Morgunblaðið - 28.10.2008, Page 30

Morgunblaðið - 28.10.2008, Page 30
30 Minningar MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 2008 Fundir/Mannfagnaðir Íbúasamtök Hlíðar, Holt og Norðurmýri Boðað er til aðalfundar Íbúasamtaka 3. hverfis, Hlíðar, Holt og Norðurmýri, þriðjudaginn 4. nóvember 2008 kl. 20:00 í Skriðu, hátíðarsal Menntavísindasviðs Háskóla Íslands (áður Kennaraháskólinn) Kynning á samráðsferli vegna gatnamóta Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar. Dagskrá og nánari upplýsingar eru á vef Íbúasamtaka 3. hverfis www.hlidar.com Bridsfélag Hafnarfjarðar A Hansen-tvímenningurinn hélt áfram sl. mánudag og eru búnar 13 umferðir af 19. Eðvarð Hallgrímsson hélt topp- sætinu með nýjum meðspilara að þessu sinni en nokkur pör koma skammt á eftir og munu væntanlega gera atlögu að toppsætinu vinsæla á síðasta kvöldi keppninnar sem lýkur næsta mánudag. Staða efstu para: Eðvarð Hallgrímsson - Björn Friðriksson/ Trausti Finnbogason 465,4 Halldór Einarsson - Guðni Ingvarsson/ Högni Friðþjófsson 460,4 Heimir Tryggvas. - Árni Björnss. 457,4 Dröfn Guðmd. - Hrund Einarsd. 451 Ingvar Ingvars. - Skeggi Ragnarss. 451 Gullsmárinn Góð þátttaka var í Gullsmára sl. fimmtudag 23.okt. Spilað var á 12 borðum og urðu úrslit þessi í N/S Örn Einarsson - Jens Karlsson 210 Jón Stefánsson - Þorsteinn Laufdal 176 Tómas Sigurðss. - Sigtryggur Ellertss. 176 A/V Oddur Jónsson - Stefán Ólafsson 231 Guðm.Tryggvas. - Steindór Árnason 216 Ragnh.Gunnarsd.- Guðlaugur Árnas. 209 Spilað var á 10 borðum sl. mánu- dag 20.okt. Úrslit í N/S Þórður Jörundss. - Örn Einarsson 205 Þorsteinn Laufdal - Jón Stefánss. 183 Dóra Friðleifsd.- Heiður Gestsd. 176 A/V Sigurður Björnss. - Viðar Jónsson 192 Eysteinn Einarss. - Björn Björnsson 190 Jón Hannesson - Samúel Guðmss. 183 Spilað var á 11 borðum fimmtu- daginn l6. okt. Úrslit í N/S: Guðrún Hinriksd. – Haukur Hanness. 198 Hermann Guðmss. – Ernst Backman 193 Jón Jóhannss. – Sturlaugur Eyjólfss. 190 A/V Díana Kristjánsd. – Ari Þórðarson 206 Elís Kristjánsson – Páll Ólason 204 Eysteinn Einarss. – Björn Björnss. 201 Sveitakeppni félagsins hefst svo mánudaginn 3.nóvember og stendur skráning yfir. Veitt verður aðstoð við myndun sveita sé þess óskað. Bridsfélag Borgarfjarðar Mánudaginn 20. október spiluðu Borgfirðingar enn og aftur Mitchel- tvímenning og nú á 9 borðum. Við fengum í heimsókn ágæta félaga úr Grundarfirði og helmingur þeirra „misnotaði“ sér gestrisni okkar og tók efsta sætið í N-S riðlinum. Þetta voru þeir Gísli og Guðni en þeir eru ekki óvanir að standa sig vel þegar þeir heimsækja okkur og er þess skemmst að minnast er þeir gjör- sigruðu aðaltvímenninginn á síðasta ári. Í A-V riðlinum var keppnin jafnari og þar voru það heimamenn sem enduðu í efstu þremur sætunum. Þórhallur á Varmalandi og Brynjólf- ur í Hlöðutúni höfðu góðan sigur, kannski ekki síst vegna þess hversu illa þeir fóru með undirritaðan. Jón í Björk og Eyjólfur frá Sigmundar- stöðum tóku annað sætið og má bú- ast við miklu frá þeim í vetur enda hafa þeir í mörg ár verið efnilegasta parið í klúbbnum. Úrslit kvöldsins urðu annars þessi: N-S Guðni Hallgrímss. – Gísli Ólafsson 284 Sveinbjörn Eyjólfss. – Lárus Péturss. 270 Jón Eyjólfsson – Baldur Björnss. 230 A-V Þórhallur Bjarnas. – Brynj. Guðmss. 260 Jón Pétursson – Eyjólfur Örnólfsson 245 Næsta mánudag verður spilaður tvímenningur en mánudaginn 3. nóv- ember hefst aðaltvímenningur fé- lagsins og geta áhugasamir skráð sig hjá Jóni formanni, Ingimundi ritara eða Sveinbirni, sem engan titil hefur. Frímann og Reynir efstir hjá Bridsfélagi Akureyrar Hjá Bridsfélagi Akureyrar er ný- lokið þriggja kvölda Greifamóti sem var impatvímenningur. Ýmis pör voru með forystuna en í blálokin skutust Reynir og Frímann í fyrsta sinn í efsta sætið og héldu því. Ann- ars einkenndist mótið af misjöfnu gengi milli kvölda hjá pörunum nema helst hjá Sveinbirni, Þórhalli, Örlygi og Birni sem með jöfnum og góðum árangri náðu verðlaunasæt- um. Öll spil og stöðu má sjá á bridge.is. Lokastaðan: Frímann Stefánss. - Reynir Helgason 101 Sveinbj. Sigurðss. - Þórh. Hermannss. 