Morgunblaðið - 04.11.2008, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 04.11.2008, Blaðsíða 2
2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 2008 Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is FYRSTU vísbendingar, byggðar á mælingum á ungahlutfalli hér á landi, benda til þess að blesgæsa- stofninn hafi braggast nokkuð í sumar. Þetta er fyrsta haustið frá því um aldamót að greina má merki um bata í stofninum. Blesgæsin á leið um Ísland vor og haust en varpstöðvar hennar eru á Græn- landi. Hún var friðuð hér fyrir þremur árum til að reyna að sporna við fækkuninni. Dr. Arnór Þ. Sigfússon fuglafræðingur hefur fylgst með viðgangi gæsastofna á Íslandi og taldi blesgæsir í haust. „Aldurshlutfall unga hjá bles- gæsum var um 15% nú en ekki nema tæp 10% í hittiðfyrra og rúm 10% í fyrra. Þetta er því um 50% hækkun á ungahlutfalli. Það er góðs viti,“ sagði Arnór. Talið er að ungahlutfallið þurfi að vera yfir 14% til þess að fjölgun verði í stofninum. Ungahlutfall blesgæs- anna verður aftur athugað á vetr- arstöðvunum í Írlandi og Skotlandi í desember nk. Arnór sagði að afkoma íslenskra heiðagæsa og grágæsa hefði einnig verið góð í sumar. Hann hefur m.a. safnað vængjum af veiddum gæs- um til að aldursgreina veiðina. „Það má búast við fjölgun hjá heiðagæsinni. Stofninn gæti vel far- ið yfir 300 þúsund einstaklinga. Grágæsin er álíka og í fyrra og með mjög gott ungahlutfall,“ sagði Arnór. Hann sagði að ungahlutfall í grágæsaveiðinni í haust hefði verið yfir 47% og áætlar Arnór að unga- hlutfallið í stofninum hafi verið um 30%. Óvíst um framhaldið Ekki er vitað hvort þessi góði ár- angur blesgæsanna í sumar verður viðvarandi. Getum hefur verið leitt að því að samkeppni þeirra við Kanadagæsir um varpstöðvar á Grænlandi hafi truflað viðkomuna. Arnór sagði að meðan það lagaðist ekki mætti búast við basli hjá bles- gæsinni. Ef hún nær að halda ungahlutfallinu yfir 15% þá mun það taka stofninn meira en áratug að ná fyrri stærð. Halda á fund um blesgæsina í Skotlandi í byrjun febrúar 2009. Þangað munu koma fulltrúar þeirra landa sem blesgæsin fer um á hverju ári. Þar á m.a. að fara yfir verndaráætlun fyrir blesgæsastofn- inn sem hefur viðkomu á Íslandi. Ljósmynd/Arnór Þ. Sigfússon Farfuglar Blesgæsir hafa gjarnan viðdvöl við Hvanneyri í Borgarfirði og víðar á Vestur- og Suðurlandi á ferðum sínum milli Írlands og Grænlands. Blesgæsin er að braggast  Í haust sáust merki um að varp hefði tekist vel hjá blesgæsum á liðnu sumri  Stofninum hefur hnignað undanfarið og gæsunum fækkað frá aldamótum RAGNHEIÐUR Ríkharðsdóttir, al- þingismaður Sjálfstæðisflokksins, vill að bankastjórar og bankaráð Seðlabankans víki sæti. Þetta kemur fram í grein, sem hún ritar í Morgun- blaðið í dag. „Ég hef ætíð haft þá skoðun að fyrrverandi stjórnmálamenn ætti ekki að skipa í stjórnir ríkisfyrirtækja. Nú ríkir hvorki traust né trúnaður gagnvart seðla- bankastjórum og bankaráði Seðla- bankans og þess vegna ættu allir þeir er þar sitja að víkja sæti svo hægt yrði að byggja upp traust og trúnað á ný og samhliða á að breyta lögum um Seðlabanka Íslands, stjórnskipulag bankans, stöðu og markmið,“ segir Ragnheiður meðal annars í grein sinni. | 22 Bankastjór- ar og banka- ráð víki Ragnheiður Ríkharðsdóttir ÓSKAÐ var eftir gjaldþrotaskipt- um á verslunum BT í gær, en allar verslanir keðjunnar voru lokaðar um síðustu helgi á meðan