Fréttablaðið - 15.04.2009, Page 34
26 15. apríl 2009 MIÐVIKUDAGUR
menning@frettabladid.is
Breskir fjölmiðlar eru mikið
fyrir að taka saman lista yfir
allt og ekkert. Nú greinir The
Guardian frá því að lag Pro-
col Harum, A Whiter Shade of
Pale, sé mest spilaða lagið á
opinberum stöðum síðustu 75
árin þar í landi. Þetta er nið-
urstaða lista sem BBC Radio
2 tók saman. Lagið sat í sex
vikur samfleytt í efsta sæti
breska vinsældalistans þegar
það kom út árið 1967 og hefur
síðan þá verið vinsælt til
flutnings í bæði brúðkaupum
og jarðarförum.
Í öðru sæti á þessum for-
vitnilega lista er Bohemi-
an Rhapsody með Queen, lag
sem margir hefðu kannski
skotið á að tæki toppsæt-
ið. Auk þess vekur talsverða
athygli að ekkert Bítlalag
kemst inn á topp tíu. Þess
í stað eiga Wet Wet Wet og
Bryan Adams lög á topp tíu.
„Þetta er nú ekki það sem
ég hefði getað gert mér í hug-
arlund þegar ég samdi lagið
og tók svo upp þessa frægu
útgáfu með Procol Harum
fyrir öllum þessum árum,“
sagði söngvarinn Gary Broo-
ker í samtali við BBC.
Procol Harum sívinsælir í Bretlandi
ENN AÐ Procol Harum hefur notið
mikilla vinsælda í fjóra áratugi. Hér
sjást söngvarinn Gary Brooker og
Geoff Whitehorn á tónleikum árið
2006. NORDICPHOTOS/GETTY
1. Procol Harum – A Whiter Shade
of Pale
2. Queen – Bohemian Rhapsody
3. Everly Brothers – All I Have to
Do Is Dream
4. Wet Wet Wet – Love is All
Around
5. Bryan Adams – (Everything I
Do) I Do It for You
6. Robbie Williams – Angels
7. Elvis Presley – All Shook Up
8. Abba – Dancing Queen
9. Perry Como – Magic Moments
10. Harry Lillis Crosby – White
Christmas
MEST SPILUÐU LÖGIN
Á OPINBERUM VETT-
VANGI Í BRETLANDI
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Miðvikudagur 15. apríl 2009
➜ Fyrirlestrar
15.00 Njörður P. Njarðvík flytur fyr-
irlestur um Dalai Lama á Háskólatorgi
við Sæmundargötu 4, í stofu 102. Allir
velkomnir.
➜ Myndlist
Sex listamenn hafa opnað sýningar í
START ART listamannahúsi við Laugaveg
12b; Lena Boel, Dagrún Matthíasdótt-
ir, Sigurlín M. Grétarsdóttir, Joseph
Henry Ritter, Ragnheiður Ragnars-
dóttir og Margrét Jónsdóttir.
Opið þri.-lau. kl. 13-17.
Þrándur Þórarinsson hefur
opnað sýningu við Laugaveg
51, þar sem hann sýnir olíu-
málverk. Viðfangsefnin eru
sótt í þjóðsögur og Íslend-
ingasögur. Sýningin stendur
í apríl og er opin daglega
frá 13 til 17.
➜ Sýningar
Sýningin „Ísland: Kvikmyndir“
stendur yfir í þjóðmenningar-
húsinu við Hverfisgötu 15. Á
sýningunni er dregin upp mynd
af þróun kvikmyndagerðar á
Íslandi á árabilinu 1904-2008.
Einnig stendur þar yfir sýningin
„Að spyrja náttúruna - saga
Náttúrugripasafnsins“.
➜ Ljósmyndasýningar
➜ Tónleikar
20.00 Tónleikar verða í Gamla bóka-
safninu, kaffi- og menningarhúss ungs
fólks, við Mjósund 10 í Hafnarfirði. Fram
kemur bandaríska hljómsveitin Animal
Hospital ásamt My Summer as a Sal-
vation Soldier og Pascal Pinon. Allir 16
ára og eldri velkomnir.
20.30 Léttsveitir Tónlistarskóla
Seltjarnarness verða með tónleika á
Kaffi Rosenberg við Klapparstíg. Á efnis-
skránni verður dillandi djass-músík. Allir
velkomnir.
21.00 Hljómsveitin Leaves leikur
nýtt efni í bland við eldra á Sódómu
Reykjavík við Tryggvagötu. Einnig mun
koma fram hljómsveitin Króna.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
Opnuð hefur verið sýning á ljósmynd-
um Keiko Kurita í Skotinu á Ljósmynda-
safni Reykjavíkur við Tryggvagötu 15.
