Morgunblaðið - 11.11.2008, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. NÓVEMBER 2008
Sími 564 0000
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Smárabíó
Tekjuhæsta mynd allra tíma á Íslandi!
Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó
ef þú greiðir með kreditkorti
tengdu Aukakrónum
SÝND Í SMÁRABÍÓI
ar bíómiðann með Kreditkorti tengdu Aukakrónum!
50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á
BESTA MYNDIN - BESTI LEIKSTJÓRI - BESTI LEIKARI
TILNEFNINGAR
TIL EDDUVERÐLAUNA!10
Ver
ð a
ðei
ns
650
kr.
M Y N D O G H L J Ó Ð
POWERSÝNING
KL 10:15 Á STÆRSTA
TJALDI LANDSINS MEÐ
DIGITAL MYND OG HLJÓÐI
-bara lúxus
Sími 553 2075
www.laugarasbio.is
Sýnd kl. 8 og 10
Sýnd kl. 10
Sýnd kl. 5, 7:30 og 10 POWERSÝNING
Sýnd kl. 6 (650 kr.) m/ íslensku tali
Quantum of Solace 4-5:30-6:30-8-9-10:30 B.i. 12 ára
Quantum of Solace kl. 5:30 - 8 - 10:30 LÚXUS
Quarantine kl. 10:10 B.i. 16 ára
My Best Friend´s Girl kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 14 ára
Reykjavík Rotterdam kl. 5:50 - 8 B.i. 14 ára
Skjaldbakan og Hérinn kl. 3:45 650 kr. fullorðnir - 550 kr. börn LEYFÐ
Lukku Láki kl. 3:45 650 kr. fullorðnir - 550 kr. börn LEYFÐ
OG BORGARBÍÓI
SÝND Í SMÁRABÍÓI
OG HÁSKÓLABÍÓI
SÝND Í SMÁRABÍÓI
“BESTA SPENNUMYND
ÁRSINS HINGAÐTIL.”
- D.Ö.J., KVIKMYNDIR.COM
“…MEÐ BETRI SPENNU-
MYNDUM ÁRSINS!”
-TOMMI, KVIKMYNDIR.IS
,,FRÁBÆR VIÐBÓT VIÐ LENGSTU
KVIKMYNDASERÍU ALLRATÍMA OG
GEFUR NÝLEGUM HASARMYNDUM
EKKERT EFTIR.”
- V.J.V., -TOPP5.IS/FBL
“STANSLAUS KEYRSLA
FRÁ UPPHAFITIL ENDA”
-S.V., MBL
“FYRSTA FLOKKS
BOND-MYND”
- Þ.Þ., DV
Á ÍSLANDI!
Á 4 DÖGUM!
TA OPNUN ALLRA TÍMA Á ÍSLANDI!
TOPPMYNDIN Á ÍSLANDI!
21.000 MANNS Á 4 DÖGUM!
STÆRSTA OPNUN ÁRSINS!
NÆST STÆRSTA OPNUN ALLRA TÍMA Á ÍSLANDI!
Sýnd kl. 6 og 8
STRANGLEGA BÖNNUÐ INNAN 16 ÁRA!
ALLS EKKI FYRIR VIÐKVÆMA!
STRANGLEGA BÖNNUÐ INNAN 16 ÁRA!
ALLS EKKI FYRIR VIÐKVÆMA!
“HROTTALEG MYND EN
SPENNANDI, ÓGNVEKJANDI
OG ÓVÆNT”
- S.V., MBL
“HROTTALEG MYND EN SPENNANDI, ÓGNVEKJANDI OG ÓVÆNT”
- S.V., MBL
RÍFLEGA átján þúsund manns sáu
nýjustu James Bond-myndina,
Quantum of Solace, í kvikmynda-
húsum borgarinnar um helgina. Jón
Gunnar Geirdal, markaðsstjóri
Senu, segir myndina vera þá best
sóttu ef litið sé til fyrstu sýning-
arhelgar myndar á árinu. Hún hafi
til að mynda slegið nýjustu Batman-
myndina The Dark Knight út sem
fæstir bjuggust við að myndi gerast.
Jón Gunnar sagði í viðtali við mbl.is í
gær að í ljósi aðsóknarinnar um
helgina mætti spá því að Quantum of
Solace ætti eftir að slá met Die An-
other Day frá árinu 2002 en hana sáu
65 þúsund Íslendingar á sínum tíma.
Voru vinsældir hennar hér á landi að
miklu leyti því að þakka að hluti
myndarinnar var tekinn hér á landi.
Tekjur af sýningum myndarinnar
um helgina voru tæpar 16 milljónir
króna.
