Fréttablaðið - 15.04.2009, Qupperneq 29
MIÐVIKUDAGUR 15. apríl 2009 21
timamot@frettabladid.is
Fyrsta útideild leikskóla á Íslandi
verður opnuð formlega í skógar-
rjóðri í útjaðri Norðlingaholts í dag. Í
Björns lundi leynist sannkallaður æv-
intýraheimur með skemmtilegum leik-
tækjum sem allir mega hafa afnot af.
„Björnslundur var fyrst opnaður
í nóvember árið 2006 og þá sem úti-
kennslustofa Norðlingaskóla. Síðan
eignuðumst við lundinn með þeim þá
um vorið,“ segir Guðrún Sólveig, leik-
skólastjóri Rauðhóls í Norðlingaholti,
en nýverið var opnuð ný deild leikskól-
ans í lundinum sem er fyrsta útideild-
in á Íslandi.
Leikskólinn Rauðhóll varð fljótt of
lítill og þar sem ekki var á dagskrá að
byggja nýjan leikskóla í hverfinu í nán-
ustu framtíð varð að finna aðra lausn.
„Við sáum að við urðum að bæta við
einni deild,“ segir Guðrún.
Á svipuðum tíma fór leikskólasvið
borgarinnar í ferð til Danmerkur og
skoðaði þar leikskóla. Þar vakti at-
hygli þeirra útideildir sem eru vin-
sælar á Norðurlöndunum. Þegar heim
var komið vöktu þau máls á þessu við
Guðrúnu leikskólastjóra sem mögulega
lausn á vanda Rauðhóls. „Við fórum
strax á flug og hófum leit að hentugu
svæði. Um haustið 2007 var ég að ræða
þetta við Sif skólastjóra Norðlinga-
skóla sem kom með þá hugmynd að við
myndum byggja útideild í Björnslundi
og það varð úr,“ segir Guðrún og út-
skýrir hvernig slík útideild virkar.
„Börnin eru í viku í senn úti og
næstu þrjár í leikskólanum. Meðan
þau eru í útideildinni verja þau mest-
um tíma í skóginum við listsköpun og
annað skemmtilegt en fá að fara inn í
heitt kakó og mat,“ útskýrir hún en í
hinu nýja húsi í Björnslundi eru ekki
jafn strangar reglur og í venjulegum
leikskóla um að börnin verði að klæða
sig úr. „Þar verður smá svæði þar sem
þau geta komið inn í útifötunum auk
þess sem við nýtum vel yfirbyggðan
pall við húsið.“
Alls staðar í skóginum eru hand-
gerð leiktæki úr reipi og spýtum sem
öllum er frjálst að nota, ekki bara
leikskólabörnunum. „Til að hjálpa
okkur við uppbyggingu leiktækjanna
hafa komið hingað nemar frá Bergen
sem eru í mastersnámi í útikennslu,“
segir Guðrún en síðan hafa kennar-
ar í Norðl ingaskóla og á Rauðhól lært
að hnýta og búa til leiktæki auk þess
sem eldri börnin í Norðlingaskóla hafa
hjálpað til. „Svo ætlum við að fá for-
eldrana í lið með okkur til að bæta að-
stöðuna,“ segir Guðrún.
Engin girðing umlykur útideildina
en þar verða börn allt niður í þriggja
ára aldur. „Skógurinn passar börnin,“
segir Guðrún glaðlega og bætir við að
náttúran hafi jákvæð áhrif á hegðun-
ina. „Börn sem eiga erfitt með sam-
skipti og þurfa á mikilli sérkennslu
að halda eru allt önnur í útideildinni.
Lífið er mun auðveldara í skóginum,“
segir Guðrún og telur að slík útideild
hafi ekki síður góð áhrif á starfsfólkið.
„Starfsmennirnir í Danmörku sögðu
að það væri eins og að fara í sumar-
frí að fá að vera viku með börnunum í
skóginum,“ segir Guðrún og bætir við
að skógurinn sé perla sem allir í Norð-
lingaholti nýti og því fleiri sem komi í
skóginn því betra. solveig@frettabladid.is
BJÖRNSLUNDUR: FYRSTA ÚTIDEILD LEIKSKÓLA Á ÍSLANDI
SKÓGURINN PASSAR BÖRNIN
HALARÓFA Börnin á Rauðhól eru full tilhlökk-
unar þegar þau rölta yfir í Björnslund frá
leikskólanum sínum.
Í SKÓGINUM Við húsið í Björnslundi er góður
yfirbyggður pallur þar sem hægt er að leita
skjóls. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VIGDÍS FINNBOGADÓTTIR
ER 79 ÁRA Í DAG
„Ég vil að þegar menn
hugsi til þessa lands þá
sjái þeir fyrir sér hreint
land og óspillt, hreint loft,
heilnæman mat, mann-
líf sem stendur á göml-
um merg og veit um leið
öll þau tíðindi sem skipta
máli á hverjum tíma.“
Vigdís Finnbogadóttir var kjörinn forseti Íslands árið
1980 og gegndi því embætti til ársins 1996. Hún var
fyrsta konan í heiminum sem kosin var þjóðhöfðingi í
lýðræðislegum kosningum.
MERKISATBURÐIR:
1683 Kristján V. konungur Dan-
merkur, skrifar undir
Dönsku lögbókina.
1687 Norsku lög Kristjáns V.
lögtekin.
1785 Skálholtsskóli lagður
niður og biskupsstóll flutt-
ur til Reykjavíkur.
