Morgunblaðið - 11.11.2008, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 11.11.2008, Blaðsíða 13
Fréttir 13INNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 2008 SJÁLFSBJÖRG leggur áherslu á að framlengt verði frítekjumark at- vinnutekna gagnvart lífeyristrygg- ingum öryrkja, tekjutryggingu samkvæmt lögum um almanna- tryggingar, frá 1. janúar nk. þegar núverandi bráðabirgðaákvæði í lögum falla niður. Ragnar Gunnar Þórhallsson, formaður Sjálfs- bjargar, segir þetta algert lyk- ilatriði fyrir fatlaða, ekki síst nú þegar skórinn kreppi í þjóðfélag- inu. Sjálfsbjörg óskar því eftir að ríkisstjórn Íslands geri þegar breytingar á almannatrygg- ingalögum þannig að 100.000 króna frítekjumarkið gildi áfram eftir næstu áramót. Frítekjumark verði framlengt Eftir Guðrúnu Völu Elísdóttur vala@simenntun.is Akranes | Þjóðahátíð Vesturlands var haldin í Íþróttahúsinu á Jað- arsbökkum sl. laugardag. Fulltrúar frá mismunandi þjóðum kynntu lönd sín og menningu. Skagamenn og nærsveitungar fengu innsýn í hefðir og siði fólks af ólíku þjóðerni og fögnuðu þeim tækifærum sem felast í fjölmenningarsamfélaginu. Ýmsir munir og myndir voru til sýnis og þarna var m.a. hægt að smakka bigos, pierogi og Zurek súpu frá Póllandi, indverskan grænmetis- og baunarétt, ýmis sal- öt, brauð og kæfu frá Litháen og Lettlandi, úkraínska tertu, níger- ískan kjúklingarpottrétt, skoskt kex með sultu, þýska klatta og pal- estínska rétti, svo fátt eitt sé nefnt. Fjölbreytt skemmtiatriði voru á dagskránni og hófst hátíðin með söng barnakórs frá söngskóla Huldu Gestsdóttur. Pauline McCarthy, formaður Félags nýrra Íslendinga á Vesturlandi, söng kelt- nesk lög, danshópar frá Filipps- eyjum og Búlgaríu sýndu þjóð- dansa, Dalilja Sæmundsdóttir og Jónína Magnúsdóttir fluttu íslensk lög og kvennakórinn Ymur söng. Magdalena Mazur söng á pólsku, Deviĺs Train blús tríó þöndu radd- böndin og leikið var á harmónikku fyrir gesti. Palestínska flóttafólkið dansaði við arabíska tónlist og dreif gesti út á gólfið með sér. Hátíðin var í alla staði vel heppnuð og var- lega áætlað voru þar um 400-500 manns. Hátíðin var samstarfsverk- efni Rauða krossins á Akranesi og Félags nýrra Íslendinga á Vest- urlandi, og styrkt af Menningarráði Vesturlands. Að sögn Pauline McCarthy verður þjóðahátíð árviss viðburður og vonast til að þátttak- endur verði fleiri næst og frá fleiri stöðum á Vesturlandi. Morgunblaðið/Guðrún Vala Pólskar súpur á boðstólum Búðardalur | Hann heitir Julio Cesar Gutierrez, er bóndi á Háv- arðsstöðum í Svínadal og hann stóð uppi sem sigurvegari á Íslands- meistaramóti í rúningi sem fram fór á árlegum haustfagnaði í Döl- unum nýverið. Þótti Julio bera sig fagmannlega við rúninginn og varð fjöldi manns vitni að því. Dagskráin stóð í tvo daga og var hlaðin við- burðum en nú var í fyrsta skipti keppt í rúningi. Féll það í góðan jarðveg en mótið var haldið á bæn- um Skörðum í Miðdölum. Morgunblaðið/Björn Anton Einarsson Julio Cesar Íslandsmeist- ari í rúningi STARFSMENNTAVERÐLAUN Starfsmenntaráðs voru veitt á föstudag sl. og var það forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sem afhenti þau. Samskip hf. hlutu verðlaunin í flokki fyrirtækja og Fræðslusetrið Starfs- mennt hlaut verðlaunin í flokki skóla og fræðsluaðila. Starfsmenntaverðlaunin eru veitt þeim sem þykja vinna framúrskarandi starf í starfsmenntun, hvort sem um er að ræða skóla, samtök, frumkvöðla eða fyrirtæki sem sinna vel fræðslumálum starfsmanna sinna. Verðlaunin eru jafnan veitt í þremur flokkum; fyrirtæki og félagasamtök, skólar og fræðsluaðilar og opinn flokkur sem ekki var verðlaunaður í ár, og tekur til frumkvöðla og einstakra verkefna eftir því sem þurfa þykir. Fræðslusetrið Starfsmennt hlaut verðlaunin fyrir verkefnið Járnsíða sem unnið er í samstarfi við Sýslumannafélag Íslands. Járnsíða er skóli fyr- ir starfsmenn sýslumannsembætta sem miðar að því að auka skilvirkni og starfsánægju starfsmanna. Samskip hf. hlutu verðlaunin fyrir Flutningaskóla Samskipa og fjöl- breytt og metnaðarfullt fræðslustarf fyrir starfsfólk sitt. Starfsmenntaverðlaunin veitt STOFNFUNDUR Félags áhuga- manna um sögu Bessastaðaskóla var haldinn þann 4. október sl. í kjölfar vel sóttrar hátíðarsamkomu í hátíðarsal Íþróttahúss Álftaness undir yfirskriftinni „Bessastaða- skóli - vagga íslenskrar menningar; áhrif og arfur dr. Hallgríms Schev- ing.