Morgunblaðið - 28.10.2008, Blaðsíða 16
16 FréttirERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 2008
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
FORSETAEFNIN Barack Obama og John
McCain, skiptust í gær á skotum vegna efna-
hagsvandans. McCain reynir nú ákaft að afla
sér stuðnings með því að benda á að demó-
krötum sé spáð yfirburðum í báðum þing-
deildum. Vilja Bandaríkjamenn að sami
flokkur ráði líka í Hvíta húsinu? spyr hann.
McCain flutti í gær ræðu í Ohio og sakaði
þar m.a. leiðtoga demókrata um að vera
langt til vinstri við þorra almennings í land-
inu. Stefna Obama væri einfaldlega að auka
ríkisafskipti og leggja þyngri skatta á venju-
legt miðstéttarfólk. En báðir frambjóðendur
væru ósammála efnahagsstefnu Bush.
„Ég vil koma böndum á eyðsluna,“ sagði
McCain. „Munurinn á mér og honum
[Obama] er að honum finnst skattar hafa
verið of lágir en mér finnst eyðslan hafa ver-
ið of mikil.“
Repúblikanar hafa gert sér mikinn mat úr
þeim ummælum Obama að nota eigi skatta
til að jafna kjörin en ekki einfaldlega til að
standa undir rekstri ríkisins. Bandarískir
hægrimenn telja margir að stefna af þessu
tagi sé ekki annað en sósíalismi. Obama
flutti einnig ræðu í Ohio í gær.
„McCain öldungadeildarþingmaður segir
að við getum ekki varið næstu fjórum árum í
að vona að heppnin verði loks með okkur en
þið vitið að mesta áhættan sem við getum
tekið er að styðja sömu Bush-McCain stefn-
una og þá sem hefur reynst okkur svo illa
síðustu átta árin,“ sagði Obama.
Reuters
Sátt Raila Odinga, forsætisráð-
herra Kenýa, með Sarah Hussein
Obama, ömmu Baracks Obama.
Saka Obama um sósíalisma
McCain segir forsetaefni demókrata vilja hækka skatta miðstéttarfólks til að
jafna kjörin Obama segir keppinautinn boða sömu stefnu og Bush forseti
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
SÝRLENSK stjórnvöld sökuðu í
gær Bandaríkjamenn um „hryðju-
verk“ vegna árásar sérsveitarmanna
í þyrlum á búgarð við bæinn Abu
Kamala á sunnudag. Bærinn er í
Sýrlandi en rétt við landamærin að
Írak. Fullyrtu Sýrlendingar að átta
óvopnaðir borgarar hefðu fallið.
Bandaríkjamenn hafa sakað Sýr-
lendinga um að leyfa erlendum víga-
mönnum að athafna sig í Sýrlandi og
skipuleggja þar árásir í Írak. Stjórn-
völd í Washington hafa ekki viljað
staðfesta að þau hafi staðið á bak við
árásina á sunnudag en AFP-frétta-
stofan hafði eftir ónafngreindum,
bandarískum embættismanni að
gerð hefði verið „árangursrík árás“ á
bækistöð erlendra vígamanna sem
ógnað hefðu bandarískum hermönn-
um í Írak.
Eins og oft áður í slíkum málum er
nær útilokað að staðfesta hvort ásak-
anir stjórnar Bashars Assads, for-
seta Sýrlands, um mannfall meðal
óbreyttra borgara eiga við rök að
styðjast. Heimildarmenn segja að
árásum yfir landamærin á Írak hafi
fækkað en samt sé óánægja meðal
bandarískra jafnt sem íraskra
stjórnvalda með ástandið.
Ráðamenn í Bagdad eru í nokkr-
um vanda. Þeir hafa reynt að bæta
samskiptin við Sýrland en hafa jafn-
framt gagnrýnt harðlega að grann-
landið stöðvi ekki umræddar árásir
vígamanna. Nýlega féllu 13 starfs-
menn íraska innanríkisráðuneytisins
í þorpi á svæðinu í grennd við Abu
Kamala þegar vígamenn með bæki-
stöð í Sýrlandi gerðu þar árás.
Líklegt er að með atlögunni á
sunnudag vilji Bandaríkjamenn m.a.
sýna öllum ríkjum heims að hafi þau
ekki sjálf hemil á starfsemi alþjóð-
legra hryðjuverkasveita innan eigin
landamæra muni Bandaríkjamenn
grípa til sinna ráða. Árásin hafi verið
viðvörun.
Árás sögð „hryðjuverk“
Vígamenn hafa notað bækistöðvar í Sýrlandi til árása á Írak
og Bandaríkjamenn vildu refsa Assad Sýrlandsforseta
Í HNOTSKURN
»Stjórn Bashars AssadsSýrlandsforseta hefur um
skeið átt náið samstarf við Ír-
an, erkifjanda Bandaríkjanna.
Og ríkin tvö styðja bæði Hiz-
bollah-skæruliða í Líbanon og
berjast ákaft gegn Ísrael.
FRÉTTASKÝRING
Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur
jmv@mbl.is
„ÉG reyndi allt hvað ég gat og gerði
viðeigandi tilslakanir, einnig í fé-
lagslegum málum. En ég er ekki
reiðubúin að beygja mig fyrir ein-
valdi hvaða flokks sem er, basta,“
sagði Tzipi Livni, utanríkisráðherra
Ísraels og sló í borðið á fundi með
leiðtogum Kadíma-flokksins um
helgina. Ljóst var orðið að tilraunir
síðustu vikna til stjórnarmyndunar
væru orðnar að engu og að hún
myndi fyrir hönd flokksins fara fram
á kosningar. Þá ósk staðfesti forseti
Ísraels, Shimon Peres, í gær og er
því ljóst að efnt verður til þingkosn-
inga snemma á næsta ári. Flokkar
þingsins geta reynt að mynda stjórn
á næstu þremur vikum en ólíklegt
þykir að það gangi eftir.
