Morgunblaðið - 11.11.2008, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 11.11.2008, Blaðsíða 28
28 Minningar MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 2008 ✝ Tómas BjörnÞórhallsson fæddist að Hofi í Hjaltadal þann 21. ágúst 1938. Hann lést á Landspít- alanum 3. nóv- ember síðastliðinn. Foreldrar hans voru Þórhallur Traustason, f. 9.5. 1908 og d. 14.2. 1947, og Helga Jó- hannsdóttir, f. 14.5. 1897 og d. 17.12. 1941. Systkini Tóm- asar eru 1) Gunnar Pálsson, f. 19.7. 1928, maki hans Kristín Jónsdóttir er látin; 2) Kristín Þórhallsdóttir, f. 17.1. 1931 og d. 26.6. 1989, maki hennar var Rögnvaldur Sigurðsson sem er látinn; 3) Sigurður Þórhallsson, f. 21.4. 1933, kvæntur Sigríði Bene- diktsdóttur; 4) Tryggvi Þórhalls- son, f. 8.1.1936, kvæntur Kristínu Björgvinsdóttur. Hinn 20.10. 1962 kvæntist Tómas eftirlifandi eiginkonu sinni, Kristjönu Sigurðardóttur þroskaþjálfa, f. 24.10. 1943. For- eldrar hennar voru Sigurður Pét- ursson, f. 6.3. 1912 og d. 8.6. 1972, og Ína Jensen, f. 2.10. 1911 og d. 17.2. 1997. Börn Tómasar og Kristjönu eru: 1) Helga Tóm- asdóttir, f. 21.1. 1965, gift Her- berti Má Þorbjörnssyni, f. 12.2. 1963, börn þeirra eru: Kristjana Ýr, f. 31.10. 1997, og Helgi Már, f. 19.6. 2003. 2) Halla Tómasdóttir, f. 11.10. 1968, gift Birni Skúlasyni, f. 20.7. 1973, börn þeirra eru: Tómas Bjartur, f. 21.9. 2001, og Auður Ína, f. 24.9. 2003. 3) Harpa Tómasdóttir, f. 17.12. 1971, í sambúð með Har- aldi Helga Þráins- syni, f. 28.3. 1964, dóttir þeirra er Unnur Helga Haraldsdóttir, f. 8.8. 2007. Tómas ólst upp í Skagafirði til 16 ára aldurs en flutti þá á Þing- nes í Borgarfirði áður en hann flutti til Reykjavíkur 18 ára gam- all. Hann hlaut réttindi sem vél- stjóri og vann til sjós um nokk- urra ára skeið. Hann nam pípulagningar við Iðnskólann í Reykjavík og hlaut réttindi sem pípulagningameistari árið 1973. Hann stundaði sjálfstæðan at- vinnurekstur þar til hann gerðist húsvörður við Sunnuhlíð í Kópa- vogi þar sem hann starfaði sl. 15 ár. Tómas og Kristjana hófu bú- skap sinn í Reykjavík en fluttu árið 1969 til Kópavogs þar sem þau hafa búið síðan. Útför Tómasar fer fram frá Kópavogskirkju í dag og hefst at- höfnin kl. 15. Elsku pabbi. Þeir sem litu þig augum sáu stór- an mann með stórar og sterkbyggð- ar hendur. Við sem þekktum þig vissum að hjarta þitt var enn stærra. Ég gleymi því aldrei hversu erfitt það var fyrir þig að kveðja okkur dætur þínar þegar við lögðum upp í ferðalög, til lengri eða skemmri tíma. Þú gast ekki sagt mikið á þess- um stundum, en fallegu augun þín fylltust af tárum og við vissum hversu vænt þér þykir um okkur. Ég gleymi aldrei svipnum á þér þegar ég nefndi frumburðinn minn í höfuðið á þér. Ég var aldrei mikið fyrir slíkar nafngiftir, en ég vissi bara um leið og hann fæddist að þarna var kominn lítill Tómas. Sam- band ykkar Tómasar Bjarts var ein- stakt og pabbi, ég mun leyfa þér að lifa í hjarta hans og Auðar Ínu um alla tíð. Þau fengu alltaf tár í augun þegar við sögðum þeim sögur af því hvernig þú misstir foreldra þína svo óskaplega ungur að árum og fórst í fóstur þar sem þú þurftir að erfiða mikið fyrir hlutum sem við tökum öll sem sjálfsögðum hlut. Ég man hvernig þú lyftir henni mömmu upp og sveiflaðir henni hring eftir hring þegar þið dönsuð- uð. Við Bjössi hlógum svo mikið þeg- ar við urðum fyrst vitni að þessum dansi ykkar. Ykkar vinátta og ást var sterk og óeigingjörn. Þú gleymd- ir hverju einasta brúðkaupsafmæli í öll 46 árin held ég, en þú elskaðir mömmu og þurftir á henni að halda eins og jurt þarf vatn. Og mamma hló að þessu í hvert sinn, líka nú 20. október þegar þú fórst í spilaklúbb- inn með bræðrum þínum á síðasta brúðkaupsafmælinu ykkar. Við fengum svo þessar hræðilegu fréttir um alvarleika veikinda þinna nokkrum dögum síðar, á 65 ára af- mælisdeginum hennar mömmu. Við mamma vorum hjá þér það kvöld og þú tókst fréttunum af miklu æðru- leysi. Þér