Morgunblaðið - 04.11.2008, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 04.11.2008, Blaðsíða 19
Daglegt líf 19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 2008 Sígildar peysur 100% vélþæg ull 25% afslátturDizaEngri lík! 15% afsláttur af peysum, bolum, gallabuxum og beltum Laugavegi 44 • Sími 561 4000 www.diza.is Opið virka daga kl. 10:30-18:00 laugard. kl. 11:00-16:00 Diza býður til einnar viku veislu í tilefni af 4 ára tilvist og veru í miðbænum. Góðar fréttir af Laugavegi! Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur annaei@mbl.is S amvinna foreldra og leikskólastarfs- fólks er gífurlega mikilvæg fyrir þroska barns. Í Bretlandi er almennt viðurkennt að taki foreldrar ekki þátt í menntun barna sinna þá hafi fræðsl- an sem börnin hljóta á leikskólanum takmörkuð áhrif,“ segir doktor Margy Whalley, sem stödd var hér á landi nýlega á vegum Mennta- vísindasviðs Háskóla Íslands. Hún bendir á að þó að tíminn sem börnin dvelja á leikskólanum dag hvern sé oft langur, þá sé hann samt sem áður, á heildina litið, skemmri en sá tími sem börnin verja með foreldrum sínum – jafnvel þó að hluti þess tíma fari í svefn. „Heima fyrir mennta for- eldrar börn sín á svo marga ólíka vegu. Þeir örva þau með því að fylgja eftir áhugamálum þeirra, með leik, útiveru og ýmsu öðru, segir Whalley, sem starfar hjá fjölskyldumiðstöðinni Pen Green Center for Children and Families í Corby á Englandi. Í Pen Green Center hefur verið lögð mikil áhersla á að leikskólafræðslan sé samstarfsverk- efni foreldra og leikskólakennara. „Rannsóknir hafa sýnt að þegar að hægt er að gera foreldra virkilega spennta fyrir þroska barna sinna og fá þá til að deila með leikskólastarfsfólki hvernig börnin læra og þroskast heima fyrir, að þá hefur það verulega mikil áhrif á það hvernig börnin læra í leikskólanum.“ Byggt á áhuga barnsins Whalley nefnir sem dæmi að þau fái foreldra til að taka myndir og myndbönd af börnum sín- um heima til að deila með starfsfólki, sem og að segja einfaldlega frá hvað veki áhuga þeirra þá stundina. Hafi barn t.d. fylgst með föður sínum byggja bílskúr eina helgina og mæti í leikskólann upptendrað eftir smíðavinnuna með pabba þá sé hægt að nota þá þekkingu í leik barnsins. Draga e.t.v. fram kubbana og skoða byggingar eða byggingasvæði í næsta nágrenni. „Maður byggir á því sem vakið hefur áhuga barnsins, hvort sem það er lirfa, köngull eða byggingavinna. Viti maður hins vegar ekki hvað barn lærir heima þá er ekki hægt að byggja á þeim áhuga.“ Whalley segir leikskólastarfsfólkið að sama skapi fræða foreldrana um leik og þroska barnanna í skólanum. „Þannig ræðum við saman um hvað börnin séu að læra, hvernig þau læri og hvað við getum gert til að styðja þau betur.“ Við þetta, kveður hún foreldrana verða ennþá spenntari og metnaðargjarnari fyrir hönd barna sinna. Tilgangurinn sé þó ekki að gera foreldr- ana að skilvirkari uppalendum – slíkt sé banda- rísk hugmyndafræði – heldur einfaldlega að vinna út frá þeirri þekkingu og hæfni sem for- eldrarnir búa yfir. Blaðamanni leikur forvitni á að vita hvort þessi nálgun feli ekki í sér töluvert meiri vinnu fyrir leikskólakennarana, en Whalley neitar því. „Vissulega er þetta meiri vinna, en hún er ekki miklu meiri,“ segir hún. „Sem leikskólakennarar ber okkur að halda skrá yfir þroska barnanna þannig að þessar upplýsingar eru til staðar, við- bótin felst í því að miðla þeim.“ Mikilvægt að þekkja heimilið Stærsta breytingin felst því að hennar sögn í viðhorfsbreytingu – að leikskólakennarar við- urkenni foreldrana sem fyrstu og nánustu upp- fræðendur barna sinna. „Og slíkt er ekki alltaf auðvelt fyrir fagfólkið sem stundum telur sig vita best.