Morgunblaðið - 28.10.2008, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 28.10.2008, Qupperneq 24
24 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 2008 SÍÐUSTU ár hefur verið unnið að end- urheimt birkiskóga í nágrenni Heklu. Var í fyrra stofnað sérstakt samstarfsverkefni Skógræktar ríkisins og Landgræðslu rík- isins um þessa end- urheimt í samstarfi við fagráðuneyti stofnananna. Hefur þetta verkefni nokkra sérstöðu meðal skógrækt- arverkefna þar sem markmið verk- efnisins er að verja lönd í nágrenni Heklu gegn öskufoki sem vænta má í kjölfar öskugosa, með því að endurheimta birkiskóga. Verkefnið er því landgræðslu- og skógrækt- arverkefni í senn. Skógar eru það gróðursamfélag sem þolir hvað best öskufall og geta stálpaðir skógar bundið töluvert magn ösku án þess að bera skaða af. Starfs- svæðið er gríðarstórt eða á stærð við Langjökul, um 90 þúsund hektarar lands sunnan, vestan og norðan við Heklu. Birkiskógar uxu um aldir á Rangárvöllum, í Landsveit, Þjórs- árdal, Árskógum og enn lengra inn til landsins. Enn finnast birkiskógar á svæðinu og má helsta nefna Hraunteig, Galtalækj- arskóg, Búrfellsskóg, Þjórsárdalsskóga og skóga í Norður- og Suðurhraunum í nágrenni Selsunds. Einnig má finna minni birkitorfur og stök tré langt inn til landsins s.s. á bökkum Þjórsár innan við Sultartangalón. Vaxa skógar og í eyjum Þjórsár og Tungnár sem nú standa á þurru, t.d. Klofaeyjum, Hrauneyjum og Hríshólma. Bera þessir skógar vitni um að skilyrði fyrir slíka skóga eru ágæt á starfssvæði verk- efnisins. Þó þessar minjar um merkur fyrri tíma finnist svo víða um svæðið er staðan sú í dag að Hekluskógasvæðið eru að miklu leyti ógrónir vikrar og foksandar. Hekluskógar hafa á síðustu ár- um eflt og samhæft það góða upp- græðslustarf sem bændur og aðrir landeigendur á Hekluskógasvæð- inu, Landgræðsla ríkisins, Skóg- rækt ríkisins, landgræðslu- og skógræktarfélög, Landsvirkjun og fleiri hafa stundað á undanförnum áratugum. Í stuttu máli er verk- efnið unnið með þeim hætti að græða fyrst upp örfoka lönd og stoppa sandfok, að gróðursetja svo birki, reynivið og víði í trjálundi og -belti og stuðla svo að frekari út- breiðslu trjágróðurs með sjálfssán- ingu. Sumarið 2008 voru gróðursettar rúmlega 300 þúsund birki- og reyniviðarplöntur í uppgræðslu- svæði. Ýmsir aðilar gróðursettu, þ.á m. bændur í nærliggjandi sveit- um, verktakar og íþróttafélög, auk sjálfboðaliða frá ýmsum hópum og starfsfólk úr verkefni Landsvirkj- unar „Margar hendur vinna létt verk“. Auk gróðursetningar var 210 tonnum af tilbúnum áburði dreift yfir 1200–1300 ha lands, sem svarar til alls undirlendis frá Kringlumýrarbraut í Reykjavík og allt Seltjarnarnesið út að Gróttu. Einnig var sáð grastegundum í ógróna foksanda í alls um 70 ha lands. Mikið fræ var á birki í haust. Auglýst var eftir aðstoð almenn- ings við fræsöfnun. Mikil viðbrögð urðu við auglýsingunni og söfn- uðust yfir 100 kg af fræi, sem svar- ar til 30–60 milljóna birkifræja. Skólahópar og aðrir sjálf- boðaliðahópar heimsóttu Heklu- skóga til að safna fræi. Almenn- ingur sendi fræ til verkefnisins, annaðhvort beint eða til Orkuveitu Reykjavíkur sem tók á móti fræi frá höfuðborgarsvæðinu. Hefur birkifræinu nú þegar að mestu ver- ið sáð beint í hálfgróin svæði og standa vonir til að upp af fræinu spretti trjálundir