Fréttablaðið - 27.04.2009, Blaðsíða 32
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Gerðar Kristnýjar
Í dag er mánudagurinn 27. apríl,
117. dagur ársins.
5.14 13.25 21.39
4.47 13.10 21.35
Opið 07 til 01
Lyfja Lágmúla
- Lifið heil
www.lyfja.is
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
2
9
0
7
1
Ljúfa
Evrópa!
Sumar 2009
með ánægju
Garda-vatnið 22.–29. júní
Verð á mann í tvíbýli:
139.900 kr.
Fararstjóri: Lilja Hilmarsdóttir
Alicante
Bologna
Álaborg
Gautaborg
Billund
Stokkhólmur
Kaupmannahöfn
Genf
London
París
Berlín
Reykjavík
Akureyri
Eindhoven Frankfurt Hahn
FriedrichshafenBasel
Kraká
Varsjá
Barcelona
Verð á mann í tvíbýli:
129.900 kr.
Fararstjóri: Lilja Hilmarsdóttir
Innifalið: Flug með sköttum og öðrum greiðslum,
akstur til og frá flugvelli, gisting á góðu 3* hóteli
með hálfu fæði (morgun- og kvöldverði) og íslensk
fararstjórn.
Innifalið: Flug með sköttum og öðrum
greiðslum, akstur til og frá flugvelli, gisting á 4*
Hotel Baren með fullu fæði allan tímann og
íslensk fararstjórn.
Sæluvika í Svartaskógi 22.–29. ágúst
Innifalið: Flug með sköttum og öðrum greiðslum,
akstur til og frá flugvelli, gisting á 4* hóteli með
morgunverði og íslensk fararstjórn.
Eldri borgara ferð til Berlínar 11.–14. september
Verð á mann í tvíbýli:
79.900 kr.
Fararstjóri: Lilja Hilmarsdóttir
Nánar á expressferdir.is
eða í síma 5 900 100
Evrópa hefur allt til alls
Það er löngu orðið tímabært að bregða sér í frí til Evrópu.
Hvort sem þú vilt njóta fjölbreytileika stórborganna, leigja bíl og
láta ímyndunaraflið ráða för eða bara slaka á í sólinni, þá hefur
hún Evrópa allt fyrir þig og þína. Iceland Express býður flug til 18
áfangastaða, vítt og breitt um Evrópu, svo það er spennandi
ferðasumar framundan!
Bókaðu draumaferðina þína á www.icelandexpress.is
Dúfur geta náð hjartslættin-um upp í 600 slög á mínútu
og haldið honum þannig í allt að
16 klukkustundir án hvíldar. Þetta
kom fram í frétt Ríkisútvarpsins
fyrir skömmu. Margir kannast
eflaust við þessa líðan. Óttinn við
að þjóðfélagið sé endanlega að fara
í bál og brand laumast að fólki og
hjartslátturinn keyrist upp. En það
er víða bágborið ástand í heimin-
um, svo sem Simbabve. Annað er
ekki að sjá á fréttunum sem mér
berast frá vini mínum, skáldinu
Togara. Hann býr á bóndabæ með
mömmu sinni og kemst örsjaldan
á ljóðahátíðir úti í heimi.
ÞAÐ þarf jú að mjólka og heyja
því eflaust er sama umstangið í
kringum simbabveskar kýr og þær
íslensku. Í vetur var ein kusan úr
hjörðinni hans Togara síðan myrt
með köldu blóði. Ég gerði því skóna
að ljón hefði verið að verki. Það er
svo afrískt. Það reyndist samt ekki
raunin, heldur hafði mannshönd-
in komið þar nærri. Fólk sveltur
þarna suður frá og þá falla kýrnar
jafnört og húskarlarnar í Njálu.
Þrátt fyrir að Togara megi ekki
hafa augun af hjörðinni gaf hann
sér tíma til að sjá sjónvarpsviðtal
við íslenska forsætisráðherrann,
líklega Geir, og er því viðræðu-
hæfur um íslenskt efnahagslíf.
SAMT finnst mér eins og honum
þyki ekki mikið til þrenginga
okkar koma miðað við þær sem
landar hans glíma við. Og þegar
maður horfir á lífið með dökku
augunum hans Togara sér maður
hvernig möguleikarnir fleygja
sér bókstaflega í veg fyrir mann.
Eins og Ríkisútvarpið skýrði
frá um daginn hefur bréfdúfna-
rækt aukist á Íslandi síðustu árin.
Tekið var fram að tuttugu manns
stunduðu hana og það eru nú bara
heil 0,0067% þjóðarinnar. Í frétt-
inni var sagt frá því að steggur-
inn lægi líka á eggjunum og parið
skiptist á um að gefa ungunum
dúfnamjólk. Ekki grunaði mig að
til væri dúfnamjólk en maður er
alltaf að læra eitthvað nýtt.
DÚFUR þykja herramannsmatur
sums staðar í Evrópu. Í Frakklandi
fúlsar að minnsta kosti enginn við
góðri dúfnasteik sem borin er fram
í rauðvínssósu með gulrótum, lauk,
steinselju og blóðbergi. Þetta eru
tímar tækifæranna. Sleppum dúf-
unum við sendiferðirnar og förum
að fita þær. Við erum ekki stödd
í Bróðir minn ljónshjarta þar sem
dúfur bera boð á milli Kirsuberja-
dals og Þyrnirósadals. Frétt Ríkis-
útvarpsins um dúfnaeldið eru lítið
annað en dulin skilaboð um að á
landinu sé nóg til átu. Þetta er allt
spurning um víðsýni.
Pigeon aux
petits pois