Morgunblaðið - 11.11.2008, Qupperneq 32
32
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 2008
Sudoku
Frumstig
4 5 9 8
5 3 6
3 7 2 9
4 1 7 8 9
8 4
9 1 4 8 7
2 9 4 6
3 5 8
8 1 2 7
8 9 6
4 8
2 5 4 3
9 2 1
1 6 2 3 9 7
9 5 1
2 1 7 5
3 1
5 4 9
3 7 4
5 4 8 3 7
7
5 7 6
9 6 4 5 8 1
8 6 2
1
9 1 2 5 6
7 1 6
4 8 2 9 1 7 5 6 3
3 9 1 2 6 5 7 4 8
6 5 7 4 8 3 9 1 2
9 2 4 1 7 6 3 8 5
1 7 8 3 5 9 6 2 4
5 3 6 8 2 4 1 7 9
7 6 9 5 4 2 8 3 1
2 1 5 7 3 8 4 9 6
8 4 3 6 9 1 2 5 7
7 6 5 3 1 4 2 8 9
8 1 3 7 2 9 4 6 5
4 9 2 5 6 8 7 1 3
2 5 6 9 8 7 3 4 1
3 8 9 1 4 2 5 7 6
1 7 4 6 5 3 9 2 8
5 4 7 8 3 1 6 9 2
6 2 1 4 9 5 8 3 7
9 3 8 2 7 6 1 5 4
2 3 7 8 1 9 6 4 5
9 1 8 5 4 6 7 3 2
4 6 5 2 3 7 1 8 9
7 8 4 3 5 2 9 6 1
1 2 9 6 7 4 3 5 8
3 5 6 9 8 1 2 7 4
8 7 2 1 6 5 4 9 3
6 9 3 4 2 8 5 1 7
5 4 1 7 9 3 8 2 6
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla út
í reitina þannig að í hverj-
um 3x3-reit birtist tölurnar
1-9. Það verður að gerast
þannig að hver níu reita lína
bæði lárétt og lóðrétt birti
einnig tölurnar 1-9 og aldrei
má tvítaka neina tölu í röð-
inni.
dagbók
Í dag er þriðjudagur 11. nóvember,
316. dagur ársins 2008
Orð dagsins: Ég er Drottinn, það er
nafn mitt, og dýrð mína gef ég eigi öðr-
um né lof mitt úthöggnum líkneskjum.
(Jesaja 42, 8)
Menn eru alltaf að segja Vík-verja brandara ellegar senda
honum þá í tölvupósti. Þar sem
kappinn gleymir þeim öllum jafn-
harðan finnst honum tilvalið að nota
tækifærið og færa þá í letur.
Þessi er t.d. býsna góður:
Par nokkurt hátt á sjötugsaldri
fór til læknis. Læknirinn spurði
hvað hann gæti gert fyrir parið.
Maðurinn svaraði: Viltu horfa á
okkur stunda kynlíf?
Lækninum brá í brún en sam-
þykkti.
Þegar parið hafði lokið sér af
sagði læknirinn: Það er ekkert að
kynlífinu ykkar. Og rukkaði um
4.000 krónur.
Þetta gerðist margar vikur í röð.
Parið pantaði tíma, stundaði kynlíf,
borgaði lækninum og fór.
Eftir nokkur skipti spurði lækn-
irinn: Að hverju eruð þið að reyna
að komast?
Þá svaraði gamli maðurinn:
Engu.
Hún er gift og við getum ekki far-
ið heim til hennar. Ég er kvæntur
og við getum ekki farið heim til mín.
Það kostar 8.000 krónur að gista á
hóteli. Við gerum þetta hér fyrir
4.000 krónur og fáum 3.500 til baka
frá sjúkrasamlaginu!
x x x
Svo var það maðurinn sem til-kynnti konu sinni að kæmi til
þess gæti hann ekki hugsað sér að
vera haldið á lífi með raftæki og
fljótandi fæði. Konan stóð við það
sama upp, slökkti á sjónvarpinu og
hellti niður bjórnum.
Loks er það ljósið í myrkrinu en
óþekktur höfundur mun hafa dregið
saman ástandið í þjóðfélaginu á
þessum síðustu og verstu tímum í
eftirfarandi stöku:
Hugarvíl og harmur dvín
er horfi ég á frúna.
Hún er eina eignin mín
sem ekki rýrnar núna.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 fast tak, 8
gangi, 9 falleg, 10 tölu-
stafur, 11 seint, 13 blóm-
um, 15 reifur, 18 sví-
virða, 21 klók, 22 fetil,
23 endurskrift, 24 sifja-
spell.
Lóðrétt | 2 kjör, 3 láta
hér og hvar, 4 fljót, 5
sterts, 6 asi, 7 veikburða,
12 tíni, 14 tryllt, 15 guðs-
húss, 16 kirtil, 17 vik, 18
kjaftæði, 19 áleiðis, 20
sigaði.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 áþekk, 4 klapp, 7 útrás, 8 afmáð, 9 tík, 11 tíra,
13 frír, 14 meyra, 15 þrot, 17 rusl, 20 ódó, 22 tæmir, 23
dögun, 24 iðrar, 25 lærði.
