Morgunblaðið - 28.10.2008, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 28.10.2008, Blaðsíða 14
14 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 2008 FRÉTTASKÝRING Eftir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur gag@mbl.is RÉTT tæplega 450 af nemendum 2. bekkjar grunnskóla Reykjavík- urborgar á vorönn 2008 mældust þurfa á stuðningi í lestri að halda. Þetta er niðurstaða skýrslu mennta- sviðs borgarinnar. 35 skólar borg- arinnar tóku þátt í könnuninni. Í sex skólum skildi helmingurinn eða færri bekkjarsystkina það sem þau lásu. Árangur könnunarinnar hefur samt sem áður ekki verið betri í mörg ár, en 67 prósent barnanna teljast skilja það sem þau lesa. Hins vegar er munur milli skóla borgarinnar mikill. Þriðjungur þarf aðstoð við lesturinn og dreifist hóp- urinn misjafnlega milli skóla, allt frá 11 prósentum og upp í 66 prósent barnanna í sama bekk geta ekki lesið sér til gangs. Í skólanum sem kemur lakast út þurfa 58 prósent barnanna á sérstökum stuðningi í lestri að halda. Ekki er gefið upp í skýrslunni hvaða skólar skora hæst eða lægst. En hins vegar má sjá að nemendur í þjónustuhverfi Miðborgar og Hlíða mældust að jafnaði bestir í lestri, en börn í Breiðholti og Grafarvogi mældust með lakastan árangur. Þorgerður Diðriksdóttir, formað- ur Kennarafélags Reykjavíkur og kennari í Grandaskóla, segir ýmsar og flóknar ástæður fyrir því að lest- urinn sé svona misjafn milli skólanna en vill ekki draga þær fram. Hins vegar segir hún að markviss læs- isverkefni, sérstaklega í þeim skól- um sem þar sem læsi mætti vera betra, hafi verið lögð fyrir börnin. „Bæði verður gaman og fróðlegt að fylgjast með því hvort þau átök sem eru í gangi verði til þess að bæta lest- urinn. Þá verður hægt að þróa nýjar aðferðir eða ýta undir þær gömlu sem virka vel við lestrarkennslu.“ Björk Einisdóttir, framkvæmda- stjóri Heimilis og skóla, lands- samtaka foreldra, segir foreldra vita að aðstæður milli skólanna séu mis- munandi. „Við foreldrar vildum gjarna sjá ástandið kannað svo hægt sé að komast að raun um hvað sé í gangi og hvort hægt er að gera bet- ur,“ segir hún. Hins vegar sé nið- urstaðan ekki áhyggjunefni, því hvert foreldri geti haft áhrif á lestr- arárangur barns síns. „Foreldrar þurfa að lesa með börnum sínum og tala við þau um líf- ið og tilveruna, umhverfið og náttúr- una. Það skiptir máli varðandi les- skilning. Við höfum nefnilega svo mikið um námsárangur barnanna okkar að segja,“ segir hún. Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is STOFNAÐ hefur verið áhuga- mannafélag um bættar samgöngur um Mýrdal, jarðgöng gegnum Reyn- isfjall og sjóvarnagarða við Vík. Fé- lagið heitir Betri byggð og gerðust 65 félagar á stofnfundi. „Ég geri mér grein fyrir því að göng verða ekki boruð við núverandi aðstæður en það verður að tryggja pláss fyrir veginn þegar þau koma,“ segir Jóhannes Kristjánsson, talsmaður félagsins. Hugmyndin er fengin að láni hjá áhugamannafélögum sem berjast fyrir bættum samgöngum, eins og Vinum Hellisheiðar. Jóhannes segir þó að grein í héraðsfréttablaðinu Glugganum um ágang sjávar í Vík hafi ýtt þeim af stað. Þar hafi Sveinn Pálsson sveitarstjóri vitnað til skýrslu Siglingastofnunar um að ekkert lægi á að laga landbrotið. Jó- hannes telur að grípa þurfi strax til ráðstafana í Víkurfjöru, að minnsta kosti til bráðabirgða, annars verði ekkert svæði eftir til að hefta sand- fok og taka við sandinum sem fýkur úr fjörunni. „Þetta fer upp úr fjör- unni og þegar göngin koma í gegn um Reynisfjall verður ekkert pláss fyrir veg þarna, nema þræða hann í gegn um íþróttavöllinn,“ segir Jó- hannes og nefnir annan slæman val- kost, það er að byggður verði mikill sjóvarnargarður og vegurinn lagður ofan á hann. Það hugnast íbúunum ekki frekar, þeir vilja ekki að gert sé neitt sem skemmir útsýnið yfir hafið eða til Reynisdranga. Hættulegur kafli Við undirbúning nýs aðalskipu- lags fyrir Mýrdalshrepp kom upp ágreiningur um framtíðarlegu hringvegarins um Reynishverfi og Vík, hvort hann ætti að fara um jarð- göng í gegnum Reynisfjall og sjáv- armegin við Víkurþorp eða hvort endurbæta ætti