Friðarviðræður í upplausn
Það þykir nokkurt áfall fyrir Tzipi
Livni að henni skuli ekki hafa tekist
að mynda stjórn eftir að hafa verið
skipuð leiðtogi Kadíma-flokksins í
stað Ehuds Olmerts í sumar. Í ljósi
þess verði auðvelt að draga leiðtoga-
hæfileika hennar í efa en í komandi
kosningabaráttu mun hún etja kappi
við tvo reynda leiðtoga.
Benjamín Netanyahu, leiðtogi
Likud-bandalagsins, var forsætis-
ráðherra frá 1996 til 1999 og er tal-
inn hafa verið umdeildur en ákveð-
inn leiðtogi. Viðburðir líðandi árs,
þ.á m. friðarviðræðurnar í Annapol-
is, leiddar af Bandaríkjamönnum,
sem þóttu skila litlu, hafa orðið til
þess að krafa Ísraela um sterkan
leiðtoga verður sífellt háværari.
Netanyahu hefur slíkt orðspor, er
eindreginn hægrimaður og andstæð-
ingur hugmyndarinnar um sjálf-
stætt Palestínuríki.
Annar andstæðingur Livni í kom-
andi kosningum er Ehud Barak,
leiðtogi Verkamannaflokksins, sem
var forsætisráðherra 1999–2001.
Flokkur Baraks hefur misst veru-
legt fylgi á síðustu árum en getur
samt reynst Livni og Kadíma-
flokknum skeinuhættur þar sem
flokkarnir berjast báðir um fylgi
miðju-vinstrimanna. Þeir sækja
styrktarfé í sömu sjóðina og grafa
því hvor undan öðrum. Barak hafn-
aði á mánudag orðrómi um sameig-
inlegt framboð Kadíma og Verka-
mannaflokksins fyrir komandi
kosningar.
Misheppnaðar stjórnarmynd-
unarviðræður Livni þykja líklegar
til að tefja fyrir friðarviðræðum við
Palestínumenn en Livni hefur verið
aðalsamningamaður ríkisstjórnar-
innar í því ferli.
Benjamín Netanyahu hefur lýst
sig mótfallinn friðarviðræðunum
sem Livni hefur leitt. Við setningu
ísraelska þingsins í gær þykir Net-
anyahu hafa hafið kosningabarátt-
una. Hann sagði að Ísrael myndi
aldrei leyfa skiptingu Jerúsalem eða
aðlögun palestínskra flóttamanna.
Hann sagði jafnframt að sem for-
sætisráðherra myndi hann leita eftir
friði við nágrannaríkin en ekki gefa
eftir Gólanhæðirnar til Sýrlendinga.
Sér Livni á
bak leiðtoga-
hlutverkinu?
EHUD Olmert
situr áfram sem
forsætisráðherra
Ísraels eftir að
stjórnarmynd-
unarviðræður
mistókust.
Olmert er grun-
aður um spill-
ingu og verði
hann ekki ákærður situr hann í
embætti fram að kosningum. Staða
ríkisstjórnarinnar þykir í ljósi að-
stæðna mjög veik en Olmert hefur
gefið í skyn að hann vilji nýta tím-
ann í friðarviðræður við Sýrlend-
inga og efnahagsvandamál Ísraels.
Það gæti bjargað ímynd hans áður
en hann lætur af störfum.
Olmert hyggst
nota tímann
Hvert er fylgi leiðtoganna?
Samkvæmt skoðanakönnunum frá í
gær er Tzipi Livni að ná forskoti á
Benjamín Netanyahu, leiðtoga Likud-
bandalagsins. Netanyahu hefur leitt í
skoðanakönnunum síðustu tvö ár
þegar kjósendur hafa verið spurðir
um val þeirra á forsætisráðherra.
Hvernig er skipting á þingi?
Í kosningum árið 2006 hlaut Kad-
íma-flokkurinn 29 þingsæti, Verka-
mannaflokkurinn 19 og Likud 12. Í
skoðanakönnun frá síðasta sunnu-
degi kemur fram að yrði kosið strax
yki Likud verulega við sig og fengi 26
sæti, Kadíma héldi sama sætafjölda.
S&S
BÖRN geta leikið sér við ótrúlegustu aðstæður og þessi
stúlka í Asunción, höfuðborg Paragvæ, er engin undan-
tekning frá þeirri reglu.
Ljósastaurinn og tréð sem hún er ákveðin í að klífa
rifnuðu upp þegar þrumuveður reið yfir borgina og ná-
grenni um helgina. Tré rifnuðu upp með rótum auk
þess sem ár flæddu yfir bakka sína og varð óveðrið í
það minnsta tveimur að bana.
Reuters
Spennandi leifar óveðurs
Sérfræðingar
í saltfiski
466 1016
- Útvatnaður saltfiskur án beina til suðu
- Sérútv. saltfiskur án beina til steikingar
- Ýsa, þorskur, gellur, kinnfiskur, rækjur
- Einnig fjölbreytt úrval tilbúinna rétta
www.ektafiskur.is
pöntunarsími:
frumkvöðlafyrirtæki ársins - viðurkenning frá matur úr héraði - localfood