Morgunblaðið - 11.11.2008, Síða 24
24 Umræðan
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 2008
ÞAÐ er erfitt að vera bjartsýnn og hafa traust á
stjórnmálamönnum í þessari krepputíð. Sú ákvörðun
Seðlabankans að hækka stýrivexti um 6% hjálpar ekki
til í þessu. Menn hugsa ekki og greinilegt er að það
vantar heildaraðgerðaáætlun um hvernig á að komast
út úr þessum vanda. Enginn gerir sér grein fyrir því
hvaða boðskapur stýrivaxtahækkunin er til lands-
manna.
Nú á að bjóða erlendum fjárfestum með háum vöxt-
um að geyma peningana sína á Íslandi svo að við fáum
gjaldeyri inn í landið. Stjórnvöld vonast til að í kjölfarið
muni gengi íslensku krónunnar batna, sem er mjög
óvíst. Hins vegar er engin spurning að almenningur og
fyrirtæki munu borga vextina fyrir þessa erlendu fjár-
festa. Það voru þessir útgefendur jöklabréfa (glacier
funds) sem komu hruni íslensku krónunnar af stað og á
núna að styrkja þessi félög með þeim afleiðingum að
fleiri íslenskar fjölskyldur og íslenk fyrirtæki fari í
þrot? Mér finnst það ekki.
Við verðum að stíga fram og ræða við skuldunauta
okkar. Þeir hafa átt mikinn þátt í að koma okkur í
þessa aðstöðu. Eigum við að taka lán alls staðar frá til
að standa í skilum og skuldsetja Ísland meira en við
ráðum við? Skattarnir munu hækka talsvert, kaup-
mátturinn minnka hratt og allar tekjur hins opinbera
munu snarminnka með slæmum afleiðingum fyrir heil-
brigðis-, lífeyrissjóða- og menntakerfið sem við getum
verið svo stolt af. Mér finnst það ekki. Erlendu fjárfest-
arnir eiga líka að taka þátt í þessu og þá munu þeir líka
koma okkur til hjálpar ef þeir sjá fram á að þeir geti
tapað miklum fjárhæðum. Játum okkur frekar gjald-
þrota en að reyna að koma okkur út úr þessu með ein-
hverjum aðgerðum sem duga skammt.
Það eru nú ekki nema 60 ár síðan Þýskaland varð
gjaldþrota síðast og út úr því kom öflugasta iðnríki í
heimi. Grundvöllur var aðgerðaáætlun frá Bandaríkja-
manninum George Marshall, sem leiddi reyndar til
kalda stríðsins. Við skulum ekki heldur fara frönsku
leiðina en Frakkar hafa lýst sig gjaldþrota síðustu aldir
í fimm skipti og einfaldlega myrt skuldunauta sína.
Ísland verður að hafa eitthvert plan fyrir næstu árin
þar sem við gerum okkur grein fyrir öllum afleið-
ingum. Mikilvægt er að hafa rauðan þráð sem íslenskir
skattgreiðendur og erlendir lánardrottnar sjá svo að
þeir geti byggt upp traustið til Íslands á ný.
Alexander Eck,
Skógarflöt 26, Akranesi.
Snúum vörn í sókn
ÉG HEF aldrei haft hundsvit á
hlutafélögum eða hlutabréfum. Það
litla sem ég hélt mig hafa haft úr mín-
um barnaskólalærdómi var, að sá
sem ætti hlut í félagi ætti hann.
Svo fór maður að heyra um að fólk
væri að taka út lífeyrissparnaðinn
sinn til að kaupa hlutabréf og hugsaði
að það væri alveg rétt að maður væri
raggeit. Svo kom ávæningur um að
fólk væri að taka lán til að kaupa
hlutabréf og þá var maður enn minnt-
ur á hverslags sjálfsvoluð gunga mað-
ur væri og gamaldags.
Nú fær maður svo að fræðast um
það að menn hafi meira að segja feng-
ið lán hjá hlutafélaginu sem þeir fjár-
festu í til að kaupa þau sömu hluta-
bréf og getað veðsett þau fyrir láninu.
