Morgunblaðið - 11.11.2008, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 11.11.2008, Blaðsíða 22
22 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 2008 Árið 1958 birtist grein í tímariti Máls og menningar eftir Halldór Kiljan Lax- ness „Sjö furður Sléttumannalands“. Þessa grein skrifaði skáldið eftir að hafa ferðast um Pólland sem honum fannst svo skrítið að ástæða væri til að upplýsa ís- lenska þjóð um furður landsins. Í þann tíð voru Íslendingar og Pól- verjar hvorir sín megin við járn- tjaldið. Þrem árum áður höfðu þjóðir austurblokkarinnar stofnað hernaðarbandalag í höfuðborg Póllands sem þeir kenndu við borgina, Varsjá. Íslendingar fundu hins vegar skjól í NATO vorið 1949. Síld og Prins Póló Um svipað leyti og skáldið fór um Sléttumannaland voru banda- menn okkar Bretar að berja á Ís- lendingum fyrir að færa landhelg- ina út í 4 og síðan 12 sjómílur. Þeir lokuðu fiskmörkuðum og sendu herskip á Íslandsmið. Ein- hverjum kann að virðast það þver- sögn að einmitt þá átu Pólverjar íslenska síld af meiri áfergju og í meira magni en nokkurn tíma fyrr. Það má svo spyrja sig hvort þessa miklu síldarneyslu megi rekja til pólitískra ástæðna frekar en svengdar og ástar bragðlauk- anna á góðri síld. Hvað sem því líður gerðu Íslend- ingar Prins Póló að þjóðarrétti sínum um líkt leyti og ekki hef- ur áfergja okkar í kexið verið minni en ást þeirra á síld frá Íslandsmiðum. Dansvíkurmjöl En leiðir Íslendinga og Pólverja hafa fyrr legið saman. Í göml- um íslenskum ann- álum frá tímum ein- okunar á 17. öld er þess getið að Íslendingum hafi þótt gott ef svo mikið hallæri varð í dönskum landbúnaði að kaupmenn gætu ekki selt landsmönnum danskan kornmat. Þegar svo áraði gat þjóðin átt von á því að fá það mjöl sem þótti best, Dansvíkurmjöl, mjöl frá Dansig sem nú heitir Gdansk. Frá þeirri borg í Póllandi sem síðar fóstraði frjóanga nýrrar Evrópu, verkalýðssamtökin Sol- idarnoch – Samstöðu. Af rómskristni Í nefndri grein minnist Halldór Kiljan Laxness á sögulega sam- stöðu þjóðanna: „báðir taka við trú frá Rómi á svipuðum tíma, semsé nær aldamótum 1000, alveg nákvæmlega á því tímabili þegar rómskristni var svo aum að eing- inn félagsskapur á jörðu hefur komist á lægra stig andlega og siðferðilega svo menn viti. Þetta var sú tíð þegar páfar og aðrir sómamenn þessa félags voru allir með hugann við það hvernig þeir gætu komið eitri hver ofaní annan á sem áhrifaríkastan hátt, – ein- mitt þá urðu bæði íslendíngar og pólínamenn svo hrifnir af stefn- unni að þeir gerðust kristnir.“ Fullveldi þjóða Þann 11. nóvember 1918 lauk einhverju skelfilegasta stríði sem sagan kann frá að greina. Að lokn- um hildarleik sammæltust menn um að réttur þjóða til sjálfs- ákvörðunar skyldi verða grunnur þeirrar Evrópu sem risi úr ösku- stó. Um það voru flestir sammála. Reyndin varð sú að þjóðir reynd- ust vera misréttháar þegar að því kom að kjósa sér örlög, – en allt um það uxu ný ríki upp af sviðinni jörð. Pólland, þetta fiðrildi Evr- ópu, sem eitt sinn var stærst ríkja álfunnar, hafði horfið í gin þriggja nágrannaríkja árið 1795. Þann 11. nóvember 1918 voru stórveldin þrjú fortíð og af rústum þeirra risu nokkur frjáls og fullvalda ríki. Eitt þeirra var Pólland. Pólland varð sjálfstætt á sjálfan friðardag- inn 11. nóvember 1918, fyrir rétt- um 90 árum. Uppá það halda Pól- verjar þennan dag og við