Lóðrétt: 1 ágúst, 2 eirir, 3 kost, 4 klak, 5 aumur, 6 puð-
ar, 10 ímynd, 12 amt, 13 far, 15 þótti, 16 ormur, 18 ugg-
ur, 19 lungi, 20 órór, 21 ódæl.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 f5 2. g3 g6 3. Bg2 Rf6 4. b3 Bg7 5.
Bb2 0-0 6. Rf3 d6 7. c4 c6 8. 0-0 Da5 9.
Rbd2 He8 10. Dc2 e5 11. dxe5 dxe5 12.
e4 Ra6 13. a3 fxe4 14. b4 Dd8 15. Rxe4
Rxe4 16. Dxe4 Bf5 17. De3 Dd3 18. Hfe1
Dxe3 19. Hxe3 e4 20. Rd4 Had8 21. Rxf5
Bxb2 22. Hb1 Bxa3 23. Hxa3 gxf5 24.
Bf1 c5 25. bxc5 Rxc5 26. Hxa7 Hd6 27.
Ha5 b6 28. Hab5 Hee6 29. H5b2 Kg7 30.
Ha2 Kg6 31. Ha8 Hd2 32. Hg8+ Kf7 33.
Hh8 Kg7 34. Hb8 Rd7 35. Hb7 Kf6 36.
Ha7 h5 37. Ha8 Re5 38. Hba1 Rf3+ 39.
Kg2 e3 40. H8a2
Staðan kom upp á öflugu atskákmóti í
Cap d’Agde í Frakklandi. Sigurvegari
mótsins, bandaríski stórmeistarinn Hik-
aru Nakamura (2.704), hafði svart gegn
franska kollega sínum Sebastien Feller
(2.526). 40. … Re1+! og hvítur gafst upp
enda tapar eftir t.d. 41. Kh3 e2 og 41.
Kg1 exf2+ 42. Kh1 Rc2.
Svartur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Tvöfaldur sigur á Madeira.
Norður
♠754
♥ÁKD9873
♦Á
♣76
Vestur Austur
♠ÁD102 ♠G963
♥5 ♥62
♦94 ♦108765
♣ÁDG1094 ♣52
Suður
♠K8
♥G104
♦KDG32
♣K83
Suður spilar 4G.
Íslenskir spilarar hafa í nokkur ár
fjölmennt til Madeira í nóvemberbyrjun
í þeim tvíþætta tilgangi að sleikja sólina
og taka þátt í alþjóðlegri bridshátíð.
Stór hópur er nýkominn heim úr slíkri
ferð, margir með stóra bikara, því ís-
lenskur sigur vannst í báðum keppn-
isgreinum. Gunnlaugur Sævarsson og
Runólfur Jónsson unnu tvímenninginn,
en sveit Rauðu djöflanna vann sveita-
keppnina (Þröstur Ingimarsson, Her-
mann Lárusson, Júlíus Sigurjónsson og
Ómar Olgeirsson).
Ekki vinnast allar orrustur í löngu
stríði. Runólfur og Gunnlaugur voru í
A-V gegn pari frá Rúmeníu. Suður vakti
á 1♦, Runólfur kom inn á 2♣ og norður
stökk í 4♥. Runólfur barðist í 4♠, en
suður var ekki af baki dottinn, sá gott
skjól í svörtu kóngunum og reyndi 4G!
Allir pass og gulltoppur í N-S.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Láttu engan komast í þína hluti,
nema þú hafir áður gengið úr skugga um
að þú getir treyst viðkomandi. Leyfðu
sjálfstraustinu að njóta sín, því það er þitt
bezta vopn.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Í dag er gott að ganga frá lausum
endum í tengslum við tryggingar, fast-
eignir, erfðaskrár eða skuldir. Margir
myndu vilja baða þig með blessun sinni, ef
þú bara leyfðir þeim það.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þér virðist allt ganga í haginn og
aðrir vilja njóta velgengni þinnar með
þér. Yfirfarðu þær svo þú sért viss um að
allt sé rétt gert.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Leggðu þig fram um að verða við
óskum, sem á þínu færi er að uppfylla.
Hafðu nokkra seðla á reiðum höndum.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú mátt ekki bregðast trausti þeirra,
sem hafa falið þér viðkvæm leyndarmál
sín. Yfirmenn þínir, foreldrar og aðrir yf-
irboðarar eru samvinnuþýðir í dag.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú hefur fundist þú aðþrengd/ur að
undanförnu. Reyndu að hugsa áður en þú
talar, sérstaklega í samskiptum við systk-
ini þín og nágranna.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Það umkringir þig fólk sem vill ekki
bara hjálpa – það þarfnast þess! Þú hjálp-
ar því með því að leyfa því að aðstoða þig.