núverandi veg um Reynisfjall. Meirihluti fulltrúa í skipulags- og byggingarnefnd sam- þykkti gangaleiðina og var sú nið- urstaða samþykkt af sveitarstjórn. Nú er beðið eftir tillögum Vegagerð- arinnar. Það er eitt af baráttumálum Betri byggðar að ljúka skipulagsvinnunni svo hægt sé að koma veginum inn á samgönguáætlun. „Ég held ég geti fullyrt að þorri íbúa í hreppnum vill þessar samgöngubætur. Vegurinn úr Reynisfjalli og yfir Gatnabrún er meðal hættulegustu kafla hringveg- arins og beygjan við Gatnabrún er talin sú sjötta hættulegasta,“ segir Jóhannes. Hann segir að vegurinn frá Litla-Hvammi að Vík beri ekki núverandi umferð og slæmt sé að láta hringveginn liggja í gegn um kauptúnið, þar sem hámarkshraðinn er takmarkaður við 30 kílómetra. „Menn hafa verið að þvæla málinu og reyna að drepa því á dreif, þeir sem hafa áhuga á öðru vegstæði. Við ætlum að ýta á eftir þessu með kjafti og klóm,“ segir Jóhannes. Verður að tryggja pláss fyrir veginn Félag um bættar samgöngur í Mýrdal Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Stofnfundur Um sjötíu íbúar mættu á stofnfund félagsins Betri byggðar í Vík. Félagið berst fyrir göngum um Reynisfjall og vegi sunnan kauptúnsins. Í HNOTSKURN »Betri byggð styður nýjaveglínu hringvegar sunn- an Víkurþorps, um jarðgöng í Reynisfjalli, yfir mýrarnar norðan náttúruminjasvæðis í Reynishverfi og gegnum Geitafjall. »Félagið skorar á sveitar-stjórn og yfirvöld sjó- varnamála að hindra strax frekara landbrot af völdum sjávar í Vík með grjótvörn á melvarnargarðinn í fjöruborð- inu sunnan kauptúnsins. „VIÐ erum hænufetinu betri í lestri en í fyrra. Á meðan okkur miðar áfram erum við sátt,“ segir Ragnar Þorsteinsson fræðslustjóri Reykjavíkur- borgar, en nokkur ár eru síðan eins góður lestrarárangur mældist í 2. bekk í grunnskólum borgairnnar. „Við getum ekki sagt að einn skólinn sé alltaf með toppárangur og annar í botnsæti. Einn skólinn getur hafa sýnt fínan árangur fyrir tveimur árum en ekki eins góðan núna. Við vinnum því ár- lega með hverjum skóla.“ Ragnar segir borgina í þriggja ára lestrarátaki. Ár sé liðið og því sé betri árangur nú fagnaðarefni. „Við erum með viðbót- arkennslustund í grunnskólum borgarinnar í öðrum til fjórða bekk og kennum því einni klukkustund lengur hvern dag en grunnskólalög gera ráð fyrir. Börnin klára því mest af heimanáminu áður en þau fara heim. Hins vegar á það ekki við um lestur, því við viljum að börn lesi fyrir for- eldrana. Lestur er eins mikilvægur og að labba. Það er ekkert flóknara.“ Árangur lestrarátaks Morgunblaðið/Valdís Thor Bekkirnir misgóðir  Mikill munur á lestrargetu milli grunnskóla borgarinnar  Bekkur þar sem 11 prósent barna skildu hvað þau lásu Eftir Sigtrygg Sigtryggsson sisi@mbl ÓVEÐRIÐ sem gekk yfir norðaust- urhluta landsins um helgina er í flokki verstu vestan- og norðvestan- veðra sem ganga yfir á þessum slóð- um, að sögn Trausta Jónssonar veð- urfræðings. Slík veður gerir aðeins á nokkurra ára fresti. Sem dæmi má nefna, að 10 mín- útna meðalvindur mældist 41 metri á sekúndu á Rauðanúpi nyrst á Mel- rakkasléttu á miðnætti á föstudags- kvöld. Vindurinn fór yfir 30 metra á sekúndu bæði í Flatey á Skjálfanda og Mánárbakka á Tjörnesi. Miðað við veðurhaminn má þakka fyrir að ekki varð meira tjón á mann- virkjum en raun ber vitni. Segir Trausti að það megi þakka því, að veðrið náði skammt inn á landið. Talsvert tjón varð á hafnarmann- virkjum á Húsavík af völdum brims, eins og fram hefur komið í fréttum. Þetta er einmitt sá árstími þegar hætta er á miklu brimi vegna þess hve hafís er langt frá landi. Brimið bar mikið af grjóti og þara á land, til dæmis á Melrakkasléttu. Tvær lægðarmiðjur voru í sama veðurkerfinu sem gekk yfir landið um helgina. Seinni lægðarmiðjan var um 938 millimetra djúp. Dýpsta lægð sem mælst hefur yfir landinu var um 920 millibör. Með alverstu veðrum Ljósmynd/Sigurjón Jósepsson Grjótburður Þannig var umhorfs við Nýhöfn á Melrakkasléttu eftir óveðrið.  Heppni að ekki varð meira tjón í óveðrinu um helgina  Meðalvindhraði á Rauðanúpi mældist 41 metri á sekúndu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.