Morgunblaðið - 11.11.2008, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 11.11.2008, Blaðsíða 8
8 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 2008 Eftir Magnús Halldórsson magnush@mbl.is STÆRSTU orkufyrirtæki landsins, Landsvirkjun, Orkuveita Reykjavík- ur og Hitaveita Suðurnesja, glíma öll við fjármögnunarvanda vegna erf- iðra aðstæðna á fjármálamörkuðum hér á landi sem og erlendis. Áætlanir um framkvæmdir, stórar sem smáar, sem áætlaðar eru á næsta ári, eru í uppnámi vegna erf- iðleika við að útvega lán erlendis. Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins hefur verið leitað til yfir þrjátíu fjármálastofnana með lána- möguleika í huga en jákvæð svör um lán vegna framkvæmda hafa ekki borist. Ekki er búist við því að mögu- leikar fyrir lán muni opnast á næstu mánuðum, nema að trúverðugleiki ís- lenskra fjármálastofnana, og í raun íslensks efnahags í heild, taki snögg- um breytingum til hins betra. Ekki er búist við því að svo verði. Daglegur rekstur traustur Þrátt fyrir að lokað sé fyrir lán í augnablikinu, sem setur áætlanir um framkvæmdir í uppnám, þá er und- irliggjandi daglegur rekstur traust- ur. Mikil veiking krónunnar það sem af er ári, samtals um nærri hundrað prósent, hefur komið illa við skulda- hlið orkufyrirtækjanna, sérstaklega þeirra sem hafa ekki stærstan hluta tekna sinna í erlendri mynt. Und- anfarna þrjá mánuði hefur krónan veikst um rúmlega 30 prósent, og hefur skuldastaða orkufyrirtækj- anna versnað mikið samhliða því, þar sem lánasöfn þeirra eru öll í erlendri mynt. Skuldir Orkuveitu Reykjavík- ur hafa hækkað um rúmlega 40 millj- arða á þremur mánuðum. Lands- virkjun stendur þar best að vígi þar sem efnahagsreikningur fyrirtæk- isins er í dollurum. Þannig minnka áhrifin af miklum sveiflum á gengi krónunnar. Hitaveita Suðurnesja glímir fyrst og fremst við auknar skuldir og erf- iðleika við fjármögnun á fyrirhug- uðum framkvæmdum. Skuldir fyr- irtækisins hafa hækkað úr 12 milljörðum í 24 vegna veikingar krónunnar á árinu, auk þess sem fyr- irtækið hefur tekið tvo milljarða að láni til viðbótar. Á móti hafa tekjur fyrirtækisins hækkað og er daglegur rekstur þess í góðu horfi, eins og áð- ur sagði. Fulltrúar fyrirtækjanna þriggja voru kallaðir á fund iðnaðarnefndar Alþingis í síðustu viku þar sem fulltrúar í nefndinni spurðu forsvars- menn fyrirtækjanna út í stöðu þeirra, meðal annars hvort mögulegt væri fyrir þau að ráðast í virkj- anaframkvæmdir á næstu misserum. Nánasta framtíð hjá orkufyr- irtækjunum er því nokkuð óljós vegna beinna og óbeinna áhrifa af erfiðleikum á fjármálamörkuðum. Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@mbl.is ÁLAG á bankastarfsmenn hefur aukist gríðarlega að undanförnu. Viðskiptavinir bankanna eru sumir reiðir og áhyggjufullir og reiðin bitnar stundum á almennum bankastarfsmönnum, að því er Kristjana Emma Kristjánsdóttir, þjónusturáðgjafi og sölustjóri í útibúi Kaupþings í Kringlunni, seg- ir. Reyna að róa fólk „Fólk spyr hvað hæft sé í hinum og þessum sögusögnum og telur að við fáum upplýsingar beint frá yf- irvöldum um fyrirhugaðar aðgerðir en við fáum þær ekki á undan öðr- um. Við höfum reynt að róa fólk í samráði við okkar yfirmenn og svörum eftir bestu getu. Hafi mað- ur ekki svör á reiðum höndum kemur það fyrir að sumir æsa sig um of. Það fyrsta sem maður reyn- ir er auðvitað að koma til móts við fólk,“ segir Kristjana. Hún segir fyrirspurnir og beiðnir fyrst og fremst snúast um lán. „Fólk vill auðvitað upplýsingar um stöðu lána sinna.