Fréttablaðið - 27.04.2009, Qupperneq 2
2 27. apríl 2009 MÁNUDAGUR
HEILBRIGÐISMÁL „Við erum að afla
upplýsinga og fylgjast með, en eins
og málum er háttað er ekki búið
að breyta áhættumatinu. Það eru
engin tilmæli um ferðatakmark-
anir og við erum bara á sama
stigi og þegar varað var við fugla-
flensunni,“ segir Haraldur Briem,
sóttvarnalæknir hjá Landlækn-
isembættinu, um hugsanlegan
svínaflensufaraldur.
Alþjóðaheilbrigðismálastofn-
unin varaði í gær við mögulegum
heimsfaraldri svínaflensu, en ríf-
lega þúsund tilfelli hafa greinst í
Mexíkó síðan í mars og sjúkdóm-
urinn hefur dregið rúmlega 80
manns til dauða. Ellefu manns í
Bandaríkjunum hafa greinst með
flensuna, en enginn látist og átta
skólabörn í New York eru í frek-
ari rannsóknum vegna hugsanlegs
smits.
Svínaflensa er öndunarfærasjúk-
dómur í svínum. Óalgengt er að
veiran smitist úr svínum í menn,
en það hefur þó gerst í nokkrum
tilfellum. Flensan sem er nú að
breiðast út er hins vegar blanda
af svínaflensu, hefðbundinni
inflúensu og afbrigði fuglaflensu
sem hefur hvorki greinst í mönn-
um né svínum áður. „Þegar þeir
voru að finna þessa veiru í fólki
voru engin tengsl manna við svín
svo þetta var greinilega að berast
manna á milli, sem er óvenjulegt
og lyfti brúnum manna,“ útskýr-
ir Haraldur. „Sóttvarnastofnun
Bandaríkjanna er að leggja drög
að því að búa til bóluefni sem virk-
ar á þessa veiru, en það er álita-
mál hvort okkar inflúensubóluefni
virkar á þennan stofn. Þangað til
treystum við á lyf eins og Tamiflu
og Relenza sem virka vel,“ bætir
hann við.
„Við erum tilbúin til að breyta
okkar áætlunum og grípa til ráð-
stafana við heimkomu Íslendinga
frá áhættusvæðum eins og Mexíkó
ef þess þarf. Það eru allir að gera
sitt besta til að fá botn í þetta og
við látum vita um leið og eitthvað
kemur í ljós,“ segir Haraldur, en
upplýsingar má nálgast á heima-
síðu Landlæknisembættisins. - ag
Landlæknisembættið fylgist með svínaflensunni í Mexíkó sem hefur orðið áttatíu manns að bana:
Möguleiki talinn á heimsfaraldri
ÓBREYTT ÁHÆTTUMAT Haraldur segir
engin tilmæli hafa borist um ferðatak-
markanir.
ÍTALÍA Ítalska skemmtiferðaskipið
Melody var hætt komið þegar
sómalískir sjóræningjar gerðu
tilraun til að yfirtaka það undan
ströndum Sómalíu seinnipart
laugardags.
Skipstjórinn, Ciro Pinto,
greindi fréttastofu BBC frá atvik-
inu, en sex ræningjar nálguðust
skipið á hraðbát, skutu á það um
200 sinnum og reyndu að klifra
um borð. Öryggisverðir hleyptu
þá af skotum út í loftið til að
hræða ræningjana og tóku einnig
að sprauta á þá vatni. Nokkrir
farþeganna um borð slógust þá í
leikinn og tóku að henda stólum í
ræningjana, sem að lokum gáfust
upp og flúðu. Enginn særðist í
átökunum, en um 1.500 manns
voru um borð í Melody þegar
atvikið átti sér stað. - ag
Skemmtiferðaskip í hættu:
Yfirbuguðu
sjóræningja
SRI LANKA Uppreisnarmenn tamil-
tígra, sem barist hafa við stjórn-
arher Srí Lanka í norðaustur-
hluta landsins, lýstu einhliða yfir
vopnahléi í gærdag.
Stjórnvöld á Srí Lanka taka
ekki mark á vopnahléinu og segja
algjöra uppgjöf tígranna eina
kostinn í stöðinni.
