Fréttablaðið - 15.04.2009, Side 22
15. apríl 2009 MIÐVIKUDAGUR2
Atvinnuuppbygging
Í Reykjanesbæ eru sjö stórverk-efni í atvinnusköpun langt
komin. Þau eru ólík en eiga það
öll sameiginlegt að geta skap-
að þúsundir vel launaðra starfa.
Störfin eru fjölbreytt, fyrir karla
og konur, óreynda sem reynda og
krefjast mismikillar menntunar.
Ný ríkisstjórn þarf að svara því
hvort hún hyggst leggja stein í
götu þessara verkefna. Það er því
miður hægt. Erlendir fjárfestar
fylgjast með orðum og gjörðum
íslenskra ráðamanna. Neikvæð-
ar raddir sumra þeirra eru þegar
farnar að skapa stórhættu gagn-
vart nokkrum þessara verkefna.
1900 atvinnulausir Suðurnesja-
menn krefjast svara.
1. Íslensk heilsuþjónusta seld til
útlendinga
Undanfarin tvö ár hefur staðið
yfir undirbúningsvinna íslenskra
og erlendra aðila á sköpun tæki-
færa úr aðstöðu og þekkingu
Íslendinga á sviði heilbrigðis-
þjónustu. Tækifærið er fólgið í
að hingað koma útlendingar til að
sækja sérhæfðar læknisaðgerð-
ir. Við nýtum tilbúna en vannýtta
aðstöðu og þekkingu. Undirbún-
ingur sýnir að þúsundir útlend-
inga munu nýta sér þjónustuna
ef hún býðst. Þetta getur skapað
hundruð íslenskra heilbrigðis- og
þjónustustarfa. Fjögur sveitar-
félög leiða stofnun Heilsufélags
Reykjaness. Markmið þess er
að nýta sem best þau tækifæri
sem þarna bjóðast, bæði á sviði
læknisþjónustu, þjálfunar, rann-
sókna og ferðaþjónustu. Enn bíð
ég eftir að fá viðtal við heilbrigð-
isráðherra til að ræða þessi stóru
tækifæri. Hann hefur talað frem-
ur neikvætt í fjölmiðla, séð sér
fært að ræða við „bísnessmenn“
um málið en ekki enn séð af
tíma til að ræða við okkur bæj-
arstjórnarmenn.
2. Ferðaþjónusta – 8 milljarða
fjárfesting á fimm árum
Undanfarin fimm ár hefur verið
fjárfest í ferðaþjónustu á Reykja-
nesi fyrir á áttunda milljarð
króna. Stærstu verkefnin eru
stækkun Bláa lónsins, stækk-
un Leifsstöðvar, bygging Vík-
ingaheima, Orkuversins jarð-
ar, Salfiskseturs, byggðasafna,
menningarseturs í Duushúsum
og gerð tónlistar-sögusýningar
í Hljómahöll. Þessu fylgir mikil
fjárfesting í gistirýmum. Verk-
efnin eru hluti af metnaðarfullri
áætlun til að skapa áhugavert og
fjölbreytt umhverfi fyrir ferða-
menn og skapa tugi betur laun-
aðra starfa.
3. Atvinnusköpun í tónlist og
hugverkum
Tónlistarmenntun hefur verið
einn af hornsteinum menntun-
ar í Reykjanesbæ. Þar er rekinn
stærsti einstaki tónlistarskóli
landsins með um 800 nemend-
ur. Með uppbyggingu á aðstöðu
fyrir Tónlistarskóla Reykjanes-
bæjar í nýju húsnæði, tengdu
hinum sögufræga Stapa, tónlist-
arsölum, tæknirýmum og tónlist-
arsögusýningu ætlum við okkur
stærri hluti á þessu sviði. Við
viljum sjá aukin atvinnutæki-
færi í efldri tónlistarmenntun,
nýtingu íslenskrar tónlistar og
tengingu hennar við aðra þróun
hugbúnaðar, hugmynda og hug-
verka.
4. Álver í Helguvík – 12 milljarð-
ar þegar komnir í verkið
Vegna álvers og kísilvers munu
á þriðja þúsund störf skapast á
byggingartíma vegna virkjana,
línulagna og álversbygginga,
kísilversbygginga og hafnar-
gerðar.
Nú er komið á fimmta ár síðan
undirbúningur álvers í Helgu-
vík hófst. Álverið leiðir til 400
starfa í álveri og í heild til 1100
starfa. Laun í álveri munu hækka
meðallaun á Suðurnesjum veru-
lega. Þá er þegar farið að skoða
frekari úrvinnslu álsins í Helgu-
vík eða annars staðar í Suður-
kjördæmi. Bygging álvers var
komin af stað í fyrra en hefur
hökt í marga mánuði í ríkisstjórn
vegna seinfærrar afgreiðslu
á fjárfestingarsamningi, sem
enginn bjóst við að yrði vanda-
mál. Í tíð lágs álverðs og banka-
hruns er þetta afleit framkoma
og hættuleg verkefninu. Sam-
bærilegir samningar hafa verið
gerðir fyrir önnur álver hér og
jafnvel álver á Bakka hafði feng-
ið slíkt vilyrði. Við höfum einnig
beðið eftir viðræðum við nýjan
samgönguráðherra í tíu mánuði
vegna hafnarframkvæmda. En
álverið Í Helguvík er látið bíða.
