Morgunblaðið - 28.10.2008, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 2008
Sudoku
Frumstig
6 1 2
8 4 7 6
8 1 2 5 3
4 9
2 6 5 9 7 1 4
4 8
1 5 4 9 6
8 4 9 7
7 6 2
7 8 9
5 3 4 7
4 8 3
8 3 6 7 4
6 8 1
3 7 1 4 9
2 9 8
3 2 5 6
1 2 7
5 1 2
1 5 9 8
2 4 3
8 5
1 2 3 9 4 7
6 1
7 4 3
7 8 6 4
4 2 7
6 3 2 8 4 7 1 5 9
8 5 1 6 9 2 4 7 3
7 9 4 1 5 3 8 2 6
9 6 5 3 2 1 7 8 4
2 1 8 9 7 4 6 3 5
4 7 3 5 8 6 9 1 2
5 8 7 2 6 9 3 4 1
1 2 9 4 3 8 5 6 7
3 4 6 7 1 5 2 9 8
8 4 3 1 2 5 7 6 9
9 7 5 3 6 4 2 8 1
1 2 6 7 9 8 4 3 5
5 3 9 6 4 2 1 7 8
7 1 4 8 3 9 5 2 6
6 8 2 5 7 1 9 4 3
4 5 8 2 1 3 6 9 7
3 9 7 4 5 6 8 1 2
2 6 1 9 8 7 3 5 4
1 5 4 7 8 6 3 9 2
8 9 3 4 5 2 7 6 1
6 7 2 1 9 3 4 8 5
5 3 9 2 6 1 8 7 4
2 1 7 8 4 9 5 3 6
4 8 6 5 3 7 1 2 9
9 4 1 6 7 8 2 5 3
3 2 8 9 1 5 6 4 7
7 6 5 3 2 4 9 1 8
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla út í
reitina þannig að í hverjum
3x3-reit birtist tölurnar 1-9.
Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lá-
rétt og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
dagbók
Í dag er þriðjudagur 28. október,
302. dagur ársins 2008
Orð dagsins: Andinn opinberast í sér-
hverjum til þess, sem gagnlegt er. (I.
Kor. 12, 7.)
Stærstu tíðindi helgarinnar íknattspyrnuheiminum voru
sigur Liverpool á Chelsea á Stam-
ford Bridge. Þar með var endi
bundinn á 86 leikja hrinu heima-
manna án taps í ensku úrvalsdeild-
inni en Chelsea laut síðast í gras á
Brúnni í febrúar 2004. Einstakt af-
rek sem seint verður leikið eftir.
Þeir bláklæddu hafa án efa verið
farnir að gæla við hundraðið.
Sigur Liverpool var verðskuld-
aður, „Rauði herinn“ var nær því að
bæta við öðru marki en Chelsea að
jafna leikinn, og liðið hefur nú tekið
þriggja stiga forystu í baráttunni
um Englandsbikarinn sem það vann
síðast árið 1990. Vissulega eru bara
9 af 38 umferðum að baki og stuðn-
ingsmenn Liverpool munu vitaskuld
ekki voga sér að fagna strax en leik-
ur liðsins lofar sannarlega góðu. Það
hefur að vísu þurft að hafa fyrir
hlutunum í flestum leikja sinna en
sýnt mikinn karakter, svo sem með
sigurmörkum á elleftu stundu gegn
Manchester City og Wigan Athletic.
x x x
Þá hefur Liverpool lagt bæðiChelsea og Manchester United
á leiktíðinni en liðið hefur ekki sótt
gull í greipar þessum stórveldum
hin síðari ár, vann þau síðast bæði
sparktíðina 2003-04. Þá voru innan-
borðs menn eins og Danny Murphy
og Bruno Cheyrou.
Það vekur sérstaka athygli að
báða þessa leiki hefur Liverpool
unnið án helsta markaskorara síns,
Fernando Torres.
x x x
Þegar Liverpool hampaði sínumátjánda meistaratitli vorið 1990
hafði erkifjandinn, Manchester
United, unnið deildina sjö sinnum.
Núna er staðan átján - sautján. Fátt
skelfir stuðningsmenn „Rauða hers-
ins“ meira en að United jafni þetta
eftirsótta met. Mögulega gefur það
liðinu aukinn kraft nú.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 monthana, 8
fiskar, 9 sella, 10 kraft-
ur, 11 lifum, 13 sigaðir,
15 eiga erfitt, 18 jurt, 21
útlim, 22 sori, 23 púk-
ann, 24 hirðuleysi.