Uppreisnarmennirnir höfðu
í gær verið króaðir af á tólf fer-
kílómetra svæði. Sameinuðu
þjóðirnar segja um fimmtíu þús-
und óbreytta borgara í sjálf-
heldu í miðri átakalínu hópanna
tveggja. - hhs
Uppreisnarmenn á Srí Lanka:
Boða vopnahlé
MÓÐIR, BARN OG HERMAÐUR Um
fimmtíu þúsund óbreyttir borgarar eru
sagðir í sjálfheldu á milli tamiltígra og
stjórnarhersins á Srí Lanka.
MYND/GETTYIMAGES
Daði, var stuð?
„Það hefði örugglega verið meira
stuð ef Ástþór hefði mætt.“
Daði Pétursson er eigandi sportbars-
ins Classic Rock í Ármúla, en þar hélt
Lýðræðishreyfingin kosningavöku á laug-
ardagskvöld. Samkvæmt Daða lét Ástþór
sjá sig í upphafi kvölds en skilaði sér
ekki til baka eftir sjónvarpsviðtal á Stöð
2, fylgismönnum sínum til nokkurrar
gremju.
LÖGREGLUMÁL Lögreglumenn yfirbuguðu og handtóku
mann í annarlegu ástandi við Bessastaðakirkju í gær.
Maðurinn hafði gengið berserksgang í kirkjunni, brot-
ið glugga og eyðilagt kirkjumuni.
Ekki liggur fyrir hvað manninum gekk til, en talið
er að hann hrjái andleg veikindi. Messu var nýlokið í
kirkjunni þegar hann bar að garði. Enginn var í kirkj-
unni þegar hann fór inn.
Að sögn Örnólfs Thorssonar forsetaritara braut
maðurinn nokkrar rúður í fjórum steindum gluggum
eftir listamennina Finn Jónsson og Guðmund Einars-
son. Þá skemmdi hann margra alda gamla kertastjaka.
Vonast er til þess að hægt sé að laga munina.
Maðurinn var færður í fangageymslur og er búist
við að hann verði yfirheyrður í dag.
Umfang tjónsins liggur ekki fyrir. Tæknideild lög-
reglunnar var að störfum þar í gær og til stendur að
leggja nánara mat á tjónið í dag.
Bessastaðakirkja hefur staðið í núverandi mynd
frá árinu 1796 og er hún meðal elstu steinbygginga á
Íslandi. Sumir munirnir í kirkjunni eru töluvert eldri.
Talið er að kirkja hafi staðið á Bessastöðum í um eitt
þúsund ár. - sh
Karlmaður handtekinn á Bessastöðum eftir að hafa gengið berserksgang:
Braut og bramlaði fornminjar
HANDTEKINN Ekki er vitað hvað manninum gekk til. Hann
streittist á móti við handtöku. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
LÖGREGLUMÁL „Okkur líður ágæt-
lega,“ segir Jón Hannesson, 85 ára
læknir, sem varð fyrir árás tveggja
manna, sem vopnaðir voru hnífum,
á heimili sínu á Arnarnesi í fyrra-
kvöld. Honum og 73 ára konu hans
var haldið í gíslingu af grímuklædd-
um mönnum í hátt í hálfa klukku-
stund á meðan þeir létu greipar
sópa. Jón baðst undan því að tjá sig
frekar um málið í gær, sagði það
afar viðkvæmt og vísaði á lögregl-
una eftir frekari upplýsingum.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglu bönkuðu mennirnir upp á
heima hjá hjónunum í Mávanesi á
tólfta tímanum á laugardagskvöld,
þegar kosningasjónvarp RÚV stóð
sem hæst. Þegar konan kom til dyra
mættu henni tveir grímuklæddir
menn með hnífa. Annar þeirra réðst
á hana og fleygði í gólfið og ruddist
inn. Konan lemstraðist við árásina.
Mennirnir voru klæddir í hettu-
peysur með klúta fyrir vitum sér og
hótuðu hjónunum lífláti ef þau létu
ekki alla fjármuni sína af hendi.
Þeir héldu hjónunum síðan í gíslingu
í 20 til 25 mínútur á meðan þeir stálu
ýmsum munum úr húsinu. Allan
tímann dundu hótanir um líflát og
líkamsmeiðingar á hjónunum.
