Morgunblaðið - 28.10.2008, Qupperneq 6
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 2008
OLÍS ÁLFHEIMUM, OLÍS GULLINBRÚ, HOLTAGÖRÐUM,
OLÍS MJÓDD, OLÍS NORÐLINGAHOLTI, NÝBÝLAVEGI,
SUÐURLANDSBRAUT, OLÍS AKRANESI, OLÍS AKUREYRI,
OLÍS BORGARNESI, OLÍS KEFLAVÍK, OLÍS REYÐARFIRÐI
12 STAÐIR
Skima í mikilli óvissu
Fjárlaganefnd aflar upplýsinga og reynir að henda reiður á stöðu fjárlaga-
frumvarpsins í efnahagskreppunni Búast má við miklum samdrætti skatttekna
FJÁRLAGAFRUMVARP næsta árs tekur
stakkaskiptum vegna efnahagsástandsins og er
óvissan mikil. „Það mun taka þó nokkrum breyt-
ingum í meðförum þingsins. Það er augljóst
vegna ytri aðstæðna,“ segir Gunnar Svavarsson,
formaður fjárlaganefndar.
Ekki hafa verið haldnir formlegir fundir í fjár-
laganefnd en nefndarmenn hafa farið yfir fjár-
lagafrumvarpið hver fyrir sig.
„Við höfum síðan borið saman bækur okkar
óformlega en höfum ekki talið ástæðu til þess að
funda. Við höfum óskað eftir upplýsingum frá
fjölmörgum, m.a. Fjársýslunni, Ríkisendurskoð-
un, einstökum ráðuneytum o.fl. Þær upplýsingar
eru að berast í hús og við gerum ráð fyrir að fjár-
laganefndin komi saman í þessari viku. Þá reyn-
um við að skima inn í efnahagsforsendur frum-
varpsins og endurmeta það með ýmsum aðilum,“
segir Gunnar.
Ennþá meiri óvissa um tekjurnar
Telja má víst að margar af helstu forsendum
frumvarpsins séu nú gjörbreyttar, ekki síst vegna
stóraukinnar lántöku ríkissjóðs sem framundan
er og minnkandi tekna.
Gunnar bendir á að framan af ári og í sumar
var spá um tekjur ríkissjóðs aðalvandamálið við
mat á þróun ríkisfjármála.
„Eftir áfallið í byrjun október er ennþá meiri
óvissa í tekjuspánni en áður var,“ segir hann.
„Það hefur þær afleiðingar í för með sér að við
verðum að horfa til útgjaldanna í enn ríkari
mæli,“ bætir hann við.
Spurður hvort hækka þurfi skatta segir
Gunnar að það verði bara að koma í ljós „Í nú-
verandi stjórnarsáttmaála er ekki talað um að
breyta sköttum nema til lækkunar og það er
kannski eitthvað sem ekki á við núna,“ segir
hann.
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
SAMBAND íslenskra námsmanna
erlendis (SÍNE) vill, að námsmönn-
um erlendis verði gefinn kostur á
að fá neyðarlán hjá Lánasjóði ís-
lenskra námsmanna (LÍN) sem
nemur allt að 500 þúsundum króna.
Þetta lán verði veitt án kröfu um
ábyrgðarmenn og á lægstu lána-
vöxtum LÍN, með venjulegum
greiðsluskilmálum sjóðsins.
„Við vitum að margir námsmenn
eru í vandræðum og höfum þegar
fengið fregnir af því að fólk hafi
neyðst til þess að hætta námi,“ seg-
ir Garðar og óttast að fleiri neyðist
til að hætta námi á næstunni verði
ekkert að gert. Bendir hann á að
lán námsmanna erlendis og sjálfs-
aflafé dugi ekki lengur fyrir skóla-
gjöldum og lágmarksframfærslu.
Garðar bendir á að nær ómögu-
legt hafi reynst að eiga eðlileg
millibankaviðskipti að undanförnu,
með tilheyrandi vandræðum fyrir
námsmenn erlendis. Tekur hann
fram að þó margir hafi getað redd-
að sér síðustu daga og vikur þá sé
ljóst að 1. nóvember verði mörgum
námsmönnum erfiður. Vísar hann
þar til þess að geti námsmenn ekki
greitt leiguna næstu mánaðamót þá
muni það skapa mörgum mikil
vandræði.