getum samfagnað. Að þrem vikum liðnum getum við fagnað 90 ára afmælis íslensks fullveldis. Endurheimt fullveldi beggja ríkja óx með öðr- um orðum af sviðinni jörð evr- ópskra vígvalla 1918 og draumn- um um nýja Evrópu. Þótt leiðir þjóðanna hafi legið sundur og saman á liðnum öldum og þær um sinn tilheyrt hvor sinni valdablokk kaldastríðsins standa nú báðar á tímamótum. Við Ís- lendingar stöndum á rústum glæstrar framtíðar og horfum á Pólverja gera sig ferðbúna heim til Sléttumannalands. Þeir kveðja íslenska drauminn og halda til móts við Evrópu morgundagsins. Þjóðhátíðardagur Pólverja í dag Þorleifur Friðriksson » Við Íslendingar stöndum á rústum glæstrar framtíðar og horfum á Pólverja gera sig ferðbúna Þorleifur Friðriksson Höfundur er sagnfræðingur. HELGIN hófst á leiksýningu: Utan gátta eftir Sigurð Páls- son. Fjórir toppleik- arar fóru á kostum í meitluðu leikriti í frumlegri umgjörð undir stefnufastri leik- stjórn. Ég hugsaði með mér: ef þetta er ekki útrásarverkefni, þá veit ég ekki hvað er það. Daginn eftir voru hádegistón- leikar hjá Hljómeyki. Verk fjögurra íslenskra tónskálda sungin yfir svo- lítið undrandi, en jafnframt fagn- andi hausamótum í Hafnarfirði. Allt unnið af fagmennsku, ég leyfi mér að nota orðið atvinnumennsku, þó að ég gefi mér það að vinnulaun hafi verið takmörkuð og í lang- flestum tilfellum engin. Á þriðjudagskvöldið slæddist ég svo inn á bar á Klapparstígnum þar sem leikin var tónlist frá síðustu öld. Allir textar sungnir á íslensku, nema einn. Hæst bar klassík Jóns Múla og Jónasar Árnasona, Undir stórasteini. Í blöðunum birtust ádrepur rit- höfunda, fyrst frá Einari Má, svo frá Kristínu Marju, og fólkið las og sagði: Eins og talað út úr mínu hjarta! Mikið er gott að einhver skuli geta orðað svo nákvæmlega það sem mér finnst! Svipaða tilfinningu fær fólk fyrir framan verk Gylfa Gíslasonar, sem nú eru sýnd í Ásmundarsal: gam- ansöm verk með þjóðfélagslegri skírskotun. Ekki ólíkum tilgangi þjónaði allt öðruvísi sýning Libiu Castro og Ólafs Ólafssonar í Hafn- arhúsi um daginn. Áhrifin: hug- vekja, í þess orðs eiginlegu merk- ingu. Þannig halda listamenn áfram að tala til þjóðarinnar og vekja hana til umhugsunar um sjálfa sig, um mannlegt eðli og innstu rök tilver- unnar, raunar um ystu rök hennar líka. Almennt verður niðurstaðan sú að fagna þeirri áráttu lista- manna að skrá og kortleggja til- finningalíf okkar allra, sem þeir gera hver með sínum hætti, í riti, tónum, myndum, dansi, kvikmynd- um. Þessi árátta mun halda listafólki áfram að verki þó að nú harðni í ári. Jafnframt verður ekki hjá því komist að benda á þann skell sem lista- lífið verður fyrir þessa dagana, kannski fyrr og harðar en flestar aðrar starfs- greinar. Þetta kom m.a. fram á aðalfundi Listahátíðar nú um daginn. Gert er ráð fyrir að framlög úr einkageiranum dragist stórlega saman. Það hefur vitaskuld verið lista- heiminum fagnaðarefni undanfarin ár að geta notið stuðnings frá stór- fyrirtækjum í mun ríkara mæli en tíðkaðist áður fyrr. Nú eru þau stórfyrirtæki flest á hausnum, og þá standa eftir dýrmæt framlög frá ríki og bæjarfélögum. Þar er ekki alltaf um háar upphæðir að ræða, en þær skipta sköpum. Þær varða beinlínis tilveru okkar sem þjóðar. Nú megna stjórnmálaleiðtogarnir ekki lengur að blása í okkur þjóð- arstolti, og því síður sem þeir eru hærra settir. Þá kemur berlega í ljós hve mikilvæg sjálfstæð listræn tjáning er þjóðlífinu. Á öðrum um- brotatímum, nánar tiltekið á 4. ára- tug síðustu aldar, orðaði Jón Leifs þetta svo: „Menntamennirnir og listamennirnir eru landvarnarher vor Íslendinga.