Morgunblaðið - 28.10.2008, Síða 28
28 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 2008
✝ Sigurður Pét-ursson fæddist
8. maí 1925 í
Reykjavík. Hann
lést á Landspítal-
anum 20. október
2008.
Foreldrar hans
voru Pétur Jó-
hannsson, vélstjóri
í Reykjavík, f. 30.6.
1897, d. 9.5. 1939
og Eyjólfína Helga
Sigurðardóttir, f.
30.7. 1896, d. 29.9.
1985. Systur Sig-
urðar eru Guðrún Alda f. 16.10.
1919, d. 4.4. 2003. Sigríður Eyja f.
22.12. 1921, d. 23.10. 1997 og Sæ-
munda Guðný f. 8.11. 1923 .
Eftirlifandi eig-
inkona Sigurðar er
Sóley Brynjólfs-
dóttir f. 15. janúar
1926. Þau gengu í
hjónaband 6. maí
1967.
Sigurður hóf
prentnám í Guten-
berg 2.11. 1942. Tók
sveinspróf í setningu
15.5. 1947. Vann all-
lengi í Gutenberg,
síðan í prentsmiðju
Jóns Helgasonar og
síðan aftur í Guten-
berg fram að starfslokum.
Útför Sigurðar fer fram frá Ár-
bæjarkirkju í dag og hefst athöfn-
in klukkan 13.
Diddi móðurbróðir minn er nú
fallinn frá 83 ára að aldri. Hann bjó
heima hjá Helgu ömmu og Eiði
bróður hennar þegar ég var barn
að aldri og man ég vel eftir honum
á miðhæðinni á Bárugötunni. Þar
var fjölmennt á sunnudögum, þeg-
ar dætur ömmu komu í heimsókn
ásamt fjölskyldum. Karlarnir sátu
að mat loknum í einu herbergi og
spjölluðu, konurnar í stofunni. Við
börnin höfum líklega verið öllum til
leiðinda, eins og stormsveipur um
íbúðina, ganginn og út í garðinn og
götuna. Diddi átti hins vegar heima
þarna – lagði sig gjarnan eftir mat-
inn, sem var bæði einstaklega góð-
ur og vel útilátinn hjá ömmu.
Oft stóðum við vakt og biðum
þess að Diddi vaknaði og færi fram
úr beddanum því þá dæsti hann og
fór á fætur með ýmsum spaugileg-
um tilbrigðum. Svo tók líf Didda
stakkaskiptum. Hann fjárfesti í
fyrsta bílnum upp úr 1960. Ég man
eftir að hafa farið vestur í bæ og
upp á Bárugötu til að skoða nýja
gráa, gljáfægða tveggja dyra Trab-
ant-bílinn. Mér var boðið í stutta
ökuferð og man enn vígalegu öku-
glófana. Í þessum bíl keyrði Diddi
Helgu ömmu og aðra vítt og breitt
og var þetta efalaust mikil bylting í
samgöngum á því heimili.
Síðar kom Sóley inn í líf Didda
frænda og þau hófu búskap uppi í
Árbæ og frændi hætti í mínum
barnshuga að vera stór unglingur.
Sóley var sólin í lífi frænda míns.
Diddi og Sóley voru ákaflega natin
og hjálpleg Helgu ömmu meðan
hún lifði. Síðustu árin hefur
mamma verið á Grund og ég veit
að vikulegar heimsóknir Didda og
göngutúrar þeirra hafa verið henni
dýrmætir og upplífgandi. Ég er
þeim ákaflega þakklátur fyrir
þessa ræktarsemi. Paradís Didda
og Sóleyjar var að Laugarvatni þar
sem þau komu sér upp fallegum
sumarbústað í landi prentara. Þau
voru óspör að bjóða mömmu að
koma og dvelja með sér og var hún
alltaf ánægð með samveruna og
dvölina í þessu dásamlega um-
hverfi.
Eftir að ég fullorðnaðist höfum
við færst í sundur og sambandið
árum saman aðeins jólakortin,
enda lönd og höf aðskilið. Hin síð-
ari ár hef ég næstum árlega heim-
sótt þau í Árbæinn og það hefur
verið gaman að kynnast þeim aft-
ur. Þó að Diddi hafi glímt við sjúk-
dóma var hann hress og viðræðu-
góður og vel að sér um ólíklegustu
málefni, fáir talað af jafn mikilli
þekkingu um það heimssvæði þar
sem ég hef búið undanfarin ár.
Diddi var prentari að atvinnu og
greinilegt að innihald bókanna hef-
ur verið honum hugleikið ekki síð-
ur en formið sem hann skapaði.