var efst í huga hvort og hvenær þú kæmist aftur í vinnu. Þetta lýsir þér vel. Þú hringdir held- ur aldrei bjöllunni í þessa viku sem þú varst á spítalanum. Þú gast ekki hugsað þér að trufla fólkið í vinnunni. Svo ótrúlega ósérhlífinn, elsku pabbi, og því höfum við börnin þín og barnabörn aldrei náð að gera fyrir þig allt sem við hefðum viljað. Elsku pabbi, lífið án þín verður ekki samt. En við reynum að hugga okkur við það að þú þurftir ekki að þjást í marga daga. Við huggum okk- ur líka við það að nú ert þú hjá mömmu þinni og pabba sem fóru svo sviplega frá þér þegar þú varst ungt barn. Þú hittir líka systur þína, hana Stínu, sem fór allt of snemma. Við vitum að þú verður stærsti engillinn á himnum, með stærsta hjartað og við trúum því og treystum að þú vak- ir yfir okkur öllum. Við skulum passa og vernda mömmu fyrir þig. Þín Halla. Verður ekki komið heim um jólin? Auðvitað komið þið heim um jólin, svaraði Tommi okkar sjálfum sér þegar við kvöddum hann í júlí. Tommi átti ekki auðvelt með að kveðja sína nánustu og horfði gjarn- an framhjá kveðjustundinni með því að sjá fram á næstu endurfundi. Eig- inleikar sem endurspegluðu svo vel hans manngerð, að geta hlakkað til og glaðst yfir smáum sem stórum at- burðum. Tommi var ekki bara mágur okkar og svili. Hann var fyrst og fremst einn af okkar bestu vinum og félagi. Tommi átti sér alltaf sérstakan sess í öllu sem við fjölskyldan og vinir gerðum saman. Í veiðiklúbbnum var hann veiði- þjófurinn, sem ruglaði stundum en auðvitað viljandi saman veiðisvæð- unum. Sá sem laumaðist um með næturfluguna og spáði um veður og veiði næsta dags. Við sjáum hann fyrir okkur sitjandi flötum beinum á árbakkanum, hnýtandi örsmáar agn- ir með sínum stóru höndum. Hann var óðalsbóndinn og sveita- maðurinn í Vinaminni, bústaðnum þeirra í Borgarfirði. Ræktaði þar kartöflur, sló grasið og sá um önnur búverk sem fylgdi óðalssetrinu. Passaði vel upp á að komast til til- heyrandi verka á réttum árstíma. Höfðinginn sem tók á móti öllum gestum af einstökum höfðingsskap og gestrisni. Þótt það kæmi alltaf í hlut Sjönu að reiða fram ólýsanlegar veitingar var það Tommi sem var gestgjafinn og naut sín aldrei betur en að bjóða til veisluhalda og taka öllum opnum örmum heima hjá sér. Hann var spámaðurinn þegar kom að barneignum í fjölskyldunni svo nú er að vita hvort síðasti spádómurinn hans rætist nú í byrjun desember. Ekki síst var hann fjölskyldufað- irinn sem hélt vel utan um hópinn sinn og gladdist með þeim öllum yfir hverju skrefi sem þau tóku, bæði stórum og smáum. Það er ótæmandi brunnur að rifja upp allar góðu stundirnar sem við vorum svo lánsöm að eiga með Tomma okkar. Við erum fyrst og fremst þakklát fyrir allar þær stundir, hvort sem þær voru í ná- lægð eða fjarlægð. Við erum þakk- lát fyrir að hafa átt samleið með þessum stóra manni, með sitt stóra og gefandi hjarta, sem skipaði svo stórt hlutverk í lífi okkar. Við erum gæfufólk að hafa átt hann að. Spámaðurinn segir: „Þó þekkir eilífðin í okkur eilífð lífsins og veit að dagurinn í gær er aðeins minning dagsins í dag og morgundagurinn er draumur hans.“ Við kveðjum Tomma okkar með söknuði en vitum að það verða fagn- aðarfundir þegar við hittum hann næst á æðra tilverustigi. Matthildur og Einar Gunn- arsson (Matta og Einar). Elsku afi. Okkur langar að þakka þér fyrir skemmtilegar stundir sem við átt- um saman í Borgarfirðinum og heima í Forsölum. Það er skrítið að sjá þig ekki þegar við komum upp í Forsali, því þar var gaman að vera. Allt er svo tómlegt án þín. Þegar við fréttum að þú værir mikið veikur brá okkur mikið. Í sveitinni var nú mikið að gera. Við hugsum hlýtt til þín og munum alltaf gera, því þú ert besti afi sem til er. Það verður skrít- ið að koma í sveitina og enginn afi er. Stundin líður, tíminn tekur, toll af öllu hér, sviplegt brotthvarf söknuð vekur sorg í hjarta mér. Þó veitir yl í veröld kaldri vermir ætíð mig, að