“ Rólegt fyrst eftir hrunið Það kom Kristjönu eiginlega á óvart hversu rólegt var í fyrstu eft- ir hrun Kaupþings. „Það var eins og fólk áttaði sig ekki strax á því hvað var að gerast þótt aðrir bank- ar hefðu farið á undan. Síðan kom reiðin og skilningsleysið sem hefur magnast eftir því sem tilkynningum hefur fjölgað. Fólk varð verulega reitt þegar tilkynnt var um fryst- ingu sjóða og eins þegar það gat ekki tekið eins mikið fé út úr bank- anum og það vildi.“ Að sögn Kristjönu hjálpaði hlý- legt viðmót fastra viðskiptavina þegar skellurinn kom. „Við- skiptavinir sem við höfum verið í nánum samskiptum við hafa hringt og spurt hvernig maður hafi það. Þetta hefur hjálpað okkur mikið.“ Fjölmörg dæmi um leiðindi Friðbert Traustason, formaður og framkvæmdastjóri Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja, hefur heyrt af fjölmörgum dæmum um leiðindi í garð bankastarfs- manna. „Því miður er talsvert um að ráðist sé með fúkyrðum að al- mennum starfsmönnum sem enga ábyrgð bera á því hvernig komið er fyrir þjóðinni. Þeir fá til dæmis leiðindaathugasemdir um að þeir hafi fengið sín lán felld niður og eru þá um leið spurðir með leið- indatón hvort þeir geti ekki fellt niður lán viðskiptavinarins.“ Margir starfsmenn hafa þurft að leita sér hjálpar vegna áfallanna í fjármálafyrirtækjunum, að því er Friðbert greinir frá. Reiðin bitnar á bankastarfsmönnum Morgunblaðið/Árni Sæberg Reynir að róa Kristjana Emma Kristjánsdóttir segir reiðina hafa magnast.  Reiðir og áhyggjufullir viðskiptavinir ráðast með fúkyrðum á bankastarfsmenn  Viðskiptavinir æsa sig hafi starfsmenn ekki svör á reiðum höndum  Bankastarfsmenn leita sér hjálpar Eftir Sigtrygg Sigtryggsson sisi@mbl.is FRAMTÍÐARSÝN, útgáfufélag Við- skiptablaðsins, óskaði í gærmorgun eftir greiðslustöðvun. Jafnframt var öllu starfsfólki fyrirtækisins, rúm- lega 40 manns, sagt upp störfum. Viðskiptablaðið hefur komið út fjóra daga vikunnar en framvegis mun það koma út einu sinni í viku. Fréttavefur blaðsins, vb.is, verður áfram starfræktur. Af rúmlega 40 starfsmönnum Framtíðarsýnar, eru um 20 félagar í Blaðamannafélagi Íslands. Hjálmar Jónsson, framkvæmdastjóri félags- ins, segir að þessar uppsagnir séu enn einn skellurinn fyrir íslenska blaðamenn. Bætast þær við uppsagn- ir fyrr á árinu hjá Árvakri, útgáfu- félagi Morgunblaðsins og 24 stunda, Fréttablaðinu og Stöð 2. Að sögn Hjálmars lætur nærri að 70 félagar í Blaðamannafélagi Íslands hafi fengið uppsagnarbréf á þessu ári. Virkir fé- lagar í Blaðamannafélagi Íslands eru um 400 talsins. Sendi stjórn fjölmiðla bréf Stjórn Blaðamannafélags Íslands hefur gripið til þess ráðs að senda stjórnendum fjölmiðla sérstakt bréf vegna þess alvarlega ástands sem komið er upp á fjölmiðlum og lýsir sér m.a. í