Morgunblaðið - 04.11.2008, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 04.11.2008, Blaðsíða 7
Fréttir 7INNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 2008 Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is „HANN kom hingað að eigin frum- kvæði og óskaði eftir fundi. Við fór- um yfir þessa stöðu sem upp er kom- in milli landanna,“ segir Geir H. Haarde forsætisráðherra um fund sem hann átti í gær með Skotlands- málaráðherra Bretlands, James Murphy. Geir segist á fundinum hafa farið rækilega yfir viðhorf Íslendinga í málinu. „Ég lýsti óánægju okkar með framgöngu breskra ráðamanna og beitingu hryðjuverkaákvæða gegn íslenskum hagsmunum.“ Geir segir ráðherrann hafa hlýtt á þetta og varið framgöngu Breta með því að þeir hefðu ekki átt í önnur hús að venda hvað varðaði löggjöf. „Við erum mjög ósammála því. Ég benti honum á að margir aðilar, bæði einstaklingar og fyrirtæki, hefðu orðið fyrir miklu tjóni út af þessu, þótt þessir aðilar hefðu hvergi komið nærri Landsbankamálinu. Við teld- um þetta mjög óvinveitta aðgerð og óviðunandi og að réttast væri að þeir afnæmu þetta strax,“ segir Geir. Þá hafi á fundinum verið farið yfir aðra þætti málsins. „Hann gerði grein fyrir sjónarmiðum [Breta] í því. Ég sagði honum að það væri mikilvægt af ýmsum ástæðum að koma sambandi landanna í eðlilegt horf. En miðað við hvernig viðræður hefðu gengið að undanförnu liti það ekki vel út,“ segir hann. Hann hafi stungið upp á því að leitað yrði til Norðmanna um að hafa milligöngu milli Íslendinga og Breta vegna deilna þjóðanna. Ekki fleiri Bretar væntanlegir „Það ræddi ég í gærmorgun við norska utanríkisráðherrann og þar áður við forsætisráðherra Noregs.“ Norðmenn hafi ekki tekið því fjarri að hafa milligöngu án þess þó að þeir verði formlegir sáttasemjarar. Engin ákveðin niðurstaða hafi komið út úr fundinum með Murphy, sem sé í innsta hring Verkamanna- flokksins. Geir er ekki kunnugt um að fleiri svipaðar heimsóknir frá Bretum séu á dagskrá á næstunni. Lítið miðar í deilu Íslendinga og Breta Skotlandsmálaráðherra Breta fundaði með Geir H. Haarde Geir H. Haarde James Murphy fram að ganga,“ segir Friðrik Jó- hannsson, stjórnarformaður Ice- landic Group. „Styrking á efna- hagsreikningi félagsins er nauðsynleg forsenda fyrir öflugri starfsemi sem byggist á þeim ár- angri sem þegar hefur náðst í um- skiptum í rekstrinum. gretar@mbl.is HLUTAFÉ Icelandic Group verður lækkað til jöfnunar á uppsöfnuðu tapi ef tillaga stjórnar félagsins þar um verður samþykkt á hluthafa- fundi, sem boðað hefur verið til 11. nóvember næstkomandi. Verði til- lagan samþykkt verður lögð fram tillaga um að auka hlutaféð um 160 milljónir evra, jafnvirði um 26 millj- arða króna. Ef tillögurnar verða samþykktar á hluthafafundi Icelandic mun eign- arhaldsfélagið IG ehf., sem m.a. er í eigu Brims hf. og Hraðfrystihússins Gunnvarar hf., skrá sig fyrir hluta- fjáraukningunni og um leið verða stærsti hluthafi Icelandic Group. Í tilkynningu segir að hlutafjár- aukningin skapi grundvöll til veru- legrar lækkunar vaxtaberandi skulda og að eftir breytingarnar verði eiginfjárhlutfall félagsins um 30%. Með endurskipulagningunni sé traustum stoðum rennt undir áframhaldandi rekstur. Stefnt sé að því að skrá Icelandic Group í kaup- höll á nýjan leik eins fljótt