á næstu árum. Verkefnið hefur leitað eftir stuðningi við fyrirtæki og hafa Hekla hf., Landsvirkjun og Síminn hf. stutt verkefnið síðustu tvö árin. Vilja aðstandendur Hekluskóga hér með þakka öllu því góða fólki og fyrirtækjum sem studdu við verkefnið í sumar með ýmsum hætti. Á næsta ári verður aukin áhersla lögð á gróðursetningu birkis og er gert ráð fyrir að gróðursettar verði a.m.k. 500 þúsund birkiplöntur. Er þetta ekki síst gert til að skapa fleiri störf við gróðursetningu og plöntuframleiðslu. Verður minni áhersla lögð á áburðardreifingu í ljósi mikilla hækkana á tilbúnum áburði. Tækifæri verkefnisins Hekluskógaverkefnið er dæmi um verkefni sem sýnir að með að- stoð heimamanna og sjálfboðaliða má á hagkvæman hátt draga úr af- leiðingum náttúruhamfara með endurheimt birkiskóga. Nauðsyn- legt er að benda á mikilvægi þess að efla verkefni sem skapar at- vinnu á lágtekjusvæðum, styður innlenda framleiðslu og uppfyllir samhliða markmið ríkisstjórnar Ís- lands um sjálfbæra þróun, líf- fræðilega fjölbreytni og þjónar sem mótvægi gegn loftslagsbreyt- ingum af mannavöldum. Hekluskógar – stærsta end- urheimt birkiskóga á Íslandi Hreinn Óskarsson skrifar um skógrækt » Á næsta ári verður aukin áhersla lögð á gróðursetningu birkis og er gert ráð fyrir að gróðursettar verði a.m.k. 500 þúsund birkiplöntur. Hreinn Óskarsson Höfundur er skógfræðingur og verkefnisstjóri Hekluskóga. ÞAÐ vita allir að Samfylkingin barðist hart gegn öllum til- raunum til að koma böndum yfir starfsemi Baugs á sínum tíma. Formaður flokksins hélt fræga ræðu í Borgarnesi þar sem hún fullyrti að allar aðgerðir hins opinbera sem miðuðust að því að fylgjast með starfsemi Baugs og annarra útrásafyrirtækja væru gerðar á pólitískum grunni og hafa sennilega fáar ræður grafið eins undan trausti almennings á hinu opinbera embættismannakerfi og þessi ræða. Þar var gefið í skyn að flestir op- inberir starfsmenn sem voru bara að sinna skyldum sínum væru handbendi óheiðarlegra stjórn- málamanna. Samfylkingin barðist einnig hart gegn fjölmiðlafrumvarpinu, enda var flokkurinn einu sinni enn að ganga erinda Baugs og allir vita um afstöðu Samfylkingarinnar þegar rannsókn hófst á ólöglegri starf- semi eigenda Baugs. Embætt- ismenn sem voru að rannsaka þessi mál voru aftur samkvæmt Samfylk- ingunni spilltir og gengu erinda annarra. Baugi hefur síðan tekist vel að nýta sér áhrif sín innan Samfylk- ingarinnar og sérstaklega núna eft- ir að völd Samfylkingarinnar hafa aukist. Fyrirtækið á núna svo til alla fjölmiðla í landinu og hefur ráð- ið allri umræðu í samfélaginu un- dafarin ár. Skuldir Baugs og tengdra fyrirtækja nema nú hátt á annað þúsund milljarða innan ís- lenska bankakerfisins og áttu þær skuldir einna stærstan þátt í falli ís- lensku bankanna. Baugur og tengd fyrirtæki skulduðu hátt í 50 millj- arða í sjóðum Glitnis þar sem ein- göngu átti að fjárfesta í öruggum verðbréfum. Stoðir, stærsti eigandi Glitnis, er eitt af fyrirtækjum Baugssamstæðunnar og hefur ósk- að eftir greiðslustöðvun. Aftur virðist Samfylking vera að koma Baugi til aðstoðar. Öll um- ræðan í Baugsmiðlunum og hjá Samfylkingunni hefur snúist um að persónu- gera vanda íslensku þjóðarinnar og árás- irnar hafa svo til ein- göngu snúist um Davíð Oddsson. Hann er það illmenni sem lét Baug leggja undir sig alla