Morgunblaðið - 11.11.2008, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 11.11.2008, Blaðsíða 11
Fréttir 11INNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 2008 Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is FORSVARSMENN ASÍ og Sam- taka atvinnulífsins funda linnulaust þessa dagana um mögulegar aðgerð- ir sem samtök vinnumarkaðarins geti stuðlað að við endurreisn og framtíð- aruppbyggingu í atvinnu- og efna- hagslífinu. Stór hluti þeirra viðræðna snýst um endurnýjun kjarasamninga á almenna vinnumarkaðinum. Forysta ASÍ heldur á lofti að- gerðaáætlun sem samþykkt var á ársfundi sambandsins á dögunum. Þar er m.a. lögð áhersla á að stjórn- völd fylgi lánafyrirgreiðslu Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins eftir með yfirlýs- ingu um að sótt verði um aðild að ESB og upptöku evru. Einnig eru lagðar til breytingar til að auðvelda aðkomu lífeyrissjóða að endurreisn atvinnulífsins og aðgerðir til að létta greiðslubyrði heimila. ASÍ hefur kynnt þessa aðgerðaáætlun fyrir SA og er að kynna hana þingflokkum. Áður en hægt verður að leiða við- ræður í forsendunefnd um kjara- samningana til lykta þarf að liggja fyrir samkomulag í yfirstandandi við- ræðum sveitarfélaga og starfsmanna þeirra, sem ekki er hægt að láta sitja eftir, að sögn Gylfa Arnbjörnssonar, forseta ASÍ. „Við ætlumst til þess að okkar fólk sem starfar hjá sveit- arfélögunum og er sá hópur sem er hvað tekjulægstur, sitji við sama borð og aðrir.“ Þegar úr þessu verð- ur leyst telur ASÍ mikilvægt að sam- komulag náist um víðtækt, samstillt átak um aðgerðir til að endurheimta fjármálastöðugleika og endurreisa efnahagslífið. „Við erum líka tilbúin að stuðla að framlengingu kjara- samninga án þess að komi til veru- legra breytinga frá því sem er í nú- verandi samningi og taka þ.a.l. á okkur talsverða skerðingu til þess að verja atvinnustigið og skapa ró á vinnumarkaði á meðan við förum í gegnum þetta erfiðleikatímabil,“ seg- ir Gylfi. Aðgerðaáætlun ASÍ er ekki sett fram sem skilyrði af hálfu ASÍ. ,,Við ætlum ekki að stilla ríkisstjórn, atvinnurekendum eða öðrum upp við vegg,“ segir hann. Takist að mynda breiða samstöðu um sameiginlegar tillögur megi vel vera að í framtíðinni verði það kennt við nýja þjóðarsátt. „Við höfum með einum eða öðrum hætti rætt saman um mjög margt af því sem er að finna í ályktunum ASÍ frá ársfundi þess,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA. Hann segir að almennt hafi verið mjög mikill samhljómur í því sem SA og ASÍ hafa haldið á lofti að und- anförnu. ,,Við vinnum mjög þétt sam- an,“ segir hann. „Það æskilegasta væri að við næðum víðtækri sam- stöðu um þróunina á vinnumark- aðinum og þróun efnahagsmálanna.“ Vilja samstillt átak ASÍ og SA funda stíft um endurskoðun kjarasamninga og samstillta aðgerðaáætlun um endurreisn efnahagslífsins MEÐAL fjölda aðgerða í samþykkt ASÍ frá ársfundinum í seinasta mánuði, sem sambandið ræðir um við samtök atvinnurekenda og kynntar eru þing- flokkum og ríkisstjórn, er tillaga um að skapa forsendur fyrir aðkomu líf- eyrissjóða að endurreisn atvinnulífsins, þar sem hugað verði að nauðsyn- legri áhættudreifingu og -stýringu. M.a. gæti þurft að breyta ákvæðum um fjárfestingar sjóðanna, bæði í lögum og samþykktum. Fyrirtæki gæti að- halds í verðhækkunum og opinberir aðilar verði að halda gjaldskrám óbreyttum næstu misseri. Stimpilgjöld verði strax afnumin af húsnæð- islánum og heimilt verði að nýta viðbótarlífeyrissparnað til að greiða niður höfuðstól húsnæðisskulda. Barna- og vaxtabætur hækki o.fl. Fjölmargar aðgerðir á borðinu Morgunblaðið/Árni Sæberg Óvissa Hægt miðar í viðræðum sveitarfélaga og verkalýðsfélaga og er komin upp biðstaða í einhverja daga. Magn- ús Pétursson, nýskipaður ríkissáttasemjari, og Aðalsteinn Baldursson, formaður Framsýnar, ræddu málin í gær. GEIR H. Haarde forsætisráðherra hefur staðið sig vel undanfarið, að mati tæplegra 53% þjóðarinnar, en spurt var í seinnihluta október. Ríf- lega 62% voru á sömu skoðun um Björgvin G. Sigurðsson viðskipta- ráðherra og tæplega 42% töldu Þor- gerði Katrínu Gunnarsdóttur, menntamálaráðherra hafa staðið sig vel. Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, er hins vegar í sérflokki því um 71% lands- manna taldi að hún hefði staðið sig vel að undanförnu. Þetta eru niðurstöður könnunar sem Gallup gerði á tímabilinu 16. til 27. október á viðhorfi almennings til ráðherranna fjögurra. Rúmlega 30% töldu Geir hafa staðið sig illa í aðdraganda könnun- arinnar en 16,7% töldu hann hafa staðið sig hvorki vel né illa. Naum- lega 18% þátttakenda töldu Björgvin hafa staðið sig illa en tæp 20% sögðu hann hafa staðið sig hvorki vel né illa. Þorgerður Katrín stóð sig illa að mati 21% svarenda og hvorki vel né illa að mati rúmlega 37% þeirra. Loks töldu aðeins rúm 7% Jó- hönnu hafa staðið sig illa en tæp 22% sögðu hana hafa staðið sig hvorki vel né illa. Almennt var fólk ánægðara með störf ráðherranna nú en skv. mæl- ingu í september. Könnunin var gerð á netinu og í úrtaki voru 1200 manns á aldrinum 16-75 ára. Svarhlutfall var 63,1%. ben@mbl.is Flestir ánægðir með Jóhönnu Sigurðardóttur Viðhorf til fjögurra ráðherra kannað BALDUR Jónsson, vallarstjóri, lést á elli- heimilinu Grund s.l. föstudag, 92 ára að aldri. Hann var fædd- ur 3. nóvember 1916 að Setbergi við Lág- holtsveg í Reykjavík, sonur Jóns Jónssonar sjómanns og Ingveld- ar Jónsdóttur hús- freyju, sem bæði voru ættuð úr Skagafirði. Baldur stundaði versl- unarstörf eftir skóla- göngu, meðal annars hjá Birni Jónssyni og Silla og Valda. Síðan stundaði hann eigin verslunarrekstur í verslun Óla og Baldurs við Framnesveg í Reykja- vík. Árið 1950 réð Baldur sig sem vallarstjóra íþróttavallanna í Reykjavík og starfaði þar út sinn starfstíma, eða í 35 ár. Hann var vallarstjóri á gamla Melavellinum sem margir muna eftir, en hann stóð þar sem Þjóðar- bókhlaðan er núna. Þegar Laugardals- völlurinn var tekin í notkun 1958, varð Baldur jafnframt vall- arstjóri þar. Baldur starfaði um árabil á vettvangi Slysavarnafélags Ís- lands og var m.a. for- maður Björgunar- sveitarinnar Ingólfs. Hann starfaði mikið innan Sjálfstæðis- flokksins og var m.a. í stjórn Varðar. Hann var formaður sóknarnefndar Neskirkju í nokkur ár. Baldur var gallharður KR-ing- ur alla tíð. Um 1980 fór Baldur að stunda hestamennsku af krafti og átti hesta allt til ársins 2004. Kona Baldurs var Regína Bene- diktsdóttir, en hún lést árið 2004. Þau eignuðust þrjú börn, Jón Inga, Óskar og Sigrúnu. Andlát Baldur Jónsson Bændasamtökin hafa hafið bænda- fundaferð undir yfirskriftinni „Treystum á landbúnaðinn“. Fyrsti fundurinn var á Kirkjubæjar- klaustri í gær. Nánari dagskrá má finna á bondi.is. Frummælendur á bændafundum eru formaður og framkvæmda- stjóri BÍ ásamt stjórnarmönnum samtakanna. Haraldur Benedikts- son, formaður BÍ, segir að þjóð- félagsumræðan muni setja svip sinn á fundina en einnig sé markmiðið að ræða framtíðina og skiptast á skoðunum. „Bændasamtökin þurfa að eiga gott samtal við félagsmenn sína núna og því skiptir miklu máli að bændur taki þátt og leggi lið,“ segir Haraldur. „Auðvitað er margt fleira en efnahagsástandið sem þarf að ræða en yfirskriftin „Treystum á landbúnaðinn“ vísar til þess að mikilvægi starfa bænda hefur ekki í langan tíma verið jafn glöggt,“ segir Haraldur. Bændafunda- ferð hafin um landið Hlíðasmára 14 sími 588 2122 www.eltak.is Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum mesta úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Hafðu samband líðas ára 14 Sí i 588 2122 .eltak.is NICOTINELL Fæst nú hjá okkur! Nicotinell er samstarfsaðili Krabbameinsfélagsins Sérfræðingar í saltfiski 466 1016 - Útvatnaður saltfiskur án beina til suðu - Sérútv. saltfiskur án beina til steikingar - Ýsa, þorskur, gellur, kinnfiskur, rækjur - Einnig fjölbreytt úrval tilbúinna rétta www.ektafiskur.is pöntunarsími: frumkvöðlafyrirtæki ársins  - viðurkenning frá matur úr héraði - localfood Geir H. Haarde Björgvin G. Sigurðsson Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Jóhanna Sigurðardóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.