Morgunblaðið - 11.11.2008, Page 14
14 FréttirALÞINGI
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 2008
HAUST-
RÁÐSTEFNA
FÉLAGS LÖGGILTRA ENDURSKOÐENDA
Skráning kl. 8:15
Setning - Margret G. Flóvenz, formaður FLE
Ávarp - Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra
Kauphöll á umbrotatímum
Þórður Friðjónsson, forstjóri NASDAQ OMX á Íslandi
Skyldur skráðra félaga til upplýsingagjafa
Kristín Rafnar, forstöðumaður skráningarsviðs NASDAQ OMX á Íslandi
Stóra bóla
Gylfi Zoëga, Prófessor við Háskóla Íslands
Upplýsingar í ársreikningum félaga á markaði
og gagnsemi þeirra fyrir greiningaraðila
Edda Rós Karlsdóttir, hagfræðingur
Staða og framtíðarhorfur á íslenskum hlutabréfamarkaði
Ásgeir Jónsson, forstöðumaður greiningardeildar Nýja Kaupþings banka
Reikningsskil skráðra félaga á Íslandi
Stefán Svavarsson, aðalendurskoðandi hjá Seðlabanka Íslands
Hádegisverður - Setrið og Hvammur
Endurreisn hlutabréfamarkaðar – Aftur til fortíðar
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, forstjóri Saga Capital
Eftirlit með ársreikningum fyrirtækja á markaði
Geir Geirsson, endurskoðandi hjá Ársreikningaskrá RSK
Sjónarmið hins almenna fjárfesta
Vilhjálmur Bjarnason, framkvæmdastjóri Samtaka fjárfesta
Ráðstefnuslit kl. 14:30
Hlutabréfamarkaðurinn
– hrun & endurreisn
FÖSTUDAGINN 14. NÓVEMBER, GRAND HÓTEL REYKJAVÍK
Eftir Höllu Gunnarsdóttur
halla@mbl.is
ENGIN áform eru uppi um að flýta kosningum að svo
stöddu, að því er fram kom í svari Geirs H. Haarde, for-
sætisráðherra, við fyrirspurn Steimgríms J. Sigfússon-
ar, formanns Vinstri grænna, á Alþingi í gær.
Steingrímur sagði lýðræði vera úrræðið til að leysa úr
aðstæðum eins og nú eru hér á landi og spurði hvort ekki
væri kominn tími á fyrirheit til þjóðarinnar um að boðað
verði til kosninga um leið og aðstæður leyfa. Gagnrýndi
Steingrímur stjórnvöld einnig fyrir að standa ekki nógu
vel að upplýsingagjöf til almennings. Hver einasti dagur
í óvissu væri ákaflega dýrkeyptur. „Við finnum öll reiði-
og óánægjuöldurnar rísa æ hærra í þjóðfélaginu,“ sagði
Steingrímur og bætti við að þær væru skiljanlegar.
Geir sagði sér þykja miður ef það væri almenn tilfinn-
ing að pottur væri brotinn varðandi upplýsingagjöf. „Við
munum gera hvað við getum til að bæta þar úr,“ sagði
Geir og vakti m.a. athygli á sérstöku símaveri sem veitir
upplýsingar og að bæði ráðuneytin og stofnanir ríkisins
gerðu sitt besta til að liðsinna hverjum og einum.
Kosningum ekki flýtt
Morgunblaðið/Golli
Upplýsing Í máli forsætisráðherra kom fram að það væri miður ef fólki fyndist upplýsingagjöf ekki nógu góð.
Steingrímur J. Sigfússon vill fyrirheit um að
boðað verði til kosninga um leið og aðstæður leyfa
ÖSSUR Skarphéðinsson, iðn-
aðarráðherra, velti því upp á Al-
þingi í gær hvort Rio Tinto Alcan
gæti komið að fjármögnun á Búð-
arhálsvirkjun en Landsvirkjun hef-
ur frestað opnun tilboða vegna
virkjunarinnar.
Rósa Guðbjartsdóttir, þingmað-
ur Sjálfstæðisflokks, spurði ráð-
herrann hvort frestunin myndi
hafa áhrif á fyrirhugaðar fram-
kvæmdir við álverið í Straumsvík
og sagðist Össur telja það líklegt.
Erfitt væri fyrir íslensk fyrirtæki,
þ.m.t. Landsvirkjun, að fá fjár-
magn til verkefna um þessar
mundir. Landsvirkjun hefði hins
vegar þegar boðið tilboðsaðilum að
skoða hvort þeir gætu lagt hönd á
plóginn varðandi fjármögnun.
Í máli Össurar kom einnig fram
að sú hugmynd að álverið kæmi að
fjármögnun hefði á „óvæntum stöð-
um fallið í grýttan jarðveg“. Hann
vildi ekki útskýra það nánar þegar
Morgunblaðið falaðist eftir því.
halla@mbl.is
Álverið borgi
virkjunina
FJÁRMÁLARÁÐHERRA hefur
ekki heimild til að gefa út tilskipun
um að fresta eigi öllum útgjöldum
ráðuneyta þar til ný áætlun um rík-
isfjármálin liggur fyrir, að mati
Jóns Bjarnasonar, þingmanns
Vinstri grænna. Jón sagði á Alþingi
í gær að vegna fyrirmæla fjármála-
ráðuneytisins hefði Vegagerðin
frestað framkvæmdum sem kveðið
er á um í fjárlögum þessa árs. Al-
þingi eigi að taka slíkar ákvarð-
anir, en ekki ráðherra. halla@mbl.is
Þyrfti sam-
þykki Alþingis
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
EF ökumaður hefur fengið svo
marga punkta að svipta má hann
ökuleyfi skiptir það lögregluna á
Selfossi ekki máli hvort hann sé
staðfestur eða óstaðfestur í ökufer-
ilsskrá. Neiti ökumaðurinn að fall-
ast á sektargerð og ökuleyfissvipt-
ingu í þrjá mánuði er hann ákærður
án tafar og sviptur réttindum með
dómi.
