Fréttablaðið - 15.04.2009, Page 36
28 15. apríl 2009 MIÐVIKUDAGUR
folk@frettabladid.is
Fjölmiðlar hafa mikið velt því
fyrir sér hvers konar húðflúr
Lindsay Lohan hafi fengið sér
eftir að upp úr slitnaði milli
hennar og Samönthu Ronson. Nú
hafa bandarískir fjölmiðlar upp-
lýst, öllum til mikillar gleði, að
Lindsay lét húðflúra á sig fræga
setningu sem höfð
var eftir Marilyn
Monroe. Setning-
in er á þessa leið:
„Allir eru stjörnur
og eiga rétt á því
að skína.“
Lindsay hefur
lengi verið aðdá-
andi Monroe
og var meðal
annars mynd-
uð í hlutverki
hennar fyrir
New York Mag-
azine á síðasta
ári. Nú er hins
vegar að vona
að örlög Linds-
ay verði ekki
jafn sorgleg.
Lohan fékk
sér Monroe
HORFIR TIL MARI-
LYN Lindsay Lohan
lét húðflúra á sig
fræga setningu
sem höfð var eftir
Marilyn Monroe.
> SYNGUR UM SVIKIN
Amy Winehouse hefur samið lag
sem kallast The Ultimate Betrayal.
Fjallar það um fregnir þess efnis að
eiginmaður hennar eigi von á barni
með annarri konu. „Amy hélt að þau
myndu ná saman aftur en þessar fregn-
ir fóru alveg með hana,“ sagði
heimildarmaður The Sun.
Dýraverndunarsamtök á borð við
PETA eru ákaflega valdamikil í
heimi hinna frægu og ríku. Svo
valdamikil reyndar að stjörnurn-
ar keppast við að lýsa því yfir að
þær noti ekki dýraskinn í klæðn-
aði sínum. Angelina Jolie sendi
til að mynda frá sér yfirlýsingu
nýverið þar sem hún tók skýrt
fram að rússneska loðhúfan sem
hún var með í kvikmyndinni Salt
væri úr gerviefni. PETA-sam-
tökin fögnuðu yfirlýsingunni
og Jolie er nú í náðinni á þeim
bænum.
Engin skinn
Pussycat Dolls-stjörnuna Nicole
Scherzinger langar að syngja
dúett með kærastanum sínum,
ökuþórnum Lewis Hamilton.
Nicole lýsti því nýverið yfir við
fjölmiðla að Formúlu eitt-stjarn-
an væri einn mesti aðdáandi
sveitarinnar þótt víða væri leitað.
Þau hafa verið par síðan 2007 og
Nicole horfði meðal annars á unn-
ustann vinna Formúluna í fyrra.
Og til að bæta við rómantík-
ina þá langar Nicole að taka upp
lag með Hamilton þótt hún við-
urkenni að hann þyrfti kannski
aðeins að laga hjá sér sönginn.
„Hann heldur að hann geti sung-
ið og það er mín sök. Við endum
örugglega saman í hljóðveri og
það væri bara frábært,“ segir
Nicole en skötuhjúin þurfa að
vera fjarri hvort öðru svo dögum
og mánuðum skiptir vegna vinn-
unnar. „Honum finnst gaman
að koma mér á óvart og kemur
stundum óvænt á tónleika. Hann
kann textann við Don‘t Cha og ef
við myndum syngja saman yrði
það alveg ótrúlega skemmtilegt.“
Langar að
syngja dúett
SAMHENT Pussycat Dolls-stjarnan og
Formúlu eitt-ökuþórinn eru samhent og
eiga kannski eftir að syngja saman.
NORDICPHOTOS/GETTY
Robyn Gibson, eiginkona Mel Gibson,
hefur sótt um skilnað við hann eftir 28
ára hjónaband. Gibson-hjónin hafa ekki
búið saman í þrjú ár eða frá því leik-
arinn og leikstjórinn var handtekinn
fyrir ölvunarakstur í Malibu. Í skjöl-
um sem Robyn lagði fyrir dómara
kemur fram að ástæðan sé óleysan-
legur ágreiningur. Skilnaðurinn
gæti hugsanlega orðið sá dýrasti
í sögu Hollywood enda Gibs-
on einn valdamesti maður
kvikmyndaborgarinnar og
hefur aflað ófárra milljóna
með myndum sínum.