Aðspurður segir Garðar að upp-
hæð neyðarlánsins, sem farið sé
fram á, byggist á þeirri forsendu
námslána að námsmenn hafi um
milljón króna í tekjur á ári hverju
til að brúa bilið milli framfærslu-
láns og raunverulegs framfærslu-
kostnaðar. „Í ljósi þróunar gengis
krónunnar er ljóst að sjálfsaflafé
námsmanna hefur rýrnað að virði
erlendis um helming frá því sem
var þegar reglur LÍN voru endur-
skoðaðar í vor.“ silja@mbl.is
Fara fram á neyðarlán
Segja íslenska námsmenn erlendis í miklum kröggum þar
sem lán og sjálfsaflafé dugi ekki lengur fyrir útgjöldum
Í HNOTSKURN
»Alls eru um 3.000 Íslend-ingar við nám erlendis.
»Hugmyndir SÍNE umneyðarlán að fjárhæð 500
þús. kr. á mann myndi því
þýða lánveitingu að hámarki
1.500 millj. kr. sem næmi 25%
af framlögum til sjóðsins í
fjárlagafrumvarpi 2008.
MIKLAR framkvæmdir hafa staðið yfir við
Reykjanesbraut að undanförnu og hvert mann-
virkið risið af öðru. Á gatnamótum Reykjanes-
brautar og Vífilsstaðavegar er verið að vinna við
brú með tilheyrandi vegaframkvæmdum og er
stefnt að því að steypa um helgina.
Brú á gatnamótum Reykjanesbrautar og Vífilsstaðavegar
Allt gert klárt fyrir steypuvinnuna
Morgunblaðið/Ómar
Eftir Láru Ómarsdóttur
lom@mbl.is
BJÖRGÓLFUR Thor Björgólfsson
segist í yfirlýsingu sem hann sendi
frá sér í gær standa við orð sín í
fréttaskýringa-
þættinum Komp-
ási þess efnis að
breska fjármála-
eftirlitið hafi boð-
ið flýtimeðferð við
að flytja ábyrgð á
Icesave-reikning-
um Landsbank-
ans til Bretlands.
Hann segir
bankastjórum
Seðlabankans
hafa verið fullkunnugt um þetta. Í til-
kynningu sem Seðlabankinn sendi
frá sér vegna málsins í gær segir hins
vegar að hvergi hafi verið minnst á
flýtiafgreiðslu breska eftirlitsins.
Orð gegn orði
Björgólfur hélt því fram í þættin-
um að breska fjármálaeftirlitið hefði
verið tilbúið til að flýta fyrir flutning-
unum ef Landsbankinn legði fram
200 milljónir punda sem tryggingu. Í
tilkynningu Seðlabankans segir hins
vegar: „Tilefni beiðninnar í bréfi
Landsbankans 6. október var út-
streymið af innlánsreikningum. Ekki
var minnst á flýtiafgreiðslu breska
fjármálaeftirlitsins“. Síðar í tilkynn-
ingunni segir: „Af framangreindum
ástæðum er augljóst að sú fullyrðing
Björgólfs Thors Björgólfssonar að
200 milljóna punda fyrirgreiðsla
Seðlabanka Íslands hefði leyst allan
vanda Landsbanka Íslands á þessum
tíma stenst ekki.“ Þessu svarar
Björgólfur í yfirlýsingunni: „Banka-
stjórum Seðlabankans var kunnugt
um boð breska fjármálaeftirlitsins
um flýtimeðferð og geta fleiri stað-
fest það. Þá var einnig þeim ráðherr-
um í ríkisstjórn Íslands sem helst
hafa unnið að úrlausn vanda íslensku
fjármálafyrirtækjanna kunnugt um
boð breska eftirlitsins.“
Aldrei rætt í ríkisstjórn
Össur Skarphéðinsson iðnaðarráð-
herra kannast ekki við tilboð Breta:
„Þetta tilboð kom aldrei inn í ráð-
herrahópinn sem sinnti þessum mál-
um frá stundu til stundar né minnist
ég þess að það hafi komið inn á borð
ríkisstjórnarinnar.“ Í sama streng
tók forsætisráðherra í viðtali við Stöð
2 í gærkvöldi.
Orð gegn
orði um
Icesave
Björgólfur Stendur
við fyrri orð sín.
Seðlabanki og
ráðherrar kannast
ekki við tilboðið