87,8 Örlygur Örlygss. - Björn Þorlákss. 70,9 Stefán Sveinbjss. - Ragnh. Haraldsd. 57,3 Una Sveinsd. - Jón Sverrisson 52,3 Síðasta spilakvöld: Frímann Stefánss. - Reynir Helgason 55,1 Ævar Ármannss. - Árni Bjarnason 45 Örlygur Örlygss. - Björn Þorláksson 29,3 Næsta mót er þriggja kvölda hraðsveitakeppni og látið vita um þátttöku svo hægt sé að mynda sveitir. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is ✝ Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elsku eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÖNNU STEINUNNAR HJARTARDÓTTUR. Við færum öllum á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund sérstakar þakkir fyrir góða umönnun, kærleik og félagsskap. Hannes Þorsteinsson, Hjörtur Hannesson, Sigrún Axelsdóttir, Guðrún Hannesdóttir, Vilhjálmur Þór Kjartansson, Una Hannesdóttir, Geir Ingimarsson, barnabörn og barnabarnabarn. ✝ Faðir okkar, tengdafaðir, afi og fyrrverandi eiginmaður, OLE HOUE, Humlum, Danmörku, er látinn. Sara Þórunn Óladóttir Houe, Sölvi Þórðarson, Hjalti Thomas Houe, Viktor Orri Sölvason, Guðrún Þóra Hjaltadóttir. Það var fyrir tæpum 60 árum að ég kom til sumardvalar í Álftagerði. Þetta var í maí og mikil snjóalög um sveitir norð- austanlands. Ég hafði fengið far með þremur ungum Mývetningum sem brutust á jeppa austur yfir heiðar. Það þurfti mikið að moka og ýta og allur dagurinn fór í þetta ferðalag. Það var liðið langt á kvöld og hálf- rökkvað þegar komið var á minn áfangastað. Þar stóð ung kona í snjónum, þakk- aði mönnunum fyrir mig, tók fátæk- legan farangur minn og leiddi mig eft- ir troðinni slóð heim á hlað og að hallandi stafni bæjardyraskemmunn- ar. Þaðan í gegnum dimm göng og upp fjórar tröppur og inn í stóarhúsið. Ég var þreyttur, óöruggur og dálít- ið kvíðinn. En í handtaki þessarar Arnfríður Aðalgeirsdóttir ✝ Arnfríður Aðal-geirsdóttir fæddist að Bjarna- stöðum í Mývatns- sveit 21. febrúar 1923. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga 14. október síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Skútu- staðakirkju 24. október. konu var allt sem þessi umkomulausi drengur þarfnaðist – þar var hlýja og kærleikur. Hlýjan í lófa hennar hefur fylgt mér allar götur síðan. Ég var komin til Öddu og foreldra henn- ar, Aðalgeirs og Re- bekku. Allt í þessum gamla bæ var fornfá- legt og mér framandi. Þegar ég vaknaði minn fyrsta morgun í bað- stofunni og fór að horfa í kringum mig, fannst mér þetta frá- bært. Alli og Bekka í sínu rúmi sem mátti ýta saman svo úr varð sæti fyrir tvo, Adda í sínu rúmi og ég í mínu og eitt rúm fyrir gesti. Eitt borð, einn bekkur, tvær stórar kistur, önnur með kúptu loki, hin með sléttu. Fata- hengi, tjaldað fyrir með hvítu og lítil bókahilla. Tveir fjögurra rúða gluggar í vestur. Þrjár myndir á veggjum. Mynd af Jóni Sigurðssyni forseta. Myndin trú, von og kærleikur og myndin af Hallgrími Péturssyni sem kölluð var Spjalda-Grímur. Svona var þetta einfalt og fallegt. Sumrin mín í Álftagerði voru mér dýrmæt reynsla og mótuðu mig á margan hátt. Að virða það gamla og sjá fegurð í einfaldleikanum, að elska sauðkindina og allan búpening og um- gangast alla ferfætlinga sem vits- munaverur. Í janúar 1960 eignaðist Adda drenginn Jóhann Aðalgeir Gestsson. Það var mikil blessuð gæfa fyrir heimilið. Jóhann óx úr grasi við ást og hlýju og varð traustur og góður drengur, duglegur og hvers manns hugljúfi, vinur vina sinna. Þegar við Ragna mín stofnuðum heimili og eignuðumst dætur okkar vorum við alltaf velkomin í sveitina og dætur okkar, Rebekka og Hildigunn- ur sóttu fast að fara til „ömmu“ í Álftagerði. Lífið er merkilegt og stundum gott og gjöfult. Sólargeisli kom inn í líf Öddu þegar sonardrengurinn Sverrir fæddist og færði henni gleði þegar fór að halla undan