Morgunblaðið - 28.10.2008, Blaðsíða 9
Fréttir 9INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 2008
Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur
ben@mbl.is
SÉRSTAKRI neyðaraðstoð hefur
verið komið á laggirnar í Óðinsvéum
fyrir Íslendinga sem eiga í örðug-
leikum vegna
fjármálakrepp-
unnar á Íslandi.
Aðstoðin er til
húsa hjá Hjálp-
ræðishernum í
bænum en þar er
m.a. hægt að fá
gjafakort í mat-
vöruverslanir og
jafnvel aðstoð
vegna húsaleigu
og greiðslu annarra reikinga.
Að sögn Aðalheiðar Úlfarsdóttur,
sem er í stjórn Íslendingafélagsins í
Óðinsvéum, voru það hin danska
Bodil Nörgaard og bæjarstjórnar-
fulltrúinn Karsten Kjærby sem áttu
frumkvæðið að því að koma neyðar-
aðstoðinni á. „Bodil heyrði af erfið-
leikum Íslendinga í útvarpinu og
vildi gjarnan koma þeim til hjálpar
og hafði samband við okkur. Hún
hefur unnið mikið við slíkt hjálpar-
starf og veit því hvernig hægt er að
sækja um styrki og fá aðstoð frá fyr-
irtækjum og einstaklingum.“
Finna fyrir samúð Dana
Aðalheiður segir fjölda Dana hafa
haft samband í því skyni að leggja
sitt af mörkum. „Fólk hringir og vill
fá upplýsingar um hvar það getur
lagt inn peninga til að aðstoða og
einn maður bauð fram herbergi fyrir
einstakling eða fjölskyldu sem gæti
ekki borgað húsaleiguna. Hann tók
m.a.s. fram að það væri pláss fyrir
tólf manns í kringum matarborðið
sitt svo það ætti að vera nægt rými.
Við finnum virkilega fyrir því að
Danir hafa mikla samúð með okkur
við þessar aðstæður.“
Hún segir ákaflega misjafnt
hversu illa erfiðleikar við milli-
færslur hafi komið við Íslendinga í
Óðinsvéum. „Vissulega eru margir
orðnir peningalausir enda hafa ekki
allir getað flutt námslánin sín hingað
út. En ég hef líka á tilfinningunni að
margir vilji bíða vegna þess hversu
gengið sé óhagstætt. Ég hugsa að við
förum ekki að finna virkilega fyrir
þessu fyrr en um mánaðamótin, þeg-
ar fólk þarf að standa skil á reikn-
ingum og fleira.“
Þeim sem vilja nýta sér aðstoðina
er bent á að hafa samband við Hjálp-
ræðisherinn í Óðinsvéum en Aðal-
heiður segir að aðstoðin sé þó ekki
beinlínis á þeirra vegum, heldur hafi
henni verið fundinn þar staður.
Gjafakortum fyrir mat verður þar
útdeilt á mánudögum, miðvikudög-
um og föstudögum aðra hverja viku
og er gert ráð fyrir að seinna meir
bjóðist aðstoð við greiðslu húsaleigu
og annarra reikninga.
Þá hefur íshokkífélag Óðinsvéa,
Odense Bulldogs, boðið Íslendingum
ókeypis á heimaleik félagsins í kvöld,
sem „plástur á sárið“, eins og það er
orðað í fréttatilkynningu. Þurfa Ís-
lendingar aðeins að vísa vegabréfi
sínu eða öðrum skilríkjum við inn-
ganginn til að sleppa við að borga að-
gangseyrinn.
Frumkvæði að hjálpinni kom frá Dönum sem vilja hjálpa
Neyðaraðstoð fyrir
Íslendinga í Óðinsvéum
Aðstoð Sumir Íslendingar í Óðins-
véum eru orðnir peningalausir.
Aðalheiður
Úlfarsdóttir
EKKI hefur verið gengið frá yf-
irtöku ríkisins og Reykjavík-
urborgar á byggingu tónlistar-
og ráðstefnuhúss við Austurhöfn-
ina í Reykjavík. Verið er að leita
leiða til að draga úr fram-
kvæmdum á meðan málið er í
óvissu.
Eignarhaldsfélagið Portus tók
upp viðræður við Austurhöfn-TR
um það hvernig ríkið og borgin
gætu tekið við framkvæmdum við
tónlistarhúsið til þess að koma í
veg fyrir að framkvæmdir stöðv-
uðust. Eigendur Portuss, Lands-
bankinn og Nýsir, eiga í fjárhags-
erfiðleikum. Helgi S. Gunnarsson,
framkvæmdastjóri Portuss, segir
að niðurstaða sé ekki fengin.