Þegar svo glópur manns spyrst
fyrir um hvort það sé ekki áreið-
anlega bannað í hlutafélagalögum, þá
er svo ekki! Það er ekki bannað!
Og hvort tveggja fært á eignahlið!
Hvað eru innherjaviðskipti? Getur
einhver útskýrt þetta fyrir þessum
skólaskussa?
Annars erum við konan að hugsa
um að stofna hlutafélag og lána hvort
öðru.
Hjalti Þórisson,
kennari.
Ég skal lána
þér svo þú eig-
ir hlut í mér
ÞAÐ er með sorg í hjarta sem
ég sest fyrir framan tölvuna og
rita til ykkar. Upphaflega stóð til
að rita opið bréf til einhvers ráða-
manns en þeir eru ekki að hlusta
nú frekar en endranær.
Þegar ég leit á forsíður dagblað-
anna sem eftir lifa í morgun, sá ég
að Icesave-málið mun draga okkur
niður í torfkofana og halda okkur
þar um ókomna framtíð. Svolítið
dramatískt en svona er nú bara
okkar líf, dramatískt. Það er orðið
ljóst að auðmennirnir sem mokuðu
út peningum hér fyrir nokkrum
árum ætla ekki að gefa þumlung
eftir, flestir þeirra eru nú þegar
flúnir úr landi með gróðann, aðrir
fara huldu höfði með tvo til þrjá
lífverði sér við hlið hér heima. Það
er líka orðið ljóst að stjórnvöld
ætla ekki að krefja þá um að
borga þessar skuldir sjálfir.
Áður hefur verið bent á að höf-
uðpaur Icesave-málsins sé aðaleig-
andi Actavis, fyrirtækis sem metið
er á 800-1.000 milljónir evra.
Hvers vegna í ósköpunum er verið
að leggja þessar byrðir á okkur
sauðsvartan almenning? Hvers
vegna eru stjórnvöld að tönglast á
því að Gordon Brown hafi komið
Kaupþingi í þrot? Það er bara vit-
leysa! Það VAR búið að loka á þær
lánalínur sem hefðu skipt máli fyr-
ir framtíð bankans. Eigendur
Kaupþings komu bankanum í þrot!
Með gegndarlausu, innistæðulausu
peningafylliríi! Sömu sögu er að
segja af Glitni og Landsbank-
anum. Hvers vegna í ósköpunum
fundu þessir menn hjá sér þörf til
að kaupa alla Evrópu? Hvað annað
en græðgi var þar á ferð? Ef eig-
endur bankanna hefðu látið sér
nægja að mestu Ísland, þá værum
við ekki í þessum skít nú! Þess
vegna finnst mér að við eigum að
eyða púðri okkar á eigendur bank-
anna og láta þá bera ábyrgð. Til
hvers vorum við annars að einka-
væða þessa banka? Einu raun-
vörulegu sökudólgarnir í þessu
máli eru lykilstarfsmenn og eig-
endur þessara banka, allir aðrir
eru fyrirsláttur. Jú, það er hægt
að segja að Seðlabankinn hafi ekki
verið nógu sterkur eða krónan of
veik, en það er eitthvað sem bank-
arnir vissu allan tímann!
Nóg er nóg, við getum ekki
endalaust bent á þann sem okkur
þykir verstur.
Óskar Steinn Gestsson,
Kópavogsbraut 14, Kópavogi.
Kæru
Íslendingar
Efnahagsmál og þeir fjárhagslegu erfiðleikar sem blasa við fjölda manns brenna á mörgum.
Morgunblaðinu hefur borist fjöldi greina og pistla þar sem fólk lýsir áhyggjum sínum af þróun mála.
Samfélagsmál
VIÐ EIGUM að semja við Hol-
lendinga um vöruskipti, þá vantar
grjót og jarðveg í
staðinn fyrir skuld-
irnar. Við lækkum
þau fjöll sem þarf að
fara í dýrar snjó-
fljóðavarnir á. Þar
með skapast aukin
vinna á þeim stöðum.