Lóðrétt | 2 þráttar, 3
áleiðis, 4 vesalinga, 5
knappt, 6 tólg, 7 at, 12
tuldur, 14 frístund, 15
slæma, 16 brotsjór, 17
mátturinn, 18 glys, 19
gróða, 20 framkvæma.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 sakna, 4 pokar, 7 asans, 8 rögum, 9 agn, 11
kífa, 13 fríð, 14 sumar, 15 rösk, 17 órói, 20 hak, 22
kompa, 23 ískur, 24 róast, 25 linar.
Lóðrétt: 1 svark, 2 klauf, 3 assa, 4 þorn, 5 kúgar, 6 rúm-
ið, 10 gomma, 12 ask, 13 fró, 15 ríkur, 16 summa, 18
rokan, 19 iðrar, 20 hatt, 21 kíll.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Staðan kom upp í Evrópukeppni tafl-
félaga sem lauk fyrir skömmu í
Halkidiki í Grikklandi. Alþjóðlegi
meistarinn Jón Viktor Gunnarsson
(2.430) tefldi fyrir Taflfélag Bolung-
arvíkur og hafði hvítt gegn Emils Pi-
leckis (2.472) frá Litháen. 53. c6!
Hd3+ hvítur hefði einnig unnið eftir
53. … Kxf7 54. c7. 54. Ke6 Kd8 55.
Hd7+ og svartur gafst upp. Bolvík-
ingar fengu 7 stig og 18 vinninga á
mótinu og lentu í 36. sæti af 64
keppnissveitum. Sveit Taflfélagsins
Hellis tók einnig þátt í mótinu og
lenti í 52. sæti með 5 stig en 15 vinn-
inga. Guðmundur Gíslason (2.328),
sem tefldi fyrir Bolvíkinga, náði
áfanga að alþjóðlegum meistaratitli.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Tvíþættur tilgangur.
Norður
♠ÁK7
♥85
♦D1063
♣ÁDG8
Vestur Austur
♠105 ♠DG4
♥ÁG743 ♥2
♦ÁG8 ♦K9752
♣K102 ♣7654
Suður
♠98632
♥KD1096
♦4
♣93
Suður spilar 4♠.
Þú ert í suður og yfirmeldar hressi-
lega. Vestur opnar á 1♥, makker do-
blar og þú stekkur í 4♠. Því ekki það?
Allir segja að þú spilir svo vel. Útspilið
er tromptía.
Það lítur skynsamlega út að drepa á
♠Á og spila hjarta á kóng og ás. En nei,
það hefur sína hnökra. Vestur hnekkir
samningnum með því að spila hjarta til
baka og svo aftur hjarta inni á ♦Á. Þá
uppfærist slagur á tromp. Sú vörn er
reyndar mjög erfið, en hitt dugir vestri
líka að trompa aftur út. Þú drepur, tek-
ur ♥D og spilar ♥10. Og nú þarf vestur
bara að dúkka. Kannaðu málið.
Spilið er frá Deildakeppni BSÍ um
helgina. Vinningsleiðin er sú að spila
tígli í öðrum slag! Sem hefur þann tví-
þætta tilgang að rjúfa samband varn-
arinnar í litnum og opna samgang
heim.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú ert svo upptekinn að þú hefur
ekki tíma fyrir annað en skyndilausnir.
Reyndu frekar að hugsa langt fram í tím-
ann; leitaðu að varanlegri lausn.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Gefðu einhverjum annað tækifæri
sem ekki á það skilið. Kannski veldur
hann þér vonbrigðum, en þér líður betur
með að hafa leyft samúðinni að ráða.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Taktu áhættu í viðfangsefni sem
virðist nánast glórulaust. Gamla aðferðin
virkaði hvort eð er ekki. Það mun leiða til
góðs – þótt ótrúlegt sé.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þér þætti betra ef allir færu að
þínu dæmi en það gerist ekki. Sem betur
fer ertu sveigjanleg, nú er rétti tíminn.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Fræ sem ljónið sáði fyrir nokkrum
vikum byrja að spíra. Kannski þarftu að
rífa upp smávegis af illgresi til þess að
hleypa nýjum sprotum að. Ekki hika.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Farðu varlega í að gera ráð fyrir að
svarið blasi við öllum þó að það sé aug-
ljóst fyrir þér. Þú sérð margt sem aðrir
sjá ekki – þess vegna ertu góður leiðtogi.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Utanaðkomandi kraftar hafa ekki
áhrif á þig. Bjartar hugsanir hjálpa þér
að halda sól í sinni. Í kvöld gengurðu
beint inn í tilfinningalegt óveður.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú hefur verið svo rökréttur í
samskiptum við ástvini að þeir gætu farið
að halda að þér væri alveg sama. Reyndu
að sýna dýpt tilfinninga þinna.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú hittir hóp af fólki sem er
allt tengt. Kannski líður þér eins og að-
skotahlut fyrir vikið. Með ákveðni ættirðu
að komast inn fyrir varnirnar.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Leggðu heiðarlegt mat á til-
finningalíf þitt. Ekki bæla depurð eða
ótta. Innilegt samtal við uppáhalds-
krabbann þinn gæti dregið dulda nei-
kvæðni fram.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Notaðu tækifærið til að rækta
spunahæfileika þína á meðan þú getur
ekki vitað hvað er framundan. Bogmaður
vill slást í för sem heillagripur.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Vertu þér meðvitandi um hvað fær
þig til þess að fara í vörn. Brandari sem
kemur illa við þig eða atburður sem kallar
fram viðbrögð eru leiðin til uppljómunar.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
28. október 1780
Reynistaðarbræður lögðu af
stað úr Árnessýslu norður
Kjöl við fimmta mann, með
180 kindur og 16 hesta.
