Morgunblaðið - 04.11.2008, Side 40
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 2008
/ ÁLFABAKKA / KRINGLUNNI
HIGH SCHOOL MUSICAL 3 kl. 6D - 7:30 - 8:30D - 10:10 B.i. 12 ára DIGITAL
HIGH SCHOOL MUSICAL 3 kl. 5:30 LÚXUS VIP
EAGLE EYE kl. 5:40 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára
EAGLE EYE kl. 8 - 10:30 LÚXUS VIP
SEX DRIVE kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 12 ára
NIGHTS IN RODANTHE kl. 8 LEYFÐ
THE DARK KNIGHT kl. 10:10 B.i. 12 ára
DARK KNIGHT SÝND Í TAKMARKAÐAN TÍMA V/ FJÖLDA ÁSKORANA
GEIMAPARNIR m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
HIGH SCHOOL MUSICAL 3 kl. 5:40D - 8D - 10:30D LEYFÐ DIGITAL
EAGLE EYE kl. 8D - 10:30D B.i. 12 ára DIGITAL
SEX DRIVE kl. 8:20 - 10:30 B.i. 12 ára
JOURNEY TO THE CENTER ... kl. 5:503D LEYFÐ 3D - DIGITAL
WILD CHILD kl. 5:50 LEYFÐ
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
HÖRKUSPENNANDI MYND
FRÁ STEVEN SPIELBERG MEÐ
SHIA LABEOUF Í AÐALHLUTVERKI.
ÞÚ HLÝÐIR, EF ÞÚ VILT LIFA!
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
ZACH EFFRON
OG VANESSA HUDGENS
GERA ALLT VITLAUST Í
HIGH SCHOOL MUSICAL 3!
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
„STÆRSTA OPNUN
Á DANS & SÖNGVAMYND
ALLRA TÍMA Í U.S.A“
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELDOSSI
SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI SÝND Í ÁLFABAKKA
SÝND AFTUR Í TAKMARKAÐAN TÍMA
VEGNA FJÖLDA ÁSKORANA TOPP GRÍNMYND
SEX DRIVE FER FRAM ÚR AMERICAN PIE
Á 100 KM HRAÐA!
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG SELFOSSI
DANS- og söngvamyndin High
School Musical 3 fór beint á topp
bandaríska bíólistans þegar hún var
frumsýnd þar vestra um þarseinustu
helgi. Myndin var frumsýnd hér-
lendis á föstudaginn og eins og í
Bandaríkjunum fer hún beint í
fyrsta sæti íslenska bíólistans. Rúm-
lega 5.200 bíógestir skelltu sér á
myndina sem halaði inn tæpar fimm
milljónir króna, það verður að teljast
gott á krepputímum.
Í myndinni segir frá Troy og
Gabriellu sem eru komin á lokaár í
framhaldsskóla og horfa fram á að-
skilnað þar sem þau ætla hvort í sinn
háskólann. Ásamt úrvalsliði söngv-
ara ákveða þau að búa til söngleik
sem endurspeglar reynslu þeirra í
skólanum og framtíðarvonir. Ung-
stirnin Zac Efron og Vanessa Anne
Hudgens fara með hlutverk Troys
og Gabriellu en auk þess að leika par
í myndinni eru þau par í raunveru-
leikanum og eitt það heitasta í
Hollywood um þessar mundir.
Eagle Eye, sem var á toppnum í
seinustu viku, er í öðru sæti en
tekjur af henni á Íslandi nema nú
um 5,8 milljónum króna og eru það
um sjö þúsund gestir sem skila
þeirri summu í kassann.
Rúmlega fjórtán hundruð manns
fóru á hryllingsmyndina Quarantine
sem var ný í sýningu um helgina. My
Best Friend’s Girl er síðan í fjórða
sæti Bíólistans. Athygli vekur að
Mamma Mia! fer upp um eitt sæti,
úr tíu í níu, og hefur nú halað inn
rúmar 100 milljónir, toppið það!
ingveldur@mbl.is
Tekjuhæstu myndirnar í íslenskum kvikmyndahúsum
Skóladans og söngur
lokkar landsmenn í bíó
'(34'0
!
"!#
$%&
'()*+(' !!$,
-.
*
() $/( 0
-1
,,
2
&
,3
4 3 5
,36
Ástfangin Zac Efron og Vanessa Hudgens í hlutverkum sínum í High
School Musical 3. Myndin var mest sótt í bíóhúsum um nýliðna helgi.
DANS- og söngvamynd-
in High School Musical 3
var tekjuhæsta kvik-
myndin í bandarískum
kvikmyndahúsum um
nýliðna helgi, aðra
helgina í röð. Tekjur af
myndinni námu rúmum
15 milljónum dollara um
helgina, og eru heildar-
tekjurnar komnar yfir
62 milljónir dollara, sem
verður að teljast nokkuð
gott á þessum síðustu og
verstu.
