Morgunblaðið - 04.11.2008, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 04.11.2008, Blaðsíða 44
ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 309. DAGUR ÁRSINS 2008 Borgarleikhúsinu Fýsn »MEST LESIÐ Á mbl.is »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 250 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1700 ÞETTA HELST» Svikahringingar í gemsa  Ný farsímasvikamylla hefur gert vart við sig síðustu vikuna. Hátt í 2.000 viðskiptavinir Símans og Vodafone hafa fengið símhringingu úr erlendu númeri sem hefst á +882. Markmiðið er líklega að fá fólk til að hringja til baka og draga þannig fé af símanúmerum þess. Fólk er hvatt til að láta lögreglu vita fái það hring- ingu af þessu tagi. » Forsíða Borga ekki sinn hlut  Stjórnendur Kaupþings fengu vil- yrði fyrri stjórnar fyrir því að þurfa ekki að greiða hluti sem þeir voru skráðir fyrir í félaginu. Upphæðirn- ar hlaupa á milljörðum. » Forsíða Munaðarvörum fækkar  Farið er að bera á skorti á ýmiss konar matvöru og sérvöru sem ekki telst til nauðsynjahluta. Það á t.d. við um ýmsa framandi ávexti sem fylla „C-flokk“ Seðlabankans um mikilvægi. Hætt er við að skortur verði á fleiri vörutegundum ef ekki greiðist úr gjaldeyrisviðskiptum fljótlega. » 4 Endurspeglast í sorpinu  Sorplosun landsmanna hefur snarminnkað eftir að hafa aukist stöðugt á undanförnum árum í takt við efnahagsástandið. Lítið berst af byggingarefni en einnig koma ein- staklingar með minna af dóti í end- urvinnslustöðvar. » 8 SKOÐANIR» Ljósvakinn: Burt með krumlurnar! Staksteinar: Prinsippafstaðan Forystugreinar: Úrslitastund |Lyfjaverð á ábyrgð allra UMRÆÐAN» Reiðin á tíma kreppunnar Hingað og ekki lengra Auðhyggjan fallin – Hvað svo? Fjölmiðlar og stjörnuleikir 4 4(( 4 4 4 (4 4 4 5 # "6%)  %-  " 7   %%&%$*#  % 4( 4 4 4 (4 4 4 4 / 8 2 )  4( 4 4( 4 4 4 (4 4( 4 9:;;<=> )?@=;>A7)BCA9 8<A<9<9:;;<=> 9DA)8%8=EA< A:=)8%8=EA< )FA)8%8=EA< )3>))A&%G=<A8> H<B<A)8?%H@A )9= @3=< 7@A7>)3-)>?<;< Heitast 10° C | Kaldast 5° C Gengur í suðaustan 13-18 m/s með rign- ingu. Hægari og þurrt fram eftir degi norð- austantil. » 10 Þorkell Máni á X-inu segir að menn séu farnir að skilja að það þýði ekki að slökkva á rokk- útvarpi. » 37 FJÖLMIÐLAR» X-ið 97,7 í vandræðum TÆKNI» Simmi er einn fjölmargra á Facebook. » 39 Að mati Þrastar Helgasonar hefur líklega aldrei verið meiri þörf fyrir góðar bókmenntir en nú. » 41 BÓKMENNTIR» Góðar bæk- ur í kreppu TÓNLIST» Uppselt á Bjögga – auka- tónleikum bætt við. » 36 FÓLK» Kidman er aldrei lengi án eiginmannsins. » 42 Menning VEÐUR» 1. Hjálp, ég er Íslendingur 2. „Hefði átt að stoppa ykkur ...“ 3. Árás á fullveldi þjóðarinnar 4. Afbrigðileg fasteignaviðskipti Morgunblaðið/RAX Gler Unnið við glerið í Turninum við Smáratorg í gær. Glerklæðningin sprakk út á þriðju hæð hússins. Eftir Ágúst Inga Jónsson aij@mbl.is MIKLA mildi má telja að ekki varð alvarlegt slys er glerklæðning sprakk á þriðju hæð Turnsins í Kópavogi nýlega. Glerbrotunum rigndi yfir níu ára dreng, sem stadd- ur var á bílastæði fyrir utan versl- anir á jarðhæð. Hann skarst á höfði og höndum en hlaut ekki alvarleg meiðsli. Móðir hans meiddist ekki og fleira fólk var ekki þarna er óhappið varð um miðjan dag á mánudegi um miðjan október. „Sannarlega hefði getað farið verr því þarna hefði getað orðið dauða- slys,“ sagði móðir drengsins í sam- tali við Morgunblaðið í gær. „Ég var að sækja strákinn, sem hafði komið við í leikfangaversluninni eftir skóla, þegar stór glerklæðning á þriðju hæð sprakk með látum og glerbrot- unum rigndi yfir okkur. Ég hélt að stórum hlut hefði verið hent í gegn- um hana eins og maður sér í bíó- myndum.