Meðal þess sem ræningjarnir
stálu var upptökuvél, fartölva, far-
símar, seðlaveski með 60 þúsund
krónum og hringar af fingrum kon-
unnar. Áður en mennirnir hurfu út
í myrkrið skáru þeir á símalínur
svo fólkið gæti ekki haft samband
við lögreglu. Hjónunum tókst hins
vegar að finna gamlan síma sem
þau gátu sett í samband. Úr honum
hringdu þau á hjálp.
Þegar Fréttablaðið fór í prent-
un voru mennirnir ófundnir en allt
kapp lagt á að hafa hendur í hári
þeirra, enda málið litið mjög alvar-
legum augum.
Friðrik Smári Björgvinsson,
yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni
á höfuðborgarsvæðinu, segir málið
nær fordæmalaust hér á landi. „Ég
man ekki eftir því að áður hafi
verið ruðst svona inn á blásaklaust
fólk og svona aðfarir viðhafðar,“
segir hann. Friðrik segir að „engin
spurning“ sé um að farið verði fram
á gæsluvarðhald þegar og ef menn-
irnir nást.
Mennirnir eru 18 til 24 ára.
grannvaxnir, um 180 sentimetrar á
hæð, íslenskir og voru dökkklæddir
þegar árásin átti sér stað. Lögregla
hvetur þá sem urðu varir við grun-
samlegar mannaferðir á Arnarnesi
á laugardagskvöld að hafa samband.
stigur@frettabladid.is
Rændu gömul hjón
og skáru á símalínur
Grímuklæddir menn ruddust inn á heimili eldri hjóna á Arnarnesi og héldu
þeim í gíslingu. Þeir hótuðu að myrða hjónin með hnífum og rændu meðal
annars hringum af fingrum konunnar. Okkur líður ágætlega, segir maðurinn.
FÓLK Nítján ára stúlku var bjarg-
að úr sjálfheldu ofarlega í Vífils-
felli um áttaleytið í gærkvöldi.
Að sögn Jónasar Guðmundsson-
ar í aðgerðastjórn björgunar-
sveita var stúlkan orðin köld og
hrædd þegar hún fannst en hún
hringdi eftir hjálp um fimm-
leytið.
„Stúlkan var ein á ferð og labb-
aði venjulegu leiðina á Vífilfell
en fór niður aðra leið sem hún
fór út af og lenti í sjálfheldu.
Við vorum lengi í símasambandi
við hana og hún reyndi að lýsa
aðstæðum þar til rafhlaðan í
farsímanum hennar rann út,“
segir Jónas.
Stúlkunni var svo bjargað um
borð í þyrlu en sigmaður björg-
unarsveitarinnar hífði hana um
borð. - ag
Lenti í sjálfheldu á Vífilsfelli:
Bjargað kaldri
og hræddri um
borð í þyrlu
MÁVANESIÐ Ekki liggur fyrir hvort hjónin urðu fyrir
valinu af tilviljun einni saman eða hvort ræningjarnir
höfðu skipulagt hvar þeir hygðust banka upp á - og
ryðjast síðan inn. FRÉTTABLAÐIÐ / STEFÁN
GÆTU FENGIÐ MARGRA ÁRA FANGELSI
Friðrik Smári Björgvinsson yfirlög-
regluþjónn segir að mennirnir hafi
með athæfi sínu gerst sekir um brot
gegn fjölmörgum hegningarlögum.
Meðal þeirra eru:
■ Húsbrot
■ Líkamsárás
■ Hótanir
■ Frelsissvipting
■ Rán
Friðrik segir erfitt að gera sér í hugar-
lund hver refsingin yfir mönnunum
verður, en segir ljóst að þeir gætu átt
yfir höfði sér nokkurra ára fangelsis-
vist.
SVEITASTJÓRNARMÁL Sameining
sveitarfélaganna Akureyrar og
Grímseyjar var samþykkt með
nokkrum meirihluta í atkvæða-
greiðslu á laugardag. Kosningin
fór fram samhliða kosningum til
Alþingis.
Kosið var á báðum stöðum
á laugardag. Var sameining
samþykkt með 69 prósentum
atkvæða á Akureyri og 88 pró-
sentum atkvæða í Grímsey.
Um 17.500 íbúar búa á Akur-
eyri en Grímseyingar eru um
níutíu talsins. Þegar mest var
bjuggu um 120 í eynni. - kg
Kosning á Norðurlandi:
Grímsey sam-
einast Akureyri
SPURNING DAGSINS