farið var yfir rekstur þeirra og hann endurskoðaður. Var þá stefnt að því að opnað yrði aftur á hefð- bundnum tíma eftir helgina en það gekk ekki eftir. Í tilkynningu frá félaginu segir að á undanförnum dögum og vikum hafi verið „róið að því öllum árum að tryggja áframhaldandi rekstur BT í óbreyttri mynd en án árang- urs“. Vonir standa til að hægt sé að koma BT aftur í rekstur og við- ræður þess efnis standa yfir. Ljóst er þó að verslanir BT verða lokaðar enn um sinn á meðan niðurstaða fæst í fyrirliggjandi kauptilboð. Félagið Árdegi rekur BT auk fjölda annarra verslunarkeðja. Alls eru sjö BT-verslanir starfandi um land allt og vinna þar um 50 starfs- menn í 30 stöðugildum. Fundur var haldinn með starfsmönnum í gær- kvöldi þar sem þeir voru upplýstir um stöðuna og þeim jafnframt boð- in aðstoð við að tryggja réttindi sín. BT í gjald- þrotaskipti BT Gula músin. Heiðagæsastofninn er lang- stærstur þeirra gæsastofna sem verpa á Íslandi. Stofninn er talinn vera um 300 þúsund fuglar. Heiða- gæsin er einn af einkennisfuglum hálendisins. Geldfuglarnir fara mikið til Grænlands og fella þar fjaðrir. Grágæsin er stærsta gæsin sem verpir hér á landi og er stofninn um 100.000 fuglar. Hún verpir að- allega á láglendi. Nokkur hundruð grágæsir eru hér allt árið og að- allega í Reykjavík. Helsingi hefur viðkomu hér á leið sinni til og frá varpstöðvum á NA-Grænlandi. Nokkur pör hafa orpið í Breiðafjarðareyjum og í Skaftafellssýslum undanfarin ár. Margæs er minnsta gæsin sem hefur hér viðdvöl á leið sinni til og frá varpstöðvum á Grænlandi og heimskautahéruðum Kanada. Hún heldur sig mikið við sjávarsíðuna. Fimm tegundir gæsa koma hér við eða verpa Eftir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur gag@mbl.is REYKJAVÍKURBORG hefur verið í viðræðum við þrjá evrópska banka um sex til átta milljarða lán til fram- kvæmda í borginni. Hún á nokkra milljarða en vill lúra á þeim varasjóði eins og hægt er. Þetta segir Hrólfur Jónsson, framkvæmdastjóri fram- kvæmda- og eignasviðs. Borgin hefur einnig leitað til líf- eyrissjóða í von um lán. „Það er talið öruggara nú að eyða ekki þessu lausafé, heldur taka lán. Við verðum að reyna að ná erlendu láni, við verð- um að ná gjaldeyri,“ segir hann. „En það er mat manna að það sé ekki mikil von til þess eins og staðan er núna.“ Borgin fundaði í gær með Sam- tökum iðnaðarins um aðgerðaáætl- un vegna fram- kvæmda á næsta ári. Hrólfur bendir á að borgin reyni nú fleiri leiðir til að afla fjár í fram- kvæmdir. Meðal annars sé stefnt að því að selja eignir. „Við höfum ekki lagt það algjör- lega niður fyrir okkur,“ segir hann en neitar ekki að sú hugmynd hafi komið til tals að selja dvalarheimilið Droplaugarstaði. „Það yrði þó aldrei gert nema að þjónustustig væri tryggt.“ Þá segir hann stefnt að því að selja bílastæðahúsin. Borgin vilji ekki vera í samkeppni við einkaaðila sem bjóði stæði í borginni, en við Tónlistarhúsið verði bílastæðakjall- ari og þá væntanlega í einkaeigu. Á fundinum voru breytingar á framkvæmda- og eignasviðinu kynntar. „Nú er hvert svið borgar- innar rekið sem fyrirtæki,“ segir Hrólfur. Það hafi mætt jákvæðu við- horfi hjá bönkunum. Reykjavíkurborg leitar að 6-8 milljarða láni  Stefnir að því að selja eignir til kreppuframkvæmda Hrólfur Jónsson Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþrótt- ir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.