hafa þó á unga aldri eignast vin sem þig. Þú varst ljós á villuvegi, viti á minni leið, þú varst skin á dökkum degi, dagleið þín var greið. Þú barst tryggð í traustri hendi, tárin straukst af kinn. Þér ég mínar þakkir sendi, þú varst afi minn. (Hákon Aðalsteinsson) Guð blessi minningu þína. Hvíldu í friði. Kristjana Ýr og Helgi Már. Kveðja frá bræðrum Það er komið að kveðjustund, Tómas yngsti bróðir okkar lést 3 nóvember sl. Margs er að minnast og margt að þakka. Við áttum góð æskuár saman á heimili ástríkra foreldra okkar að Hofi í Hjaltadal og þar fæddist þú og ólst upp í faðmi fagurra fjalla og sterkrar samheld- innar fjölskyldu og sólin skein alla daga. En svo dró ský fyrir sólu, móðir okkar veiktist, leitað var lækninga en bati kom ekki og hún andaðist 17. desember 1941, 44 ára að aldri. Fráfall mömmu var þungt áfall fyrir okkur systkinin og föður okkar sem orðinn var ekkjumaður 33 ára gamall með fimm börn á framfæri. Það yngsta á fjórða ári og það elsta á fjórtánda ári. En þrátt fyrir erfiðleika og mótlæti, þá mun aldrei hafa hvarflað að föður okkar að gefast upp og láta börnin sín frá sér. Áfram skyldi haldið og lífið byggt upp á ný. Með trú á lífið og óbilandi dugnaði, guðs hjálp og góðra manna hélt hann áfram bú- skap að Hofi og síðar Tumabrekku með börnum sínum, var bæði hús- bóndinn og húsfreyjan á heimilinu og fórst það vel úr hendi. Nóg var að Tómas Björn Þórhallsson Elsku afi. Þú varst besti afi í heimi. Það var gaman að borða með þér hafragraut á morgnana. Það var gaman að sofa með þér og spjalla. Þú varst duglegur þegar þú varst lítill. Það var svo gaman í sveitinni að smíða. Ég mun sakna þín mikið en ég mun passa hana ömmu. Þinn Tómas Bjartur. HINSTA KVEÐJA ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MÁLFRÍÐUR HALLDÓRSDÓTTIR, Hlíðarvegi 32, Ísafirði, lést laugardaginn 8. nóvember. Útför hennar fer fram frá Ísafjarðarkirkju laugar- daginn 15. nóvember kl. 11.00. Arnór A. Stígsson, Stígur Arnórsson, Björk Helgadóttir, Svanfríður Arnórsdóttir, Elfa Dís Arnórsdóttir, Júlíus Einar Halldórsson og fjölskyldur. ✝ Elskulegur faðir okkar, GUNNLAUGUR MAGNÚSSON, Fellaskjóli, Grundarfirði, lést að morgni laugardagsins 8. nóvember. Jarðarförin verður auglýst síðar. Þuríður Jóna Gunnlaugsdóttir, Finnbogi Gunnlaugsson, Helle Nilsen, Valur N. Gunnlaugsson, Sigurbjörg Hoffrits, Jónína Gunnlaugsdóttir, Magnús Árni Gunnlaugsson, Sigríður Halldórsdóttir, Benjamín S. Gunnlaugsson, Þóra Soffía Bjarnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, KRISTJÁN PÉTURSSON, Svansvík, Súðavíkurhreppi, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði föstudaginn 7. nóvember. Jarðsett verður frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 15. nóvember kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hans er bent á Fjórðungssjúkrahúsið á Ísafirði. Heiðrún Kristjánsdóttir, Jóhanna R. Kristjánsdóttir, Pétur S. Kristjánsson, Rakel Þórisdóttir, Þorgerður H. Kristjánsdóttir, Hermann S. Gunnarsson, barnabörn og barnabarnabarn. ✝ Elskuleg eiginkona, móðir, tengdamóðir og amma, KRISTRÚN JÓHANNA PÉTURSDÓTTIR, Austurgötu 23, Keflavík, andaðist á heimili sínu sunnudaginn 9. nóvember. Jarðarförin verður auglýst síðar. Ingi Hjörleifsson, Hjörleifur Ingason, Þorbjörg Sóley Ingadóttir, Nikulás Úlfar Másson, Guðný Lára Ingadóttir, Haukur Holm, Eva Björk Úlfarsdóttir, Þóra Rún Úlfarsdóttir, Ingi Már Úlfarsson, Kristrún Úlfarsdóttir, Starri Holm. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, GUÐNÝ HÁKONARDÓTTIR, Meðalholti 19, Reykjavík, lést á heimili sínu föstudaginn 7. nóvember. Útförin fer fram frá Háteigskirkju fimmtudaginn 13. nóvember kl. 11.00. Hákon Ólafsson, Sunneva Gissurardóttir, Gísli Bragason, Elín Davíðsdóttir, Sigurbjörg Bragadóttir, Ólafur Kjartan Sigurðarson, Guðný Anna Bragadóttir, Bjarki Karlsson, barnabörn og barnabarnabarn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.