Fréttablaðið - 27.04.2009, Blaðsíða 15
27. APRÍL 2009
Eignamiðlun hefur til sölu
nútímalegt og fallegt tvílyft
funkis-raðhús sem byggt er á
skjólsælum stað á Arnarnes-
hæð. Húsið er ýmist klætt flís-
um eða báraðri álklæðningu
sem gefur því nútímalegt útlit.
A llur frágangur hússins að utan tryggir lágmarks-viðhald. Húsið er 232 fer-
metrar að stærð. Gengið er inn í
húsið á neðri hæð. Hún skiptist í
forstofu og út frá miðjugangi er
sameiginlegt fjölskyldurými; eld-
hús, borð- og setustofa, alls um
fimmtíu fermetrar. Útgengt er
um stóra rennihurð út á verönd
og áfram út í garð. Á neðri hæð-
inni er einnig baðherbergi,
geymsla og bílskúr sem í er inn-
angengt.
Á efri hæðinni eru þrjú mjög
stór svefnherbergi og þar af eitt
með fataherbergi. Einnig baðher-
bergi, þvottahús og sjónvarps-
herbergi. Við hönnun hússins var
gert ráð fyrir að mögulegt væri
að loka þessu rými af sem fjórða
herberginu. Á efri hæð eru einnig
tvennar svalir, frá hjónaherbergi
til austurs og sjónvarpsherbergi
til vesturs. Handrið á svölum eru
úr hertu gleri.
Opið hús verður að Árakri 26
í Garðabæ í dag á milli klukkan
17 og 18.30, þar sem sölumenn
Eignamiðlunar kynna nokkur
glæsileg ný raðhús á góðu verði.
Verð á húsunum er frá 39,6
milljónum tilbúin til innréttingar.
Fullbúin hús með gólfefnum eru
frá 51,6 milljónum.
Raðhús á Arnarneshæð
Opið hús verður að Árakri 26 í Garðabæ í dag milli klukkan 17 og 18.30.
Bogi
Pétursson
lögg. fasteignasali
Finnbogi
Hilmarsson
lögg. fasteignasali
SÍMI 5 900 800
Ólafur B. Blöndal, löggiltur fasteignasali.
fasteignir
Auglýsingasími
– Mest lesið