Dans- og söngvamyndin High
School Musical 3 var ágætlega sótt
um helgina og nemur heildarfjöldi
gesta frá frumsýningu um 11.500 en
þar af sóttu tæp 3.000 manns mynd-
ina um helgina. Teiknimyndin Fly
Me to the Moon var einnig ágætlega
sótt af yngri kynslóðinni sína fyrstu
frumsýningarhelgi en rúmlega 1.200
krakkar á öllum aldri sóttu myndina.
Aðsókn að rómantísku grínmyndinni
My Best Friend’s Girl fellur um 50%
á milli vikna en Reykjavík Rotter-
dam stendur í stað og fer heildar-
aðsókn nú að nálgast 24 þúsund
gesti. Hinar tvær myndirnar sem
frumsýndar voru um helgina fengu
slaka aðsókn en ástæða er að vekja
athygli á Rescue Dawn sem er skip-
uð mjög hæfum leikurum undir leik-
stjórn hins merka þýska leikstjóra
Werners Herzog.
hoskuldur@mbl.is
Tekjuhæstu kvikmyndirnar
James Bond slær út
Svarta riddarann
!0!1((/2
((
!
" # $
%"& '
& ( " )* +
,&-./0- , )
1 $ 2 " ) ) 3 4 5
6 6&
-.)7- 8
9 : /
Sívinsæll Daniel Craig og Olga Kurylenko í hlutverkum sínum í nýjustu
myndinni um James Bond, njósnara hennar hátignar.
KVIKMYNDIN Hvernig glata má
vinum og baka sér óvini er byggð á
samnefndri „ævisögu“ Toby Young
þar sem höfundur lýsir reynslu sinni
af blaðamannastörfum hjá glans-
tímaritinu Vanity Fair (nöfnum er
hér breytt, og fulltrúi höfundarins
nefnist Sidney Young), undir rit-
stjórn Graydon Carter, og miklum
hrakförum sínum og starfsafglöpum.
Vanity Fair hefur um nokkurt skeið
verið sérstök blanda „alvarlegs“
tímarits og slúðurrits, en í myndinni
er Young-persónan ráðin til starfa í
hálfgerðu nostalgíukasti ritstjórans
sem vill endurheimta sinn frakka
æskuljóma og sér sitt unga sjálf end-
urspeglast í ruddalegum húmor Sidn-
eys. Allt gengur þó á afturfótunum og
vart er hægt að ýkja hversu illa per-
sóna Sidney á heima í hinu glæsilega
fyrirtækjaumhverfi tímaritsins. Það
er eins og apaköttur hafi verið færður
beint úr dýragarði upp á fimmtándu
hæði í skýjakljúfi, og þar ráðinn í
vinnu við að skrifa greinar um Holly-
wood-stjörnur.
Mörgum kynni að þykja slík lýsing
lofa góðu fyrir gamanmynd, en sú er
því miður ekki raunin. Sid er þvílíkur
bjáni að ómögulegt er að leggja trún-
að á endurfæðingu hans sem fag-
manns, hvað þá vitundarvakninguna
síðar í myndinni. Hvernig glata má
vinum er merkileg blanda af sjálfs-
upphafningu, klisjum, væmni og
ófrumlegri sýn á menningariðnaðinn,
auk þess sem tilraunir til gamansemi
eru almennt misheppnaðar. Um er að
ræða dæmigerða togstreitu sögu-
persónu sem gefur sig út fyrir að vera
gagnrýnin á glamúrmenningu sam-
tímans en getur þó ekki falið aðdáun
sína og löngun til að verða hluti af
slíkri veröld. Myndin leitast svo við að
sýna þroska hetjunnar þar sem hún
lærir að draumaveröldin er í raun
innantómur falsheimur. Gallinn er
hins vegar sá að myndin nær aldrei
sannfærandi tökum á þessari at-
burðarás því sjálf umfaðmar hún
gagnrýnislaust þann heim sem reynt
er að hafna. Ljósið í myrkrinu er
breski grínistinn Simon Pegg, sem
bjargar því sem bjargað verður varð-
andi sína persónu, og stórleikarinn
Jeff Bridges sem er frábær sem
Carter, og skapar persónu sem á
heima í annarri og miklu betri mynd.
Ósannfærandi „Hvernig glata má vinum er merkileg blanda af sjálfs-
upphafningu, klisjum, væmni og ófrumlegri sýn á menningariðnaðinn, . . .“
Fína og fræga fólkið
KVIKMYND
Sambíóin Álfabakka og Kringlunni
Leikstjórn: Robert B. Weide. Aðal-
hlutverk: Simon Pegg, Jeff Bridges, Mich-
elle Fox, Gillian Anderson, Kirstin Dunst,
Thandie Newton. Bretland, 110 mín.
Hvernig glata má vinum og baka sér óvini
(How to Lose Friends and Alienate
People)
bmnnn
Heiða Jóhannsdóttir