Kæra Sóley, þinn er missirinn
mestur, innilegustu samúðarkveðj-
ur, minningin lifir um frændann og
góðar samverustundir. Nú er þessi
dagfarsprúði og reisulegi frændi
minn allur og þakka ég heilshugar
samfylgdina fyrir hönd fjölskyld-
unnar. Hjartans kveðjur og gakktu
á Guðs vegum.
Hilmar.
Ég kynntist Sigurði þegar hann
og Sóley móðursystir mín voru að
draga sig saman. Sóley frænka var
eins og stóra systir mín og bjó
heima hjá mér um nokkurra ára
skeið. Þannig að ég fylgdist með
stefnumótum þeirra með mikilli
eftirvæntingu. Þau giftu sig árið
1967, fluttu upp í Hraunbæ þar
sem þau hafa búið síðan.
Það tók tíma að kynnast Sigurði.
Hann var frekar fámáll og hafði sig
ekki í frammi. En við nánari kynni
hafði hann gaman af að spjalla og
var mjög fróður um landafræði og
ýmis sagnfræðileg málefni. Hann
var góður knattspyrnumaður og
KR-ingur á sínum yngri árum og
prýðisgóður taflmaður. Sigurður
varð góður vinur okkar og verður
sárt saknað.
Sigurður og Sóley byggðu sér
sumarbústað í landi prentara í
Miðdal á Laugarvatni. Þar áttu
þau sannkallaðan sælureit, smekk-
legan og notalegan bústað umvaf-
inn trjám og fallegum gróðri. Sig-
urður naut sín þar vel og var góður
gestgjafi, enda mikið um að fólk
heimsækti þau í bústaðinn. Þar
dvöldu þau flestar helgar yfir sum-
arið og í sumarfríum. Sigurður
hafði yndi af að smíða, mála, gróð-
ursetja og dytta að öllu úti sem
inni.
Við hjónin og börnin okkar höf-
um verið svo lánsöm að dvelja hjá
Sigurði og Sóleyju í sumarbústaðn-
um margsinnis um verslunar-
mannahelgina, en þá halda prent-
arar mikla fjölskylduhátíð í Miðdal.
Ég man alltaf þegar sonur okkar
tók þarna sín fyrstu dansspor á
Diskótekinu Dísu og dansaði af
mikilli innlifun. Þá var hann
þriggja ára og minnist þess enn
hve vel hann skemmti sér. Um
kvöldið var svo mikil skrúðganga
þar sem gengið var með kyndla
niður að brennu sem Jón Otti
stjórnaði af miklum myndarskap.
Sigurður átti við heilsubrest að
stríða síðustu 5 árin og hugsaði
Sóley um hann af einstakri alúð og
nærgætni. Sumarbústaðurinn skip-
aði ævinlega stóran sess í huga
hans og mátti hann ekki hugsa til
þess að þar færi allt í órækt. Því
ákvað hann að selja bústaðinn fyrir
2 árum til fyrrverandi samstarfs-
félaga sem hann treysti best fyrir
þessari eign sem var honum svo
kær. Einn góðviðrisdaginn á liðnu
sumri fórum við í stutta heimsókn
til Laugarvatns til að líta á „forn-
ar“ slóðir. Var ánægjulegt að sjá
hversu vel Sigurður naut ferðar-
innar og hve ánægður hann var að
sjá bústaðinn sinn og hversu vel
nýir eigendur önnuðust hann.
Mig langar að þakka Sigurði og
Sóleyju fyrir vináttu og ræktar-
semi við mig og fjölskyldu mína og
fyrir allar samverustundir liðinna
ára.
Sigurveig Alfreðsdóttir
og fjölskylda.
Kæri Sigurður.
Það er mikil eftirsjá að þér úr
þessum heimi. Til að minnast þín
hef ég tekið saman nokkra valda
kafla úr samskiptum okkar í gegn-
um tíðina.
Á uppvaxtarárum mínum var ég
á sumrin tíður gestur í sumarbú-
stað ykkar hjóna á Laugarvatni.
Þar átti ég margar góðar stundir
og man ég alltaf hversu stoltur ég
var þegar Sigurður fól mér það
hlutverk að vera lyklavörður bú-
staðarins. Við sammæltumst um að
enginn mætti koma inn fyrir hliðið
án þess að ég væri með í ráðum.
Til að tryggja endanlega að ekki
væri farið fram hjá mér svaf ég
með lykilinn undir koddanum.
