Morgunblaðið - 28.10.2008, Qupperneq 40
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 2008
MAGNAÐUR SPENNUTRYLLIR!
SÝND Í KRINGLUNNI
/ ÁLFABAKKA
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI
/ KRINGLUNNI
EAGLE EYE kl. 6:30D - 9D - 10D B.i. 12 ára DIGITAL
SEX DRIVE kl. 8 B.i. 12 ára
HAPPY GO LUCKY kl. 10:10 Síðasta sýning B.i. 12 ára
JOURNEY TO THE C... kl. 63D LEYFÐ 3D - DIGITAL
WILD CHILD kl. 6 LEYFÐ
SÝND Í ÁLFABAKKA
SÝND Í KRINGLUNNI
JÁKVÆÐASTA MYND ÁRSINS
MYND SEM ÞÚ VERÐUR AÐ SJÁ
-BBC
-HJ.,MBL
SÝND Á SELFOSSI
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
HÖRKUSPENNANDI MYND
FRÁ STEVEN SPIELBERG MEÐ
SHIA LABEOUF Í AÐALHLUTVERKI.
ÞÚ HLÝÐIR, EF ÞÚ VILT LIFA!
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI
TOPP GRÍNMYND
SEX DRIVE FER FRAMÚR AMERICAN PIE Á 100 KM HRAÐA!
„VIÐBJÓÐSLEGA FYNDIN OG SKEMMTILEG
GRÍNMYND. KLÁRLEGA EIN AF ÓVÆNTARI
RÆMUMÁRSINS. TÉKKIÐ Á HENNI!”
-TOMMI, KVIKMYNDIR.IS
SÝND Í ÁLFABAKKA
ATH. STRANGLEGA
BÖNNUÐ INNAN 16 ÁRA.
BARA SÁRSAUKI!ENGIN MISKUNN
EAGLE EYE kl. 5:40D - 8D - 10:30D B.i. 12 ára DIGITAL
EAGLE EYE kl. 5:40 - 8 - 10:30 LÚXUS VIP
SEX DRIVE kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 12 ára
MAX PAYNE kl. 6 - 8:10 - 10:30 B.i. 16 ára
NIGHTS IN RODANTHE kl. 5:50 - 8 10:10 LEYFÐ
PATHOLOGY kl. 10:30 B.i. 16 ára
WILD CHILD kl. 8 LEYFÐ
GEIMAPARNIR m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
FRÁ MANNÖPUNUM SEM FÆRÐU OKKUR
ÍSLENSKT TAL
SÝND Í ÁLFABAKKA
FRÁ HÖFUNDI THE NOTEBOOK
KEMUR NIGHTS IN RODANTHESÝND Í ÁLFABAKKA OG SELFOSSI
HIN unga stjarna, Shia LaBeouf,
virðist á mikilli uppleið í bandaríska
hasarmyndaheiminum. Í kjölfar vél-
mennatryllisins Transformers og
fjórðu Indiana Jones-myndarinnar
leikur hann hér í enn einum stór-
smellinum sem rætur á að rekja til
Stevens Spielbergs. Útkoman í
þetta sinn er miðlungsmynd sem þó
nýtur góðs af lunkinni grunn-
hugmynd, en í fléttunni er að finna
ákveðna gagnrýni á hið einhliða
skilgreiningarvald sem Bandaríkja-
stjórn hefur tekið sér í hryðju-
verkastríðinu svokallaða. Myndin
leikur sér með öðrum orðum að
spurningum um hvað flokkist undir
sjálft hryðjuverkahugtakið, ef málin
eru skoðuð af fyllsta hlutleysi. Þá
er þemað um eftirlitssamfélagið út-
fært á skemmtilega táknrænan hátt
í myndinni, og minnir jafnvel á
ákveðin stef úr 2001 eftir Kubrick.
