Morgunblaðið - 11.11.2008, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 11.11.2008, Blaðsíða 12
12 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 2008 muni verða tilbúnir til þess að vera með í ráðum um hvernig stíga eigi næstu skref. Þar er fyrst og fremst verið að horfa til þess hvort innheimta eigi eignir hratt eða hægt. Ef það er gert hratt fá þeir borgað fyrr en fá á FRÉTTASKÝRING Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is SKILANEFNDIR þeirra banka sem hafa verið þjóðnýttir munu hitta erlenda kröfuhafa sína á fundum í lok þessarar viku. Skila- nefnd Kaupþings mun funda með kröfuhöfum á miðvikudag, Glitn- ismenn funda með sínum á fimmtudag og skilanefnd Lands- bankans heldur sinn fund á föstu- dag. Þetta verða fyrstu formlegu fundirnir sem erlendu kröfuhaf- arnir fá með skilanefndunum. Fyrstu vísbendingar um virði Á þessum fundum verður kröfu- höfunum, sem meðal annars eru margir stærstu bankar Evrópu, gerð grein fyrir hver staðan í þrotabúum bankanna sé. Sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins verður meðal annars farið yfir fyrstu vísbendingar um verðmæti þeirra eigna sem verða eftir í gömlu bönkunum. Í framhaldinu er vonast til þess að kröfuhafarnir móti minna upp í kröfurnar. Ef eignirnar eru innheimtar hægar þá ætti að fást meira fyrir þær. Deloitte sér um samskiptin Skilanefndirnar réðu bresku endurskoðendaskrifstofuna De- loitte til að annast samskipti þeirra við erlenda lánardrottna seint í október. Lögmannastofan Bingham McCutchen hefur síðan komið fram fyrir hönd hóp al- þjóðlegra skuldaeigenda bankanna hérlendis undanfarnar vikur. Heimildir Morgunblaðsins herma að meðal þeirra séu hollenski bankinn Fortis. Sérstakt teymi endurskoðenda á vegum Deloitte hefur verið hér á landi undan- farnar vikur að taka saman upp- lýsingar fyrir þessa fundi. Verðmyndandi upplýsingar Á fundunum verða gefnar upp hugsanlega verðmyndandi upplýs- ingar. Því þarf hver og einn sem kemur á hann að skrifa undir trúnaðaryfirlýsingu varðandi efni fundarins. Þá munu þeir sem koma á fundinn ekki hafa heimild til að versla með bréf viðkomandi banka þar sem þeir búa þá yfir betri upplýsingum en aðrir þátt- takendur á markaði um virði eigna þeirra. Kröfuhafar hitta skilanefndir  Alþjóðlegir kröfuhafar föllnu bankanna hitta skilanefndir þeirra á fundum í lok vikunnar  Upplýst verður um fyrstu vísbendingar um virði eigna  Verðmyndandi upplýsingar verða kynntar á fundunum Reuter Gera kröfur Hollenski bankinn Fortis er meðal þeirra kröfuhafa sem hafa sent fulltrúa hingað til lands til að verja kröfur sínar. Í HNOTSKURN » Íslenskir bankar og fyr-irtæki skulduðu erlendum bönkum tæpa 9.000 milljarða króna í lok júní. » Þar af námu lán frá þýsk-um fjármálafyrirtækjum rúmum 2.500 milljörðum króna. »Geir H. Haarde forsætis-ráðherra útilokaði ekki að erlendir kröfuhafar bankanna eignist hlut í nýju bönkunum í Morgunblaðinu í gær. Eftir Skapta Hallgrímsson skapti@mbl.is BÆJARYFIRVÖLD á Akureyri stefna að því að stemma stigu við svifryksmengun með því að nota salt og saltblönduð efni við hálkuvarnir á götum í stað sands – sem er raunar strangt til tekið ekki sandur, heldur fín möl – þegar nauðsyn krefur í vet- ur. Svifryk í höfuðstað Norðurlands hefur stundum mælst hið mesta á landinu undanfarin ár. Á fundi bæjarstjórnar í síðustu viku voru lagðar fram til kynningar reglur um hálkuvarnir í bænum sem nýlega voru samþykktar í fram- kvæmdaráði að tillögu umhverf- isnefndar. Notkun malarefnis til hálkuvarna hefur stóraukist síðustu ár á Ak- ureyri; á síðasta ári var rúmlega 400 tonnum dreift á göturnar og afleið- ingin er stóraukin rykmengun og mælingar á svifryki við Tryggvagötu sýna að ástandið er alvarlegt og óviðunandi. Nefna má að það sem af er þessu ári 2008 hefur svifryksmengun mælst yfir heilsuverndarmörkum í 32 daga en leyfilegt hámark er 18 dagar og verður sjö dagar árið 2010. Samkvæmt hinum nýju reglum skal ekki nota möl til hálkuvarna á götum nema í algjörum undantekn- ingartilfellum, t.d. þegar önnur hál- kuvarnarefni duga ekki til. Tekið er fram að fínt malarefni má nota á gangstéttar og göngustíga þegar að- stæður krefjast. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Mengun Svifryk hefur verið mikið síðustu ár en það er mælt á mótum Tryggvabrautar og Glerárgötu. Myndin er tekin suður eftir Glerárgötu. Salt notað í stað malarefnis til þess að minnka svifryk Svifryksmengun oft yfir leyfilegum heilsuverndar- mörkum í ár Í HNOTSKURN »Svifryk er örsmáar agnirí andrúmsloftinu. Það er að mestu leyti til komið vegna útblásturs frá bifreið- um, malbiks sem spænist upp vegna aksturs á nagla- dekkjum og sands sem bor- inn er á götur til hálku- varna. »Svifryk getur haft slæmáhrif á fólk með önd- unarfæra- eða hjarta- sjúkdóma, eldri borgara og börn. Þá getur það aukið hættu á heilablóðfalli og hjartaáföllum. Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur ben@mbl.is ERLEND blöð og tímarit hafa sum verið illfáanleg í verslunum að und- anförnu. Skýringin er skortur á gjaldeyri til að leysa blöðin út. Jana Sturlaugsdóttir hjá Pennan- um-Eymundsson segir að erlend blöð og tímarit hafi ekki öll ratað á sinn stað í hillurnar að undanförnu. „Það er skortur á gjaldeyri og fyrir vikið gengur hægar að greiða er- lendum birgjum. Flestir hafa þeir sýnt okkur skilning en þeir eru mis- strangir þannig að við höfum ekki í öllum tilfellum náð að leysa út blöð. Þetta er eins hjá öllum, þeir sem ekki versla með mat, lyf eða elds- neyti eru ekki í forgangi.“ Hún segir þó minnihluta birgja stífa á reglum. „Flestir skilja að þetta er tímabund- ið ástand.“ Aðspurð segir hún helst hafa vantað Der Spiegel og Hello í búðunum. „En það er að birta til í gjaldeyrismálum og þá fer þetta strax að rúlla.“ Hannes Sigurbjörn Jónsson, framkvæmdastjóri Office 1, segir tregðu hafa verið í afgreiðslu er- lendra blaða. „Blöðin frá Ameríku hafa borist eins og venjulega en við höfum lent í stoppi í þrjár, fjórar vik- ur með evrópsk blöð sem við fáum frá einum birgi í Bretlandi. Við erum þó búin að leysa þetta hjá okkur í bili svo við fáum erlend blöð í vikunni.“ Margrét Grétarsdóttir, verslunar- stjóri hjá Griffli, segir lítið hafa vant- að erlend blöð í þeirra verslunum. „Það hafa verið vandræði með Bo Bedre sem er væntanlegt í vikunni og Hello hefur ekki komið, þannig að við höfum aðeins orðið fyrir þessu, en þó ekki mjög alvarlega.“ Erlend blöð illfáanleg  Hægt hefur gengið að leysa út tímarit frá erlendum birgj- um  Sumstaðar hefur vantað blöð í þrjár til fjórar vikur Miðvikudagur 12. nóvember kl. 17.30 Borgarmálin í brennidepli Kjartan Magnússon, Júlíus Vífill Ingvarsson, Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir og Jórunn Frímannsdóttir ræða borgarmálin á opnum fundi í Valhöll. Málfundafélagið Óðinn stendur fyrir fundinum og Theodór Bender, formaður Óðins, er fundarstjóri. Laugardagur 15. nóvember kl. 10.00 Haustþing Landssambands sjálfstæðiskvenna Landssamband sjálfstæðiskvenna heldur haustþing með fjölmörgum glæsilegum framsögumönnum í Valhöll. Í pallborði verður sérstaklega rætt um atvinnu-, umhverfis- og efnahagsmál annarsvegar og heilbrigðis-, trygginga- og velferðarmál hinsvegar. Nánari upplýsingar um fundina og flokksstarfið má finna á heimasíðu flokksins, www.xd.is, eða í síma 515 1700. Tölum saman Fjölmargir fundir eru á vegum Sjálfstæðisflokksins í viku hverri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.