Morgunblaðið - 11.11.2008, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 11.11.2008, Blaðsíða 40
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 2008 / ÁLFABAKKA / KRINGLUNNI HOW TO LOSE FRIENDS &... kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 12 ára HOW TO LOSE FRIENDS &... kl. 8 - 10:20 LÚXUS VIP RESCUE DAWN kl. 8 - 10:30 B.i. 16 ára FERÐIN TIL TUNGLSINS kl. 63D LEYFÐ 3D - DIGITAL HIGH SCHOOL MUSICAL 3 kl. 5:30 - 6 - 8:30 LEYFÐ EAGLE EYE kl. 8 - 10:30 B.i. 12 ára EAGLE EYE kl. 5:40 LÚXUS VIP SEX DRIVE kl. 8 - 10:20 B.i. 12 ára NIGHTS IN RODANTHE kl. 5:50 Síðasta sýning LEYFÐ FYRSTATEIKNIMYNDIN SEM ER FRAMLEIDD MEÐ ÞRÍVÍDD Í HUGA! SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI ZACH EFFRON OG VANESSA HUDGENS GERA ALLT VITLAUST Í HIGH SCHOOL MUSICAL 3! KRINGLUNNI OG AKUREYRISÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI VIPSALURINNER BARA LÚXUS ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA RESCUE DAWN kl. 5:40 - 8 - 10:30 B.i. 16 ára HOW TO LOSE FRIENDS &... kl. 8 - 10:20 B.i. 12 ára FERÐIN TIL TUNGLSINS kl. 63D LEYFÐ 3D - DIGITAL HIGH SCHOOL MUSICAL 3 kl. 5:40D - 8D LEYFÐ DIGITAL EAGLE EYE kl. 10:20D B.i. 12 ára DIGITAL JOURNEY TO THE CENTER ... Sýnd á laugardag og sunnud. LEYFÐ 3D - DIGITAL ÓTRÚLEG UPPLIFUN, SJÓN ER SÖGU RÍKARI! SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI ATH. SÝND MEÐ ÍSLEN SKUT ALI SÝND Í ÁLFABAKKA, SÝND Í ÁLFABAKKA TOPP GRÍNMYND -TOMMI, KVIKMYNDIR.IS SÝND Í KEFLAVÍK OG SELFOSSI - D.Ö.J., KVIKMYNDIR.COM -TOMMI, KVIKMYNDIR.IS- V.J.V., -TOPP5.IS/FBL -S.V., MBL- Þ.Þ., DV ÞÚ HLÝÐIR, EF ÞÚ VILT LIFA! VIPSALURINNER BARA LÚXUS ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKASÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI CHRISTIAN BALE SÝNIR AF HVERJU HANN ER FREMSTI LEIKARI Í HEIMI Í MYND SEM HLOTIÐ HEFUR LOF VÍÐSVEGAR UM HEIM. BYGGÐ Á SANNSÖGULEGUM ATBURÐUM UM ÓTRÚLEG AFREK STRÍÐSFANGA Í VÍETNAMSTRÍÐINU Allar nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir í síma 569 1105 eða kata@mbl.is. Ásamt fullt af öðru spennandi efni. Auglýsendur! Pantið fyrir klukkan 16, föstudaginn 21. nóvember. Jólablað Morgunblaðsins Stórglæsilegt sérblað tileinkað jólunum fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 28. nóvember. Meðal efnis er: • Jólafötin á alla fjölskylduna. • Hátíðarförðun litir og ráðleggingar. • Uppáhalds jólauppskriftirnar. • Hefðbundnir jólaréttir og jólamatur. • Smákökur. • Eftirréttir. • Jólakonfekt. • Laufabrauð. • Jól í útlöndum. • Gjafapakkningar. • Jólagjafir. • Kertaskreytingar. • Jólakort. • Jólabækur og jólatónlist. • Jólaundirbúningur með börnunum. Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is SUÐUR-AFRÍSKA söngkonan Miriam Makeba lést sl. sunnudagskvöld, 76 ára að aldri. Makeba söng hér á landi á veg- um Listahátíðar fyrir tveimur árum og hugðist hafa það kveðjutónleika sína, en söngurinn togaði svo sterkt í hana að hún tók að syngja að nýju og var einmitt á sviði á tónleikum þegar hún hné niður. Sungið frá barnsaldri Miriam Makeba fæddist í Jóhann- esarborg 4. mars 1932. Móðir hennar var af ættbálki Swasimanna og faðir hennar var af ættbálki Xhosa. Hún byrjaði að