En það að greina megi alvarlegan
undirtón í myndinni stendur ekki í
vegi fyrir bunu af hefðbundnum
hasaratriðum sem eru þó stundum
útfærð á athyglisverðan hátt, eins
og t.d. eltingarleikur sem á sér stað
í sjálfvirkum farangursbrautum á
flugvelli. Þá er einnig athyglisvert
hvernig leikaraval myndarinnar
endurspeglar breytingar sem átt
hafa sér stað undanfarin ár í has-
argeiranum. Hér á árum áður var
sem aðeins atvinnusteraboltar gætu
orðið hasarmyndastjörnur. Nú virð-
ist hins vegar eintóm tilviljun ráða
hverjum það fellur í skaut að
bjarga heiminum á ögurstund, og
Shia LaBeouf, væskilslegur og sjar-
malaus sem hann er, er þar gott
dæmi. Hayden Christensen er ann-
að dæmi sem talar sínu máli. En
leikarar hafa e.t.v. alltaf verið hálf-
gert aukaatriði í Hollywood-
hasarmyndum sem eru nokkurs
konar tæknimaskína sem hvaða
tönn sem er passar inn í, svo lengi
sem hún flýtur vel með meg-
instraumnum.
Augað alsjáandi
Á flótta „Útkoman í þetta sinn er
miðlungsmynd sem þó nýtur góðs af
lunkinni grunnhugmynd.“
KVIKMYND
Smárabíó, Laugarásbíó
og Sambíóin
Leikstjórn: D.J. Caruso. Aðalhlutverk:
Shia LaBeouf, Michelle Monaghan, Billy
Bob Thornton. Bandaríkin, 117 mín.
Arnaraugað (Eagle Eye)
bbnnn
Heiða Jóhannsdóttir
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÁÐUR en bankarnir fóru í þrot
var ég búinn að segja að þessi
einkavæðing væri ekki góð, þetta
væri bara til þess að skapa vand-
ræði,“ segir Hjalti Þór Ísleifsson,
12 ára gamall Kópavogsbúi. Hjalti
heldur úti afar áhugaverðri blogg-
síðu á netinu, og er umfjöllunar-
efnið ekki fótbolti, tónlist, tölvu-
leikir eða annað sem mörg 12 ára
börn hafa áhuga á, heldur þjóð- og
stjórnmál. Og Hjalti er ekkert að
skafa utan af því á síðunni, hann
talar umbúðalaust og lætur stjórn-
völd heyra það.
Fylgist vel með
Hjalti stofnaði bloggsíðuna upp-
haflega fyrir þremur til fjórum ár-
um, en hætti svo að blogga um
tíma. Hann sá sig þó knúinn til að
hefja leik að nýju fyrir nokkrum
vikum. „Þegar kreppan byrjaði fór
ég að blogga aftur, þegar einka-
væðingin fór að segja til sín,“ út-
skýrir hann.
Aðspurður segist Hjalti hafa
haft áhuga á þjóð- og stjórnmálum
nokkuð lengi, þrátt fyrir ungan
aldur. Hann les til dæmis blöðin
og fylgist vel með fréttum, en seg-
ir að fremur lítill áhugi sé hins
vegar á stjórnmálum innan fjöl-
skyldunnar.
„Það eru engir pólitíkusar í fjöl-
skyldunni sko – bara meira það að
menn eru ekkert sérlega hrifnir af
Sjálfstæðisflokknum,“ segir hann
og bætir því við að vinir hans hafi
líka mjög takmarkaðan áhuga á
pólitík.
„Alla vega ekki eins mikinn og
ég, og þeir skilja ekkert hvað ég
meina.“
Bankakreppan er Hjalta of-
arlega í huga þessa dagana, og
ekki þarf að lesa bloggið hans
lengi til þess að sjá hverjir það
eru sem hann telur að beri ábyrgð
á ástandinu.
„Það er náttúrlega fyrst og
fremst Sjálfstæðisflokkurinn sem
ber ábyrgð, ásamt Framsókn-
arflokknum. Þetta var allt einka-
vætt þegar þeir voru í ríkisstjórn.