“ Útrás, uppáhaldsorð fjár- málajöfranna, er orðið skamm- aryrði – alls staðar nema í lista- heiminum. Þegar kemur að kynningu á landi og þjóð á erlend- um vettvangi, eru fáir betur til þess fallnir en einmitt listamenn að berja í brestina sem aðrir hafa valdið. Engir eru betri en listamenn að berja í brestina segir Ágúst Guðmundsson »Nú megna stjórn- málaleiðtogarnir ekki lengur að blása í okkur þjóðarstolti, og því síður sem þeir eru hærra settir. Ágúst Guðmundsson Höfundur er forseti Bandalags ís- lenskra listamanna. Listin og kreppan HVERNIG bregst sá við sem Agnes Bragadóttir segir að eigi að hafa vit á því að þegja? Ég fékk þessa þraut með Sunnudagsmogg- anum mínum. Þar skrifar Agnes reglu- lega prósa sem eru eins og messu- ferð; slúður í bland við siðaumvand- anir og ólíkindasögur af næstu bæjum. Að þessu sinni segir Agnes mér og Hannesi Smárasyni að þegja og skammast okkar fyrir að hafa tap- að miklu af peningum. Þetta samspil peningataps og réttlátrar þagnar er samkvæmt Agnesi bundið við tap á peningum nýjasta aðaleiganda Mogg- ans, Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, en Agnes grét sem kunnugt er af fjórum síðum Moggans með Íslands-, Norð- urlanda- og Evrópumeistaranum í tapi, fyrrverandi aðaleiganda Mogg- ans, Björgólfi Guðmundssyni. Sá tap- aði ekki aðeins fé hluthafa sinna, lán- ardrottna og sparifjáreigenda heldur líka ótilorðnum verðmætum komandi kynslóða og æru bæði núlifandi og ófæddra Íslendinga. En synd okkar Hannesar er stærri. Agnes dregur upp þá mynd af nýjum aðaleiganda sínum að þar fari drengur góður, snjall og traustur, hvers eini veikleiki er tryggð við smára; þá Gunnar Smára og Hannes Smára. Jón þessi Fáfn- isbani verður ekki særð- ur nema á þeim eina bletti líkamans þar sem þessir smárar hafa rofið vörnina. Og einmitt þar hitti kreppan Jón svo hann haltrar. Að öðrum kosti væri hann líklega valhoppandi enn. Það vona ég að Agnesi hafi dreymt þetta og að hér sé ekki komin sjálfs- mynd Jóns og skýring á erfiðleikum sínum. Jón veit vel, eins og allir nema Agnes, að hann er fullfær um að tapa peningum og þarf til þess enga hjálp frá mér, Hannesi eða nokkrum öðr- um. Það kæmi mér á óvart ef Jón væri nú farinn að þakka sér allt sem vel hefur tekist en kenna öðrum um það sem miður fór. Hann og Agnes þurfa þá að hafa hraðar hendur til að renna sakamönnum undir 450 millj- arða skuldir Landic, 400 milljarða skuldir Baugs, 350 milljarða skuldir FL, auk tuga og hundraða milljarða skulda annarra smærri fyrritækja í veldi Jóns – plús eins til tveggja þús- unda milljarða taps á hruni Glitnis. Þeir eru annars ekki margir eftir hjá gjaldþrota þjóð sem bera ekki synd taprekstrar og einhverra ráða- gerða sem misfórust. Sumt af því sem ég tók þátt í dó í litlu kreppu 2006 og annað veslaðist upp í lausafjárþurrð- inni 2007/2008. Fréttablaðið lifir þó enn og hefur nú verið sent upp á Há- degismóa að bjarga grey Mogga. Hvað hefur Mogginn tapað miklu undanfarin ár? Mér segir svo hugur að NFS, sem Agnes nefnir, hafi vart tapað meiru í heildina en Mogginn hefur tapað skilvíslega á þriggja til sex mánaða fresti undanfarin misseri. Og