fæti. Soffía og Jóhann voru henni afar góð alla tíð og Sverrir litli, 10 ára gamall, spilaði á fiðluna sína fallegt lag fyrir ömmu sína um það leyti sem hún var að hverfa úr þessum heimi. Hún kvaddi í kyrrð og ró. Ég kvaddi Öddu mína laugardag- inn 11. október. Hún lá á líknardeild spítalans á Húsavík. Ég tók í hönd hennar og fann hlýjuna í lófa hennar – kyssti hana á ennið eins og hún hafði ætíð kysst enni mitt er hún bauð mér góða nótt. Við Ragna mín, dætur okkar Krist- ín, Rebekka og Hildigunnur blessum minningu Öddu og vottum syni henn- ar, Jóhanni, konu hans Soffíu og drengnum þeirra Sverri okkar dýpstu samúð. Þráinn Karlsson. 9. október dó yndis- legur maður. Þessi maður var Gunnar, tengdapabbi minn. Það er erfitt að hugsa til þess að maður sjái hann ekki aftur en sem betur fer á maður ótal margar yndis- legar minningar. Gunnar Reynir Bæringsson ✝ Gunnar ReynirBæringsson fæddist á Ísafirði 7. júlí 1949. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut fimmtudaginn 9. október síðastliðinn og var útför hans gerð frá Bústaða- kirkju 17. október. Ég kynntist tengda- fjölskyldu minni að- eins 15 ára gömul, kynntist þessu yndis- lega fólki, Gunnari og Gunnu, sem tóku mér opnum örmum. Tæp- um þremur árum seinna eignaðist ég svo lítinn strák, fyrsta afa- barnið hans Gunnars. Upp frá þeim degi var tengdapabbi stoltur afi sem sinnti „afahlut- verkinu“ af ást og alúð og gaf sér alltaf tíma til að vera með litlu börnunum sín- um. Fyrir þau er þetta mikill missir. Ég og fjölskyldan mín fluttum til Prag 1995 og komu tengdapabbi og tengdamamma í heimsókn til okkar. Þar áttum við frábærar stundir sam- an sem núna eru orðnar svo miklu dýrmætari. Tengdapabbi var alltaf tilbúinn að hjálpa, sama hvort hann var sjálfur upptekinn eða ekki og það eru ófá skiptin sem hann rétti okkur hjálparhönd, hvort sem það var við að leggja flísar á gólf, flytja, passa barnabörnin eða hvað sem er. Það er svo ótal margt sem ég á honum að þakka. Við eyddum svo mörgum stundum saman, vorum yfirleitt öll saman á jólunum, fórum í ótal úti- legur, höfðum gaman saman á gaml- árskvöld og lengi mætti telja. Fyrir fjórum árum fluttum við með þrjú börn til Ítalíu. Bara svona til að lýsa því hversu hjálpsamur og yndislegur tengdapabbi var, þá bauðst hann til að fara með bílinn okkar í Norrænu til Danmerkur og keyra hann, einn, niður til Ítalíu og það gerði hann. Hann aðstoðaði okk- ur svo við að koma okkur vel fyrir og búa okkur fallegt heimili þar og ég verð honum ávallt þakklát fyrir alla hjálpina. Eftir það komu Gunnar og Gunna oft í heimsókn til okkar og það eru dýrmætar minningar sem við eigum frá öllum þeim skiptum, þegar haft var huggulegt í sólinni og rölt í bæinn, keyptur ís og hlegið saman. Þessar minningar geymum við vel. Þrátt fyrir það að yngsta barnið okkar var aðeins rúmlega eins árs þegar við fluttum til Ítalíu, talaði hún alltaf mikið um Gunnar afa, enda var hann duglegur að hafa samband og naut þess að vera með krökkunum þegar hann kom til okkar. Á sumrin þegar við komum í heimsókn fengu krakkarnir okkar oft að fara með afa og ömmu í útilegu á húsbílnum þeirra og eru þessar ferðir núna ómetanlegur tími sem þau fengu með afa sínum og þau munu geyma allar þessar skemmtilegu minningar í hjarta sínu. Tengdapabbi var mikill Formúlu- aðdáandi og stóð til að hann kæmi að heimsækja okkur til Monza núna í september til að sjá kappaksturinn en því miður breyttust aðstæður og var hann orðinn svo veikur að hann komst ekki til okkar. Núna erum við flutt til Íslands og það er sárt að hugsa til þess að tengdapabbi geti ekki komið og heimsótt okkur í húsið okkar, húsið sem hann hjálpaði okk- ur að velja, en innst inni veit ég að hann mun vera með okkur og hjálpa okkur á sinn hátt. Elsku tengdapabbi, mig langar að þakka þér fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig, þín er sárt saknað. Helga. Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.