Morgunblaðið - 11.11.2008, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 11.11.2008, Blaðsíða 18
18 Daglegt líf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 2008 Ég hugsa frekar um and-legu gæðin en hin ver-aldlegu. Það er betra aðvera í starfi sem maður er ánægður en því sem gefur af sér fullt af peningum ef maður á engan veginn heima í því. Vinnan er meiri hluti lífsins og ef hún er leiðinleg þá verða lífsgæði manns minni fyr- ir vikið,“ segir Dagrún Aðalsteins- dóttir og bætir því við að sam- félagið sé mjög opið fyrir sköpunargleði unga fólksins, hvort sem það er í tónlist eða myndlist. ,,Það er mjög hvetjandi enda ótrú- lega skemmtilegir hlutir að ger- ast.“ Sjálf lauk Dagrún í haust mynd- listarsýningu sinni sem bar nafnið ,,Er það ég sem vil það?“ í Galleríi Tukt í Hinu húsinu auk þess sem hún hefur verið með gjörninga í fé- lagi við aðra, m.a. í versluninni Epal á menningarnótt. Hún er langt frá því að vera búin að finna sitt list- form. ,,Þetta var fjórða sýningin mín í Galleríi Tukt og önnur einkasýningin. Titillinn á sýningunni var í rauninni útúrsnúningur á texta sem ég las í bók eftir Simone de Beauvoir. Bókin fjallar um tilvistarkreppu hjá kvenmanni og ég fann mig og það sem ég var að hugsa á þessu tíma- bili að mörgu leyti í henni. Sýningin gekk dálítið út á hvers væri ætlast til af mér sem einstaklingi og þá sem kvenmanni. Mig langaði að fara út fyrir rammann sem okkur er svo oft gefinn og ætlað að fylgja og sýna lífsferlið.“ Manneskjan og náttúran Dagrún fékk konu til þess að sitja nakta fyrir úti í náttúrunni og sýndi hana þar fæðast, fæða sjálf og fjölga þannig mannkyninu og sýndi hana svo spegla sjálfa sig í nátt- úrunni og loks deyja. ,,Ég vildi vekja athygli á þessi ferli sem flest- um finnst svo sjálfsagt og velta því fyrir mér og velta upp spurningum eins og hver er ég? Hvers ætlast samfélagið af mér? Hvert er dýrið í mér og hvar er siðlega skepnan og hvar læri ég um hana, hvaðan kem- ur pressan? Stóra spurningin var sem sagt hvað er það sem ég vil bara út frá sjálfri mér.“ – Og komstu að einhverri nið- urstöðu? ,,Nei, ekki endanlega,“ segir hún og brosir. ,,Nema ef til vill að mað- ur eigi að fylgja eigin sannfæringu í lífinu. Það er alltaf ákveðinn fé- lagsleg pressa í gangi, að ganga í hjónaband, eignast börn og svo framvegis, sama frá hvernig að- stæðum maður kemur frá eða hugs- unarhætti. Það á að steypa flesta í sama mótið. Mig lang- aði að velta fyrir mér hvað ég vildi gera við mitt líf í stað þess að fljóta í einhverju formi sem er því sem næst gefið.“ – Þú hefur verið óhrædd að nota nakinn kvenlíkama í verkunum þínum? ,,Já, og ég vildi endilega sýna nekt í öðru ljósi en þetta klám sem alltaf er í andlitinu á okkur. Það er manneskjan og náttúran sem flétt- ast þarna saman, í sína tærasta formi. Í rauninni fjalla verkin ekki um kvenlíkamann heldur sköp- unarferlið, hið náttúrulega form sem við fæðumst í, lifum í og kveðj- um og rotnum jafnframt í, rétt eins og náttúran.“ – Finnst þér að listin eigi að end- urspegla samfélagið? ,,Ég held að það sé sama hvaða listform um er að ræða, lista- maðurinn er alltaf að segja eitt- hvað, jafnvel ekki neitt. Það er tján- ing.“ Aðspurð hvort náttúruvernd- arumræðan hafi haft áhrif á þessa tilteknu sýningu segir hún svo vel geta verið en einnig ferðalög um Ís- land frá barnæsku. ,,Íslensk náttúra er mögnuð. En það er rétt að verkin mín fjalla oft um manneskjuna í samfélaginu eða samspil manneskju og samfélags.“ Listaverkið Nakin kona úti í náttúrunni fæðist, fæðir sjálf og deyr loks. Morgunblaðið/Valdís Thor Listamaður „Mig langaði að fara út fyrir rammann sem okkur er svo oft gefinn,“ segir Dagrún Aðalsteinsdóttir. Er það ég sem vil það? Dagrún Aðalsteinsdóttir finnur fyrir bjartsýni hjá ungu fólki og þrátt fyrir að ver- aldlegur auður sé oft ekki hlutskipti listamanna stefnir hún ekki annað. Hin 19 ára listakona sagði Unni H. Jóhannsdóttur frá glímunni við sjálfa sig og listina. „Vildi sýna nekt í öðru ljósi en þessu klámi sem alltaf er í andlit- inu á okkur“ Virðing Réttlæti VR boðar til almenns félagsfundar á Grand hóteli, fimmtudaginn 13. nóvember kl. 19:30. Á fundinum mun Gunnar Páll Pálsson, formaður VR, gera grein fyrir störfum sínum í stjórn Kaupþings og í kjölfarið verður opnað fyrir umræður. Einnig verður haldinn fjarfundur með VR félögum á Austurlandi og í Vestmannaeyjum miðvikudaginn 12. nóvember. Fundurinn hefst á skrifstofum félaganna í Vestmannaeyjum og á Egilsstöðum kl. 20:00. Fundirnir eru eingöngu opnir félagsmönnum VR sem eru allir hvattir til að mæta. Félagsfundur F í t o n / S Í A VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.