ef framlag Baugs til Nyhedsav- isen er reiknað á því gengi sem gilti þegar það var reitt fram, en ekki blásið upp með gasagengi síðustu daga; þá lætur nærri að það sé viðlíka og tap Moggans síðustu ár. Samt hafði Nyhedsavisen sex sinnum fleiri lesendur en Mogginn. Og flest stefndi upp hjá Nyhedsavisen á meðan allt er á niðurleið á Mogga. Hvers vegna skyldu þá þeir sem tengdust Nyheds- avisen vera glórulausir rugludallar í huga Agnesar en Moggamenn hins vegar heiðvirðir ráðdeildarmenn? Ég ætla ekki að biðjast undan ábyrgð á Nyhedsavisen. Ég ætla mér heldur ekki að þiggja einn heið- urinn af þessari ágætu tilraun. Það var ekki svo að ég væri einhver Ras- pútín sem væri að draga hreinlynda og bláeygða keisarafjölskyldu á asnaeyrunum. Nyhedsavisen var engin hugdetta; það var Fréttablað- ið sem Dagsbrún og forverar hennar höfðu áður gefið út með góðum hagnaði í fjögur ár. Allir sem komu að ákvörðunum um Nyhedsavisen þekktu dæmið því mætavel. Og öll- um var líka ljós sú staðreynd að danski markaðurinn var tuttugu sinnum stærri en sá íslenski og því bæði kostnaður og mögulegur ávinn- ingur margfaldur á við Fréttablaðið. Nyhedsavisen var raunar svo einföld hugmynd, og mér svo ótengd, að blaðið hélt áfram að koma út í átta mánuði eftir að ég hætti störfum. Fjárfestar gáfust ekki upp fyrr en fyrirséð var nú í haust að danski auglýsingamarkaðurinn myndi dragast stórlega saman og engin leið var að spá til um hvenær hann myndi ná sér aftur – eða það er alla vega sú skýring sem útgefendur gáfu. Í Silfri Egils, sem varð Agnesi til- efni til að segja mér að þegja, sagðist ég aðspurður hafa brennt mig illa á skuldsettum eignakaupum. Þau sköp- uðu skjótan hagnað þegar allt lék í lyndi en margfölduðu tap þegar á móti blés. Það varð raunin þegar við í Dagsbrún keyptum tvö fyrirtæki í sömu viku og gengið og hlutabréf féllu um páskana 2006. Ég get ekki séð að ég hafi með þessu verið að fría mig einhverri ábyrgð eða aðgreina mig frá þeim sem einmitt nú hafa tap- að miklu á skömmum tíma vegna skuldsettra kaupa. Ég skal hins veg- ar viðurkenna að ég er enn hissa á að eftir aðvörunina sem fékkst í litlu kreppu hafi stærstu íslensku fyr- irtækin flest ráðist í enn stærri og enn skuldsettari kaup (Sampo, AMR, Commerzbank, Marks & Spencer, NIBC o.fl.). Ég átta mig heldur ekki á þeirri fífldirfsku stjórnvalda að byggja aftur upp alltof hátt gengi krónunnar þó ég kannist svo sem við rót slíkrar stefnu í mörgum löndum Afríku þar sem hátt gengi skapar tímabundið almenna tilfinningu fyrir velsæld vegna ódýrs innflutnings (og í íslenska tilfellinu einnig vegna ódýrra lána). En þetta er annað mál. Spurningin var: Hvernig bregst sá við sem Agnes Bragadóttir segir að eigi að hafa vit á því að þegja? Hvernig bregst sá við sem róninn hvetur til bindindis? Ég satt að segja veit það ekki. Ætli mað- ur skrifi ekki bara grein í Moggann? Þöggun Agnesar á Mogganum Gunnar Smári Eg- ilsson svarar ósk Agnesar Braga- dóttur um að hann þegi Gunnar Smári Egilsson » Jón veit vel, eins og allir nema Agnes, að hann er fullfær um að tapa peningum og þarf til þess enga hjálp frá mér, Hannesi eða nokkrum öðrum. Höfundur er blaðamaður. Vesturröst - Laugavegi 178 - S. 551 6770 - www.vesturrost.is Verð aðeins kr. 38.900 Amerísk pumpa í hæsta gæðaflokki á hreint hlægilegu verði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.