Sjálfstraust þitt er í besta lagi.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Hversdagsleg stund getur
breyst í algjöra hátíð. Aðeins það trygggir
þér réttlát úrslit og þú hefur engin efni á
öðru eins og sakir standa.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Ekki takast eitthvað á hendur
bara af því að það er áhugavert. Mundu
að örlæti felst í því að veita aðstoð þegar
hennar er þörf.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú ert í stuði til að vera smá
klikkaður og fara yfir strikið. Hristu upp í
hlutunum og vertu djarfur.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Fátt er eins gefandi og að sjá
athafnir sínar leiða til jákvæðra breyt-
inga. Hugulsemin sem þiggjandanum er
sýnd dugar yfirleitt til þess að finna við-
eigandi gjöf.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Oft leynir fólk á sér og býr yfir
miklu meiri hæfileikum og kunnáttu en
virðist í fljótu bragði. Byrjaðu ótrauður
upp á nýtt og talaðu nú tæpitungulaust.
Stjörnuspá
11. nóvember 1907
Grímseyingar héldu í fyrsta
sinn upp á „þjóðhátíðardag“
sinn, en það er fæðing-
ardagur prófessors Willards
Fiske, sem gaf tafl á hvert
heimili í eyjunni og fé til
skólabyggingar.
11. nóvember 1918
Lokum heimsstyrjaldarinnar
fyrri var fagnað víða um
lönd. Í Reykjavík blöktu fánar
þó í hálfa stöng vegna
spænsku veikinnar sem þá
geisaði.
11. nóvember 1968
Seðlabankinn tilkynnti 35%
gengislækkun íslensku krón-
unnar. Hver bandaríkjadalur
kostaði þá 88 krónur. For-
sætisráðherra sagði á Alþingi
að verðmæti útflutnings-
framleiðslunnar hefði minnk-
að um 45% á tveimur árum og
þjóðartekjur á mann um 15%.
11. nóvember 1994
Guðmundur Árni Stefánsson
félagsmálaráðherra sagði af
sér vegna ásakana um mistök
í embætti.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
Ingibjörg
Guðný Jónína
Jónsdóttir til
heimilis í Kjarna-
lundi við Ak-
ureyri er níræð í
dag, 11. nóv-
ember. Hún ætl-
ar að halda upp á
daginn með fjöl-
skyldu sinni og vinum í Kjarna, húsi
NLFÍ við Kjarnalund, milli kl. 17 og
20 í dag.
90 ára
Skúli Skúlason
rektor Háskól-
ans á Hólum
verður fimm-
tugur í dag, 11.
nóvember. Hann
tekur á móti
gestum í Höfða-
borg á Hofsósi
laugardaginn
15. nóvember kl. 21.
50 ára
ÓLAFUR Ólafsson, fyrrverandi landlæknir, er átt-
ræður í dag. Ólafur lauk kandídatsprófi í lækn-
isfræði árið 1957 og dvaldist að því loknu við nám
og störf erlendis næstu 8 árin. Árið 1967 varð
hann yfirlæknir fyrstu rannsóknarstofu Hjarta-
verndar, en tók því næst við embætti landlæknis
árið 1972 og gegndi því starfi í 26 ár. Þá vann
Ólafur fyrir aldraða í ein 8 ár, bæði sem formaður
Félags eldri borgara í Reykjavík sem og hjá
Landssambandi eldri borgara.
Samhliða þessum störfum hefur Ólafur gefið út
fjölmargar greinar og rit jafnt innanlands sem er-
lendis. Hann er hvergi nærri hættur ritstörfum því um þessar mundir
vinnur Ólafur að greinaflokki um heilbrigðisþjónustu og hvernig við
búum að unglingum og eldra fólki. „Það er athyglisverð þróun að
vegna mikils vinnutíma eru það nú unglingarnir og eldra fólkið sem
sjá um heimilin á daginn,“ segir Ólafur. „Til að halda lífsstílnum uppi
þurfum við að vinna 10-15 tímum lengur á viku en nágrannaþjóðir.“
Ólafur segir varla tilefni til mikilla fagnaðarláta þrátt fyrir stór-
afmælið, en hann hyggst þó fagna deginum ásamt konu sinni, Ingu
Marianne Ólafsson, auk nánustu ættingja og vina. una@mbl.is
Ólafur Ólafsson, fyrrverandi landlæknir, 80 ára
Greinaflokkur í vændum
Nýirborgarar
Reykjavík Stefán Bjarki
fæddist 28. júlí. Hann vó
2.925 g og var 49 sm lang-
ur. Foreldrar hans eru
Eva Dís Björgvinsdóttir
og Óttar Karlsson.
Reykjavík Pétur Thomas
fæddist 16. ágúst kl. 12.33.
Hann vó 4.330 g og var 54
cm langur. Foreldrar
hans eru Ósk Pétursdóttir
og Peter Tobias Dye. Þau
eru búsett í London.
Reykjavík Bryndís Tara
fæddist 9. janúar. Hún vó
3.620 g og var 53 sm
löng. Foreldrar hennar
eru Heiðrún Björgvins-
dóttir og Unnar Þór
Gylfason.