Gibson var myndaður með
ónafngreindri konu á Kostaríka
fyrir nokkru og fjölmiðlar í Banda-
ríkjunum gera því skóna að beiðni eig-
inkonunnar sé því engin tilviljun. Þau
hjónin sendu frá sér yfirlýsingu vegna
skilnaðarins þar sem fram kom að þau
hefðu ætíð reynt að halda einkalífi sínu
utan kastljóss fjölmiðlanna og að þau
vonuðust til að þau gætu það áfram.
Ekki er víst að Robyn og Mel verði að
ósk sinni enda er um gríðarleg auðæfi
að ræða. Mel á húseignir um allan heim
og þénaði yfir 270 milljónir punda, 47
milljarða, á kvikmynd sinni, The Pass-
ion of Christ, en hún kostaði einungis
fjóra milljarða í framleiðslu. Robyn og
Mel eiga fimm uppkomin börn og níu ára
strák sem þau hyggjast sækja um sam-
eiginlegt forræði yfir. - fgg
Rándýr skilnaður hjá Mel Gibson
SKILINN Mel Gibson sækir ef til Ísland aftur
heim til að jafna sig á skilnaði við eiginkonu
sína, Robyn Gibson.
NORDICPHOTOS/GETTY
Bandaríska goðsögnin Phil
Spector var fundinn sekur
um morð á leikkonunni og
fyrirsætunni Lönu Clark-
son. Hann á yfir höfði sér
lífstíðarfangelsi.
Kviðdómendur komust að sam-
dóma áliti á mánudagskvöldið en
þetta er í annað sinn sem Spect-
or fer fyrir rétt vegna málsins.
Kviðdómur komst ekki að niður-
stöðu í málinu árið 2007. Spector
lýsti yfir sakleysi sínu en kvið-
dómur var á einu máli; Spector
hefði átt sök á andláti Clarkson.
Phil verður látinn sitja í varð-
haldi til 29. maí.
Phil Spector var brautryðjandi
í upptökustjórnun og þekktastur
fyrir Wall of Sound-hljóðtækni
sína. Hún kom honum þó ekki til
bjargar að þessu sinni. Lögfræð-
ingur Spector‘s, Doron Weinberg,
útilokaði ekki að þeir myndu
áfrýja dómnum til hæstaréttar.
„Okkur finnst ekki að réttlæt-
ið hafi sigrað í dag,“ sagði Wein-
berg í samtali við fjölmiðla eftir
að dómurinn hafði fallið. Hann
hrósaði þó kviðdómi fyrir störf
sín og sagði þá hafa sinnt sínu
starfi af heiðarleika. „Þeir voru
hins vegar mengaðir af óviður-
kvæmilegum og fordómafull-
um sönnunargögnum sem litaði
þeirra niðurstöðu,“ bætti Wein-
berg við.
Lana og Phil hittust 3. febrú-
ar árið 2003 á skemmtistaðnum
Hollywood House of Blues þar
sem Lana vann sem veislustjóri.
Phil bauð Lönu upp á drykk heima
hjá sér sem Lana þáði með þökk-
um. Að morgni 4. febrúar var
lögreglan kölluð til og þar fannst
Lana látin, með skotsár á höfði.
Spector hefur ætíð haldið því
fram að Lana hafi verið að leika
sér með byssuna, hún hafi verið
að „kyssa“ skotvopnið þegar ban-
vænt skot hljóp af fyrir slysni.
freyrgigja@frettabladid.is
PHIL SPECTOR SEKUR
FUNDINN SEKUR UM MORÐ Wall of Sound-snillingurinn Phil Spector hefur verið
fundinn sekur um morðið á Lönu Clarkson. Hann á yfir höfði sér lífstíðarfangelsi.
NORDICPHOTOS/GETTY
MUN LÍKLEGA ÁFRÝJA Phil Spector mun
að líkindum áfrýja lífstíðarfangelsisdómi
sínum.
Veist þú hvað er í boði hér heima?
Laugardaginn 18.apríl
Allir viðburðir ókeypis eða á kostnaðarverði!
www.ferdafagnadur.is
Hugmynd
atorg
fyrir ferð
aþjónustu
na
- fimmtu
dag og fö
studag k
l. 15 - 18
á Höfuðb
orgarstof
u, Aðalstr
æti 2