Önnur góð minning frá Laug-
arvatni var þegar Viðar, vinur
minn, kom með austur í bústað eitt
árið. Okkur félögum hafði áskotn-
ast Matador-spil og höfðum ákveð-
ið að það skyldi spilað í fríinu. Í
rúmlega 20 gráða hita og blanka-
logni drógum við öll gluggatjöld
fyrir og spiluðum við Sóleyju í
margar klukkustundir. Sigurður
kaus að vera úti í góða veðrinu en
kom inn á milli og fylgdist spennt-
ur með gangi mála. Hafði hann
mjög gaman af að fylgjast með
hversu kappsöm við vorum og
ósvífin í fjármálunum. Dæmi um
það var þegar eitthvert okkar lenti
á húsi eða hóteli. Þá voru viðkom-
andi settir tveir afarkostir, að veð-
setja hluta af eigum sínum eða að
taka lán með himinháum vöxtum. Í
ófá skipti hin síðari ár hefur Sig-
urður minnst þessa við góðar und-
irtektir okkar Sóleyjar.
Sigurður var vel lesinn í mann-
kynssögu og landafræði. Þegar við
hittumst vorum við oft að reyna
kunnáttu hvor annars og stóð Sig-
urður mér yfirleitt framar. Reynd-
ist þrautin þyngri að finna land þar
sem hann þekkti ekki höfuðborg-
ina. Langtímaminni hans var alltaf
gott og gerði mér erfitt fyrir í
þessum raunum.
Við áttum gott skap saman og
svipuð áhugamál. Á meðal sameig-
Sigurður Pétursson
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
SVALA GUÐMUNDA SÖLVADÓTTIR,
lést á Landspítalanum fimmtudaginn 23. október.
Útförin fer fram frá Kópavogskirkju fimmtudaginn
30. október kl. 15.00.
Halldór Geirsson, Björk Jóhannsdóttir,
Ragnheiður Benjamínsdóttir,
Guðrún Lilja Benjamínsdóttir, Guðmundur Þorleifsson,
Jóhann Ólafur Benjamínsson, Sigrún Sigursteinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
✝
Ástkær sonur okkar, bróðir, barnabarn,
barnabarnabarn og frændi,
BJARNI SALVAR SIGURÐSSON,
til heimilis að
Stuðlabergi 76,
Hafnarfirði,
andaðist á Barnaspítala Hringsins fimmtudaginn
23. október.
Rakel Hrund Matthíasdóttir, Sigurður Þór Björgvinsson,
Þórunn Lea Sigurðardóttir,
Elsa Bjarnadóttir, Matthías Eyjólfsson,
Þórunn Ólafsdóttir, Daníel Magnús Jörundsson,
Ragnheiður Reynisdóttir, Björgvin Helgi Halldórsson,
Sigríður Þorleifsdóttir
og aðrir aðstandendur.
✝
Ástkær móðir okkar, dóttir og stjúpmóðir,
ÁSDÍS EINARSDÓTTIR
kennari
frá Læk í Leirársveit,
Víðimel 56,
Reykjavík,
lést á heimili sínu sunnudaginn 26. október.
Hún verður að eigin ósk kvödd í kyrrþey.
Einar Örn Eiðsson,
Vilhjálmur Ólafsson,
Vilborg Kristófersdóttir,
Jóna Valdís, Ásgerður og Valgerður Ólafsdætur.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma
og langamma,
SÓLVEIG INGIBJÖRG KR. DAVÍÐSON,
Hverahlíð 20,
Hveragerði,
lést á hjúkrunarheimilinu Ási, Hveragerði,
laugardaginn 18. október.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
Sólveigar. Fjölskyldan þakkar starfsmönnum
hjúkrunarheimilisins Áss fyrir góða umönnun
og hlýju.
Þeim sem vilja minnast hinnar látnu er bent á dvalar- og
hjúkrunarheimilið Ás.
Olav Davíð Davíðson,
Davíð O. Davíðson, Elín Björg Jónsdóttir,
Ástrún Sólveig Davíðson, Aðalsteinn Guðmundsson,
Betzy Marie Davíðson, Baldur I. Sveinsson,
Olav Heimir Davíðson, Guðlaug Ingvarsdóttir,
Ragnheiður Hulda Davíðson,Þórir Þrastarson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
VALGERÐUR JÓNSDÓTTIR,
Herjólfsgötu 40,
Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum við Hringbraut laugar-
daginn 25. október.
Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
þriðjudaginn 4. nóvember kl. 15.00.
Jón Arnar Þorvaldsson,
Valdís Jónsdóttir, Guðmundur Adólfsson,
Jón Bergþór Jónsson,
Jóna Jónsdóttir,
Friðrik Jónsson, Jónína Dögg Loftsdóttir
og barnabörn.