Bretar geta sem dæmi fengið frá okk-
ur tankskip næstu árin með góðu
vatni eða bjór eftir því hvernig liggur
á þeim. Þær þjóðir aðrar sem eiga
peninga hjá okkur fá svipaða af-
greiðslu. Það er til fullt af hlutum sem
við horfum á en höfum ekkert gagn
af. Svo aukum við fiskveiðiheimildir
um 25%. Hættum að hlusta á sér-
fræðinga. Hvert hafa þeir leitt okk-
ur? Við þurfum ekki lán, við erum í
góðum málum án þeirra. Það þarf að
losa sig við þessa getulausu stjórn-
málamenn og embættismenn. Hvert
hafa þeir leitt okkur?
Farið að hlusta á fólkið sem á ekki
bót fyrir boruna á sér en þrælar alla
daga og þið eruð búnir að hafa í ánauð
með glæpsamlegu vaxtaokri. Það eru
ekki Bretar eða Hollendingar sem
eru óvinir okkar. Lítum í eigin barm,
en það er agalega sárt. Hvað höfum
við alltaf kosið yfir okkur?
Byrja á að banna pólitíska flokka
og fækka þingmönnum um helming.
Landið verði eitt kjördæmi. For-
sætisráðherra verði kosinn í beinni
kosningu eins og þingmenn.
Svo að lokum: Guðs blessun yfir
land og lýð.
Kristján Guðmundsson,
Réttarvegi 10, Höfnum.
Nýja Ísland –
tillögur
ÁGÆTI samlandi.
Á þessum umbrotatímum, sem nóg hefur verið
skrifað um, horfum við fram á erfiðan veg til batn-
andi efnahags. Lífeyrir er horfinn, þjóðarbúið hrun-
ið, forsætisráðherra hleypur með
betlibaukinn milli erlendra þjóðhöfð-
ingja og dyr Stjórnarráðsins eru lok-
aðar. Ef einhvern tíma hefur verið
þörf á aukakosningum til Alþingis, þá
er það núna. Vil ég benda á nokkra
hluti þessu tengda.
Núverandi ríkisstjórn fellur ef Sam-
fylkingin slítur samstarfinu. Samfylk-
ingin hefur valdið en nýtir það samt ekki, þrátt fyrir
hörð orð í garð Sjálfstæðisflokksins. Yrði slík stjórn-
arkreppa ærin átylla til aukakosninga og forsetinn
mun ekki geta veitt Sjálfstæðisflokki einum og sér
umboð til stjórnarmyndunar. Samfylkingin hefur
valdið.
Undanfarnir mótmælafundir á Austurvelli, til þess
haldnir að þrýsta á ríkisstjórnina til endurskoðunar
á rekstri Seðlabankans og efna til kosninga, sýna
rétta andann en virka einfaldlega ekki. Og af hverju
ekki? Nú auðvitað fylgja íslenskir ráðamenn einfald-
lega hinni rótgrónu innlendu hefð þegar kemur að
pólitísku fárviðri; þeir segja ekki af sér, heldur sitja
þeir málið af sér. Hvort sem um er að ræða mót-
mælasöngva, baráttuljóð eða þúsund manns með
þekkta söngfugla í fararbroddi, þá mun þetta ekki
bera árangur. Ekki nema meiri kraftur færist í bar-
áttuna.
Ríkisstjórn Íslands starfar ekki í þágu þjóð-
arinnar. Þetta vita þeir sjálfir. Og þeir munu ekki
víkja fyrir þúsund manns, eða þá fimmtán hundruð.
En, ef um tuttugu eða þrjátíu þúsund væri að ræða,
þá yrði staðan kannski önnur.
Hvet ég þá landsmenn sem hafa fengið nóg af
ástandinu til þess að fjölmenna á Austurvöll og ég
meina þá ekki í þúsundum, heldur tugum þúsunda.
Biðla ég til formanna VG og Frjálslyndra að aðstoða
mig í smöluninni. Hvet ég samt alla stjórnarand-
stöðuflokkana til þess að slíðra sverðin og sameinast
gegn Sjálfstæðisflokknum í mótmælagöngu á næstu
dögum. Bara fara á Facebook og stofna til fundar.