Ökumenn sem fá tólf punkta í
ökuferilsskrá skal svipta ökuleyfi.
Mörkin eru sjö punktar fyrir þá
sem eru með bráðabirgðaskírteini.
Punktar eru skráðir í málaskrá
lögreglu um leið og brotið er framið
en þar sem punktar eru ekki skráð-
ir í ökuferilsskrána fyrr en þeir
hafa verið staðfestir getur ökumað-
ur, t.d. ef hann neitar alfarið sök og
neitar að greiða sektir, haldið öku-
réttindum sínum þótt hann hafi
unnið sér inn fleiri en 12 punkta.
Þetta kom fram í viðtölum við yf-
irmann hjá ríkislögreglustjóra og
lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu
sem sagt var frá í Morgunblaðinu á
laugardag.
Gunnar Örn Jónsson, fulltrúi lög-
reglustjórans á Selfossi bendir á að
málaskrá lögreglu sé færð á lands-
vísu. Þannig geti sá aðili sem hefur
mál til meðferðar strax séð hvaða
mál ökumaður á óafgreidd, í hvaða
ferli þau eru stödd og hjá hvaða
starfsmanni viðkomandi embættis.
Tefur ekki afgreiðslu
Hjá embættinu á Selfossi sé
vinnulagið þannig að þegar ökumað-
ur fær sinn tólfta punkt (sjöunda ef
hann er með bráðabirgðaskírteini)
er þeim málum safnað saman þar
sem punktar eru óstaðfestir og ým-
ist ákært vegna þeirra brota eða að
viðkomandi gengst undir sektar-
gerð vegna þeirra og sviptingu öku-
réttar í þrjá mánuði. Sé mál afgreitt
með ákæru hafi málsmeðferðin fyrir
Héraðsdómi Suðurlands tekið um
það bil einn mánuð og hingað til
hafi öllum málum lyktað þannig að
ökumaðurinn var sviptur ökurétt-
indum með dómi. „Þetta hefur ekki
tafið afgreiðslu mála hér og reynst
afar skilvirkt,“ segir Gunnar Örn.
Gunnar Örn segir að hjá embætt-
inu hafi verið unnið að því að ein-
falda afgreiðslu mála, m.a. með því
að í stað þess að menn séu boðaðir
til fulltrúa lögreglustjóra til að
gangast undir sektargerðir hafi lög-
reglu verið falið að birta þær. Tak-
ist ekki að birta sektargerðirnar sé
ákært án tafar.
Þetta auki skilvirkni því lögregla
fer þá og gefur mönnum kost á að
gangast undir sektargerðina ef
menn mæta ekki á umsömdum tíma
til að taka við henni. Synji menn því
að ljúka máli með sektargerð er
ákært í málinu. „Mér finnst þetta
ekki vera neitt vandamál,“ segir
Gunnar Örn. Embættið hafi lagt
upp úr því að ljúka málum hratt og
örugglega því þannig hafi löggæsla
mestu fyrirbyggjandi áhrifin.
Ákærðir án tafar
og sviptir með dómi
Punktunum safnað
saman í eitt mál
Morgunblaðið/Júlíus
Punktar Fékk þessi punkt?
Já við þorskeldi
Samhljómur var um það í utan-
dagskrárumræðum á Alþingi í gær
að efla ætti þorskeldi hér á landi.
Málshefjandinn, Karl V. Matthías-
son, taldi að vel mætti framleiða
þorsk í því magni sem samsvarar afla
nokkurra skuttogara.
Einar K. Guðfinns-
son sjávarútvegs-
ráðherra sagði
um áhættusamt
en mikilvægt
langtímaverkefni
að ræða og taldi
hann raunhæft að
byggja mætti upp
20 þúsund tonna
lífmassa fyrir árið
2015.
Hjálparhendur
Valgerður Sverrisdóttir, Framsókn,
hefur lagt fram fyrirspurn til forsætis-
ráðherra um hversu marga aðstoð-
armenn ráðherrar mega ráða til sín.
Einnig spyr Valgerður hversu margir
aðstoðarmenn séu starfandi í dag og
hversu margir tímabundnir starfs-
menn séu í ráðuneytum.
Skapar meira ósætti
Sjávarútvegsráðherra mælti í gær
fyrir frumvarpi sem felur í sér að
geymsluréttur aflamarks í botnfiski
verði 33% í stað 20%. Frjálslyndi
flokkurinn og VG eru mótfallin frum-
varpinu, m.a. á þeim forsendum að
það búi til enn meira ósætti um fisk-
veiðistjórnunarkerfið.
Dagskrá þingsins
Þingfundur hefst kl. 13:30 í dag með
umræðum um störf þingsins. Kl. 11
er opinn fundur í allsherjarnefnd.
halla@mbl.is
Einar K.
Guðfinnsson
ÞETTA HELST…