Morgunblaðið - 11.11.2008, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 11.11.2008, Blaðsíða 2
2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 2008 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþrótt- ir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is „ÞAÐ þarf að huga sérstaklega að þessari starfsgrein vegna þess hversu framarlega hún er í ferlinu. Ef það verður skrúfað fyrir öll verk- efni í einu brenna skuldlaus fyr- irtæki upp á örfáum mánuðum,“ segir Aðalsteinn Snorrason, formað- ur Félags sjálfstætt starfandi arki- tekta (FSSA), félags arkitektastof- anna. Á fundi sem félagið hélt í gær var farið yfir alvarlega stöðu grein- arinnar. Tveir ráðherrar og fulltrú- ar sveitarfé- laga voru meðal fram- sögumanna. Áætlað er að liðlega 300 manns hafi verið sagt upp störfum á arkitekta- stofunum um tvenn síðustu mánaðamót, arkitektum, bygginga- fræðingum, innanhúss- arkitektum, tækniteikn- urum og skrifstofufólki. Eru þetta um 45% af störfum í greininni. Búist er við frekari uppsögnum, að óbreyttu. Aðalsteinn segir að laun og launa- tengdur kostnaður sé um 70% af rekstrarkostnaði. Starfsfólkið hafi sinn uppsagnarfrest og orlof og ef fyrirtækin hafi ekki verkefni séu þau fljót að brenna upp. Við það glatist verðmæt þekking og fyr- irtækin verði illa í stakk búin til að taka við verkefnunum þegar þau verða aftur sett af stað. Arkitektar lögðu það til á fundi iðnaðarnefndar Alþingis að sveit- arfélögunum yrði tryggt fjármagn til að halda áfram þeim verkefnum sem unnið hefur verið að, að ríkið héldi áfram að láta hanna byggingar og ráðist yrði í verkefni sem arki- tektar hafa undirbúið í samvinnu við Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Þau gætu tryggt 150-210 störf. Fyrirtækin brenna upp á fáum mánuðum Arkitektastofur vilja að áfram verði unnið að hönnun Morgunblaðið/Kristinn Fjölmennur fundur Farið var yfir alvarlega stöðu greinarinnar í gær. Í HNOTSKURN »Áætlað er að710 hafi unnið á arki- tektastofum í haust. 310 hefur verið sagt upp nú þegar. »Verkefnihafa dregist mikið saman, eða um 75%, og getur það haft í för með sér frekari fækkun. Eftir Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur tka@mbl.is HVORKI fjármálaráðherra né við- skiptaráðherra virðast hafa haft hugmynd um að erfiðlega gengi að koma Icesave-reikningum Lands- bankans yfir í dótturfélag. For- stjóri Fjármálaeftirlitsins sagði um helgina að Björgvin G. Sig- urðssyni viðskiptaráðherra hefði ekki verið skýrt frá málinu í vor. Árni M. Mathiesen fjármálaráð- herra segir að erfiðleikar bank- anna hafi verið til umfjöllunar lengi en honum hafi ekki verið kunnugt um að vandamál Lands- bankans vegna Icesave-reikning- anna kölluðu á róttækar aðgerðir fyrr en í byrjun september. Þegar hann er spurður hvort ekki hafi verið óeðlilegt að leyfa Landsbankanum að stofna slíka innlánsreikninga í Hollandi í maí í ljósi þess að vandamál bankanna hefðu verið til umræðu segist hann ekki vita hver ferill málsins hafi verið eða hver tók þá ákvörðun. Hún hafi allavega ekki verið borin undir hann. Gagnrýnir ekki samráðherra Fjármálaeftirlitið hefði getað stöðvað stofnun slíks útibús en ráðherrann vill ekki tjá sig um það enda heyri Fjármálaeftirlitið ekki undir hann. Hann segist ekki vilja gagnrýna samráðherra sína eða þær stofnanir sem verið sé að vinna með. Hann segir hins vegar augljóst að það regluverk sem ESB og EES-löndin komu sér saman um hafi verið ófullnægj- andi. Óupplýstir ráðherrar