fjöldauppsögnum blaða- manna. Í bréfi stjórnar BÍ er m.a. mælst til þess að hagrætt sé í yfir- stjórn og meðal þeirra starfsmanna sem hæst hafa launin áður en ráðist er í uppsagnir almennra blaðamanna. Þá minnir félagið á ýmis samnings- bundin réttindi sem ástæða er talin til að árétta. Haraldur Flosi Tryggvason, fram- kvæmdastjóri Viðskiptablaðsins, sagði í samtali við mbl.is í gærmorg- un, að allt starfsfólk blaðsins hefði verið sent heim í gær nema þeir sem vinna við vef blaðsins en stefnt væri að fundi með starfsmönnum í hádeg- inu í dag. Haraldur Flosi segir að Viðskipta- blaðið muni næst koma út á föstudag og aðrir útgáfudagar verði felldir nið- ur. Ekki liggur ljóst fyrir hver fram- tíð Fiskifrétta verður en blaðið fylgir Viðskiptablaðinu einu sinni í viku. Segir Haraldur Flosi eðlilegt að áherslur muni breytast í föstudags- blaðinu í kjölfar breytinga yfir í viku- blað. Hann segir ekki ljóst hve marg- ir verði endurráðnir til blaðsins en ljóst megi vera að verulegur hluti starfsmannahópsins verði ekki end- urráðinn. Haraldur Flosi segir að sá tími sem fyrirtækið verði í greiðslustöðv- un verði nýttur til þess að endur- skipuleggja alla starfsemi Framtíð- arsýnar, en félagið er í eigu Exista. Að sögn Haraldar Flosa eru áskrif- endur Viðskiptablaðsins á milli fjög- ur og fimm þúsund talsins en fjöldi seldra blaða hafi mest farið í sjö þús- und eintök með lausasölu. Um 70 félagar BÍ hafa fengið uppsagnarbréf Viðskiptablaðinu breytt í vikublað Morgunblaðið/Árni Sæberg Í HNOTSKURN »Um 20 félagar í Blaða-mannafélagi Íslands starfa hjá Framtíðarsýn. Óljóst er hve margir þeirra verða ráðn- ir áfram. »Árvakur hefur sagt uppum 35 félögum BÍ í ár, m.a. í kjölfar þess að útgáfu frí- blaðsins 24 stunda var hætt. »Um 10 félagar í BÍ misstuvinnuna í október vegna uppsagna á Fréttablaðinu og fréttastofu Stöðvar 2. Á fundi iðnaðarnefndar Alþingis með forsvarsmönnum orkufyrirtækjanna voru bornar upp spurningar um skuldastöðu fyrirtækjanna. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins var Hjörleifur Kvaran forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur (OR) spurður út í skuldastöðu fyrirtækisins, og svaraði hann því til að það væri ekki gott að segja hvernig skuldastaðan væri í dag en hann hefði hins vegar vitað hvernig hún hefði verið í gær. Gríðarlega hröð veiking krónunnar hefur aukið skuldir orkufyrirtækjanna, sem eru með öll sín lán í erlendri mynt, um hundruð milljóna á degi hverjum undanfarna mánuði. Eins og greint var frá í Morgunblaðinu í síðustu viku hafa skuldir OR aukist um 440 milljónir á dag undanfarna þrjá til fjóra mánuði. Sam- kvæmt upplýsingum frá Samorku, samtökum orku- og veitufyrirtækja, gætir mikillar óvissu um virkjanaáform næstu misserin en vonir standa þó til þess að hægt verði að ráðast í þau, þó síðar verði. Óljós staða frá degi til dags Morgunblaðið/RAX Rýkur úr Stækkun Hellisheiðarvirkjunar er meðal þeirra framkvæmda sem nú ríkir óvissa um vegna lánavanda. Áformin í hættu  Áform um virkjanaframkvæmdir eru í uppnámi  Erfiðleikar á lánamörkuðum setja áætlanir úr skorðum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.