Morgunblaðið - 04.11.2008, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 04.11.2008, Blaðsíða 13
Fréttir 13INNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 2008 Þriðjudagur 4. nóvember kl. 20.00 Hugmyndahús Reykjaness - umræður um verktaka Guðlaugur H. Sigurjónsson, framkvæmdastjóri USK, og Guðmundur Pétursson, framkvæmda- stjóri ÍAV-þjónustu, ræða um stöðu verktaka í Sjálfstæðishúsinu í Njarðvík. Sjálfstæðisfélögin í Reykjanesbæ standa fyrir fundinum. Fimmtudagur 6. nóvember kl. 20.00 Hugmyndahús Reykjaness - umræður um sjávarútveg Sigurgestur Guðlaugsson, framkvæmdastjóri Turnkey, og Kjartan Ólafsson, forstöðumaður sjávarútvegssviðs Glitnis, ræða um sjávarútveg í Sjálfstæðishúsinu í Njarðvík. Sjálfstæðisfélögin í Reykjanesbæ standa fyrir fundinum. Nánari upplýsingar um fundina og flokksstarfið má finna á heimasíðu flokksins, www.xd.is, eða í síma 515-1700. Tölum saman Fjölmargir opnir fundir eru á vegum Sjálfstæðisflokksins í viku hverri. Á þessa fundi eru allir velkomnir. Tóbakið upp um 9% ÁTVR hækkaði verð á tóbaki um mánaðamótin um nærri 9% að með- altali eða 8,87%. Það er nokkru meiri meðaltals- hækkun en á áfenginu, sem var upp á rúm 5%. Sem kunnugt er selur ÁTVR tóbakið eingöngu í heildsölu til smásala, sem vænt- anlega munu hækka sína verðskrá til neytenda núna í kjölfarið. Að sögn Sigrúnar Óskar Sigurð- ardóttur, aðstoðarforstjóra ÁTVR, eru allar tegundir að hækka en mis- jafnlega mikið. Mest er hækkunin á vindlum eða allt að 28% á tegundinni Cafe Creme. Bagatello-vindlar hækka um 26% og Fauna um 22% svo nokkur dæmi séu tekin af eldri og nýrri verðskrá ÁTVR. Neftóbak hækkaði um nærri 14% um mánaðamótin og píputóbak að jafnaði um rúm 10%. Hækkun á síg- arettum var minni eða á bilinu 7-8% í flestum tilvikum. bjb@mbl.is Hækkar Ekki bara áfengið hækkar. Allt að 28% hækkun á vindlum í heildsölu Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is LÖGREGLAN á Selfossi rannsakar nú þrjú innbrot sem framin voru í síðustu viku, tvö í sumarbústað og eitt í gróðrarstöð. Miklum verðmætum var stolið og þurfti sendibíl til að flytja burt þýfið. Innbrotin voru öll framin í síðustu viku. Á þessu ári hefur verið brotist inn í 43 sum- arbústaði í umdæmi lögreglunnar á Selfossi en þeir voru 38 á sama tíma í fyrra. Þorgrímur Óli Sigurðsson, aðstoðaryfirlög- regluþjónn á Selfossi, segir algengara að brot- ist sé inn í bústaði í miðri viku enda færra fólk þá á ferli í sumarbústaðalöndum. „Vandinn við þessi innbrot í sumarbústaði er tíminn sem líð- ur frá því þau eru framin og þar til þau upp- götvast,“ segir hann. Höfðu heimilistækin á brott Úr sumarhúsi í landi Efri-Reykja í Blá- skógabyggð var stolið heimilistækjum sem kosta á bilinu 700-800 þúsund krónur. Þjófarnir fjarlægðu heila heimilistækjalínu af gerðinni Electrolux, þ.e. örbylgjuofn, viftu, keramik helluborð, bökunarofn, uppþvottavél og tveggja metra háan ísskáp. Auk þess var 32 tommu United-flatskjá stolið og tveimur Philips- heimabíókerfum. Innbrotið var framið á tíma- bilinu frá þriðjudegi til fimmtudags í síðustu viku. Um svipað leyti, eða á bilinu frá mánudegi til fimmtudags, var brotist inn í sumarbústað í landi Hests. Þaðan var m.a. stolið 50 tommu Philips-sjónvarpstæki, Bose-heimabíói, Bang & Olufsen-útvarpstæki, BSA-sjónauka á þrífæti og málverkum. Þriðja innbrotið var í gróðrarstöðina að Espi- flöt í Laugarási aðfaranótt fimmtudagsins 30. nóvember. Þaðan var stolið sex 600 vatta gróð- urhúsalömpum af gerðinni Gavita. Verðmætum stolið úr bústöðum  Stálu heimilistækjum að verðmæti 700-800 þúsund krónur úr sumarbústað  Þrjú