Morgunblaðið - 28.10.2008, Síða 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 2008
Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur
ylfa@mbl.is
„ÉG er ekki búin að ná markmið-
inu um jafnt hlutfall kynjanna en
ef við stoppum og skoðum hvað
önnur álver í heiminum eru búin
að gera þá er þetta hjá okkur al-
veg sérstakt,“ segir Janne Sig-
urðsson, framkvæmdastjóri í ker-
skála hjá Alcoa Fjarðaáli. Konur
eru nú 28% allra starfsmanna ál-
versins sem nú fyrir helgi hlaut
viðurkenningu á sviði jafnréttis-
mála frá Jafnréttisráði.
Meira jafnvægi á Íslandi
Janne er fædd og uppalin í Dan-
mörku og segir hún mikinn mun á
löndunum tveimur hvað jafnrétti
varðar. „Hér á Íslandi er mikið af
karlmönnum sem segja: „Nei,
stopp við verðum að hafa konu í
þessari nefnd eða í þessu teymi
sem við erum að vinna í.“ Og ef
maður er kona að vinna hér á Ís-
landi og ýtir á hlutina til að láta þá
ganga þá horfir fólk jákvætt á
mann og segir að maður sjái um
að hlutirnir séu framleiddir,“ segir
Janne en í Danmörku megi konur
ekki ýta of mikið án þess að fá á
sig slæmt orð. „Á Íslandi er horft
með meira jafnvægi á þetta,“ segir
Janne. „Það er einfaldara að vera
kona á Íslandi.“
Janne vann sem deildarstjóri í
hugbúnaðarþróun hjá Siemens áð-
ur en hún ákvað að venda kvæði
sínu í kross og flytja til Eski-
fjarðar. „Ég er vön að vinna í
stóru, alþjóðlegu fyrirtæki og fyrir
mig var það rosalega ánægjulegt
þegar þetta tækifæri kom upp.“
„Einfaldara að vera kona á Íslandi“
28% starfsmanna Alcoa Fjarðaáls eru konur sem er líklega heimsmet í áliðnaðinum
Danskur starfsmaður álversins segir meira jafnrétti ríkja hér á landi en í Danmörku
Í HNOTSKURN
»Janne hefur staðið fyrirkennslu í óhefðbundnum
búningi innan Fjarðaáls.
T.d. skipulagði hún n.k.
„speed-dating“ til að kynna
verklagsreglur fyrir starfs-
fólk með 6-12 mánaða
starfsreynslu.
»Fólki var skipt upp ífimm hópa. Hver hópur
fór inn í herbergi þar sem
kynning fór fram á ákveð-
inni verklagsreglu. Eftir 25
mínútur var bjöllu hringt
og skiptu þá hóparnir um
herbergi og fengu að
„kynnast“ nýrri verklags-
reglu.Met Hjá Alcoa Fjarðaáli vinna 450 manns. Rúmur fjórðungur þeirra eru
konur sem er besti árangur sem náðst hefur innan Alcoa-samsteypunnar.
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
elva@mbl.is
„ÉG var ekki í nokkrum vafa, eftir
samtalið sem ég átti við [íslenska]
fjármálaráðherrann, og það mátti
ráða af samtalinu í heild, ekki bara
af hluta þess – að íslensk yfirvöld
myndu ekki geta komið til móts
við breska innistæðueigendur.
Þess vegna varð ég að tilkynna að
við myndum grípa inn í og gæta
hagsmuna þeirra,“ sagði Alistair
Darling, fjármálaráðherra Bret-
lands, í samtali við bresku sjón-
varpsstöðina Channel 4 á föstu-
dag.
Á fimmtdagskvöldið birti Kast-
ljós Ríkissjónvarpsins afrit af sam-
tali Darlings og Árna M. Mathie-
sen, fjármálaráðherra, sem fram
fór milli ráðherranna 7. október sl.
Samtalið var í kjölfarið birt í
breskum miðlum. Eftir það sagði
Financial Times að í samtalinu
fullyrti Árni hvergi að Ísland
myndi ekki uppfylla skuldbind-
ingar sínar.
9. október sl. hafði mbl.is eftir
heimildum úr breska fjármála-
ráðuneytinu að Darling hefði skilið
símtalið þannig að ekki fengjust
bætur vegna innistæðna á Icesave-
reikningum. Efnislega hafi hann
skilið íslenska fjármálaráðherrann
þannig að breskir sparifjáreig-
endur myndu tapa peningum sín-
um. Í kjölfarið sagði Árni Mathie-
sen að hann hefði tjáð Darling í
samtalinu „að við stæðum við þær
yfirlýsingar sem við höfum gefið
um það að við færum að okkar
skuldbindingum“.