5. Kísilver í Helguvík – fylgst
með samningum um álver
Undanfarin tvö ár hefur staðið
yfir undirbúningsvinna vegna
kísilvers í Helguvík. Verkefn-
ið þarf að vera nærri stórskipa-
höfn og orku til að framleiða
50 þúsund tonn af kísilsandi úr
innfluttum kvartsefnum. Kís-
illinn er síðan undirstaða fyrir
frekari vinnslu, sem gæti fært
öðrum landshlutum ærin tæki-
færi. Jákvætt umhverfismat í
Helguvík og lóðarsamningar
liggja fyrir. Loforð HS orku hf.
um 30 MW af rafmagni til fyrsta
áfanga liggur fyrir og verið er
að semja um verð. Enn er þörf
fyrir kísilefni, m.a. í sólarraf-
hlöður. Forsvarsmenn Kísilverk-
smiðjunnar eru enn reiðubúnir
að hefjast handa við byggingu á
þessu ári. En áður þarf fjárfest-
ingarsamning. Um 90 manns
munu starfa við frumfram-
leiðsluna þegar hún hefst. Laun
eru svipuð og í álveri. Við annan
áfanga, gerð kísilefna fyrir sól-
arrafhlöður, skapast um 300
störf í verksmiðju, sem ekki er
þörf á að staðsetja nærri höfn en
mikilvægara að hafa nærri orku-
mannvirkjum. Gangur viðræðna
um álver veldur erlendum aðil-
um áhyggjum.
6. Uppbygging nýrra mennta-
tækifæra
Að Ásbrú, í Reykjanesbæ hefur
verið sköpuð brú milli hugmynda
og verka. Með uppbyggingu Keil-
is, miðstöðvar vísinda, fræða og
atvinnulífs var byggð brú yfir
til háskólamenntunar fyrir þá
fjölmörgu á Suðurnesjum og
víðar sem helst höfðu úr lestinni
í framhaldsnámi. Hundruð ein-
staklinga fá ný tækifæri til að
mennta sig og láta drauma ræt-
ast. Áhersla á frumkvöðlanám,
tónlist, heilsutengt nám, flug-
tengt starf og nám, orkutækni
og kerfisfræði er að skapa mik-
ilvæga sérstöðu fyrir það sem
koma skal á Reykjanesi.
7. Rafrænt gagnaver í Ásbrú
Fyrirtækið Verne Holding er
að reisa rafrænt gagnaver að
Ásbrú í Reykjanesbæ. Fyrirtæk-
ið keypti stórar skemmur á svæði
varnarliðsins og hefur fest sér
stórt landsvæði þar til viðbótar.
Samningar um frekari úrvinnslu
eru á lokastigi. Breytingar á hús-
næðinu eru hafnar og erlend-
ir viðskiptavinir virðast áhuga-
samir þrátt fyrir kreppu. Þar
þarf líka fjárfestingarsamning
við ríkið. Gagnaverið getur sjálft
skapað tugi starfa. Líklega er þó
stærsta tækifærið að baki því sú
flóra hátæknifyrirtækja sem það
er líklegt til að laða að sér.
Fjölbreytt störf – eða stöðnun?
Hér læt ég lokið upptalningu á
þeim stórverkefnum sem unnið
er að á Reykjanesi. Önnur enn
stærri eru í undirbúningi, s.s.
auðlindagarður (Eco-park) því
við erum hvergi hætt. Þessi verk-
efni einkennast af fjölbreytni en
þau byggja samt á sérstöðu svæð-
isins, ýmist í auðlindum náttúr-
unnar, sem okkur þykir vænt um,
aðstöðu eða menningu fólksins.
Þau þurfa öll stuðning næstu rík-
isstjórnar. Við eigum ekki skilið
að stjórnmálamenn tali niður til
okkar og þeirra verkefna sem við
erum að berjast hér fyrir, hvort
sem þau heita álver, heilsuþjón-
usta eða fræðslustarfsemi. Við
þurfum stuðning ykkar allra.
Markmið þess er að nýta sem
best þau tækifæri sem þarna
bjóðast, bæði á sviði læknisþjón-
ustu, þjálfunar, rannsókna og ferðaþjónustu.
Sjö stórverkefni á Reykjanesi
ÁRNI SIGFÚSSON
bæjarstjóri í
Reykjanesbæ
HELGUVÍK Greinarhöfundur segir að vegna álvers og kísilvers í Helguvík munu á
þriðja þúsund störf skapast á byggingartíma.FULLT VERÐ 12.995
TILBOÐ KR. 9.995
lofthreinsitæki
Hreint loft með
SELFOSSI - HÚSAVÍK - AKUREYRI - REYKJAVÍK
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki