Fréttablaðið - 15.04.2009, Qupperneq 42

Fréttablaðið - 15.04.2009, Qupperneq 42
34 15. apríl 2009 MIÐVIKUDAGUR KÖRFUBOLTI KR-ingar urðu Íslands- meistarar annan í páskum eftir 84-83 sigur á Grindavík í odda- leik fyrir troðfullu húsi. Það hefur gengið á ýmsu í vetur og það var allt annað en auðvelt fyrir Bene- dikt Guðmundsson að þjálfa liðið sem flestir spáðu að myndi vinna alla titla í boði og jafnvel alla leik- ina. Honum tókst hins vegar að vinna sinn annan Íslandsmeistara- titil á tveimur árum og varð fyrsti KR-þjálfarinn til þess að gera það síðan KR vann undir stjórn Gor- dons Godfrey 1967 og 1968. „Það var svakaleg pressa á lið- inu og mikið látið með liðið. Maður barðist við það allan veturinn að passa að þetta næði ekki inn til hópsins en svo náði þetta inn í hóp- inn á endanum,“ sagði Benedikt. Orðnir skíthræddir við að tapa KR lenti í því að tapa afar óvænt fyrir Stjörnunni í bikarúrslita- leiknum og sá leikur sat í mönnum. „Maður sá þetta gerast í bikarúr- slitaleiknum þegar menn töldu sig eiga eitthvað í hendi. Þegar fór á líða á leikinn þá voru menn orðn- ir skíthræddir um að tapa. Maður var farin að sjá það sama gerast í úrslitaseríunni á móti Grindavík. Þá sá maður það svart á hvítu að þetta var orðið andlegt vandamál sem þurfti að leysa,“ sagði Bene- dikt. Jón Arnór Stefánsson talaði um það að Benedikt hefði sýnt á sér nýjar hliðar þegar KR liðið var komið 1-2 undir í úrslitaeinvíginu og næsti leikur átti að fara fram í eina húsinu sem liðið hafði ekki unnið leik í í vetur. En hvað gerði hann? „Ég held að það sé algjör óþarfi að opinbera það því það á heima innan liðsins. Sem betur fer tókst það mjög vel. Maður þurfti að fara ótroðnar slóðir og maður var bara meira eða minna í KR-heimilinu eftir leik þrjú. Maður var að funda með mönnum og fara yfir hluti. Ég get ekki sagt að ég hafi eytt páska- degi mikið með fjölskyldunni,“ segir Benedikt. „Ég var aldrei hræddur um að við gætum ekki snúið þessu við. Við fórum bara að eyða minni tíma inn í sal en þess í stað talaði ég meira og ræddi meira málin við leikmennina,“ sagði Benedikt en hann fékk líka góða hjálp frá góðum KR-ingi sem hann vill þó ekki nefna á nafn. „Strax eftir leik þrjú þá settumst við Ingi Þór niður með góðum KR-ingi og ræddum málin. Ég held að hann vilji vera huldumaður áfram.“ Það mátti heyra á Benedikt eftir að titillinn væri í höfn yrði hann ekki áfram með liðið. „Ég var búinn að tilkynna leik- mönnum og nánustu aðilum þetta fyrir úrslitakeppnina að ég fyndi það að þeir þyrftu að fá eitthvað nýtt og ferskt,“ segir Benedikt en flestir KR-ingar eru ekki á sama máli. Beðinn um að halda áfram „Það hafa margir beðið mann um að endurskoða þetta. Ég er enn þá á þeirri skoðun að bæði leikmenn og klúbburinn þurfi eitthvað nýtt og ferskt. Ég tel þetta vera best fyrir KR,“ segir Benedikt. Hann á samt enn eitt ár eftir af samn- ingi sínum. „Ég er ekki að biðja um að menn séu að eltast við mig eða að ég finni að menn vilji hafa mig. Ef þessi sería hefði tapast þá væri öllum sama í dag en fyrst hún vannst þá vilja einhverji halda manni,“ segir Benedikt. Honum finnst enn mjög gaman að þjálfa liðið. „Ég hef haft mikla ánægju af því að þjálfa KR og vissi alveg að hverju ég gekk þegar ég kom aftur. Ég hef gaman af að vera með lið sem allir hafa skoðanir á. Eftir að KRTV byrjaði þá er fólk í Papey og fleiri stöðum farið að hafa skoðanir á KR,“ segir Bene- dikt í léttum dúr. Verður erfitt að toppa þetta Benedikt gerir sér grein fyrir því að þetta tímabil verði í minnum haft um ókomin ár. „Það verður erfitt að toppa þetta. Menn voru að tala um að við gætum hugsanlega farið taplausir í gegnum þetta en mér fannst frá- leitt að tala um það. Mér fannst mikið breytast þegar Nick Brad- ford kom til Grindavíkur. Þá fannst mér vera komin tvö yfirburðalið í staðinn fyrir eitt sem var sér- flokki. Hann