1803 Reykjavík verður sérstakt
lögsagnarumdæmi.
1892 Fyrirtækið General Electric
stofnað í Bandaríkjunum.
1955 Fyrsti McDonalds-veitinga-
staðurinn opnar í Banda-
ríkjunum.
1960 Heildverslunin Íslensk-
Ameríska er stofnuð.
1967 Um 250 þúsund Banda-
ríkjamenn mótmæla Víet-
namstríðinu í New York.
1977 Jón L. Árnason verður Ís-
landsmeistari í skák.
Breska farþegaskipið Titanic var stærsta farþega-
skip í heimi en í heildina átti skipið að geta tekið
3.547 farþega. Skipið var byggt samkvæmt nýj-
ustu tækni á sínum tíma
og var jafnvel talið að
ekki væri hægt að sökkva
því. Þægindin um borð
voru öll hin glæsileg-
ustu en meðal annars var
sundlaug, æfingasalur og
tyrkneskt bað í boði fyrir
farþega fyrsta farrýmis og
bókasafn og veggtenn-
isvöllur voru einnig um
borð. Svítur fyrsta farrým-
is voru klæddar í hólf og gólf með útskornum
viðarpanel og húsgögn og borðbúnaður af fín-
ustu sort. Meðal farþega í þessari einu ferð voru
margir af þekktum milljónamæringum þessa
tíma eins og eigandi verslunarkeðjunnar Macy’s,
Isidor Straus og kona hans Ida.
Í jómfrúrferð Titanic frá Southampton í Bretlandi
til New York, aðfaranótt
15. apríl fyrir 97 árum,
rakst skipið á borgarísjaka
og sökk. Stefnu skipsins
hafði verið breytt örlít-
ið til suðurs vegna viðvar-
ana um hafís á siglinga-
leiðinni undanfarna daga.
Ekki komust þó allar við-
varanirnar til skila þann
14. apríl. Rétt fyrir mið-
nætti sást ísjaki beint
fram undan og rakst skipið utan í hann og sökk
á nokkrum klukkustundum. Alls fórust 1.517
manns þessa nótt en einungis voru til reiðu
björgunarbátar fyrir 1.178 farþega.
ÞETTA GERÐIST: 15. APRÍL ÁRIÐ 1912
Farþegaskipið Titanic sekkur
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Jóna Margrét Sigurðardóttir
Brekkulandi 6, (Gili) Mosfellsbæ,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir, fimmtudaginn 9. apríl.
Útförin auglýst síðar.
Sigurdór Rafn Andrésson
Sigurður Gunnar Andrésson Guðný Arnardóttir
Andrés Guðni Andrésson Jenný Magnúsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín og móðir,
Björg Ólöf Bjarnadóttir
Hafnargötu 28, Vogum, Vatnsleysuströnd,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, 8. apríl sl.
Útförin verður auglýst síðar.
Ragnar Óskarsson
Þormar Elí Ragnarsson
Hafsteinn Veigar Ragnarsson
Ragna Sól Ragnarsdóttir
Bjarni Birgir Fáfnisson
Eiginmaður minn, faðir og afi,
Friðrik Ferdinant Jakobsson
Hinnerup, Danmörk, áður Brekkugötu 13, Akureyri,
lést þriðjudaginn 7. apríl. Útför hans fór fram í
Danmörku laugardaginn 11. apríl.
Lilli Jakobsson
Ingibjörg Friðriksdóttir
Mikael Friðrik Húnfjörð
Ástkær móðir okkar og tengdamóðir,
Ingibjörg Jónsdóttir,
Dvalarheimilinu Grund,
áður Álfheimum 3,
lést að morgni 5. apríl. Útför hennar fer fram frá
Langholtskirkju föstudaginn 17. apríl klukkan 15.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðmann Sigurbjörnsson Kristín Aradóttir
Rósa Jónsdóttir Sigursveinn Sigurðsson
Hólmfríður Jónsdóttir
Guðjón Rögnvaldsson
Elskuleg sambýliskona mín,
móðir, og systir,
Anna Bryndís Árnadóttir
Urðargili 9, Akureyri,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 12. apríl.
Jón Árni Elísson
Guðmundur Árni Þorvaldsson
Gunnar Árnason
Guðlaug Árnadóttir
Jakob Árnason
Edda Árnadóttir
og fjölskyldur.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Jórunn Normann
Frímannsdóttir
Fossvegi 20, Siglufirði,
lést þann 11. apríl sl. á Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar.
Útför hennar fer fram frá Siglufjarðarkirkju laugardag-
inn 18. apríl kl. 14.00. Blóm og kransar afþakkaðir en
þeim sem vilja minnast hennar er bent á Kvenfélagið
Von, Siglufirði.
Guðni Leifur Gústafsson Jensína Ingibjörg
Guðmundsdóttir
Pálína Gústafsdóttir Sigtryggur Kristjánsson
Frímann Jósef Gústafsson Halldóra Guðlaug
Ragnarsdóttir
Kjartan Gústafsson Ólöf Þorvaldsdóttir
E. Ásgerður Gústafsdóttir Númi Jóhannsson
Guðbrandur Sveinn Gústafsson Gunnjóna Jónsdóttir
Marín Gústafsdóttir Leonardo C. Passaro
Ívar Árnason
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
EINS OG TARSAN Í TRJÁNUM Börnin fá góða útrás fyrir hreyfiþörfina í skóginum.