og að- stæður á hlutabréfamarkaði leyfa. „Stjórn Icelandic Group leggur mikla áherslu á að tillögurnar nái Hlutafé aukið um 160 milljónir evra Morgunblaðið/Sverrir Lækkun Hlutafjáraukningin skapar grundvöll til að lækka skuldir. G ot t Fó lk ÆGISDAGURINN var haldinn hátíðlegur í Sund- miðstöðinni í Laugardal í gær. Sundmenn sýndu þar listir sínar og að því búna var boðið upp á hlaðborð með hollum og góðum mat. Því næst voru afhentar ýmsar viðurkenningar fyrir góðan árangur. Mikið fjölmenni mætti og gerði sér glaðan dag á erfiðum tímum. Morgunblaðið/Árni Sæberg Sundmenn gerðu sér glaðan dag Eftir Unu Sighvatsdóttur una@mbl.is HAFNARFJARÐARBÆR skrifaði í gær undir viljayfirlýsingu við fyr- irtækið Greenstone ehf. um bygg- ingu 50.000 fermetra gagnavers á lóð sveitarfélagsins. Hafnarfjörður er þar með sjöunda sveitarfélagið sem lýst hefur yfir áhuga á slíku verkefni. Sveinn Óskar Sigurðsson, stjórn- arformaður Greenstone, segir mik- ilvægt að vera með marga kosti í boði fyrir væntanlega leigjendur, þ.e.a.s. erlend hátæknifyrirtæki, til að vinna úr og því sé farið í samstarf með hópi sveitarfélaga sem hafi ólíka kosti í boði. Þau sem nú stefna að uppsetningu gagnavers eru Fljótsdalshérað, Fjallabyggð, Dal- víkurbyggð, Skeiða- og Gnúpverja- hreppur, Ölfus, Húnavatnshreppur og loks Hafnarfjörður. Sveinn er sjálfur á leið á ráðstefnu í Kaliforníu um miðjan mánuðinn til að kynna kostina á Íslandi fyrir um 600-700 þátttakendum frá stærstu hátæknifyrirtækum heims, s.s. Go- ogle, Microsoft og Yahoo. „Markmiðið er að ná í viðskiptavini til að brjóta ísinn og við erum bjartsýnir á að þetta nái fram að ganga. Um leið og við fáum öfl- ugan aðila til að staðsetja sig á Ís- landi þá munu fleiri fylgja í kjölfar- ið,“ segir Sveinn. Til lengri tíma litið er vonast til að tvö eða fleiri gagnaver rísi á Íslandi en vænta má að hvert þeirra skapi um 40 bein og óbein störf í viðkom- andi sveitarfélagi. Nýr sæstrengur frumforsenda Til þess að af því verði er þó grundvallaratriði að sögn Sveins að lagður verði sæstrengur frá Íslandi til Bandaríkjanna. „Það er lykilatriði því um leið og slíkur strengur hefur verið lagður mun eftirspurn eftir staðsetningu á Íslandi verða miklu meiri en ella.“ Þegar er hafin lagn- ing nýs strengs milli Íslands og Evr- ópu en sambærileg tenging við N- Ameríku er nauðsynleg. Slíkur strengur myndi kosta um 12 millj- arða að sögn Sveins. „Við viljum sjá hið opinbera ríða á vaðið og ráðstafa einhverju fé í slíkan iðnað því þetta er braut sem hægt er að fara í áttina að því að efla nýsköpun á Íslandi.“ Greenstone hefur um nokkurt skeið unnið að því að fá sæstrenginn lagðan og fengið jákvæðar viðtökur stjórnvalda að sögn Sveins. „Ég veit að það er góður vilji en það er ekki nóg, það þarf að koma styrkari stuðningur.“ Sveinn bendir á að jafnari tekjur sé að hafa af gagna- verunum þar sem orkuverð sé hærra og ekki háð sömu sveiflum og álver. Þá verði dreifing vinnuaflsins meiri um landið og miklir stuðnings- möguleikar til nýsköpunar. „Ef stórt fyrirtæki eins og Microsoft eða Google staðsetur sig t.d. í Dalvík- urbyggð er Ísland í heild sinni komið á alheimskort þessa öfluga iðnaðar, hátækninnar.“ Miklir nýsköpunarmögu- leikar fylgja gagnaverum Sveinn Óskar Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.