Mennirnir fórust allir í Kjal-
hrauni.
28. október 1943
Einar Ólafur Sveinsson hóf
lestur Njálu. Þetta var í
fyrsta sinn sem Íslend-
ingasaga í fullri lengd var
flutt í útvarpinu. Lesturinn
naut mikilla vinsælda. „Opn-
ast þarna áreiðanlega mörg-
um nýr heimur bókmennta,“
sagði í Útvarpstíðindum.
28. október 1958
Húla-hopp-hringir voru aug-
lýstir til sölu í Morgunblaðinu
í fyrsta sinn. Nokkrum dög-
um áður fjallaði blaðið um
þetta nýja „æði“ sem breidd-
ist út um Bandaríkin og sagði
þetta vera barnalegan leik
„með plasthring, um það bil
metra í þvermál“. Íslendingar
tóku vel við sér og Þjóðvilj-
inn sagði að varla hefði verið
hægt „að þverfóta um götur
bæjarins fyrir húlahoppandi
krökkum“.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Þetta gerðist …
Reykdal Magnússon og Margrét
Ó. Óskarsdóttir áttu fimmtíu ára
brúðkaupsafmæli 25. október síð-
astliðinn. Þau áttu góðan dag sam-
an og meðal annars fóru þau í
óvissuferð um Reykjavík með
barnabörnum.
Gullbrúðkaup
ÞÓRARINN segir afmælisdaginn ekki sérstaklega
skipulagðan að öðru leyti en því að mæta til vinnu
og eiga kvöldstund með fjölskyldunni. Þórarinn
hefur þó skipulag að lifibrauði en síðustu tíu árin
hefur hann unnið sem verkefnastjóri hjá skipulagi
Reykjavíkurborgar þar sem hann sér um verk-
þætti, annast framkvæmd skipulagsáætlana, eft-
irlit o.fl. Þar áður rak hann í 25 ár Teiknistofu
Túngötu 3, TT3.
Spurður um eftirminnileg afmæli segist Þór-
arinn yfirleitt ekki muna eftir þeim. „Ég geri fjöl-
skyldu minni mikinn óleik með því að muna ekki
eftir neinu sérstöku,“ segir hann en bætir við að eftirminnilegt hafi
verið fyrir fimm árum þegar hann og eiginkonan, Sigríður Vilhjálms-
dóttir, ætluðu að eyða afmælisdeginum í London. Ekki vildi betur til-
en svo að annar hreyfillinn bilaði svo lenda þurfti í Glasgow. „Við
misstum þ.a.l. af allri áætlun kvöldsins í London en komumst þangað
seint og um síðir.“ Meðal áhugamála Þórarins eru mannlífið og sagn-
fræði en það síðarnefnda hefur hann rannsakað í frístundum sínum.
Það tímabil sem helst vekur áhuga hans er frá íslenska landnáminu
og fram yfir 13. öld. ylfa@mbl.is
Þórarinn Þórarinsson arkitekt 65 ára
Lenti óvænt í Glasgow
Nýirborgarar
Reykjavík Ólafur Valur
fæddist 12. ágúst kl. 5.38.
Hann vó 4.225 g og var 53
cm langur. Foreldrar
hans eru Árný Ösp Sig-
urðardóttir og Helgi Már
Ólafsson.
Reykjavík Matthías Máni
fæddist 9. júní kl. 14.24.
Hann vó 3.405 g og var 51
cm langur. Foreldrar hans
eru Anna Guðrún Guð-
jónsdóttir og Þorsteinn
Kristjáns Jóhannsson.
Reykjavík Guðný Finna
fæddist 23. október kl.
16.10. Hún vó 3.660 g og
var 51 cm löng. Foreldrar
hennar eru Lína Guðna-
dóttir og Böðvar Ingi
Guðbjartsson.