breytti gríðarlega miklu fyrir Grindavík og kom með svo flott hugarfar inn í Grindavík- urliðið,“ segir Benedikt. Benedikt var að vinna með stráka í liðinu, sem hann hafði, suma hverja, þjálfað fyrir meira en áratug. „Maður getur sagt að maður hafi byrjað að leggja í púkkið fyrir þessum titli fyrir langa, langa löngu. Það er þvílíkt ánægjulegt að taka stærsta titilinn hér á landi með þessum guttum,“ segir Benedikt. Fleiri spurningarmerki „Það er alltaf verið að skjóta á okkur að við höfum keypt Jón og Jakob heim og sumir voga sér að halda því fram að við höfum verið að kaupa titil. Þetta á að opna augun hjá mönnum fyrir unglinga- starfinu hjá sínum félögum. Menn njóta þess kannski ekki alveg strax en örugglega eftir einhver ár,“ segir Benedikt. „Það eru fleiri spurningarmerki en með mig. Það eina sem er pott- þétt er að Jón verður hjá einhverju stórliði í Evrópu eða kemur sér inn í NBA aftur,“ segir Benedikt. „Það besta við að vinna þetta núna er að gera það með alla þessa KR-inga. Það gerir þetta einstakt fyrir okkur. Það skipti líka máli að vera með Inga Þór með mér en hann er búinn að leggja þvílíkt í þennan klúbb bæði sem þjálfari og í öllu öðru. Þetta verður því ekkert sætara,“ sagði Benedikt að lokum. ooj@frettabladid.is Ég tel þetta vera best fyrir KR-liðið Benedikt Guðmundsson, þjálfari Íslandsmeistara KR, er ekki búinn að taka endanlega ákvörðun um að hætta með liðið en KR-ingar vilja örugglega halda þjálfaranum sem varð í fyrrakvöld sá fyrsti í rúm fjörutíu ár til að gera KR-liðið tvisvar að Íslandsmeisturum. ÞRJÚ TÍMABIL MEÐ KR Benedikt Guðmundsson hefur stjórnað KR í 91 leik á Íslands- móti undanfarin þrjú tímabil og liðið hefur unnið 72 þeirra. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM FÓTBOLTI Fjórðungsúrslitum Meist- aradeildar Evrópu lýkur í kvöld með tveimur leikjum. Manchester United mætir í heimsókn til Porto í Portúgal og þá tekur Arsenal á móti Villarreal á heimavelli. United á ærið verkefni fyrir höndum eftir að fyrri leik liðanna á Old Trafford lauk með jafntefli, 2-2. Það er þó bót í máli að Alex Ferguson, stjóri United, getur notað Rio Ferdinand í leiknum í kvöld en hann missti af þeim fyrri vegna meiðsla. „Rio er klár og byrjar á morg- un,“ sagði Ferguson á blaðamanna- fundi í gær. „Það skiptir ávallt miklu máli að hafa hann í byrjun- arliðinu,“ bætti hann við. Darren Fletcher verður hins vegar ekki í hópnum hjá Unit- ed vegna meiðsla sem hann varð fyrir í fyrri leik liðanna í síðustu viku. Ferguson sagði að hann nyti sín vel í stórum leikjum eins og þess- um þar sem mikið er undir. „Það er frábært að fá að taka þátt í leikjum eins og þessum,“ sagði Ferguson. „Porto hefur yfir- höndina í einvíginu en við getum vel snúið þessu okkur í hag.“ Jesualdo Ferreira, þjálfari Porto, verður í banni í leiknum í kvöld vegna framkomu sinnar í fyrri leik liðanna. Arsenal er í ágætri stöðu eftir 1- 1 jafntefli í fyrri leik liðanna sem fór fram á Spáni. Arsene Wenger, stjóri liðsins, telur að leikmenn séu tilbúnir til að sýna hvað í þeim býr. „Liðið hefur sýnt mikinn and- legan styrk í gegnum allt tímabil- ið og leikmenn fá nú tækifæri til að sýna fram á þann styrk,“ sagði Wenger. „Ég tel að leikmenn búi yfir þeirri ákveðni og hungri sem til þarf og það dylst engum að hæfi- leikarnir eru til staðar. Hver ein- asti leikur er eins og prófraun fyrir liðið.“ „Það sem hefur aukið mitt sjálfstraust fyrir þennan leik er að í hvert sinn sem líkurnar hafa ekki verið okkur í hag hefur leik- mönnum tekist að sýna góð og sterk viðbrögð.“ Arsenal verður þó án þeirra Johans Djourou og Gaels Clichy í leiknum en þeir eiga báðir við meiðsli að stríða. - esá Fjórðungsúrslit Meistaradeildarinnar klárast í kvöld: Prófraun í Portúgal Á ÆFINGU Federico Macheda og John O‘Shea á æfingu í Portúgal í gær. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.