Bankarnir hefðu áfram átt að vera
í ríkiseigu,“ segir hann ákveðinn.
„En svo finnst mér reyndar Gord-
on Brown mega skammast sín fyr-
ir að hafa sett Landsbankann á
lista yfir hryðjuverkamenn.“
Þá vill Hjalti að einhverjir axli
ábyrgð á því hvernig komið er fyr-
ir þjóðinni.
„Ég vil til dæmis að Davíð
Oddsson segi af sér. Það er til há-
borinnar skammar að hafa lög-
fræðing og gamlan pólitíkus sem
seðlabankastjóra – manninn sem
fer í rauninni með völdin á bak við
tjöldin,“ segir hann.
Fíflagangur
Þrátt fyrir slæmt ástand í þjóð-
félaginu segist Hjalti nokkuð
bjartsýnn á framtíð sína.
Yngsti mótmælandi Íslands
12 ára drengur heldur úti bloggsíðu þar sem hann ræðir
ástandið í þjóðfélaginu Vinirnir skilja ekkert í honum
Bloggsíða Hjalta er á slóðinni
hjalti96.blogcentral.is. Að gefnu
tilefni skal tekið fram að Hjalti
skrifar allan texta á síðunni sjálfur.
EFTIRFARANDI klausa er úr færslu
á bloggsíðu Hjalta sem hann skrif-
aði hinn 27. júní í sumar:
„En eitt er alveg á hreinu. Þetta
hættir ekki fyrr en einn bankinn fer
á hausinn og ég spái því að það
verði Kaupþing. Eins og um daginn
þá var hætt að veita lán vegna þess
að bankarnir erlendis frá sem lána
íslensku bönkunum spáðu því að
Kaupþing færi á hausinn af því eins
og flestir vita mega bankarnir spila
með peningana þína sem þú átt inni
á bók til þess að lána og í allskonar
fjárfestingar til þess að ná sem
bestri ávöxtun. Svo kannski kemur
að því að einn bankinn er búinn að
tapa einhverjum 300 milljónum
sem hann Jón Jónsson á inni á
bankabók. Þá fær bankinn ekki lán
fyrir peningunum sem hann Jón
Jónsson á og eru búnir að tapa
þeim öllum í hlutabréfaviðskiptum
og þannig. Svo kemur Jón Jónsson í
Kaupþing og ætlar að fá 300 millj-
ónirnar sínar og setja þær inn á
reikning hjá Landsbankanum, en
getur ekki fengið peninginn. Þá
kærir Jón Jónsson Kaupþing nema
kannski að honum sé slétt sama
um 300 milljónirnar. En ef hann
kærir vilja fleiri fá peningana sína
og fá fleiri kærur á sig og þá er
bankinn kominn á hausinn.“
Spáði bankakreppunni
„Ég tapaði nú engu á þessu. En
það er náttúrulega allt að fara að
hækka í verði, þannig að þetta
hefur áhrif á allt þjóðfélagið, þessi
fíflagangur,“ segir Hjalti sem
stefnir ekkert sérstaklega á frama
í stjórnmálum, þótt ótrúlegt megi
virðast.
„Ég myndi frekar vilja fara að
vinna í banka eða eitthvað, við
fjármálastærðfræði,“ segir Hjalti,
en hann hefur nú þegar sótt nám-
skeið í greininni í Háskólanum í
Reykjavík, undir handleiðslu Pét-
urs H. Blöndal.
Hjalti er annars nemandi í sjö-
unda bekk í Hörðuvallaskóla í
Kópavogi. Hann segist ekki ein-
göngu hafa áhuga á stjórnmálum,
fleira komist að í lífinu, til dæmis
stundi hann skíðaæfingar og hafi
áhuga á siglingum.
Morgunblaðið/Golli
Klár „Bankarnir hefðu áfram átt að vera í ríkiseigu,“ segir Hjalti.