“ Markmið félagsins er að „halda sögu Bessastaðaskóla á lofti, stuðla að rannsóknum á sögu skólans og áhrifum hans á sögu og menningu,“ eins og segir í tilkynningu. Lög félagsins sem eru í 8 liðum, voru samþykkt og stjórn kosin. Stjórnina skipa Ásdís Bragadóttir, formaður, Hjalti Hugason og Þor- leifur Friðriksson. Félag um sögu Bessastaðaskóla STUTT Eftir Guðrúnu Völu Elísdóttur vala@simenntun.is Borgarnes | Opið hús var sl. sunnudag hjá Stéttarfélagi Vesturlands og veislukaffi á boðstólum. Tilefnið var kveðjuhóf fyrir Svein G. Hálfdán- arson sem látið hefur af störfum sem formaður félagsins. Hann hætti form- lega 31. maí í vor, en hefur verið við- loðandi stéttarfélagið engu að síður, við frágang og skjalavinnslu. Signý Jóhannsdóttir sem tók við starfi framkvæmdastjóra félagsins um ára- mót, þakkaði Sveini vel unnin störf og færði honum fuglabók og kíki að gjöf frá félaginu. Ástæðan er sú að Sveinn hafði haft á orði að hann þekkti lítið til fugla og langaði að þekkja þá. Hann fær líka fuglavísi og fuglaskoð- unarnámskeið að gjöf síðar. Vildi bjarga þjóðinni Sveinn lét þau orð falla að hann hefði aldrei ætlað að skipta sér af verkalýðsmálum og sagðist hafa fengið nóg af því heima í æsku en fað- ir hans kom að stéttarfélagsmálum í þrjátíu ár. Þá voru þessi mál unnin á kvöldin og um helgar og verkalýðs- forkólfar voru í öðrum störfum á dag- inn. Aðspurður sagði Sveinn að senni- lega hefði það samt verið óumflýjanlegt að hann fór að taka þátt í verkalýðsmálum. ,,Ég tók við formennsku 2001, en hafði oft áður verið kallaður í ýmsar nefndir. Ég tók þátt í sveitarstjórn- armálum og sat tvö kjörtímabil í hreppsnefnd, en ég ætlaði m.a.s. að verða þingmaður og bjarga íslensku þjóðinni, en þjóðin vildi mig ekki.“ Sveinn var í öðru sæti hjá krötum 1978. Hann segist hafa blendar tilfinn- ingar gagnvart því að hætta á þessum tímapunkti. ,,Ég hefði viljað vera í þessari baráttu áfram, því verkalýðs- félögin hafa verk að vinna, en á móti er það líka léttir. Ég var heppinn að hafa ráðið Signýju sem fram- kvæmdastjóra, hún hefur mikla reynslu og sinnir góðu starfi. En þar sem ég verð sjötugur á næsta ári er kominn tími til að draga sig í hlé, þó að ég komi til með að fylgjast með.“ Hann ætlar að lifa og leika sér, kíkja á fuglana, sinna fjölskyldunni og heimilinu betur en vill ekki láta hafa meira eftir sér þar um. Sveinn segir að ekki verði séð fyrir endann á efnahagsþrengingunum og atvinnumálum og að stéttarfélögin komi til með að gegna geysilega mik- ilvægu hlutverki á komandi tímum. ,,Hér gildir að standa vörð um þá sem minnst mega sín og verja þá með kjafti og klóm. Hafi einhverntímann verið þörf fyrir stéttarfélög þá er það núna.“ Ætlaði aldrei að skipta mér af verkalýðsmálum Morgunblaðið/Guðrún Vala Bók Nú ætlar Sveinn meðal annars að gefa sér tíma til að kynnast fuglum. Sveinn G. Hálfdánarson kvaddur um helgina eftir áralangt starf sem formaður Stéttarfélags Vesturlands Í HNOTSKURN »Stéttarfélag Vesturlandsvar stofnað 31. maí, 2006 með sameiningu þriggja félaga: Verkalýðsfélags Borgarness, Verkalýðsfélagsin Harðar og Verkalýðsfélagsins Vals. »Sveinn G. Hálfdánarsonhefur verið formaður frá árinu 2001. »Áður sat hann í ýmsumnefndum og kom að sveit- arstjórnarmálum og sóttist einnig eftir þingmennsku. MÁLÞING 2008 Æskan á óvissutímum 13. nóvember á Grand Hótel kl. 13.00-16:30 Setning: Þorsteinn Fr. Sigurðsson formaður Æskulýðsvettvangsins Ávarp menntamálaráðherra: Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur Söngur: Flytjandi KK Ísland í efnahagslegu fárviðri: Magnús Fjalar Guðmundsson, hagfræðingur hjá Seðlabanka Íslands Raunveruleiki heimilanna: Lára Björnsdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs í Félags- og tryggingamálaráðuneytinu. Kaffi Barnið í kreppunni: Hulda Sólrún Guðmundsdóttir, sálfræðingur Mikilvægi æskulýðsstarfs á óvissutímum: Þórólfur Þórlindsson, forstjóri Lýðheilsustöðvar Hvernig spegla ég ástandið?: Jóhann Þorsteinsson, svæðisfulltrúi KFUM og KFUK á Norðurlandi Fundarstjóri: Ragnheiður Ríkharðsdóttir, alþingismaður og formaður Æskulýðsráðs ríkisins Málþingið er öllum opið og er aðgangur ókeypis MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ Bandalag íslenskra skáta

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.