innbrot á stuttum tíma á Suðurlandi  Þurftu sendibíl til að flytja þýfið Morgunblaðið/Arnaldur Vitni? Þeir sem hafa upplýsingar um málin eiga að láta lögreglu vita. NEYTENDASAMTÖKIN ætla að halda námskeið í öllum hverfum Reykjavíkur um fjármál heimila og einstaklinga. Ekkert þarf að greiða fyrir námskeiðin, að því er Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytenda- samtakanna, greinir frá. „Við fengum í síðustu viku styrk úr forvarna- og framfarasjóði Reykjavíkurborgar til þess að halda þessi námskeið. Við erum að und- irbúa námskeiðshaldið núna og höf- um þegar ráðið starfsmann til að sjá um þetta,“ segir Jóhannes. Hann segir starfsmanninn munu fara á milli hverfa og verða nám- skeiðin, sem hefjast í þessum mán- uði, haldin á kvöldin því það sé sá tími sem henti almenningi best. Neytendasamtökin hvetja önnur sveitarfélög til að fara að dæmi Reykjavíkurborgar og veita styrki til námskeiða um fjármál heimila og einstaklinga. Nauðsynlegt sé að bjóða upp á slík námskeið í sem flestum sveitarfélögum vegna þess ástands sem ríkir í efnahagsmálum. Námskeiðin í Reykjavík verða auglýst nánar síðar, að sögn Jóhann- esar. ingibjorg@mbl.is Ókeypis námskeið um fjármál NOREGUR er orðinn hættulegasti staðurinn fyrir Atlantshafslaxinn, þar sem öllum tillögum að auðveldum og árangursríkum lausnum að verndun hans hefur verið hafnað. Þetta segir Orri Vigfússon, formaður verndar- sjóðs villtra laxastofna. Orri ritaði bréf til Jonas Gahr Störe, utanríkis- ráðherra Noregs, vegna greinar sem hann skrifaði í Morgunblaðið í gær. Hann segir orð ráðherrans vekja furðu. Norðmenn séu verstu óvinir Atlantshafslaxins. „Þú talar um að Noregur leggi áherslu á sjálfbærni og samvinnu um að vernda fiskistofna og stuðla að góðri stjórnun fiskveiða á norðurslóð- um. Ég verð að segja þér að flestir ná- grannar ykkar sjá stefnu Noregs í öðru ljósi.“ Störe leggur áherslu á að samskipti Íslendinga og Norðmanna hafi verið sérlega náin undanfarið. Áhugi um- heimsins á nyrstu svæðum heims hafi aukist mjög. Þar þurfi að vera gott samstarf við æ öflugri Rússa. „Íslend- ingar og Norðmenn byggja á sameig- inlegum grunni […]. Þess vegna liggur í augum uppi að þjóðirnar eiga að standa fyrir þessu sam- starfi.“ Orri segir að rússnesk stjórn- völd hafi, ásamt alþjóðlegri hreyf- ingu, beitt sér fyrir því að vernda Atl- antshafslaxinn og endurreisa stofn- stærð hans. „Lax úr rússneskum ám gengur um norsk hafsvæði. Þrátt fyr- ir skriflegt loforð Erik Solheim ráð- herra um úrbætur sem ríkisstjórn Rússlands var sent 16. apríl sl. hafa Norðmenn látið undir höfuð leggjast að gera viðeigandi ráðstafanir í Finn- mörku og annars staðar til að vernda laxastofna sem heimkynni eiga í ám í Rússlandi, Finnlandi, Svíþjóð og víð- ar.“ Efndir verði að fylgja orðum. Hann óttist því að tal utanríkisráð- herrans um samstarf séu orðin tóm. gag@mbl.is Segir Norðmenn verstu óvini Atlantshafslaxins  Orri Vigfússon óttast að orð utanrík- isráðherra Noregs séu ómarktæk Orri Vigfússon Eftir Jón Sigurðsson Blönduósi | Hvassir vindar leika nú um Húnaflóa, ættaðir að sunnan. Þessir vindar bera með sér hlýindi sem ganga á snjóinn sem var orðinn þónokkur. Ekki er gott að segja hvort þetta var til bóta fyrir rjúpnaveiðimenn sem héldu til veiða um helgina, en margir sjá lít- ið eftir þeim snjó sem kominn var. Þó að hvasst sé á Húnaflóasvæðinu hafa menn enn sýn til Stranda og er það mörgum huggun að vita að land er handan við úfinn sæ. Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Handan við úfinn sæ sér til Stranda

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.