Beint í annað sætið
stökk hins vegar gam-
anmyndin Zack and Miri
Make a Porno, en þar er
á ferðinni nýjasta mynd
grallarans Kevins
Smiths. Eins og nafnið
bendir til fjallar myndin
um fólk sem grípur til
þess örþrifaráðs á
krepputímum að gera
klámmynd. Myndin skil-
aði rúmum 10 milljónum
dollara í kassann um
helgina.
Þá kemur hrollvekjan The
Haunting of Molly Hartley ný inn
í fimmta sætið. Myndin segir sögu
ungrar stúlku sem lifir af morð-
tilraun móður sinnar, en þarf að
búa við stöðugar martraðir í kjöl-
farið. Nokkuð margir Bandaríkja-
menn voru tilbúnir til að láta
hræða úr sér líftóruna um
helgina og námu tekjur af mynd-
inni rúmum fimm milljónum doll-
ara.
High School
Musical heldur velli
Tekjuhæstu kvikmyndir síðustu
helgar í Bandaríkjunum:
1. High School Musical 3: Senior
Year
2. Zack and Miri Make a Porno
3. Saw V
4. Changeling
5. The Haunting of Molly Hartley
6. Beverly Hills Chihuahua
7. The Secret Life of Bees
8. Max Payne
9. Eagle Eye
10. Pride & Glory
Tekjuhæstu kvikmyndirnar vestanhafs
Skemmtilegt sjónarhorn Seth Rogen og
Elizabeth Banks í hlutverkum sínum í gam-
anmyndinni Zack & Miri Make A Porno.
MORGAN Spurlock er í hugum
flestra þekktur fyrir kvikmynd sína
Stækkaðu máltíðina (Supersize Me),
en þar sýndi hann fram á hversu
næringarsnauðar MacDonalds-
máltíðir eru með því að neyta þeirra
eingöngu í heilan mánuð og fara svo í
læknisskoðun (þar sem líkamlegt
ástand hans fékk falleinkunn). Í nýju
myndinni, Hvar í veröldinni er
Osama Bin Laden? tekst Spurlock á
hendur tilraunaverkefni á öllu stærri
skala, og leggur til atlögu við hug-
myndafræði óttans í hryðjuverka-
stríðinu svokallaða. Hann ákveður að
reyna að leita uppi leiðtoga Al-Kaída
samtakanna, Osama Bin Laden, í von
um að gera heiminn þar með að
öruggari stað fyrir barnið sem hann
á von á með kærustu sinni. Ferðalag-
ið ber Spurlock um Egyptaland,
Marokkó, Ísrael, Saudi-Arabíu, Afg-
anistan og Pakistan, þar sem ferða-
langurinn að endingu kemst að þeirri
niðurstöðu að hryðjuverkastríðið
verði e.t.v. ekki leyst eða útskýrt með
því að einblína á tákngerving þess.
Innbyggður áhorfandi myndar
Spurlocks er hinn venjulegi Banda-
ríkjamaður eða Vesturlandabúi sem
lítið hefur lagt sig eftir því að setja
sig inn í heimsmálin, en lifir og hrær-
ist í heimi tölvuleikja og tónlistar-
myndbanda, en mörg atriði mynd-
arinnar eru skemmtilega fram sett í
anda þeirra afþreyingarforma. Með
ferðalagi sínu og viðtölum við fólk
leitast Spurlock við að opna augu
þeirra sem álíta múslima almennt
vera öfga- eða ofbeldismenn, fyrir
þeirri staðreynd að í umræddum
löndum býr fólk sem vill frið og vel-
sæld fyrir sig og sína og er gagnrýnið
á beitingu öfgaáróðurs í pólitískum
tilgangi. Þetta eru langt frá því að
vera ný sannindi, og að vissu leyti má
segja að verkefni myndarinnar sé
fólgið í því að fela stein undir þúfu og
fara svo að leita að honum. Engu að
síður má ætla að kvikmynd sem veit-
ir venjulegu fólki í Mið-Austurlönd-
um og Afríku tækifæri til þess að tjá
sig um hryðjuverkastríðið, ástandið í
heimalandinu, og almenna lífsafstöðu
sína, sé sterkt andsvar við þeirri ein-
hliða og fordómafullu mynd sem iðu-
lega er dregin upp af Mið-Austur-
löndum í vestrænum fjölmiðlum.
Á slóð Osama
KVIKMYND
Háskólabíó – Græna ljósið
Leikstjórn: Morgan Spurlock.
Bandaríkin, 93 mín.
Hvar í veröldinni er Osama Bin Laden?
(Where in the World is Osama Bin Laden?)
bbbnn
Heiða Jóhannsdóttir
Í Egyptalandi „Innbyggður áhorfandi myndar Spurlocks er hinn venjulegi
Bandaríkjamaður eða Vesturlandabúi sem lítið hefur lagt sig eftir því að
setja sig inn í heimsmálin,“ segir meðal annars í dómi gagnrýnanda.