Þegar þrengingarnar byrjuðu
var samið við aðalverktaka bygg-
ingarinnar, ÍAV, um að hætta að
vinna á vöktum á nóttunni. Helgi
segir að áfram sé leitað leiða til
að draga úr framkvæmdum á
meðan á þessari óvissu standi.
helgi@mbl.is
Dregið
úr fram-
kvæmdum
Enn rætt um
yfirtöku ríkisins
Morgunblaðið/RAX
Tónlist Bygging tónlistarhúss við
höfnina er um það bil hálfnuð.
www.feminin.is • feminin@feminin.is
Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222
Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16
Sparifatnaður
frá Silbor
str. 38-56
MYND
Bæjarhraun 26, Hafnarfirði
s. 565 4207 www.ljosmynd.is
Mynd - ljósmyndastofa í 25 ár
Tilboð
á myndatökum
í október
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030
Opið mánud.-föstud. 10-18
Opið í Bæjarlind laugard. 10-16
Opið í Eddufelli laugard. 10-14
Nýtt Nýtt
Svartar stuttkápur
Hverfisgötu 6,
101 Reykjavík,
sími 562 2862
20% afsláttur
til 1. nóv.
Af völdum stöndum
HAUST-
FATNAÐUR
Laugavegi 63 • S: 551 4422
SKOÐIÐ SÝNISHORN Á LAXDAL.IS
VEL hefur gengið að bora eftir
heitu vatni á Krossnesi í Árnes-
hreppi á Ströndum. Komin er 90
metra djúp borhola sem mun sjá 4-5
fjölskyldum auk fjölda húsa í eigu
hreppsins fyrir heitu vatni. Vatnið er
64,8 gráða heitt og rennslið 14
sekúndulítrar. „Þetta breytir svo
miklu fyrir fólk. Þetta er ekki bara
ódýrara heldur eru mikil lífsþægindi
af því að vera með heitt vatn frekar
en rafmagn,“ segir Haukur Jóhann-
esson, jarðfræðingur hjá Íslenskum
orkurannsóknum.
Markmið borunarinnar var að ná
inn heitu vatni fyrir byggðina og
leggja hitaveitu fyrir nálæga bæi og
kaupfélagið en húsin voru að mestu
leyti hituð upp með rafmagni áður.
ylfa@mbl.is
Borun gengur
vel á Ströndum
Ljósmynd/Jón G. Guðjónsson
Bor Jarðborinn Klaki og starfsmenn hans að störfum á Krossnesi.
STJÓRN Tannlæknafélags Ís-
lands hyggst mælast til þess að
félagsmenn veiti upplýsingar um
greiðsluþátttöku almennings í
tannlækningum.
„Hver og einn mun þá veita að-
gang að sínu tölvukerfi og upp-
lýsingarnar verða dulkóðaðar,“
segir Ingibjörg Sara Benedikts-
dóttir, formaður félags tann-
lækna.
Pétur Blöndal, formaður nefnd-
ar um breytta greiðsluþátttöku
almennings vegna heilbrigðis-
þjónustu, hefur óskað eftir upp-
lýsingunum vegna mögulegrar
þátttöku tannlækna í nýju
greiðslukerfi.
Upplýsi um
tannviðgerðir
Anna er lektor
Í kynningu á viðtali við Önnu Sigríði
Ólafsdóttur er birtist sl. sunnudag
var hún ranglega kynnt prófessor.
Hið rétta er að dr. Anna Sigríður
Ólafsdóttir er lektor í næringarfræði
á menntavísindasviði Háskóla Ís-
lands. Beðist er velvirðingar á þessu
mishermi.
LEIÐRÉTT
VERÐHÆKKANIR á korni eru að
ganga til baka og Danir sjá nú
fram á lægra verð á matvælum, að
því er segir á fréttavef Jyllands-
Posten. Sérfræðingur við stofn-
unina Fødevareøkonimisk Institut
reiknaði út þróun matvælaverðs
fyrir blaðið BT og gerir hann ráð
fyrir 8 til 10 prósenta verðlækkun
á matvælum í Danmörku á næst-
unni.
Eiríkur Blöndal, framkvæmda-
stjóri Bændasamtakanna, segir
svigrúm til að lækka verð á bú-
vöru lækki verð á fóðurkorni og
olíu talsvert frá því sem nú er.
„Það er hins vegar spurning
hvort gengisskráningin leyfi að
þessi áhrif komi hingað,“ segir
framkvæmdastjórinn.
ingibjorg@mbl.is
Svigrúm til
að lækka
verð á mat