“ Whalley leggur mikla áherslu á að þekking á heimili og fjölskyldu barns sé eitt af grundvall- aratriðum þess að geta verið með það á leikskóla. Starfsfólk Pen Green Center heimsækir því fjöl- skyldurnar, ýmist þegar að öll fjölskyldan er heima, eða þá að farið er á bæði heimilin séu for- eldrarnir skildir að skiptum. Heimsóknirnar krefjast þjálfunar og segir hún þess vegna mik- ilvægt að starfsfólkið sé fagfólk, sem hafi hlotið þjálfun í samskiptum við foreldra. Annars geti aðstæður auðveldlega orðið óþægilegar. „Maður má alls ekki mæta á svæðið með lista til að mæla getu barnsins, eða minna á neinn hátt á afskipta- saman félagsráðgjafa eða heilbrigðisstarfsmann. Þessar heimsóknir verða að vera á jafn- ingjagrundvelli,“ segir Whalley. „Vinátta og virðing eru enda mikilvæg hugtök í þessu sambandi því að hugmyndin er einfaldlega sú að kynnast því hvernig barnið leikur sér og hvaða fullorðnu einstaklingar eru mikilvægur hluti af lífi þess heimavið. Með því móti getum við nefnilega gert okkur góða mynd af þróun barnsins heima fyrir.“ Samvinnan besta leiðin Leikskólafræðslan sam- starfsverkefni foreldra og leikskólakennara Morgunblaðið/Brynjar Gauti Í leik Þroska barna á að efla með því að vinna með áhugasvið þeirra hverju sinni, segir dr. Whalley. Rannsókn Doktor Margy Whalley leggur áherslu á meira samstarf foreldra og leikskólans. MEÐAN á Íslandsdvölinni stóð heimsótti Margy Whalley þrjá leikskóla á höfuðborg- arsvæðinu. Voru það leikskólarnir Bakki, Brákarborg og Sólborg og vöktu þeir allir áhuga Whalley. „Ég var mjög hrifin af því starfi sem fer fram á þessum leikskólum. Raunar hef ég hug á að fá að senda starfsfólk frá Pen Green Center þangað í heimsókn til að kynn- ast betur starfinu sem þar fer fram,“ segir Whalley og bætti við að hún vildi líka gjarnan fá íslenska leikskólakennara í heimsókn í Pen Green Center. Hrifin af íslensku leikskólunum Vísnahorninu barst vísa, þar semvísað er í samtal íslensks ráð- herra við breska fjármálaráðherr- ann: „Alistair ákafur lagði að mér. Ég svaraði’ að bragði. Eitt er þó verst, eins og víst sést, að ég sagði’ekki það sem ég sagði.“ Hilmir Jóhannesson á Sauð- árkróki yrkir: Ég sæll var með æ og sí laun þó sæi ég tví og þrí laun en bankarnir blessaðir brotnir og stressaðir borga víst nú orðið ný laun. Af bönkum og Alistair VÍSNABORN pebl@mbl.is HELMINGUR danskra ungmenna á aldrinum 12-17 ára hefur prufað að leika fjárhættuspil á netinu og 8% ungmenna eru í áhættuhópi þeirra sem geta orðið háðir fjárhættuspili. Þetta eru niðurstöður stórrar rann- sóknar sem Berlingske Tidende greindi nýlega frá og unnin var á vegum dönsku velferðarrannsókn- armiðstöðvarinnar. Blaðið tekur dæmi af Frederik, 13 ára dreng, sem hefur gaman af að leika póker á netinu – sérstaklega þegar hann vinnur peninga en leik- inn lærði hann af afa sínum. „Ég hef oft spilað til fjögur á morgnana,“ hefur Berlingske Tid- ende eftir Frederik. „Og einu sinnu vorum við afi með í pókermóti á Po- ker Stars þar sem voru 3.000 aðrir leikmenn. Við enduðum í fimmta sæti og unnum hundrað dollara,“ segir Frederik stoltur. Spila fyrir 12.000 kr. á viku Ákafasti leikmannahópurinn er samkvæmt rannsókninni drengir á aldrinum 15-17 ára, en þeir leika fjárhættuspil nokkrum sinnum í viku og spila fyrir um 545 danskar kr., eða tæpar 12.000 íslenskar kr., á mánuði. Eru póker og svo nefnt odds-spil vinsælustu leikirnir og segir Connie Nielsen, einn vísinda- mannanna sem stóðu að rannsókn- inni, það visst stöðutákn meðal fé- laganna að vera góður í póker. „Ungmennin spila fyrst og fremst af því að þeim finnst það gaman. En þau gera það líka til að vinna sig upp í áliti hjá félögunum,“ segir hún. Þó að tilhugsunin um að geta unn- ið pening sé ekki nema í þriðja sæti yfir þær ástæður sem krakkarnir gáfu fyrir fjárhættuspilinu er engu að síður ýmislegt sem bendir til að sum þeirra séu í hættu að þróa með sér spilafíkn. En þeir sem falla í áhættuhópinn, að sögn Nielsen, hafa ýmist upplifað að spila fyrir meiri og meiri pening, að hverfa inn í lokaðan heim á meðan að þau spila, eða hafa logið og haldið áfram að spila þrátt fyrir að hafa tapað pen- ingum. Er kunnátta í póker stöðutákn? Morgunblaðið/Jim Smart Fjárhættuspil Ákafasti hópur danskra ungmenna, sem stunda fjárhættuspil á netin, er drengir á aldrinum 15-17 ára.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.