Og ef Samfylkingin vill vera með, þá er hún bara
velkomin líka ef Ingibjörg þorir. Er einnig við hæfi
að bjóða löggunni; lögreglumenn eiga líka rétt á
sæmilegum kjörum í ellinni og eiga sömu hagsmuna
að gæta og almenningur. Þeir eiga ekki að vera illa
séð handbendi háttvirts dómsmálaráðherra.
Vil ég taka það fram svona í lokin, að ég undirrit-
aður hef yfirhöfuð engan stjórnmálalegan metnað.
Ég ætla ekki að vera að auglýsa sjálfan mig sem ein-
hvern stjórnmálaspeking, því ég er það ekki. Ég hef
hins vegar ofnæmi fyrir kjaftæði og þegar rík-
isstjórn sem eyddi heilum áratug í að selja helstu
auðlindir og fjármálastofnanir íslenzka ríkisins til
vina sinna og vandamanna og verða þess svo
valdandi að ég og allir af minni kynslóð munu lepja
dauðann úr skel í ellinni, getur hún bara farið öfuga
leið til andskotans. Ég hef minn rétt eins og allir
aðrir.
Arnar Þór Kristjánsson
myndlistarnemi.
Ingibjörg, þú hefur valdið
FORMAÐUR VR og formaður
Lífeyrissjóðs VR tók þátt í hrá-
skinnaleik í banka þar sem ábyrgðir
útvalinna voru látnar ganga eftir
stjórnarborðinu eins og gæra sem
enginn vildi sitja upp með að leiks-
lokum.
Þetta hefur verið rétt eins og í
gömlum hráskinnaleik þegar ábyrgð-
um stjórnenda og starfsmanna var
hent út af borðinu og ábyrgðargæran
afskrifuð. Formaður stærsta verka-
lýðsfélags landsins sem er jafnframt
formaður eins stærsta lífeyrissjóðs
landsmanna getur ekki staðið ósnert-
anlegur eftir þennan gjörning. Það
þýðir lítið að þerra hvarmana eftir á í
viðtölum með yfirlýsingar sem halda
ekki vatni. Hvernig ætlar formað-
urinn til að mynda að höndla ábyrgðir
lánþega hjá VR sem lenda í greiðslu-
erfiðleikum?
Eða þegar gjaldþrot heimila VR-
félaga geta blasað við ef lífeyrissjóð-
urinn þarf að ganga að ábyrgðum
þeirra? Er formaðurinn og fyrrver-
andi bankastjórnarmaðurinn tilbúinn
þá til að afskrifa ábyrgðir sinna eigin
umbjóðenda innan VR á sama máta?
Innan VR sitja sumir hverjir í súp-
unni eftir gjaldþrot banka og fjár-
málafyrirtækja og afleiðinga þeirra
þar sem forystumenn verkalýðs og
lífeyrissjóða léku sín „ábyrgð-
arhlutverk“ sem stjórnarmenn. Fólk
klappar af velvild með lánaframlag
vina í Færeyjum upp 6 milljarða, en
formaður VR og lífeyrissjóðs sama
félags lét sig ekki muna um að sam-
þykkja niðurfellingu ábyrgða upp á
50 milljarða fyrir útvalda á síðdeg-
isfundi. Formaðurinn sótti ekki sér-
fræðiráð til eigin baklands heldur „yf-
irlögfræðings sama banka“! Getur
stærsta launþegafélag landsins sætt
sig við slík „mistök“?
Geta félagsmenn VR og eigendur
Lífeyrissjóðs VR sætt sig við áfram-
haldandi setu núverandi stjórnar sem
hefur lýst yfir að þessi vinnubrögð og
formaðurinn njóti fyllsta trausts allra
stjórnarmanna? Er stjórn VR snar-
galin?
Pálmi Pálmason,
framkvæmdastjóri.
VR á
hálum ís!
NÚ er kreppan, kuldinn og skammdegið að stig-
magnast með hverri vikunni og það eru komnar upp
aðstæður sem hafa ekki verið í áratugi.
