Morgunblaðið - 11.11.2008, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 11.11.2008, Blaðsíða 10
10 Fréttir MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 2008 Það er ástæðulaust að gera lítiðúr kröfu fólks um breytingar á pólitískri stjórn landsins. Mikil reiði er að grafa um sig og gremja út í ástand efnahagsmála á Íslandi.     Hins vegar má spyrja hverju þaðmyndi skila að halda kosningar sem fyrst eins og afmarkaður hópur mótmælenda á Austurvelli fór fram á á laugardaginn. Steingrímur J. Sigfússon, for- maður Vinstri grænna, tók svo undir kröfuna á Alþingi í gær.     Núverandi rík-isstjórn mun að sjálfsögðu axla ábyrgð á gjörðum sínum síðustu vikur og mánuði. En yrðum við eitthvað bet- ur stödd ef stjórnmálamenn legðu nú niður störf og hæfu kosninga- baráttu? Er ekki frekar þörf á að menn og konur einbeiti sér að því að leysa þau verkefni sem við blasa?     Kosningabarátta myndi hafa í förmeð sér tilgangslaust karp um það sem hefur gerst þegar mest liggur við að bjarga heimilum í landinu. Enn er beðið eftir nið- urstöðu í mörgum málum. Það gefst nægur tími til að líta aftur og finna sökudólga þegar fram í sækir. Nú þarf að stuðla að sameiningu frekar en sundrungu.     Auðvitað eru það stuðningsmennvinstri flokkanna sem helst vilja kosningar strax. Það er vinstri sveifla í landinu vegna brotlend- ingar efnahagslífsins.     En sópa nýir vinstri vendir best?Eru Steingrímur J. Sigfússon, Guðni Ágústsson og Guðjón A. Kristjánsson líklegri til að leysa úr flókinni stöðu? Er krafan um kosn- ingar ekki frekar byggð á flokks- pólitískum hagsmunum en al- mannahagsmunum? Steingrímur J. Sigfússon Flokkspólitískir hagsmunir                      ! " #$    %&'  (  )                     *(!  + ,- .  & / 0    + -                      12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (         !!"  !! #""  !$  !$       !! :  3'45 ;4 ;*<5= >? *@./?<5= >? ,5A0@ ).? % & %    %   %   %  &%  &% &%  %                                *$BC                    !        "     # " $ %    &     ' *! $$ B *! '( ) ( $ * +* <2 <! <2 <! <2 '$) ! , !" -. *!/  ! -                  <7  ( &   &  )         *     # $    <   # +,  ,  " -     '   *  .,       +      ' / * -&&   )    , &    ( ,  $  -    )    +!   -  00)     &  0# *11 ! *2* *, !" Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ HALLDÓR STAKSTEINAR VEÐUR Eftir Ómar Garðarsson SÍLDVEIÐAR hafa gengið vel og hafa rúm 6000 tonn borist til Eyja það sem af vertíðinni. Mikil vinna fylgir síld- inni og þegar best geng- ur er unnið á vöktum í báðum frystihúsunum í Eyjum. Ísfélagið var búið að taka á móti um 3000 tonnum og var Júpíter ÞH á miðunum í Breiða- firði þar sem síldin hefur haldið sig eins og und- anfarin haust. „Þetta hefur gengið mjög vel hjá okkur og í síðustu viku var unnið tólf tíma á sólarhring. Síldin er góð og fer öll til manneldis. Júpíter hefur séð um veiðarnar fram að þessu en eftir helgi bætist Álsey við,“ sagði Eyþór Harðarson, útgerðarstjóri Ísfélagsins. Kap VE landaði 650 tonnum hjá Vinnslustöðinni á sunnudag og Sig- hvatur Bjarnason VE var með sama skammt. „Síldin er mjög góð og fer allt í vinnslu hjá okkur. Þessir tveir sjá um veiðarnar fyrir okkur og með aflanum sem Sighvatur var með erum við búin að taka á móti um 2400 tonnum á vertíðinni,“ sagði Stefán Friðriksson, aðstoðarframkvæmda- stjóri Vinnslustöðvarinnar í samtali við Morgunblaðið. Vinnsluskipið Huginn VE er búið að landa einu sinni, um 1000 tonnum, þannig að heildarafli Eyjaskipa er um 6400 tonn en samanlagður síld- arkvóti Eyjamanna er á bilinu 35 til 40 þúsund tonn. Í síld Kolbrún Stefánsdóttir á fullu í Vinnslu- stöðinni þar sem unnið er allan sólarhringinn. Ljósmynd/Sigurgeir Jónasson Unnið á vöktum í Vestmannaeyjum ALLS voru flutt út 51.658 tonn af óunnum botn- fiski á erlenda ísfisksmarkaði á tímabilinu janúar - október 2008 sem er 16,7% meira magn en flutt var út á sama tíma 2007, samkvæmt upplýsingum Fiskistofu. Meiri útflutningur ýsu vegur þar þyngst og virðist drjúgum hluta af aukningu ýsuaflans milli ára hafa verið ráðstafað á þennan hátt. Alls voru flutt út 21.540 tonn af ýsu miðað við 15.923 tonn fyrstu 10 mánuði ársins 2007. Útflutningur á þorski nam 5.459 tonnum, sem er svipað og í fyrra. Verðmæti útflutningsins jókst um tæplega helming. Lækkun á gengi íslensku krónunnar veg- ur þyngst í 28% verðhækkun útflutts ískfisks milli ára. „Þegar kannaður er ísfisksútflutningur í ný- liðnum október og hann borinn saman við útflutn- inginn í sama mánuði í fyrra þá vekur athygli að magnið óx ekki verulega. Að vísu jókst útflutt magn úr 4.339 tonnum í 4.700 tonn sem er í takt við aukningu heildarútflutningsins milli ára. Sú aukning staðfestir hinsvegar ekki orðróm um stór- aukinn ísfisksútflutning í október vegna liðugra streymis gjaldeyris milli landa í slíkum viðskiptum en í öðrum viðskiptum með íslenska útflutnings- framleiðslu. En eins og kunnugt er hafa verið miklir erfiðleikar í greiðslumiðlun milli Íslands og annarra landa í kjölfar hruns íslensku bankanna,“ segir á vef Fiskistofu. sisi@mbl.is Aukinn ýsuafli fluttur út óunninn Í HNOTSKURN »Verðmæti ísfisksútflutningsins tvöfald-aðist milli ára í október eða úr 894 millj- ónum króna í október 2007 í 1.941 milljón króna í nýliðnum október. » Stafar sú aukning að sjálfsögðu aðmestu af gengishruni krónunnar, sam- kvæmt upplýsingum Fiskistofu. Meðalverð fyrir þorsk var 403 krónur kílóið og með- alverð fyrir ýsu 231 króna kílóið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.