syngja barn að aldri og sem unglingur var hún farin að troða upp opinberlega. Hún söng með The Manhattan Brothers- söngflokknum í Suður-Afríku, sem naut gríðarlegra vinsælda, en stofnaði svo eig- in sönghóp, The Skylarks, og söng einnig í leikhúsi. Hún kom fram í heimildarmynd um að- skilnaðarstefnuna 1959 og ferðaðist til Evrópu að kynna myndina. Í Lundúnum kynntist hún söngvaranum Harry Bela- fonte og með hans hjálp náði hún að koma sér á framfæri í Bandaríkjunum og sló þar í gegn með lagið „Pata Pata“, sem margir þekkja. Svipt ríkisborgararétti Er Makeba hugðist snúa aftur heim 1960 var búið að fella úr gildi vegabréf hennar og vegna vitnisburðar hennar um hörmungar aðskilnaðarstefnunnar fyrir Sameinuðu þjóðunum 1963 sviptu suður- afrísk stjórnvöld hana ríkisborgararétt- inum. Makeba var þó ekki bara þyrnir í augum stjórnvalda í Suður-Afríku held- ur varð hún mjög umdeild fyrir sam- neyti sitt við Stokely Carmichael, leið- toga „Svörtu hlébarðanna“, baráttuhreyfingar blökkumanna í Bandaríkjunum, og svo fór að hún flutt- ist til Gíneu með Carmichael, en eftir skilnað þeirra hélt hún aðallega tón- leika í Afríku og Evrópu og var um tíma fulltrúi Gíneu við allsherjarþing SÞ. Hún fluttist svo til Brussel 1985, en sneri síðan aftur til Suður-Afríku 1990 fyrir tilstilli Nelsons Mandela. Kveðjutónleikaferð um heiminn 2005 hóf Miriam Makeba kveðju- tónleikaferð um heiminn og lauk þeirri ferð á Íslandi eins og áður er nefnt. Hún var alla tíð einlægur baráttumaður fyrir frelsi og jafnrétti og margverð- launuð fyrir starf sitt, meðal annars fyrir Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, en hún hugðist einmitt snúa sér alfarið að starfi fyrir UNICEF. Í viðtali við Morgunblaðið í maí 2006 sagðist Makeba hafa vera kölluð ýms- um nöfnum í Afríku af þeim sem vilja þakka henni fyrir stuðning hennar við íbúa álfunnar, m.a. „Mamma Afríka“ og sagði svo: „Af hverju vill einhver setja heila heimsálfu á axlir mér; hún er of þung.“ Það er svo dæmigert fyrir Miriam Makeba að hún skuli hafa látist á tón- leikum sem haldnir voru til styrktar rit- höfundinum Roberto Saviano og bar- áttu hans gegn Camorra-glæpa- samtökunum. Látin Makeba söng hér á landi á vegum Listahátíðar fyrir tveimur árum og hugðist hafa það kveðjutónleika sína. Mamma Afríka öll BRESKI grínistinn Ricky Gervais, sem best er þekktur fyrir þáttaröð- ina The Office þar sem hann lék yf- irmanninn David Brent, hefur nú fest kaup á íbúð í New York og seg- ir að sér líði mun betur þar en á heimaslóðum í Bretlandi. „Ég á heima í London, en New York er uppáhaldsborgin mín. Hún er lifandi fullnæging,“ sagði hann í samtali við New York Post. „Þetta er svo stolt borg. Yfirleitt er fólk stolt af því hvar það fæddist, en hér er fólk stolt af því að búa hér.“ Hann segir að velgengni sín síð- ustu ár hafi gert sér erfitt fyrir í Bretlandi. „Mér líður eins og ég sé eðlilegur hér, því í Ameríku er vel- gengni fagnað. Breska pressan get- ur verið illskeytt og það er ekki vel séð að einhverjum gangi betur en búist var við.“ Líður betur í New York Reuters Fluttur Gervais segist litinn horn- auga vegna velgengni sinnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.