Morgunblaðið - 04.11.2008, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 04.11.2008, Blaðsíða 32
Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is Staðan kom upp í Evrópukeppni taflfélaga sem lauk fyrir skömmu í Halkidiki í Grikklandi. Spænski al- þjóðlegi meistarinn Ivan Ayala Cabezas (2.374) hafði hvítt gegn Halldóri Grétari Einarssyni (2.264) sem tefldi fyrir Taflfélag Bolung- arvíkur. 49. d5! exd5 50. e6 f6 51. Be7 svartur er nú varnarlaus. Fram- haldið varð: 51. …Hxc4 52. Hxf6 Be8 53. Haf2 Kh7 54. H2f4 Hxf4 55. Hxf4 Hg7 56. Ba3 Hb7 57. g5 Hb1 58. Hf7+ Bxf7 59. exf7 og svartur gafst upp. Taflfélag Bolungarvíkur er um þessar mundir á mikilli sigl- ingu þar sem í ár tók félagið í fyrsta skipti þátt í Evrópukeppni taflfélaga og lið félagsins trónir nú í efsta sæti í 1. deild að loknum fyrri hluta Ís- landsmóts skákfélaga. Hvítur á leik. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 2008 Sudoku Frumstig 6 1 3 9 8 1 4 6 3 5 8 7 9 5 1 2 9 6 4 2 5 8 2 8 7 1 4 4 9 5 7 2 8 3 5 3 1 8 2 8 7 9 6 2 3 7 4 6 2 1 9 4 3 8 3 1 9 7 3 1 6 1 9 2 8 6 7 5 8 6 3 6 2 7 2 4 9 8 2 5 9 6 7 5 4 2 9 3 1 2 5 1 2 9 5 4 9 6 7 4 1 4 9 8 1 6 2 3 7 5 1 3 7 9 5 8 6 4 2 2 5 6 7 3 4 1 9 8 9 2 5 6 8 1 7 3 4 8 6 4 5 7 3 2 1 9 3 7 1 4 2 9 8 5 6 5 1 3 8 4 6 9 2 7 7 8 2 3 9 5 4 6 1 6 4 9 2 1 7 5 8 3 2 7 5 8 9 6 1 3 4 4 1 9 7 3 5 2 6 8 6 8 3 4 2 1 5 7 9 5 9 7 3 4 2 8 1 6 1 2 4 5 6 8 7 9 3 3 6 8 9 1 7 4 2 5 8 4 6 1 7 3 9 5 2 7 5 2 6 8 9 3 4 1 9 3 1 2 5 4 6 8 7 1 5 4 9 8 3 2 6 7 6 8 7 2 1 4 5 3 9 2 3 9 5 6 7 8 1 4 3 7 8 1 9 5 6 4 2 4 6 1 3 7 2 9 8 5 9 2 5 8 4 6 3 7 1 5 4 2 7 3 8 1 9 6 8 9 6 4 2 1 7 5 3 7 1 3 6 5 9 4 2 8 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Lausn síðustu Sudoki. dagbók Í dag er þriðjudagur 4. nóvember, 309. dagur ársins 2008 Orð dagsins: Enginn á meiri kærleik en þann að leggja líf sitt í sölurnar fyr- ir vini sína. (Jh. 15, 13.) VVíkverji væri alveg til í aðbregða undir sig betri fætinum í borgarferð með breyttum vélum Icelandair. Sætin eru víst orðin þægilegri og rýmri, nýtt afþreying- arkerfi og flugfreyjurnar í nýjum búningum. Síðast þegar Víkverji flaug með Icelandair, skömmu fyrir bankahrunið, var vélin með gömlu þröngu sætunum og áhöfnin ítrekaði að nú færi að styttast í nýju og skemmtilegu vélarnar. Eftir að hafa skoðað þessar boð- uðu breytingar, og borið fargjöldin saman við t.d. Iceland Express, komst Víkverji að merkilegri nið- urstöðu. Svo virðist sem Icelandair hafi að nokkru leyti breyst í lág- gjaldaflugfélag. Nú þurfa farþegar á almennu farrými að borga fyrir mat- inn og það sem vakti mesta furðu Víkverja var að kaupa þarf kodda og teppi. Og til að njóta afþreying- arkerfisins í hljóði eru heyrnartólin ekki lengur í boði nema til kaups. Bendir félagið fólki á að það getur komið með sín eigin heyrnartól. Á almennu farrými verður heldur ekki lengur hægt að lesa Moggann. x x x Víkverji er þokklegum gáfumgæddur en hann á afar erfitt með að sjá hvernig þessar breyt- ingar Icelandair koma út sem aukin þjónusta við farþega, sem fæstir spá í að fljúga með Saga Class eða öðru viðskiptafarrými og láta sér al- menna rýmið duga í kreppunni. Hins vegar er athyglisvert að Icelandair er í flestum tilvikum með ódýrari flugmiða en Iceland Express, á al- gengum leiðum eins og til London og Kaupmannahafnar. Kannski er það bara tímabundið en Icelandair er núna með tilboð til ákveðinna staða, sem félagið kallar „besta verðið“. Eitthvað hökti þó nýi vef- urinn því undir tilboðinu komu upp sérstæð skilaboð í gærmorgun, þeg- ar slegið var t.d. inn að fljúga ætti til Kaupmannahafnar. Þá kom gluggi með skilaboðunum „Flugvöllur ekki til“. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 hlutdeild, 4 lóð, 7 ól, 8 halinn, 9 ill- gjörn, 11 gylla, 13 hæð- um, 14 Jesú, 15 fá á sig þunnan ís, 17 skaði, 20 sár, 22 myndun, 23 gref- ur, 24 eldstæði, 25 skepnurnar. Lóðrétt | 1 árás, 2 súr- efnið, 3 vot, 4 listi, 5 skikkju, 6 niðurfelling, 10 yfirbygging á skipi, 12 keyra, 13 stefna, 15 hafa stjórn á, 16 saddi, 18 kantur, 19 líffærin, 20 sæla, 21 föndur. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 kvenfólks, 8 vítur, 9 öldur, 10 Týr, 11 neita, 13 feikn, 15 bauks, 18 skóla, 21 tóm, 22 Eldey, 23 efast, 24 fangelsið. Lóðrétt: 2 vetni, 3 narta, 4 óþörf, 5 koddi, 6 svín, 7 grun, 12 tak, 14 eik, 15 brek, 16 undra, 17 stygg, 18 smell, 19 óvani, 20 autt. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Eitraður valkostur. Norður ♠ÁK105 ♥K ♦ÁKG96 ♣G86 Vestur Austur ♠G963 ♠4 ♥D104 ♥987532 ♦85 ♦432 ♣ÁK72 ♣D94 Suður ♠D872 ♥ÁG6 ♦D107 ♣1053 Suður spilar 4♠. Vörnin er yfirleitt fljótari en sagn- hafi að átta sig á legunni í lykillitum. Þetta er augljóst hvað tromplitinn varðar. Hér spilar suður 4♠ og hann sér auðvitað ekki fyrirfram að liturinn brotnar 4-1. En vestur veit það strax í byrjun og það forskot í vitneskju gefur vörninni möguleika á að leiða sagnhafa á villigötur. Til að byrja með tekur vörnin þrjá slagi á lauf og skiptir svo yfir í hjarta. Sagnhafi leggur niður ♠Á og austur fylgir með fjarka. Nú ætti vestur að vera viðbúinn og fylgja hik- laust með níunni. Ef hann setur þrist- inn mun sagnhafi spila á drottninguna næst, enda ekki hægt að ráða við ♠G9xx í austur. En gosann smátt fjórða má ráða við. Láti vestur níuna gæti sagnhafi valið að spila upp á fjór- litinn í austur með því að taka næst á ♠K. Sakar ekki að reyna. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Ef einhver hefur hæfileika til að heilla aðra upp úr skónum, ert það þú. Bolmagn annarra kemur þér til góða. (20. apríl - 20. maí)  Naut Gættu þess að gefa ekki loforð sem þú getur ekki staðið við. Taktu þér tak og viðurkenndu að sjaldan veldur einn þá tveir deila. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Þú getur útvegað það sem aðrir þarfnast. Hverjar væru afleiðingarnar ef leyndarmálið kæmist í hámæli? Hugsaðu það til enda og láttu svo kyrrt liggja. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Næsti mánuður verður annasam- ur því framundan eru margar veislur og mannfagnaðir. Reyndu að hafa hemil á þér. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Nú verður þú að taka á málum heima fyrir áður en þau fara úr böndunum. Að öðrum kosti fer allt úrskeiðis. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Væntingar annarra til þín munu líklega koma þér í opna skjöldu í dag eða að eitthvað stendur ekki undir vænt- ingum þínum. En þér er óhætt að treysta á innsæi þitt. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Dagdraumar geta verið skemmtilegir en best er þó að sinna sínu í raunveruleik- anum og uppskera þar árangur erfiðis síns. Vertu á verði ef þú átt í vandræðum. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þú ert yndislega opinn þar sem þú hefur ekki enn ákveðið hver þú átt að vera í nýrri stöðu. Vertu á varðbergi gagnvart laumuspili af einhverju tagi. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Dund er ekki málið fyrir þig! Þú ert í banastuði og munt framleiða heil ósköp og veita góða þjónustu. Vinsam- legar viðræður við systkini og ættingja bera ávöxt. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Það er engin ástæða til þess að vera hræddur við framandlegar að- stæður, þótt það sé eðlilegt. Veittu mót- spyrnu og varastu tungulipurt fólk sem ekki ber hag þinn fyrir brjósti. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Það er engu líkara en allt sé hulið einhvers konar þoku. Vonir þínar og framtíðardraumar skipta þig miklu máli. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Það veitir þér mikla ánægju að koma öðrum til að hlæja. Gefðu þér tíma og sæktu orku í umhverfi þitt. Stjörnuspá Hallbera Páls- dóttir, Birkiteig 4, Keflavík er ní- ræð í dag, 4. nóv- ember. Hún tekur á móti gestum laugardaginn 8. nóvember í Kirkjulundi frá kl. 15 til 18. Hallbera afþakkar blóm og gjafir en söfnunarbaukur verður á staðnum fyrir þá sem vilja gleðja afmælisbarnið og mun innihald hans renna til góðgerðarmála (SKB). 90 ára Sigurgeir Jón- asson er átt- ræður í dag, 4. nóvember. Hann dvelur nú á Hot- el Falua, Ave- nida Tenerife 9, (íbúð 217) Gran Canaria og nýt- ur dagsins þar. 80 ára Víðir Hafberg Kristinsson sál- fræðingur er sjö- tugur í dag, 4. nóvember. Eig- inkona hans er Hulda Guð- mundsdóttir hóp- sálgreinir. Víðir dvelst með fjöl- skyldu sinni á Kirkjubæjarklaustri á afmælisdaginn. 70 ára „Ég ætla að vera með opið hús fyrir ættingja, vini og samferðamenn,“ sagði Bjarni Óskarsson veit- ingamaður sem er fimmtugur í dag. Hann ætlar að halda upp á afmælið á laugardaginn kemur á heimili sínu að Völlum í Svarfaðardal. Bjarni á von á fjölmenni. „Ég verð með suður-evrópskan sveitamat, m.a. krónhjört, héra, akurhænu og fleira. Svo verður íslenskt með, íslenskt bygg, hrátt kofareykt hangikjöt, hákarl og súr hvalur. Með þessu getur fólk fengið bjór, vín og fjallavatn. Þetta verður bara veisla,“ sagði Bjarni. Afmælisbarnið hefur afþakkað afmælisgjafir en biður þá sem vilja gleðja hann að gefa í styrktarsjóð sem hann hefur stofnað til hjálpar fátækum íslenskum fjölskyldum. Sjóðurinn heitir Minningarsjóður Guðmundar góða og er í vörslu Sparisjóðs Svarfdæl- inga (nr. 1177-18-670140, kt. 610269-4949). „Guðmundur góði var fyrsti prestur hér á Völlum og þjónaði Vallastað frá 1190 til 1195. Í sumar langar mig að reisa honum minnisvarða,“ sagði Bjarni. „Í stjórn sjóðsins eru valinkunnir menn, þar á meðal tveir klerkar. Markmiðið er að starfa í anda Guðmundar góða en hann hjálpaði þeim sem minna máttu sín.“ | gudni@mbl.is Bjarni Óskarsson veitingamaður 50 ára Í anda Guðmundar góða Nýirborgarar Reykjavík Stefán Máni Svansson fæddist 27. maí kl. 15.37. Hann vó 3.850 g og var 52 sm langur. For- eldrar hans eru Svava Ólafsdóttir og Svanur Þór Björgvinsson. Reykjavík Elísabetu Ósk Guðmundsdóttur og Ægi Eyjólfssyni fæddist sonur 18. október kl. 12.35. Hann vó 3.150 g og var 49,5 sm langur. Reykjanesbær Helenu Einarsdóttur og Andra H. Oddssyni fæddist dóttir 1. október kl. 20.20. Hún vó 3.385 g og var 52 sm löng. Þetta gerðist … 4. nóvember 1942 Áhöfn Brúarfoss bjargaði öll- um 47 skipbrotsmönnunum af enska flutningaskipinu Daleby sem þýski kafbáturinn U-89 sökkti suðaustur af Græn- landi. Skipin voru í skipalest á leiðinni frá Bandaríkjunum til Íslands. Stjórn Eimskipa- félagsins heiðraði björg- unarmennina. 4. nóvember 1995 Orkan opnaði þrjár bens- ínstöðvar þar sem hver lítri var þremur til fimm krónum ódýrari en á öðrum stöðvum. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.