fjölmiðla landsins. Hann er sá fjandi sem neyddi Baug og tengd fyrirtæki til þess að taka á annað þúsund milljarða að láni hjá ís- lensku bönkunum og sólunda þessum peningum í einka- þotur og snekkjur og svona má lengi telja. Ef hægt er að sannfæra þjóðina um að allt sé Davíð að kenna dregur það athyglina frá þeim sem eiga raunverulega sök. Nýjasta fréttin er sú, sem berst náttúrlega að utan, að núna sé í um- ræðunni að Íslendingar eigi að taka á sig 400 milljarða skuldir Baugs í Bretlandi svo að Jón Ásgeir geti haldið öllum sínum eignum og skilið þjóðina eftir svo til allslausa. Það er augljóst af þessum fréttum að Sam- fylkingin er einu sinni enn að hlaupa erinda Baugs og sennilega er það líka skýring á stöðugum árásum Baugsmiðlanna og Sam- fylkingarinnar á Davíð Oddsson. Ef hægt væri að ryðja honum úr vegi væri fátt sem gæti komið í veg fyrir að Baugur hefði sitt fram á kostnað komandi kynslóða. Að lokum vil ég bara segja að sem betur fer tókst Baugi ekki, með dyggri aðstoð Samfylkingarinnar, að leggja niður íslenskan landbúnað en áróður þessara tveggja aðila á íslenskan landbúnað hefur verið skefjalaus og er eitt besta dæmið um hversu náið Baugur og Sam- fylkingin hafa starfað saman. Birgir Örn Stein- grímsson skrifar um samstarf Baugs og Samfylkingar » Baugi hefur síðan tekist vel að nýta sér áhrif sín innan Samfylkingarinnar og sérstaklega núna eftir að völd Samfylking- arinnar hafa aukist. Birgir Örn Steingrímsson Höfundur er framkvæmdastjóri. Er Samfylkingin að starfa fyrir Baug á kostnað þjóðarinnar? Aðalseðlabanka- stjóri landsins hrósaði stjórnvöldum (les: sér og ríkisstjórn sinni) í frægu sjónvarpsviðtali fyrir að ríkið væri orð- ið skuldlaust, og þess vegna hafi lánshæf- ismat landsins verið svona gott fyrir bank- ana. Hann gleymdi al- veg að minnast á að það voru bankarnir sem gerðu ríkissjóð skuldlausan. Skattgreiðslur þessara mjólkurkúa til ríkisins voru yfir 400 milljarðar síðustu árin sem eingöngu eitt og sér gerði ríkissjóð svo vel settan. Samt voru allir meinbugir á því að stækka gjaldeyrisvarasjóð Seðlabankans og vera bakhjarl þess- ara máttarstólpa þjóð- félagsins ef á bjátaði. Þegar að því svo kom þá gátu kýrnar bara ét- ið það sem úti fraus, enda gaddfraus allt bankakerfið því engan var bakhjarlinn að hafa. En þær voru nógu góðar að fjár- magna jarðgöng og menntakerfið og heil- brigðiskerfið og fjölda annarra gæluverkefna stjórnvalda ásamt því að borga upp allan skuldahala ríkisins er- lendis. Það er eitthvað á haus í þessari rökfræði bankastjórans. Það væri ekki álitinn mikill búmaður sem svona hagaði sér. Það er með ólíkindum að helstu mjólkurkúm landsins, þessu stór- glæsilega bankakerfi landsins sem orðið var, hafi verið slátrað á nánast einni viku. Að því skuli hafa verið fórnað af svona lítilli fyrirhyggju stjórnvalda og Seðlabankans er al- gerlega óskiljanlegt. Og helst er á stjórnvöldum og þorra álitsgjafa og almennings að heyra í dag að þetta hafi einna helst verið misindismenn mestallan tímann. Ég tek ofan fyrir flestum útrásarvíkingum landsins fyrir áræði þeirra, útsjónarsemi og stórhug. Auðvitað voru mörg feil- skot þar á meðal, en þorri fyrirtækja víkinganna á erlendri grundu voru og eru enn í dag vægast sagt afar snjallar fjárfestingar, s.s. fyrirtæki Bakkavarar í Bretlandi og víðar og Baugs í