Og nú finna sennilega fleiri fyrir andlegri spennu og
örvæntingu en nokkurn tímann áður og þetta er nú
einn versti tími þeirra sem hafa verið í kvíðaröskunum
og nú eru margir í uppnámi og örvæntingu sem ekki
voru í röskun fyrir. Hugsið um ykkar bestu vini og
kostina þeirra en minna um galla hvers og eins.
Ég er sjálfur búinn að þekkja þunglyndi og kvíða í
u.þ.b. 18 ár og oft hef ég verið í örvæntingu og hugsað
um að taka líf mitt. En núna tel ég mig vera nokkuð
heppinn, hef mitt áhugamál sem ólaunaða atvinnu,
allavega síðustu 8 mánuði. Ég er ekki kvíðinn núna
fyrir skammdeginu því að ég er í sérhæfðari bata en
oftast áður, þ.e.a.s. er meira á meðal manna en myrk-
urs og stunda skriftir, sem hefur verið minn mesti
styrkleiki og hæfileiki síðustu ár. Um áramót 9́0-91
hrundi ég inn í myrkur kvíða og þunglyndis í sex víkur
og í framhaldi af því fór að þróast hjá mér nýtt áhuga-
mál: Ég fór að skrifa meira en tala minna og síðan
hafa skriftir verið eitt mitt sterkasta áhugamál. Ég
hvet þig sem ert í kvíðaröskun en finnur ekki leið út
úr því að prófa að skrifa niður orð – flokka í sundur
kostina frá göllunum, efla kostina en reyna að hugsa
um gallana sem aukaatriði. En það getur verið versta
mál að skrifa þetta „heima hjá sér“, en besta mál að
fara t.d. á kaffihús og skrifa þar orð á blað yfir kaffi-
bolla. En ef þú hefur ekki heilsu til að fara á kaffihús í
miðri örvæntingu? Þetta er miklu frekar góð aðferð til
að fyrirbyggja slæmt ástand. En ég hef oft undanfarna
mánuði verið með kvíðahnút af völdum slæmra að-
stæðna eða atvika og lausnin hefur oft verið sú að fara
heim og undir sæng. En mér hefur stundum tekist að
vinna með kvíðann einmitt með því að fara inn á kaffi-
hús, kaupi mér kaffi, sest við borð reyni að byrja að
skrifa eitthvað niður, og viti menn, kvíðinn er horfinn
áður en ég tek eftir því.
Hagfræði hökunnar og hugans, berðu höfuðið hátt
og lyftu undir hökuna eða reyndu það með því að
hugsa um þínar fyrirmyndir og hvað þær hafa gert
best og hver eru bestu áhrif sem þær hafa haft á þig.
Veikleikinn/kvíðinn hefur oft lamandi andleg og þar
með líkamleg áhrif. Það t.d. að hafa löngun til að svala
einhverri fíkn (sama hvaða fíkn það er), en styrkleik-
inn er að ná að yfirbuga fíknarvanda með eðlilegri
ástundun sinna áhugamála, með eða án hjálpar sér-
fræðinga. Þú metur það sjálfur. Og vertu í sem mest-
um tengslum við þá sem eru hvetjandi við þig en ekki
þá sem eru letjandi og taka orkuna frá þér.
Hagfræði hökunnar og hugans er vinna, þjálfun og
stríð, ég hugsa stundum um tvö mjög sterk hugtök til
að komast í gegnum daginn og lífið almennt: Þú þarft
að fara í gegnum helvíti til að upplifa paradís. En ef
þú ætlar beint til paradísar þá verður hún heitasta hel-
víti: – Heima er best, en þar getur líka verið verst.
Reyndu að fara á meðal manna þó að þú hafir engan
til að vera með eða að spjalla við. Kíktu í blöð á kaffi-
húsi ef þú getur ekki einbeitt þér að neinu, þ.e.a.s. ef
þú ert í örvæntingu að horfa út í næsta vegg eða út um
gluggann, og þér finnst allir vera að horfa á þig. En
það gæti nefnilega annar hver maður þarna inni verið
í sama kvíða og þú og verið líka að horfa á þig.
Ath! Þú ert á meðal manna á meðan „en ekki myrk-
urs“.
Atli Viðar Engilbertsson,
fjöllistamaður í geðröskun.
Hagfræði hökunnar og hugans