“ Skarst á höfði og höndum – flísar plokkaðar úr drengnum „Sem betur fer voru fjölmörg sár- in á höfði drengsins tiltölulega grunn og hægt var að líma tvö þau stærstu saman. Hann skarst líka á höndum og síðan þurfti að plokka úr honum glerbrot. Það sem bjargaði krakkanum var að hann var með skólatösku á bakinu en glerbrotin fóru í gegnum töskuna. Þú getur ímyndað þér hvað hefði gerst ef hann hefði ekki verið með skóla- töskuna á bakinu,“ segir móðirin. Sjálf var hún að setja hjól drengs- ins inn í fjölskyldubílinn, nýlegan Volvo. „Ég var búin að opna skottið á bílnum og var að mestu varin af honum en glerbrotunum rigndi yfir bílinn sem er talsvert skemmdur.“ Skólataskan bjargaði barninu Glerbrotum rigndi þegar klæðning sprakk í Turninum UM síðustu áramót voru rúmlega 25 þúsund ökutæki í umferðinni sem ekki höfðu verið færð til lög- boðinnar skoðunar, eða um 10% allra skráðra ökutækja í landinu. Þetta ástand hefur þótt með öllu óviðunandi og nú hefur samgöngu- ráðuneytið birt drög að reglugerð til að freista þess að bæta ástandið og auka jafnframt öryggi vegfar- enda. Samkvæmt reglugerðinni á að leggja vanrækslugjald á þau öku- tæki, sem ekki eru færð til skoð- unar á tilskildum tíma. Þá er gert ráð fyrir því að fram- vegis verði ökutæki skoðuð á fjórða ári frá skráningu en ekki á þriðja ári, eins og reglan er í dag. Síðan verði ökutækin skoðuð á tveggja ára fresti. Hjólhýsi og tjaldvagnar hafa ekki verið skoðunarskyld en verða það framvegis. Árlega verða stærri bifreiðir skoðaðar og bifreið- ir, sem notaðar eru í atvinnuskyni. sisi@mbl.is Morgunblaðið/Ómar Öryggi Með nýjum reglum á að fækka óskoðuðum ökutækjum. 25 þúsund óskoðuð öku- tæki eru í umferðinni ÞRÁTT fyrir fjármálakreppu eru framundan ein stærstu bókajól Ís- landssögunnar, að sögn Kristjáns B. Jónassonar, framkvæmdastjóra Fé- lags íslenskra bókaútgefenda. Skráðir titlar í Bókatíðindum að þessu sinni eru 759. Í fyrra voru skráðir titlar 800, sem var algert metár. Frumsamin íslensk skáldverk eru 72 að tölu. Þeim hefur fjölgað tals- vert á undanförnum árum. Þá hefur þýddum skáldverkum fjölgað. | 35 Blómleg útgáfa bóka ÞORVALDUR Þorláksson, framkvæmdastjóri SMI á Ís- landi, sem á og rekur Turninn við Smáratorg, sagði að strax eftir óhappið hefði verið brugðist við. Haft hefði verið samband við hönnuði og fulltrúar kínverskra framleiðenda glersins hefðu komið til landsins tveimur dögum eftir óhappið. Gerðar hefðu verið ráðstafanir til að slíkt gæti ekki gerst aftur, jafnframt því sem leitað hefði verið skýringa á því sem fór úrskeiðis. „Við teljum okkur hafa fullvissað okkur um að óhappið hafi orðið vegna þenslu á skilum á milli tveggja bygginga. Við höfum sett svartar tréplötur í staðinn fyrir glerklæðningu og aukið möguleika á þensluhreyfingu á sambærilegum stöðum í húsinu, sem eru fyrst og fremst á neðstu þremur hæðunum,“ sagði Þorvaldur. Hann sagði aðspurður að í samráði við hönnuði væri verið að kanna möguleika á að setja hlíf fyrir ofan verslanir á jarðhæð. „Við lítum þetta atvik alvarlegum augum og gerum allt sem í okkar valdi stendur til að koma í veg fyrir að svona gerist aftur,“ sagði Þorvaldur. Hann sagði að fyrst þetta hefði þurft að koma fyrir hefði verið mikil mildi að ekki fór verr. Móðir drengsins vildi koma því á framfæri að fulltrúar eigenda Turnsins hefðu sýnt sam- hug og verið umhugað um líðan hennar og drengsins. Þensla á skilum á milli tveggja bygginga

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.