sama landi og fleira og fleira. En afar óheppilegt var bílífi sumra þessara manna, sem fyrst og síðast skóp öfundarölduna sem nú rís sem hæst. En hvað er til ráða? Ef upplýstur einvaldur væri við stjórn hér á landi myndi hann hiklaust koma banka- kerfinu í eins mikið samt lag og hægt væri á eins stuttum tíma og mögulegt væri og afhenda það Thorsurum landsins aftur, þeim Magnús H. Skarp- héðinsson skrifar um aðgerðir og ástæður efna- hagshrunsins Magnús H. Skarphéðinsson Mjólkurkúnum slátrað »Hvað er til ráða ? NÁNAST hvar sem Alþjóðagjaldeyrissjóð- urinn (IMF) hefur stigið niður fæti síðast- liðin þrjátíu ár hefur hann skilið eftir sig sviðna jörð. Í upphafi tíunda áratugarins tókst sjóðnum með ráðgjöf sinni og íhlutun að koma hlutum í Rússlandi í enn verra horf en við- skilnaður kommúnismans hafði gert. Í félags- og efnahagslegum skilningi stóð þetta volduga ríki á brauðfótum eftir að einkaðilum, svokölluðum ólí- görkum, voru afhentar auðlindir landsins. Úthýsing velferðarkerfisins til einkaaðila endaði með því að lífs- líkur fólks í Rússlandi drógust saman sem og jók enn á gríðarlega mis- skiptingu lífsgæða. Þessi misskipting lífsgæða virðist vera afleiðing sem fylgir sjóðnum hvert sem hann fer. Í Suður-Ameríku þar sem sjóð- urinn hefur rekið allt að því til- raunastöð fyrir frjálshyggjukreddur sínar hafa afleiðing- arnar verið þær sömu. Eina ríkið í Suður- Ameríku sem hefur komið sér undan slíkum afleiðingum er Brasílía enda hefur það aldrei tekið við ráðgjöf eða gengið inn í pakka hjá sjóðnum. Í Argentínu gerðu stjórnvöld hið gagnstæða við ná- granna sína í Brasílíu og gerðust allt að því bók- stafstrúarmenn á ráð- leggingar sjóðsins. Á 10 ára tímabili frá 1989 til 1999 var stíf- ustu kröfum sjóðsins fylgt og af- raksturinn var sá að Argentína varð eiginlega gjaldþrota. Auður fólksins var tekinn af almenningi í formi hruns gjaldmiðilsins, launagreiðslur voru frystar og sparifé gert upptækt. Í raun hefur Alþjóðagjaldeyr- issjóðurinn síðastliðin þrjátíu ár ver- ið lögregluvald utan um fjármagns- kerfi og skipulag. Hin fjölmörgu dæmi um aðkomu hans hafa sýnt að forgangsröðunin er ætíð fjármagnið fyrst og svo má almenningur fylgja með ef hann getur. Af þessu stafar ótti margra við aðkomu hans að ástandinu hér á landi. Það var því æði nöturlegt þegar formaður Samfylkingarinnar, við- skiptaráðherra og þingflokks- formaður töluðu einum rómi um að leið Íslands út úr ógöngum okkar væri að njóta liðsinnis Alþjóðagjald- eyrissjóðsins. Formaðurinn talaði um að varnarleið fyrir íslenskan al- menning á 21. öldinni væri í gegnum sjóðinn á meðan hinir forystumenn- irnir töluðu um að engin íþyngjandi skilyrði fylgdu aðkomu sjóðsins. Iðn- aðarráðherra, Össur Skarphéð- insson, gekk lengst allra Samfylkingarmanna er hann talaði beinlínis um aðkomu Alþjóðagjald- eyrissjóðsins sem „gæðastimpil“. Kannski er ástæða til þess að undir- strika að hér er það ekki forysta Sjálfstæðisflokksins sem talar heldur Huginn Freyr Þor- steinsson skrifar um Alþjóðagjald- eyrissjóðinn Huginn Freyr Þorsteinsson » Alþjóðagjaldeyr- issjóðurinn hugsar um hag fjármagnsins en ekki fólksins. Þess vegna eiga Íslendingar ekki að leita á náðir hans. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn er leiðin til ánauðar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.