum fjármálafyrirtækja og
viðamikillar innspýtingar á fjár-
magni inn í hagkerfið. Bernanke
sagðist vongóður á að aðgerðirn-
ar hleypi smám saman nýju blóði
í lánamarkaðinn en það muni örva
efnahagslífið. Vísaði hann til þess
að einkaneysla og fasteignamark-
aður hafi tekið við sér það sem af
væri árs.
„Aðstæður í efnahagslífinu
eru erfiðar í dag en stoðirnar eru
sterkar,“ sagði Bernanke en lagði
áherslu á að engin vandamál verði
leyst nema með þrautseigju og þol-
inmæði.
Niðurstöður úr smásölugeir-
anum vestra, sem birtar voru í
gær, studdu hvorki við orð for-
setans né bankastjórans. Smásala
dróst saman um 1,1 prósent á milli
mánaða í mars miðað við 0,3 pró-
senta vöxt í mánuðinum á undan.
Bloomberg bendir á að þótt nið-
urstaðan í mars hafi verið undir
væntingum hafi febrúar verið ein-
staklega góður. Fréttastofan vitnar
sömuleiðis til þess að ýmis jákvæð
teikn séu á lofti. Sem dæmi hafi
fasteignamarkaðurinn tekið við
sér í febrúar eftir mikla verðlækk-
un undanfarið og hafi það leitt til
þess að fleiri nýir íbúðakaupendur
hafi fest kaup á sinni fyrstu íbúð
en áður. jonab@markadurinn.is
Sjá hægfara batamerki í
bandarísku efnahagslífi
BARACK OBAMA Forseti Bandaríkjanna og Ben Bernanke seðlabankastjóri segjast
báðir sjá batamerki í bandarísku efnahagslífi. Ekki megi búast við snörpum viðsnún-
ingi til hins betra. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Seðlabankinn birtir héðan í frá að
nýju sundurliðun á eigendum ríkis-
skuldabréfa í markaðsupplýsingum
sínum, líkt og gert var frá septemb-
er 2005 til desember 2006. „Upp-
lýsingarnar voru aðallega byggðar
á gögnum frá Verðbréfaskráningu
Íslands. Birtingin lagðist af um
tíma þar sem erfiðlega gekk að
fá umbeðnar upplýsingar,“ segir í
fréttabréfi Lánamála ríkisins.
Fram kemur að í lok febrúar
hafði ríkissjóður lánað út ríkisbréf
til núverandi aðalmiðlara fyrir að
nafnverði 33 milljarða króna gegn
veði í öðrum ríkistryggðum verð-
bréfum. Þá áttu erlendir aðilar rík-
isbréf fyrir samtals 175 milljarða
króna eða sem nemur um 62 pró-
sentum af ríkisbréfum. - óká
Sundurliðun
birt að nýju
LAGERSALA
HÆÐASMÁRA 4
Sama húsi og Bílaapótek
fyrir ofan Smáralind.
50-80% afsláttur
Undirföt
Sundföt
Allir BH. 1900 kr.
Nærbuxur 900 kr.
2 x g-strengir 900 kr.
Sundfatnaður frá 500 kr. stk.
Opið 14-18
Virka daga
Höfum bætt við
nýjum vörum!
– Lifið heil Lægra
verð
í Lyfju
www.lyfja.is
Gildir út apríl 2009
15% afsláttur
VOLTAREN 11,6 mg/g Gel, 100 g.
15% afsláttur
NICOTINELL tyggjó, Classic og Fruit.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
L
Y
F
4
58
28
0
4
/0
9