Fjármálaráðherra vissi ekki að róttækar aðgerðir þyrfti vegna Icesave-reikninganna fyrr en í byrjun september Árni M. Mathiesen Björgvin G. Sigurðsson Ráðherrarnir koma af fjöllum mbl.is | Sjónvarp FORSETI Alþingis og formenn allra stjórnmálaflokkanna sem full- trúa eiga á Alþingi hittust á fundi í gær til að ræða undirbúning sér- stakrar rannsóknar á orsökum og aðdraganda hruns íslensku við- skiptabankanna. Sturla Böðv- arsson, forseti Alþingis, sagði að vinnan væri komin vel á veg. Málið hefur verið á dagskrá funda formanna stjórnmálaflokk- anna og forseta Alþingis tvisvar áður á síðustu dögum. Fram hefur komið hjá Geir H. Haarde for- sætisráðherra að reiknað sé með því að sett verði sérstök lög um rannsóknina en málið er ekki frá- gengið. Verði gert vel „Það er eindreginn ásetningur allra að koma þessu í farveg sem skjótast. Vonandi gerist það í þess- ari viku. Ég hef lagt á það áherslu að þetta þoli enga bið, máli líti ein- faldlega dagsins ljós svo almenn- ingur geti treyst því að þetta eigi að gera eins vel og kostur er,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs. Hann sagði að slík rannsókn væri liður í því að halda frið við almenning út af ástandinu í þjóðfélaginu og mik- ilvægt að menn gerðu skyldu sína. Hvorki Sturla né Steingrímur kváðust geta greint frá efni eða formi væntanlegrar rannsóknar, hvort stofnuð yrði rannsókn- arnefnd með lögum frá Alþingi eða hvort tilteknum stofnunum yrði falið verkið. „Mikilvægt er að stað- ið verði þannig að verki að þetta verði hafið yfir gagnrýni og gert með eins tæmandi hætti og hægt er,“ sagði Steingrímur. helgi@mbl.is Verði haf- ið yfir gagnrýni Sturla Böðvarsson Steingrímur J. Sigfússon Flokksformenn undirbúa rannsókn Evrópusambandsríkin eru sam- mála um að ógilda reglur um tak- markaðan vökva í handfarangri þegar ný tegund skanna, sem get- ur greint skaðlausa vökva frá fljótandi sprengiefni, verður kom- in í gagnið eftir tvö ár. „Við erum sannfærðir um að það verður mögulegt að nota þessa tækni í flugstöðvum árið 2010,“ hefur Reuters-fréttastofan eftir Jens Mester, talsmanni fram- kvæmdastjórnar Evrópusambands- ins, ESB. Samkvæmt reglum ESB mega flugfarþegar ekki hafa í handfar- angri vökva í stærri ílátum en sem rúma 100 ml. Ílátin þurfa jafn- framt að vera í gegnsæjum plast- pokum. Ógilda reglur um vökva ELDUR kviknaði í húsi í alifugla- búinu Ásmundarstöðum í Ásahreppi í Rangárvallasýslu á níunda tím- anum í gærkvöldi, að því er mbl.is greindi frá. Að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli var búið að slökkva eldinn áður en slökkvilið bar að garði. Talið er að mörg þúsund fuglar hafi drep- ist. Eldurinn var ekki mikill, en mikill hiti og reykur myndaðist í búinu. Lögreglan sagði að ekkert fólk hefði verið í hættu, en aðkoman verið ljót. Dýralæknir var kallaður á staðinn og er málið í rannsókn. Mörg þúsund fuglar dráp- ust í eldi SAMSTÖÐUKVEÐJA hefur borist BSRB frá regnhlífasamtökum fag- félaga opinberra starfsmanna á Norðurlöndum (NOFS) vegna efnahagsþrenginganna sem Ísland glímir nú við. NOFS hefur miklar áhyggjur af stöðunni hér á landi í kjölfar heimskreppunnar, ef marka má bréfið. Segir að NOFS muni hvetja ríkisstjórnir eigin landa til að styðja við Ísland þann- ig að íbúar landsins þurfi ekki að líða fyrir óheft frelsi markaðs- aflanna. Þá muni NOFS ganga langt í stuðningi við BSRB, reynist þörf á því. Fá stuðning frá norrænum kollegum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.