Í viðtalinu við Channel 4 sagði
Darling jafnframt um stöðu Breta
sem áttu innistæður á Icesave-
reikningum Landsbankans: „Málin
standa þannig að þeir [Íslend-
ingar] hafa enn ekki tryggt stöðu
breska innistæðueigenda. Ég hef
sent tvö teymi á vegum fjármála-
ráðuneytisins til Íslands en ég ótt-
ast að enn hafi eki náðst sam-
komulag um málið.“
Darling sagði ennfremur að
bresk yfirvöld ynnu með ríkis-
stjórn Íslands og Alþjóðagjald-
eyrissjóðnum (IMF), sem myndi
sennilega þurfa að aðstoða Íslend-
inga. Eitt af þeim skilyrðum sem
Bretar vildu setja væri að staða
bresku sparifjáreigendanna yrði
tryggð. „Ég þurfti því miður ekki
að velkjast í neinum vafa um það
þegar ég ræddi við þá fyrr í þess-
um mánuði að ekki átti að tryggja
hag breskra innistæðueigenda. Til
þessa dags hafa íslensk stjórnvöld
ekki séð til þess að það verði
gert.“
Enginn vafi
hjá Darling
Alistair Darling segist aðeins hafa
skilið Árna M. Mathiesen á einn veg
Að íslensk stjórnvöld myndu ekki
koma til móts við sparifjáreigendur
ÞORGERÐUR Katrín Gunnars-
dóttir, menntamálaráðherra, segir
mikilvægt að koma þjóðinni í gegn-
um ríkjandi erf-
iðleika, en fyrr
en síðar, innan
nokkurra mán-
aða, þurfi að
taka afstöðu til
gjaldmiðilsins og
endurskoða pen-
ingamálastefn-
una.
Um 70% lands-
manna vilja að
Ísland sæki um
aðild að Evrópusambandinu og taki
upp evru, samkvæmt nýrri skoð-
anakönnun Fréttablaðsins.
„Gildir krónan, dugar hún fyrir
okkur, eða þurfum við að skoða
aðra kosti,“ spyr Þorgerður Katrín.
Hún segir að taka þurfi á þessu
máli mun fyrr en menn hafi talið
fyrir ári. Í landsfundarályktun
Sjálfstæðisflokksins 2007 segi að
hagsmunum þjóðarinnar sé ekki
betur borgið innan ESB, eins og
málum sé háttað, en nú sé staðan
allt önnur.
Þorgerður Katrín áréttar að að-
alatriðið sé að ná tökum á verðbólg-
unni og stöðugleika í gjaldmið-
ilsmálum. Í kjölfarið verði að fara
yfir það hvernig hagsmunum þjóð-
arinnar sé best borgið. „Hluti af því
er að endurskoða peninga-
málastefnuna, taka afstöðu í gjald-
miðilsmálum til framtíðar og þar
með til hugsanlegrar aðild-
arumsóknar að ESB. Við eigum að
gera það með hagsmuni Íslands til
lengri tíma litið og þora að gera
það.“ steinthor@mbl.is
Taka þarf
afstöðu til
ESB og evru
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir
ÍSLENSKIR aðalverktakar, ÍAV,
hafa sagt upp 151 starfsmanni frá
og með næstu mánaðamótum. 19
manns að auki hefur verið boðið að
fara í önnur störf innan félagsins.
Eyjólfur Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri á sölu- og markaðs-
sviði, segir að uppsagnirnar nái til
allra starfssviða félagsins, en áfram
starfi meira en 400 manns hjá ÍAV
og nokkur hundruð manns hjá und-
irverktökum. Félagið sé með mörg
stór og spennandi verkefni í gangi
og gert sé ráð fyrir að þau haldi
flest áfram, auk þess sem ÍAV ætli
sér að vera virkur þátttakandi á út-
boðsmarkaði. Hins vegar sé mikil
óvissa á markaðnum og því hafi
þurft að grípa til uppsagnanna.
151 sagt upp
hjá ÍAV
Sé það rétt að bresk stjórnvöld hafi
haft grunsemdir í nokkurn tíma um
að íslensku bankarnir ættu í vanda
og efast um að íslensk stjórnvöld
myndu tryggja hag breskra spari-
fjáreigenda, skuldar Alistair Darling
fjármálaráðherra kjósendum
útskýringar. Þetta sagði Vince
Cable, þingmaður Frjálslyndra
demókrata, í samtali við breska
blaðið Daily Telegraph í gær.
Vísað er til afrits af samtali
Darlings og Árna Mathiesen frá 7.
október. Þar kemur fram að Darling
hafi efast um þau ummæli Björg-
vins G. Sigurðssonar, við-
skiptaráðherra, á fundi í septem-
ber, að engar áhyggjur þyrfti að
hafa af íslensku bönkunum í Lond-
on. Cable segir að þetta þurfi
Darling að skýra fyrir breska
þinginu.
Segir Darling skulda þinginu skýringar
ÞESSIR þrír ágætu skarfar sátu á skeri úti fyrir Straumsvík á dögunum, er
ljósmyndari Morgunblaðsisn átti leið um. Einn skarfurinn hafði hátt og
aldrei að vita nema hann hafi verið að tjá skoðanir sínar á áformum um
stækkun álversins í Straumsvík. Hinir fuglarnir létu sér fátt um finnast og
héldu áfram að hvíla lúnar fjaðrir á skerinu góða. Skarfurinn er jafnan
duglegur að stinga sér til kafsunds í leit að æti í sjónum við Ísland.
Morgunblaðið/Ómar
Þrír skarfar á skeri
Húmar að kveldi við Straumsvík