Opið virka daga kl. 12-19 og um helgar
13-17. Aðgangur ókeypis.
í Þjóðminjasafninu við Suðurgötu
hefur verið opnuð sýning á ljósmyndum
sem sýna börn við vinnu á sjó og á
landi á árunum 1920-1950. Opið þri.-
sun. kl. 11-17.
Í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi
við Gerðuberg 3-5, hefur verið opnuð
sýning á ljósmyndum Cynziu D‘Am-
brosi sem heitir „Myrkur sannleikur:
Kolanámumenn í Kína“. Sýningin
er opin virka daga kl. 11-17 og um
helgar kl. 13-16.
Bubbi Morthens leggur af
stað í tónleikaferð um land-
ið á morgun. Hann leikur
á tíu stöðum á Norður- og
Austurlandi á næstu vikum
og í sumar fer hann á Vest-
firðina.
„Það er gríðarlega gaman að ferð-
ast um landið og koma í þorpin,
kirkjurnar og leikhúsin,“ segir
Bubbi Morthens um tónleika-
ferðalag sitt um landsbyggðina
sem hefst í Dalvíkurkirkju annað
kvöld, en hann heimsækir tíu staði
á Norður- og Austurlandi fram til
3. maí. „Þegar líður á sumarið fer
ég á Vestfirðina og á alla staðina
í kringum Stór-Reykjavíkursvæð-
ið svo sem Hellu, Hvolsvöll, Mýr-
dalinn, Suðurnesin og fer þá mjög
líklega aftur norður og austur,“
útskýrir Bubbi sem hefur í um
þrjátíu ár heimsótt fólkið á lands-
byggðinni með kassagítarinn að
vopni.
Spurður hvort einhver stað-
ur sé í sérstöku uppáhaldi segist
Bubbi halda mikið upp á Húsavík-
urkirkju. „Það er gríðarlega spes
að spila í Húsavíkurkirkju, en allir
staðirnir eiga sinn sjarma og sína
fegurð. Þetta er eitt það skemmti-
legasta sem ég geri og þarna er
ég að sinna landsbyggðinni, því
þetta er landið mitt og fólkið sem
hefur keypt tónlistina mína. Það er
kannski ekki mikið upp úr þessu
að hafa en þetta snýst ekki um það,
heldur að vera í sambandi við fólk-
ið sitt,“ bætir hann við.
Aðspurður segir hann andrúms-
loftið vera öðruvísi nú í breyttu
þjóðfélagsástandi. „Ég held að
landsbyggðin hafi átt við erfiðleika
að stríða frá því löngu fyrir hrun,
jafnvel meiri erfiðleika en margir
gera sér grein fyrir, svo sem fólks-
og fyrirtækjaflótta og kvóta. Hins
vegar erum við núna að glíma við
ástand í þjóðfélaginu sem mun líka
hafa áhrif á landsbyggðina svo
ég býst við að það verði einhvers
konar stemning þarna hvernig svo
sem hún verður, en ég býst við að
hún verði jákvæð. Ég hef ekki hug-
mynd um aðsókn og renni blint í
sjóinn með að fara einn að spila
með kassagítar, en ég ætla alla-
vega að gera mitt besta og vonast
auðvitað til þess að fólk komi og
njóti góðra tónleika og kvöldstund-
ar,“ segir Bubbi. Nánari dagskrá
má sjá á bubbi.is en miðasala fer
fram við innganginn á hverjum
tónleikastað og á midi.is.
alma@frettabladid.is
BUBBI Á FERÐ UM LANDIÐ
Á FERÐ OG FLUGI Bubbi heimsækir tíu staði á Norður- og Austurlandi fram í maí, en tónleikaferðalagi hans um landið lýkur í
haust. MYND/UNNUR
Kl. 21.00
Hljómsveitin Króna kemur fram
á öðrum tónleikum sínum. Sveit-
in leikur með Leaves á Sódómu
Reykjavík. Króna er skipuð þeim
Bigga úr Maus, Hjalta Jóni Sverr-
issyni og Jón Vali Guðmundssyni.
Hún spilaði í fyrsta sinn á Nokia
on Ice-hátíðinni á dögunum og
þótti gefa góð fyrirheit.
Sýnt í Hafnarfjarðarleikhúsinu
Miðasala í síma 555 2222 og á midi.is
16.04 kl.21 Fimmtudagur
17.04 kl.21 Föstudagur
01.05 kl.21 Föstudagur
03.05 kl.21 Sunnudagur
(takmarkaður sýningafjöldi)
Fréttablaðið
Miðasala í síma 555 2222 og á